Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.09.1999, Síða 27

Frjáls verslun - 01.09.1999, Síða 27
NÆRMYND Fyrirliði með stáltaugar! Gunnar Örn hefur hæglátan stíl. Hann er þéttur á velli, óstressaður og býr yfir miklum krafti. Sá sem hefur samskipti við hann rekur sig fljótt á að hann er ekki aðeins mjög skipulagður heldur einnig rólegur og afslappaður í starfi. Gunnar Örn er sagður afar fastur fyrir og sækja markmið sín í starfi af mikilli festu. Að sögn samstarfsmanna hefur hann stáltaugar og ekk- ert virðist geta komið honum úr jafnvægi. Starfsferillínn: Eftir að náminu lauk í Verslunarskólanum hóf Gunnar störf á Endurskoðunarskrifstofu Þorgeirs Sig- urðssonar og vann þar einnig með nám- inu í Háskólanum allt til febrúar 1984 þeg- ar hann fékk sjálfur löggildingu. Þá beið hann ekki boðanna heldur hóf sjálfstæðan atvinnurekstur og rak endurskoðunar- skrifstofuna Hagskil frá 1984 til ársloka 1993 en í janúar 1994 tók hann við starfi forstjóra SIF. Rekstur Hagskila var reynd- ar ekki fyrsta reynsla Gunnars Arnar af at- vinnurekstri því hann var einn af stofn- endum tölvufyrirtæksins TOK og starfaði þar meðfram námi við að hanna bókhalds- búnað fýrir endurskoðunarskrifstofur og smærri og stærri fyrirtæki. TOK varð býsna lífseigt því þegar það var sameinað Tæknival árið 1998 var það elsta starfandi tölvuíýrirtæki landsins. Félagi Gunnars Arnar og meðeigandi í Hagskilum var Ragnar Gíslason sem í dag starfar sem rekstrarþróunarstjóri SIF. Umskiptin: Fyrstu kynni Gunnars af SIF var þegar hann gerðist endurskoð- andi fyrirtæksins og síðan varð samstarf- ið nánara þegar miklar breytingar voru gerðar á SIF í árslok 1993 en þá var fýrir- tækið svipt einkaleyfi til útflutnings á salt- fiski og því um líkt leyti breytt úr gamal- dags sölusamlagi í hefðbundið hlutafélag á nútíma mælikvarða. Þáverandi forstjóri, Magnús Gunnarsson, lét af störfum og það voru þeir Karl Njálsson og Sighvatur Bjarnason, stjórnarmenn i SIF, sem beittu sér mest fýrir því að Gunnar var beðinn að taka starfið að sér. Starf forstjóra SIF var fyrsta stjórnunarstarfið sem Gunnar tók að sér ef frá er talinn rekstur eigin fyrir- tækis. iþróttirnar: Gunnar Örn stundaði fót- bolta af fítonskrafti með Víkingi á sínum yngri árum. Hann spilaði með meistara- flokki Víkings í 1. deild allt fram til 1981; mjög sigursælu liði sem vann flesta þá titla sem hægt var að vinna í íslenskri knattspyrnu. Hann var ungur valinn í Faxaflóaúrvalið svokallaða en það var lið sem var nokkurs konar undirbúnings- deild fýrir unglingalandsliðið. Gunnar lék með unglingalandsliðinu í nokkur ár og var fýrirliði þess. Liðið sem hann lék með komst í undanúrslit í Evrópukeppni sem segir sína sögu um styrk liðsins. Fjölskyldan: Gunnar Örn er kvæntur Birnu Rafnsdóttur Hafnfjörð prentsmið en foreldrar hennar eru Rafn Hafnfjörð, prent- smiðjustjóri og ljósmyndari, og Kristín Björg Jóhannsdóttir skrifstofumaður. Þau Gunnar og Birna eiga fjögur börn, Kristján Rafn, f. 1976, Auðunn Örn, f. 1977, Andra Björn, f. 1982, ogTinnu Björk, f. 1994. Þau búa við Ystasel en tveir eldri synirnir eru fluttir að heiman og búa sinn í hvorri íbúð- inni í sama fjölbýlishúsinu í Kópavogi. Þau Gunnar og Birna eiga eitt barnabarn, Daínel Örn - og er hann sonur Auðuns. Stíllinn: Gunnar Örn hefur hæglát- an stíl. Hann er þéttur á velli, virkar óstressaður og býr yfir miklum krafti. Námið í endurskoðuninni og starfið við það nákvæmnisfag krefst mikillar ná- kvæmni og skipulags í starfi og sá sem hefur samskipti við Gunnar Örn rekur sig fljótt á að hann er ekki aðeins mjög skipulagður heldur einnig rólegur og af- slappaður í starfinu. Hann fýlgist vel með rekstri þessa risafyrirtækis með nánum samskiptum við allar deildir og dótturfyrirtæki en dreifir valdi og ábyrgð talsvert. Aðstoðarforstjóri SIF er Finnbogi Jónsson, fýrrverandi for- stjóri ÍS. Á meðal nánustu samstarfs- manna Gunnars innan SIF á undanförn- um árum hafa meðal annars verið þeir Róbert B. Agnarsson, sem var aðstoðar- forstjóri SIF fýrir sameininguna, og Ragnar Gíslason rekstrarþróunarstjóri - en þessir tveir eiga það sameiginlegt að hafa þekkt Gunnar Örn mjög lengi, bundið við hann vinskap og spilað með honum knattspyrnu í Víkingi árum sam- an. Gunnar er fastur fyrir og sækir markmið sín í starfinu af mikilli festu. Hann hefur, að sögn samstarfsmanna hans, stáltaugar og ekkert getur komið honum úr jafnvægi. Gunnar ferðast gríð- arlega mikið í tengslum við starfið, eða um það bil 100-120 daga á ári, enda nær starfsemi SIF núna til fimmtán landa eft- ir sameininguna þar sem ótal dótturfé- lög koma við sögu. Vínirnír: Gunnar heldur talsverðan vin- skap við lítinn hóp manna sem hann kynntist flestum í gegnum íþróttaiðkun á árum áður. Auk þeirra Róberts og Ragn- ars, sem áður eru nefndir, má sjá Diðrik Ólafsson matsvein, Sigurð Óla Sigurðs- son, útibússtjóra Landsbankans á Lauga- vegi 77, Ólaf Friðriksson byggingameist- ara og Þór Símon Ragnarsson, útibús- stjóra Landsbankans í Árbæ. Einnig mætti nefna Kristján Gunnarsson verk- fræðing, svila Gunnars og fyrrum starfs- félaga og meðeiganda í TOK. Túmstundirnar: Gunnar er löngu hætt- ur að spila fótbolta en er í ágætri þjálfun þótt hann sé dálítið þéttari á velli en þegar hann var í framlínu Víkings í gamla daga. Hann stundar skíði í Bláfjöllum og í Frakk- landi á veturna en golf og gönguferðir á sumrin. Hann er félagi í Golfklúbbi Önd- verðarness sem starfar á golfvelli í Gríms- nesinu en þar eiga Gunnar Örn og Ijöl- skylda sumarbústað sem þau nota tals- vert, bæði á sumrin og veturna. Gunnar er félagi í 16 manna veiðiklúbbi sem hefur árlega farið til veiða í Miðfjarðará í mörg ár, eða síðan 1981. Gunnar er lítt fikinn í samkvæmislíf og vill frekar fara í nudd en kokkteilboð nema hann sé starfsins vegna neyddur til þess að mæta. Stefnan: Þegar SÍF var gert að hluta- félagi árið 1993 og útflutningur á saltfiski gefinn í rauninni frjáls voru margir sem spáðu því að fýrirtækið myndi fljótlega missa tiltrú kaupenda, verða undir í sam- keppninni og liðast i sundur. Hlutabréf í félaginu voru skráð á 0,6 í ársbyrjun 1994 en eru í dag á róli í kringum 6,4. Undir stjórn Gunnars hefur félagið haslað sér völl vítt um álfur og nú síðast gengið af blokkamyndun í íslensku atvinnulífi næst- um dauðri með því að sameinast IS. Það er ýmislegt sem bendir til þess að Gunnar Örn hafi ekki alveg sagt sitt síðasta orð á þessum vettvangi og hlýtur að teljast frek- ar líklegt að SIF eigi enn eftir að stækka I undir hans stjórn. S!] 27

x

Frjáls verslun

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.