Frjáls verslun - 01.10.1999, Blaðsíða 55
markaðsmAl
NTC keðjan (Sautján)
leyti þar sem verð á fatnaði hérlendis er
að verða æ meira í líkingu við það sem
þekkist erlendis.
DO re rní Stæhkar í barnafatnaði ber
orðið nokkuð á nýrri keðju, Do re mí
barnafataverslununum sem á örfáum
árum hafa stækkað úr því að vera ein
verslun í Vestmannaeyjum í að vera með
níu verslanir víða um landið. Þar er boð-
ið upp á fremur ódýran barnafatnað og
hefur fyrirtækið komist inn á markaðinn
á þeim forsendum. Nú eru verslanir Do
re mí í Vestmannaeyjum, á Akureyri, Sel-
fossi, Egilsstöðum, í Mosfellsþæ, Hafn-
arfirði og Reykjavík.
Nýburar í Nike Skóm Tiskan leitar sí-
fellt neðar og gott dæmi um það eru
Nike skór á nær nýfædd börn og íslensk-
ur hátíðabúningur karla fyrir ársgamla
drengi. Það eru jú að koma jól og bless-
aðir drengirnir þurfa sín spariföt. Um
skynsemi þess að setja krílin, sem ekki
eru farin að standa í fæturna, hvað þá
ganga, í slíkan fatnað, skal ekkert um
sagt. En þegar ástandið er slíkt að börn-
in geta varla mætt í leikskólann nema í
merkjafatnaði er illt í efni.
NTC-Sautján Uppbygging NTC hefur
verið hröð og nýjasta viðbótin sem kom til
snemma í haust með kaupum á Evu/Gall-
ery/Company mun styrkja stöðu þess
enn á markaðnum - sem að öllu jöfnu er
ótryggur og þarf lítið til að færast til. Við-
skiptavinir eru viðkvæmar sálir og nægir
að innréttingar eða afgreiðslufólk falli ekki
að hugmyndum þeirra til að þeir hætti ein-
faldlega að koma.
Með kaupum sínum á Evu, Gallery
og Company hefur NTC náð því að vera
með verslanir sem höfða til nær allra
aldurs- og tískuhópa. Það vantar
kannski ofurlítið upp á í efsta klassa,
verslanir sem selja mjög vandaðan fatn-
að og dýran fyrir fólk sem komið er á og
yfir miðjan aldur. Þó er ekki víst að það
komi að sök þar sem aldursskilgrein-
ingar eru óðum að mást út í fatnaði.
Svava og Bolli keyptu Laugaveg 89 og
var húsið endurbyggt á glæsilegan hátt
og innréttað verslunum á þremur hæð-
um. Um líkt leyti keypti fyrirtækið hús-
næði það í Kringlunni sem verslunin
hafði verið rekin í um skeið - og einnig
eininguna sem næst var - og stækkaði
Sautján verslunin í Kringlunni þá veru-
lega.
SMASH í Kringlunni var opnuð í apr-
íl 1995 og nokkru síðar á Laugaveginum.
Sautján tók og við rekstri verslunarinnar
4you sem var lögð niður sem sjálfstæð
eining en vörumerkið er enn til innan
Sautján. Deres verslun í Borgarkringl-
unni var opnuð á 400 fermetrum og er sú
verslun rekin með sérleyfi (franchise)
frá Deres í Danmörku. Nú eru verslanir
fyrirtækisins fjölmargar - enda áætluð
velta þessa árs rúmlega 1,5 milljarðar.
„Þegar við komum inn á þennan
markað var hann nær eingöngu samsett-
ur af litlum verslunum," segir Asgeir
Bolli Kristinsson hjá NTC. „Við höfum
náð því að sameina fyrirtæki og hagræða
vel hjá okkur og með því tekist að lækka
vöruverðið umtalsvert. Það er ekkert
nema jákvætt við það að fyrirtæki hag-
ræði hjá sér og dragi úr kostnaði við
skrifstofuhald og innkaup, úr því kemur
aldrei nema gott. Hitt er svo annað mál
að það lifa ekki allir samkeppnina af
enda er það lögmál markaðarins sem
ræður.“
Sautján dömufatnaður, Laugavegi
Sautján herrafatnaður, Laugavegi
Sautján snyrtivörudeild, Laugavegi
Sautján skódeild, Laugavegi
Sautján, Kringlunni
Skóverslun, Kringlunni
Smash, Laugavegi
Smash, Kringlunni
Centrum, Kringlunni
Deres, Kringlunni
Morgan, Kringlunni
Company, Frakkastíg
In Wear, Kringlunni
Gallery, Laugavegi
Eva, Laugavegi
Verslanir HÁESS
Herragarðurinn, Kringlunni
Herragarðurinn, Laugavegi
Skóverslun Steinars Waage, Domus Medica
Skóverslun Steinars Waage, Kringlunni
Toppskórinn, Veltusundi
Verslunin Blues, Kringlunni
Boss verslunin í Kringlunni (60%)
Hanz, Kringlunni
VERO MODA
Vero Moda, Kringlunni
Vero Moda, Laugavegi
Jack&Jones, Kringlunni
Jack&Jones, Laugavegi
Only í Kringlunni.
„Ég hef reynslu af því að reka fleiri en
eina verslun og er búinn að gera það
upp við mig að ég ætli að vinna vel að
þessari einu sem hér er; skapa mér
sérstöðu á markaðnum og halda
henni.“ - Sævar Karl Ólason.
„Við erum litlir miðað við heildar-
markaðinn en sterkir þegar komið er
að vandaðri hluta hans.“ - Sigurjón
Þórsson hjá HÁESS.
55