Frjáls verslun - 01.09.1999, Qupperneq 9
Fyrirtœkið Fraktlausnir valdi húsgögn frá IKEA á skrifsofuna. Hér sjást vel gráu
draghurðirnarsem hœgt erað renna fyrir skápana. Yfirskápnum erskúffueining með punnum
skúffum sem henta fyrir margs konar hluti sem geyma parfá skrifstofunni.
Miklar kröfur eru nú orðið gerðar
til skrifstofustóla. Benda má á þrjár
tegundir sem fást í IKEA, Procent,
Nominell og Maximal. Stólarnir eru
mismikið stillanlegir og einnig mis-
þungir en allir framleiddir með það í
huga að starfsmanninum líði vel þar
sem hann situr við vinnu sína og að
hann geti lagað stólinn að eigin
þörfum.
ta borð gæti
fyrir fámenna fundi, en pað
/ I nrr líin í hlfíMfl.
Skilrúm
fjögurra skúffu einingarnar ná ekki alveg upp
að borðplötunni og hentar vel að koma þar til
dæmis fyrir prentara. Einnig eru til sérstakar
skjalagrindur á hjólum og skjalagrindur í
neðstu skúffu skúffueininganna.
Úrvalið af EFFEKTIV hillum og skápum er
mikið. Djúpar bókahillur fyrir möppur eru
nauðsynlegar á öllum skrifstofum sem og
minni hillur undir bækur og fleira. Margir vilja
einnig hafa lokaðar og jafnvel læstar hirslur.
Af þeim eru til margar útfærslur, meðal ann-
ars í hinum svokölluð EFFEKTIV hlaðeiningum.
Neðsta einingin er þá 59 sentímetra há og
með sökkli en ofan á hana er hlaðið 40 sentí-
metra háum einingum. Tala þeirra fer að sjálf-
sögðu eftir þörfinni hverju sinni. Þessar ein-
ingar eru til bæði með eða án hurða. Hurðirn-
ar fást i litum; bláar, grænar, rauðar, svartar
og beinhvítar og síðan má fá svartar eða grá-
ar veltihurðir. í sumum tilfellum er mögulegt
að læsa skápunum. Skúffueining-
um má hlaða saman í tengslum
við hlaðeiningakerfið. Rétt er að
taka fram að höldur á skúffur og
skápa fylgja og eru í gráum lit. Við
enda skápa og hlaðeininga má
bæta sérstakri, staflanlegri boga-
horneiningu þannig að rýmið nýtist
sem best um leið og yfirbragðið
verður mýkra.
Loks má ekki gleyma 50 sentí-
metra djúpum skáp með veltihurð
sem margir velja fyrir minni tölvur,
prentara, Ijósritunarvél, faxtæki og
ýmislegt annað sem þeir vilja hafa
inni í lokuðum skáp. Gat er á sökkli
skápsins og til þess ætlast að raf-
magnsleiðslur séu dregnar þar út svo
hægt sé að setja tækin í samband.
Aukahlutir
Ótrúlegt úrval aukahluta fyrir skrifstofuna fæst í skrifstofudeild
IKEA. Þessir smáhlutir auka á þægindi þeirra sem á skrifstofunni
vinna. Sem dæmi má nefna snúrugrind sem fest er neðan í borðplöt-
una. í grindinni liggja svo snúrur frá tækjunum á borðinu í stað þess
að hanga niður á gólf. Á borðplötuna má skrúfa stand fyrir tölvuskjá-
inn og undir hann má festa útdraganlega lyklaborðshillu. Tímarita-
möppur og bakkar fyrir allt sem hugsast getur eru að sjálfsögðu í rétt-
um stærðum og falla inn í skúffur og skápa EFFEKTIV skrifstofuhús-
gagnalínunnar.
í flestum fyrirtækjum þykir nauðsynlegt að hafa fundarborð og það
fæst að sjálfsögðu í stíl við aðrar innréttingar. Fundarstólar eru einnig
í úrvali og fætur þá bæði til í stíl við plöturnar eða fætur borðanna og
velja má áklæði í einum fimm litum.
létt skilrúm til þess að hver og
einn starfsmaður njóti hæfilegs
næðis. IKEA hefur nýverið fengið PASTILL skilrúm 110 og 140 sm há
og 84 og 60 sm breið og væntanleg eru 45 sm breið og bogadregin
skilrúm. Þau eru hvít en hægt er að mála þau i til dæmis sama lit og
skáphurðirnar á skrifstofunni og einnig munu verða til sérstakar plöt-
ur i lit sem hægt verður smella utan á skilrúmin.
Þegar viðskiptavinurinn hefur sagt starfsmönnum húsgagnadeild-
arinnar hverjar þarfir hans séu og hvaða kröfur hann geri til búnaðar
skrifstofunnar koma þeir með lausnir sem gera honum kleift að skapa
vinnuaðstöðu sem tekur tillit til bæði líkama og sálar starfsmanna fyr-
irtækisins og það sem meira er, verðið er hagstætt! S!1
Holtagörðum • 105 Reykjavík
Sími: 520 2500 • Fax: 520 2550 • Heimasíða: www.ikea.is
9