Frjáls verslun - 01.10.1999, Blaðsíða 58
Verslun Sœvars Karls við Bankastrœti.
heildarmarkaðinn en sterkir þegar komið
er að vandaðri hluta hans. Við stöndum
mjög vel gagnvart útlöndum því kannanir
hafa sýnt að merkjavara er ódýrari - eða að
minnsta kosti ekki dýrari hér en erlendis -
og fólk er farið að átta sig á því. Okkar
styrkleiki liggur ekki síst í því að veita
góða þjónustu og þar sem karlar eru al-
mennt minna lýrir búðarráp en konur
hentar það vel að hafa verslanir þar sem
hægt er að kaupa allt í einni ferð og þar
hefur Herragarðurinn staðið vel að vígi.“
Verslanir þeirra eru ekki netvæddar
enn sem komið er, en hugleiðingar í þá
áttina hafa vaknað og þá kannski íýrst
sem vefsetur þar sem hægt væri að panta
grunnvöru en seinna eitthvað meira.
urinn er Sævar Karl sjálfur, eigandi versl-
unarinnar sem segir mestu skipta fyrir
sig og reksturinn að hafa sérstöðu og
halda tengslum við viðskiptavini sína.
Hann kærir sig ekkert um að taka þátt í
kapphlaupinu um að eiga sem flestar
verslanir og segir það ekki ganga í þeim
klassa sem hann sé í.
Markpóstur besta auglýsingin „Auðvit-
að verð ég var við samþjöppun á fata-
markaðnum," segir Sævar Karl. „Menn
eru að kaupa upp samkeppnisaðila og
fjölga útsölustöðum en mér hefur sýnst í
gegnum árin að þetta gangi best í milli-
verðflokkum og ódýrari. Eg hef reynslu
af því að reka fleiri en eina verslun og er
búinn að gera það upp við mig að ég ætli
að vinna vel að þessari einu einingu sem
hér er; skapa mér sérstöðu á markaðn-
um og halda henni. Við auglýsum lítið
annað en með beinum markpósti og höf-
um upp á síðkastið gefið fólki möguleika
á því að fá sendar tilkynningar og auglýs-
ingar í tölvupósti. Þá sendir það okkur
tölvupóst og fer á póstlistann okkar. Þar
fær það upplýsingar um verðlækkanir og
viðburði í galleríinu. Um daginn komu
hingað til dæmis framleiðendur sem vildu
gjarnan hitta viðskiptavini okkar og þá
sendi ég boð til þeirra. Mér finnst gott að
ffamleiðendur hitti viðskiptavinina, það
myndast þá góð tengsl á milli þeirra."
Held áfram að selja Boss Verslunin sel-
ur bæði karlmanna- og kvenfatnað, en
leggur þó meiri áherslu á karlmannafatn-
aðinn. Sævar segir að kvenfatnaðurinn
standi undir um það bil 25% af veltunni en
þar sé vaxtarbroddur. „Eg var fyrstur til að
reka hér sérleyfisverslun (franchise) í
fatnaði þegar ég var með Etienne Aigner
búðina. En ég fann að markaðurinn mett-
aðist á rúmum fimm árum. Varðandi nýju
Boss búðina gildir það sama, maður verð-
ur alltaf að geta boðið upp á eitthvað nýtt á
svona litlum markaði og nú, eftír að Boss
búðin var opnuð, tek ég bara það sem mér
líkar af Boss vörum og það sem hentar hjá
mér. Eg „prófíla" öðruvísi en það kemur
ágætlega út og ég hef ekki misst neitt við
þetta. Eg var búinn að kynna Boss vörurn-
ar hér og byggja þær upp og held áifam
að selja þær eins og áður.“
Kaupmaðurinn á horninu
er ehki dauður! Sæv-
ar Karl Olason hefur
rekið verslun sína í 25 ár
og þekkir markaðinn
vel. Það er dálítið sér-
stakt að koma inn í versl-
un Sævars Karls í Banka-
strætinu. Falleg föt liggja
samanbrotin á borðum
og í hillum og ljúf kaffi-
lykt mætir manni. í miðri
búðinni eru tveir stólar
og á öðrum þeirra situr
maður að lesa blað og
drekka kaffi. Öðru hvoru
kemur inn viðskiptavinur
og flestir heilsa mannin-
um innilega. Hann þekkir
þá greinilega flesta og spyr
um hagi viðkomandi. Mað-
Guðjónson, framkvœmdastjón lija 2^1 fetnað. Miðað
■ ....5.- „ff, R milUnrðum erlendis i fatnao.
Tveir í félagí Sævar seg-
ist lita á sig sem „kaup-
manninn á horninu" í
þeim skilningi að hann
þekki stóran hluta við-
skiptavina sinna og þeir
hann. Hann vilji vera sýni-
legur í versluninni sem sé
merkt nafni hans og segir
í gríni að þeir Magni frí-
merkjasali (Hjá Magna)
ætli að stofna félag slíkra
kaupmanna; þeir séu á
sama báti hvað sérstöðu
varði. Hlær svo að sjálf-
um sér og er rokinn til
að sinna einhverjum
sem þarf aðstoð. Eftir
25 ára reynslu veit hann
að best er að ljúka mál-
inu strax. B5
58