Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.09.1998, Síða 18

Frjáls verslun - 01.09.1998, Síða 18
SÝNISHORN AF ,Við eigum kvótann! Hann keyrir núna herferð fyrir útgerðarmenn... ÓLAFUR RAGNAR GRIMSSON ... var ímyndarfrœðingur Ólafs Ragnars Grímssonar i forsetakosningumnn ... ... oghefur w.rið áróðursmeistarí mjólknriðnaðarins ttm árabil. talsverðum vinsældum en Gunnar Steinn seldi fyrirtækið, nýir eigendur náðu þó ekki að halda siglingunni lengi áfram. Gunnar Steinn stofnaði einnig bókaútgáf- una Nótt, ásamt æskuvini sínum Herði Sigurðarsyni, árið 1985. Þeir félagar gáfu út fjórar ágætisbækur sem seldust þó fremur treglega og segir sagan að Gunn- ar Steinn hafi strax á annan í jólum endur- skirt fyrirtækið og kallað það “bókaútgáf- una Svartnætti” um leið og hann sór þess dýran eið að koma ekki nálægt bókaút- gáfu framar! GBB auglýsingaþjónustan gekk hins vegar afar vel og munaði bæði um sterkan kúnnalista Auglýsingaþjónustunnar og ágæta fjárhagsstöðu GBB. Nafnbreytingin yfir í Hvíta húsið undirstrikaði vel heppn- aða sameiningu enda þótt fyrirtækið fengi sinn skammt af þrengingum nokkrum árum síðar. Gunnar Steinn var á þessum árum virkur þátttakandi í alþjóðlegu sam- starfi auglýsingastofa og kynntist þar nýj- um straumum í faginu. Hann varð sérstak- lega áhugasamur um samverkandi þætti auglýsinga og almannatengsla (PR) og var drifflöðrin í stofnun almannatengslafyrir- tækisins Athygli, sem Hvíta húsið var stór hluthafi í til að byrja með. Um svipað leyti var Gunnar Steinn í fararbroddi hóps áhugamanna og ijárfesta sem hugðust stofna nýtt dagblað á grunni Þjóðviljans, Alþýðublaðsins, Timans og Sjónvarpsvísis Stöðvar 2 og einungis hársbreidd munaði að nýr “morgunblaðsrisi” liti dagsins ljós eftir mikla og vandaða undirbúningsvinnu. EINN FYRIR ALLA Hugur Gunnars Steins var því kominn á víðara svið en rekstur venjulegrar auglýs- ingastofu byggðist á. PR-verkefnum hans íjölgaði og að því kom að hann steig skref- ið til fulls, sagði skilið við félaga sína í Hvíta húsinu árið 1994 og haslaði sér nýjan völl sem ráðgjafi á sviði kynningarmála. I árs- byrjun 1995 stofnaði hann einkahlutafélag- ið GSP-almannatengsl, seldi um 30% hlut sinn í Hvíta húsinu til samstarfsmanna sinna þar og flutti sig niður á næstu hæð fyrir neðan Hvíta húsið í Brautarholti 8. Þar rak hann starfsemi sína til að byrja með í einu rúmgóðu herbergi á bak við nuddstofu sem þarna var til húsa en síðan keypti hann þennan hluta hæðarinnar og endurskipulagði utan um rekstur sinn. Upphafleg hugmynd hans var að starfa þar nánast einn og vinna við ráðgjöf og al- mannatengsl í víðum skilningi orðsins. Síð- an ætlaði hann að fá einstakar auglýsinga- stofur til samstarfs um einstök verkefni eft- ir því sem hentaði hverju sinni því auglýs- ingastofur eiga allar sína sfyrkleika og veikleika. Ágætlega heppnað samstarf var við Hvíta húsið um mjólkurauglýsingar en þegar viðskiptavinum GSP ljölgaði sáu auglýsingastofur sæng sína uppreidda og settu honum stólinn fyrir dyrnar. Sáu þær fram á að ef fram héldi sem horfði gæti Gunnar Steinn leyst til sín umtalsverð við- skipti og knúið stofurnar til að vinna með afsláttarkjörum sem í senn rýrðu afkomu auglýsingastofanna og drægju úr vægi þeirra sem ráðgjafa um markaðs- og kynn- ingarmál. A sameiginlegum fundi er talið að auglýsingastofurnar innan SIA hafi sammælst um að hafha samstarfi við GSP. Afleiðingarnar eru þær að í dag starfa yfir 20 manns fyrir GSP almannatengsl og lík- ist fyrirtækið stöðugt meira hefðbundinni auglýsingastofu í stað þess smávaxna ráð- gjafafyrirtækis sem Gunnar sá fyrir sér í upphafi. Kunnugir segja reyndar að Gunn- ar Steinn sé meiri aðdáandi góðra auglýs- inga en hann vill vera láta og að þrátt fyrir allt séu það mjólkurauglýsingar margra undanfarinna ára sem hann sé ánægðastur með á faglegum grunni. Sérstaklega er Gunnar stoltur af hugmyndinni um að láta Mjólkursamsöluna taka íslenskt mál upp á sína arma og þar á hann sér drauma um fjölmörg ný viðfangsefni á komandi árum. GUNNAR STEINN 0G FORSETINN Af öðrum ráðgjafarverkefnum er eng- inn vafi á að það sem hann er persónulega stoltastur af er starf hans við framboð Olafs Ragnars Grímssonar til forseta 1996. Gunnar Steinn þekkir Olaf Ragnar ffá fornu fari en við þetta verkefni var hann hugmyndafræðingur á bak við kynningu, framkomu og auglýsingar. Þetta fól í sér að meðan kosningabaráttan stóð yfir sat Gunnar í sérstöku herráði ffamboðsins sem hittist á hverjum degi. Asamt Olafi Ragnari og Gunnari áttu sæti þar Einar Karl Haraldsson og Mörður Arnason, fyrr- verandi ritstjórar Þjóðviljans. Þannig var Gunnar Steinn sá eini í herrráðinu sem ekki hafði setið í ritstjórastól Þjóðviljans. Þeir sem fylgdust með kosningabaráttunni muna ef til vill að mjög var vegið að forseta- efninu vegna pólitískrar fortíðar þess. Við- brögðin voru jafnan á þann veg að menn sögðust vilja tala um ffamtíðina en ekki for- tíðina. Menn Olafs tóku aldrei upp neinn af þeim stríðshönskum sem kastað var til þeirra. Þetta segja menn að hafi verið lyk- illinn sem Gunnar Steinn lagði til og þurfti 18

x

Frjáls verslun

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.