Frjáls verslun - 01.09.1998, Blaðsíða 53
MARKAÐSMÁL ■■■■■■^^^^^^^H
þessum markaði bókhalds- og rekstrarkerfa á íslandi hafa
tvö kerfi aðallega bitist um markaðinn síðustu árin;
Concorde og Navision Financials. Þar kveður mest að sex
hugbúnaðarhúsum. Á Navision-vængnum eru það Navís-
Landsteinar, Strengur og Tölvumyndir. Á Concorde-hlið-
inni eru það Þróun, Tæknival og Hugur-forritaþróun,” seg-
ir Þorsteinn Guðbrandsson. 59
OPIN KERFIA MIKLUM DAMPI
að fyrirtæki, sem var með þriðju mestu veltuaukn-
ingu á síðasta ári, var Opin kerfi. Heildarvelta fyrir-
tækisins var rúmur 2,1 milljarður í fyrra og jókst
hún um 132% á milli ára. Þessa aukningu má að nokkru
leyti rekja til kaupanna á meirihlutanum í Skýrr á árinu
1997 en við það fór velta Skýrr inn í samstæðureikning Op-
inna kerfa, eins og gerist um dótturfélög. Engu að síður
jókst velta móðurfélagsins sjálfs, Opinna kerfa, um 37% á
síðasta ári og fór úr 886 milljónum í 1.210 milljónir. For-
stjóri Opinna kerfa er Frosti Bergsson en hann er jafnframt
annar stærsti hluthafinn í fyrirtækinu; með um 25% hlut.
„Kaupin á Skýrr hafa heppnast vel,” segir Frosti. „Þeg-
ar við keyptum 51% hlut okkar í fýrirtækinu á árinu ‘97 var
það nýkomið út úr miklu tapári en það tapaði um 67 millj-
ónum á árinu ‘96. Með aukinni hagræðingu og skýrari
markmiðum tókst að snúa dæminu við og ná um 33 millj-
óna króna hagnaði í fýrra. Þetta var viðsnúningur upp á um
100 milljónir og hann náðist þrátt fýrir miklar afskriftir á ár-
inu.”
ÁFRAMHALDANDIVÖXTUR!
Að sögn Frosta er útlit fyrir verulegan vöxt hjá Opnum
kerfum á þessu ári. Fyrstu sex mánuðina var um 35% veltu-
aukning hjá móðurfélaginu og búist er við að hún verði ívið
meiri á öllu árinu. I áætlunum fýrir Skýrr er gert ráð fýrir
að veltan fari úr 920 milljónum í um 1,1 milljarð og virðist
það ætla að ganga eftir. Jafnframt að hagnaður Skýrr verði
um 50 milljónir á árinu.
En hver skyldi ástæðan vera fyrir svo miklum vexti Op-
inna kerfa samstæðunnar? „Það er mikill vöxtur í tölvu- og
upplýsingageiranum. Það á jafnt við um sölu á þjónustu og
vélbúnaði. Okkur vantar fólk og við fáum raunar ekki það
fólk sem við þurfum á að halda. Auk þess höfum við unnið
ýmis stór útboð á árinu og við njótum þess að vera með
góða vöru.”
KAUPIN Á 39% í TÆKNIVALI
Opin kerfi hafa ekki aðeins fjárfest í Skýrr á síðustu
misserum heldur hefur fyrirtækið einnig keypt í ACO,
Efnahagsumræða
á traustum grunni
Traustar heimildir eru nauösynlegur grunnur fyrir vandaða
umræðu um efnahagsmál. I ritum Seðlabanka islands eru
birtar upplýsingar, greinargerðir og álit um hina ýmsu
þætti sem snerta gang efnahagsmála:
I Hagtölum mánaðarins eru birtar upplýsingar í tölum.
myndum og stuttum greinum um peninga- og lánamál,
verðlag, gengi og vexti, viðskipti við útlönd og erlendar
skuldir, fjármál hins opinbera, framleiðslu, fjárfestingu
og atvinnu.
Fjármálatíðindi miðla niðurstöðum rannsókna á sviði
efnahagsmála og eru vettvangur fyrir faglega umræðu
og skoðanaskipti um efnahagsleg úrlausnarefni.
I efnahagsumræðunni er vitnað til þessara rita.
Pantaðu áskrift eða kynntu þér efnið á heimasíðu þankans.
Áskriftarsíminn er 569 9785
SEÐLAB ANKI
ÍSLANDS
KALKOFNSVEGI I 150 REYKJAVÍK
SÍMI569 9600 BRÉFASÍMI569 9605
NETFANG: sedlabanki@sedlabanki.is
VEFFANG: http://www.sedlabanki.is
53