Frjáls verslun - 01.09.1998, Blaðsíða 44
Páll Sigurjónsson forstjóri Istaks hefur starfað hjá Jýrirtœkinu frá upphafi eða í tæp 30 ár.
Hann stendur hérfyrirframan inntaksmannvirki á Sultartanga. FV-myndir: Geir Olafsson.
að eru alltaf spennandi stundir
þegar tilboð eru opnuð,” segir
Páll Sigurjónsson, forstjóri Istaks.
Fyrirtækið er núna orðið stærsta verktaka-
fyrirtæki landsins - og hefur skotið
risanum, Islenzkum aðalverktökum, aftur
fyrir sig. Saga Istaks er orðin 28 ára. Það
var stofnað árið 1970. Páll segir að
fyrirtækið hafi lifað svo lengi vegna þess
að það hafi sýnt hóflega
gætni í tilboðum. „Það er
betra að fá ekki verkefni
en reikna sig niður úr öllu
valdi!”
ístak hefur tekið þátt í uppbyggingu á
Islandi og mörg verkefni sem ístak hefur
tekið að sér hafa markað tímamót með ein-
um eða öðrum hætti. Hér yrði of langt mál
upp að telja allt það sem Istak hefúr byggt
en frá síðustu árum nægir að nefna jarð-
göng á Vestfjörðum og síðar undir Hval-
fjörð, byggingar á borð við Ráðhús Reykja-
víkur og virkjanaframkvæmdir af margvís-
legu tagi. Istak steypti upp
flugstöð Leifs Eiríkssonar.
Einnig mætti nefna hús-
byggingar, brýr, háspennu-
línur og hafnir en Istak
TEXTI:
Páll Ásgeir Ásgeirsson
tekur að sér allt sem krefst tækniþekking-
ar og verkkunnáttu.
Istak er samkvæmt samantekt Fijálsrar
verslunar um 100 stærstu fyrirtæki á Is-
landi, stærsta verktakafyrirtækið árið 1997
og er það í fyrsta skipti sem Istak nær
þeirri stöðu. Arið 1997 velti Istak rúmum
4,2 milljörðum og jókst veltan um 89% milli
ára sem skýrist einkum af þeim stóru verk-
efnum sem fyrirtækið vann við á árinu. 184
milljóna hagnaður fyrir skatta varð af
rekstrinum.
I dag eru 10-12 verkefhi stór og smá í
deiglunni hjá Istaki. Það stærsta er bygg-
ing Sultartangavirkjunar en meðal smærri
verkefna eru t.d. innrétting efstu hæðar-
innar í Skúlatúni 4 þar sem Istak er að auka
við skrifstofuhúsnæði sitt. Um þessar
mundir eru um 400 manns á launaskrá fyr-
irtækisins en fastir starfsmenn eru kring-
um 90.
Istak hefur nokkra sérstöðu á islensk-
um markaði þegar kemur að eignarhaldi.
BETRA AÐ
Páll Sigurjónsson,
„Þaö er
Fyrirtækið er 90% í eigu danska verktaka-
fyrirtækisins E. Pihl&Sön en 10% eru í
eigu fyrirtækisins sjálfs, Páls Sigurjóns-
sonar forstjóra og Jónasar Frímannssonar
yfirverkfræðings. E. Pihl&Sön er gamal-
gróið fyrirtæki sem hefur höfuðbækistöðv-
ar sínar í Danmörku en var á síðasta ári
með framkvæmdir í 14 löndum. Það ár
velti fyrirtækið rúmum 13 milljörðum ís-
lenskra króna. E. Pihl&Sön er að mestu
leyti í eigu eins manns, Sörens Langvads
(sjáramma).
„Það má segja að á þeim tæplega 30
árum sem Istak hefur starfað hafi orðið
gjörbylting í framkvæmdum á íslandi en
um það leyti sem fyrirtækið er stofnað fer
að verða nokkur samfella í opinberum
framkvæmdum á Islandi en fram til þess
hafði mikið skort á það,“ sagði Páll Sigur-
jónsson forstjóri Istaks í samtali við Fijálsa
verslun.
„Það má segja að þáttaskil hafi orðið
44