Frjáls verslun - 01.10.1999, Blaðsíða 18
Guðjón Þórðarsson, framkvæmdastjóri knattspymuliðsins hjá Stoke Citv F.C. Hann er með mikla ffulrót í samningi sínum við
fjárfestana ogfelst hún í bónusgreiðslum og kauprétti á hlutabréfum, „stock option". Enda er veðjað á að Guðjón tvö- til þre-
faldi markaðsverð félagsins á næstu þremur til fímm árum, „búi til“ um 1 milljarð króna á næstu fímm árum. Guðjón er hér
með stjómarformanni Stoke, Gunnari Þór Gíslasyni.
Guðjóns bíður
/
Islensku fjárfestarnir leggja rúmar 900 milljónir króna í Stoke. Um helmingur
þess er fyrir hlutaféð. Hér er ítarleg úttekt Frjálsrar verslunar á því hvort jjár-
festingin borgi sig!
uðjón Þórðarson, nýráðinn framkvæmdastjóri liðs
knattspyrnufélagsins Stoke City Football Club
Limited, verður í góðum málum íjárhagslega gangi
félaginu vel á næstu árum. Guðjón er ekki aðeins búinn að
koma sér í eftirsótt starf sem framkvæmdastjóri knattspyrnu-
liðs í Englandi; hann er líka orðinn bissnessmaður - stjórn-
andi fyrirtækis!! Það var hann sem átti viðskiptahugmyndina;
að kaupa Stoke. Guðjón er með mikla gulrót í samningi sín-
um við íslensku íjárfestana, sem keyptu félagið á dögunum,
og felst hún bæði í kauprétti á hlutabréfum, svonefndri hluta-
bréfavilnun, „stock option“, og bónusgreiðslum. Enda liggja
hagsmunir Guðjóns og fjárfestanna
saman. Fjárfestarnir, sem lagt hafa rúm-
ar 900 milljónir króna til Stoke í formi
hlutafjár og lána, hyggjast að minnsta
kosti tvöfalda markaðsverð félagsins á
næstu þremur árum og veðja þeir á Guðjón. Það er hans að
„búa til“ 1 milljarð í auknu markaðsverðmæti á næstu fimm
árum. Það gerir hann með því að stórbæta árangur liðsins án
þess að bruðla í leikmannakaupum og koma því upp í 1. deild.
Við það stóraukast tekjur félagsins af áhorfendum, sjónvarps-
útsendingum og kaupum og sölu leikmanna. Ætla má að
markaðsverðmæti Stoke tvöfaldist við það eitt að fara upp í 1.
deild og skila hagnaði - og þrefaldist eftir tveggja til þriggja
ára veru þar. Nægir þar að horfa á markaðsverð ýmissa ann-
arra þekktra félaga í ensku 1. deildinni. Engin tvö félög eru
þó eins.
Áhættusöm fjárfesting Þrátt fýrir mikla
bjartsýni eru ijárfestarnir sammála um
að fjárfesting þeirra í Stoke sé nokkuð
áhættusöm. Áhættan felst í því hve miklu
FRÉTTASKÝRING:
Jón G. Hauksson
MYNDIR: Geír Úlaísson
18