Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.09.1999, Side 62

Frjáls verslun - 01.09.1999, Side 62
Stefán Svavarsson, löggiltur endurskoðandi, skrifarað þessu sinni um alþjóðavœðingu í þróun reikningsskila. Hann segir að reglur alþjóð- legrar nefndar (IASC) um samrœmingu reikningsskila í heiminum verði allsráðandi innan fárra. Nefndin fékk það erindi frá samtökum verðbréfaþinga að gefa út reglur sem gætu gilt á öllum verðbréfaþing- um í heiminum. FV-myndir: Geir Olafsson þó að þarna er talsverður munur á og þegar grannt er skoðað ætti það ekki að koma mjög á óvart. Margir þættir stuðla að því að efni og innihald reikningsskila eru með ólíkum hætti. Hér skulu nokkur atriði nefnd: 1) laga- kerfi sem þjóðir búa við eru ólík, 2) eignarhald fyrirtækja getur verið mismunandi, 3) tegundir fyrirtækja geta verið margar, 4) skattareglur geta verið ólíkar, 5) Jjármagnsmarkaðir geta verið mislangt á veg komnir, 6) reglusmíði er misjöfn, 7) stjórnmála- kerfi hafa óbein áhrif, 8) áhrif endurskoðenda geta verið mismik- il, 9) menntunarmál og rannsóknir á reikningsskilum eru mis- langt á veg komnar, 10) verðlagsbreytingar geta haft mikil áhrif og 11) þá sýnir sig að þjóðarsálin hefur áhrif á efni reikningsskila. Stefán Svavarsson, löggiltur endurskoðandi, fjallar hér um alþjóöavœóingu í þróun reikningsskila. Hví skyldi vera munur á afkomu- og efnahagsmælingum fyrirtœkja i Argentinu, Austurríki og á Akureyri? Sitt er hvað hagnaður í Þýskalandi og Ameríku síðustu árum hafa sífellt orðið háværari kröfur um að þörf sé fyrir samræmdar reglur um gerð reikningsskila í heiminum. Tvennt veldur hér mestu um. Annað er það að fyrirtæki leita nú í rikari mæli en áður eftir fé á erlendum fjár- magnsmörkuðum, en þessir erlendu markaðir gera venjulega þá kröfu að erlend fyrirtæki birti reikningsskil sín að hætti inn- fæddra. Þetta þýðir að fyrirtæki sem hefur sótt fé á þessa markaði þarf að gera tvenn eða jafnvel fleiri reikningsskil, ein fyrir heima- markaðinn en önnur fyrir erlenda markaði. Hitt er að viðskipti fyr- irtækja við erlenda aðila hafa aukist í stórum stíl og undanfari slíkra viðskipta er iðulega að reikningsskil séu lögð fram og met- in. Vandinn er hins vegar sá að reikningsskil eru samin með ólík- um hætti í heiminum, bæði getur ffamsetning erlendra reiknings- skila verið með ókunnuglegu sniði fyrir innfædda og eins geta efn- isreglur verið aðrar en menn eiga að venjast. Hér á eftir verður gerð nánari grein fyrir því hvers vegna munur hefur verið á af- komu- og efnahagsmælingum milli þjóða en einnig vikið að er- lendum áhrifum í íslenskum reikningsskilum. Argentína, Austurríki, Akureyri? Búast má við að einhveijum lesendum þessa pistils komi ofangreindar upplýsingar spánskt fyrir sjónir. Hví skyldi vera munur á afkomu- og efnahagsmæling- um fyrirtækja í Argentínu, Austurríki og á Akureyri? Staðreynd er Japanir vartærnari en Bretar Lítum á nokkur dæmi þessu til stuðnings. í samanburðarathugun á afkomumælingum í nokkrum löndum kom eftirfarandi í ljós en athugunin fólst í því að líta til hvernig áhrif aí sambærilegum viðskiptum eru mæld: Bretland..................... 125 Bandaríkin................... 100 Frakkland .................... 97 Holland ...................... 91 Belgía........................ 88 Þýskaland .................... 87 Spánn......................... 85 Japan ........................ 66 Þessar vísitölur sýna, en rétt að að taka skýrt fram að um grófa tilraun til samanburðar er að ræða, að aíkomumælingar í Japan eru að jafnaði talsvert varfærnari en hjá Bandaríkjamönnum en þó einkum Bretum. A meginlandi Evrópu er munurinn minni en samt marktækur, sem kemur að einhveiju leyti á óvart þegar haft í huga hversu mikið Evrópusambandið hefur lagt á sig til þess að samræma reikningsskilagerð Evrópuþjóða. Raunar hefur önnur sjálfstæð athugun verið gerð á efni reikningsskila hjá Evrópusam- bandsþjóðunum og hún sýnir að nokkur munur er á sýndri arð- 62

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.