Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.09.1999, Side 28

Frjáls verslun - 01.09.1999, Side 28
■CELANDAIR Coca-Cola merkið er verðmœtasta vörumerki í heimi. Financial Times segir það 3.400 milljarða króna virði, hvort sem sú tala segir lesendum eitthvað eða ekki. Hið nýja vörumerki Flugleiða. „Gylltir vcengir á bláum jleti gefa bet- ur til kynna hreyfingu og kraft. “ En hvers virði er vörumerki Flug- leiða? Hvers virði er Coca-Cola er verðmœtasta merki í heimi En hvers viröi eru vörumerki og hvernig inancial Times fullyrðir að Coca-Cola merkið sé verðmætasta vörumerki í heimi. Fáir efast um þá full- yrðingu enda um þekktasta vörumerki í heimi að ræða. En hvernig er hægt að meta virði vörumerkja? Hversu dýr eru t.d. vörumerki íslenskra vara? Á bak við vörumerki liggja ímynd, saga, kynningar, auglýsingar, vöruþróun, viðskipti og svo auðvit- að hagnaður fyrirtækjanna og viðhorf fólks til þeirra og vöru- merkjanna. Það getur tekið óratíma, mörg ár, að vinna vöru- merki veglegan sess og keppa við önnur þekkt merki á markaðn- um. Það felst einfaldlega í því að kynna merkið og fá neytendur til að samþykkja það og kaupa umrædda vöru eða þjónustu. Vörumerki fá í raun enga vigt íyrr en hin ósýnilega hönd neyt- andans velur það og tekur það fram yfir önnur merki. Svo mikil getur þessi vinna verið að betra sé að kaupa gamalt og gróið vörumerki, þ.e. fyrirtækið eða framleiðsluréttinn á umræddri vöru, í stað þess að brjótast af stað frá byrjunarreit! Þekktum vörumerkjum fýlgja einfaldlega viðskipti, annars eru þau lítils virði. Þegar vörumerki eru alþjóðleg á neytandinn að geta treyst því að fá sömu vöru hvort sem er á íslandi eða í Indlandi. Sérís- lensk vörumerki eru auðvitað eingöngu verðmæt hér á landi. AU- ir eru sammála um það að þekkt vörumerki séu mikils virði og að vörur merktar þeim eigi greiðari leið inn á markaðinnn en aðrar; að þau séu vænlegri til viðskipta. Stærri fyrirtæki búa gjarnan til heildarmyndir, sem taka til allra þátta fyrirtækisins, og kynna sérstakar vörur eða þjónustu _________ undir merkjum heildarinnar. En ekki má heldur gleyma því að sterkt merki er sá þáttur sem hvað sterkast sérkennir fyrir- tæki og erfiðast er að líkja eftir. TEXTI: Vigdís og Jón G Listinn í Financial Times Verðmætí vörumerkja eru umdeilan- leg en þó hefur Financial Times birt upplýsingar um stærstu og dýrustu merkin í milljörðum dollara talið. Coca-Cola er verð- mætasta merkið, mælist á um 48 milljarða dollara, eða um 3.400 milljarða króna. Það er svo stjarnfræðilega há tala að hún segir venjulegum manni nánast ekkert! Malboro mælist litlu ódýrara eða um 47.6 milljarða dollara. IBM er á 23,7 milljarða, McDonald's á um 19,9 milljarða, Disney á um 17,1 milljarða og Sony á um 14,5 milljarða dollara. Tekið skal fram að þarna er ekki verið að leggja mat á verð- mætí fyrirtækjanna sem slíkra heldur er eingöngu horft á merkið sjálft. Gott merki sem nær heimsathygli er þannig svo mikils virði að sala þess hefur áhrif á ljármagnsmarkaði viða um heim! Islensk vörumerki Víkjum þá að nokkrum íslenskum vörumerkj- um. Af þekktum merkjum á matvælamarkaðnum má nefna SS merk- ið og Egils frá Ölgerð Egils Skallagrímssonar. Þetta eru dæmigerð neytendamerki í matvörubúðum og stöðugt auglýst. Á bak við bæði þessi merki liggur saga, vöruþróun og ímynd hjá neytendum. Merki Flugleiða er löngu þekkt og gróið í vitund landsmanna sem og millj- óna útlendra ferðamanna. Engu að síður breyttu Flugleiðir því ný- lega, blái liturinn hvarf, gylltur litur kom í staðinn og merkið var gert þéttara. Jafnframt var breytt um lit á flugvélum félagsins. Vörumerki SIF, Islandia, er auvitað gulls ígildi á erlendum mörkuðum og tákn- ar góðan fisk frá Islandi. Því sterkari sem umhverfissamtök verða er- mmmmmmmmmmmmmi^ lendis þeim mun meiri þýðingu munu vöru- merki hafa. Landsbankinn hefur að undan- förnu samræmt merki bankans og heildarút- lit afgreiðslustaða hans. Nýlega afhjúpaði Geir H. Haarde fjármálaráðherra nýtt merki Stefánsdóttir Hauksson 28

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.