Frjáls verslun - 01.10.1999, Blaðsíða 54
Sœvar Karl Ólason og eiginkona hans, Erla Þórarinsdóttir, í verslun þeirra hjóna í Banka-
strœtinu. „ Við leggjum áherslu á að reka þessa einu verslun og gera það vel. “
verið að fikra sig inn á merkjamarkað-
inn. Þó ekki dýrustu merkin, það sam-
ræmist ekki stefnu fyrirtækisins, en með-
aldýr og þekkt af viðskiptavinum sem
gjarnan heimsækja C&A og fleiri stór-
verslanir í údöndum. Varlega áædað má
ímynda sér að velta Hagkaups í fatnaði og
skóm sé álíka og NTC samsteypunnar,
enda fyrirtækið stórt og teygir anga sína
víða. Þaðgefiirútpóstlistatilhægðarauka
fyrir þá sem ekki komast að gnægtar-
Um 200 fata- og tískuverslanir
Rúmlega 200 fata- og tískuverslanir
eru á íslandi! Flestar þeirra eru smáar
og velta á bilinu 25 til 30 milljónum á
ári. En líkt og erlendis hefur verslunin
færst á æ færri hendur sem um leið
eiga þá stærri hlut hver um sig.
borðinu. Auk þess selur Hagkaup minni
verslunum úti á landi fatnað í heildsölu.
Vero Moda í tískubransanum þarf að
gæta þess að allir fái sitt. Þegar Vero
Moda og Jack&Jones komu hingað varð
uppi fótur og fit. Verðið hjá þeim var lágt
á íslenskan mælikvarða en fatnaðurinn
þótti fallegur og passa bæði ungum kon-
um (Vero Moda) og stúlkum. Og af því
að konur vilja gjarnan líta á sig sem
stelpur fram eftir öllu og klæðast því sem
örmjóar gínur í búðargluggum gera
heillandi er hægt að selja þeim táninga-
fatnað langt fram eftir aldri. Jack&Jones
fyllti upp í gat, sem skilið hafði verið eft-
ir, fyrir sportlegan og fremur ódýran
fatnað fyrir unga karlmenn á öllum aldri.
Eigendur Vero Moda og Jack&Jones
eru mæðgurnar Margrét Jónsdóttir og
Marta og Helga, dætur hennar, en þær
reka tvær Vero Moda búðir, tvær
Jack&Jones búðir og svo verslunina
Only í Kringlunni.
Nýr risi á markaðinn? Þó svo að Hag-
kaup hafi verið öflugt á fatamarkaðnum í
áratugi ætlar eigandi Hagkaups, Baugur,
að láta til sín taka á þessum markaði.
Baugur hefur gert samninga við Arcadia
í Bretlandi sem rekur Ijölda stórverslana
eins og Top Shop, Selfridges, Ware-
house, Burton, Evans og Principles, svo
eitthvað sé nefht. Eftir áramótin mun
Top Shop verslun opna hér á landi og í
kjölfarið má búast við öðrum verslunum
Arcadia. Það þýðir einfaldlega meiri bar-
áttu þeirra sem fyrir eru og harðari slag,
því vandséð er hvernig íslendingar geta
aukið fatakaup til að halda uppi slíkum
risum. Ekki nema landinn dragi stórlega
úr því að kaupa fatnað erlendis og færi
hluta af hinum 5 milljörðunum heim til
Islands. Eflaust gerist það að einhveiju
Fjórar keðjur með helming markaðarins
Á höfuðborgarsvæðinu hafa myndast fjórar keðjur, með yfir 30 verslanir, sem velta yfir 4 milljörðum ári. Það er um helming-
ur veltunnar í fatnaði hérlendis sem er yfir 8 milljarðar - samkvæmt áætlun Frjálsrar verslunar. Þess utan kaupa íslendingar
fatnað fyrir um 5 milljarða erlendis. Þessar keður eru NTC-Sautján, Hagkaup, HÁESS og Vera Moda/Jack&Jones.
54