Frjáls verslun - 01.10.1999, Blaðsíða 30
Hörður Arnarson, forstjóri Marels. Haft hefitr verið á orði að hann sé maðurinn sem innleitt hafi myndgreiningu í matvælaiðnaðinn.
FV-myndir: Geir Olafison.
Hinn nýi forstjóri Marels
Hörður Arnarson, hinn nýi forstjóri Marels, er37 ára doktor í rafmagnsverkfræði. Haft
er á orbi að hann sé maðurinn sem innleiddi myndgreiningu í matvælaiðnaðinn.
örður Arnarson, hinn nýi forstjóri Marels á, að baki
langan feril hjá fyrirtækinu þrátt fyrir ungan aldur.
Hann er 37 ára rafmagnsverkfræðingur og hóf fyrst
störf hjá Marel eftir að hann útskrifaðist sem verkfræðingur
úr Háskóla Islands. Undanfarin ár hefur hann verið fram-
kvæmdastjóri þróunar- og framleiðslusviðs - og leysti af sem
forstjóri Marels í þrjá mánuði fyrr á þessu ári. Þegar síðan
Geir A. Gunnlaugsson, fyrrverandi forstjóri, ákvað að draga
sig í hlé var leitað til Harðar um að taka við stöðu hans. Sú
ákvörðun var í tekin í mikilli sátt við aðra starfsmenn fyrir-
tækisins. Marel er löngu þekkt sem eitt stærsta iðnfyrirtæki
landsins og fyrir að hafa náð góðum árangri á erlendum
mörkuðum. Fyrirtækið er leiðandi á sínu sviði
og telst eitt af fremrí hátæknifyrirtækjum
heims í matvælaiðnaðinum.
Uppruninn: Hörður Arnarson
er fæddur í Reykjavík 24. nóv-
ember 1962 og alinn upp á höf-
uðborgarsvæðinu.
Foreldrar: Örn Engilbertsson
flugstjóri og kona hans, Sigríður
Brynjólfsdóttir skrifstofumaður, bæði
búsett í Reykjavík.
Systkyni: Hörður er næstelstur þriggja bræðra. Eldri bróð-
ir hans er Brynjar Örn, framkvæmdastjóri Flugkerfa, og sá
yngri er Jón Haukur, háskólanemi í matvælafræði.
Menntunin: Hörður á að baki víðtæka menntun. Hann tók
stúdentspróf úr Menntaskólanum við Sund og lauk síðan BS
prófi í rafmagnsverkfræði 1986 frá Háskóla íslands. Á náms-
tímanum í Háskóla Islands hóf hann störf hjá Marel en loka-
verkefni Harðar úr Háskólanum var unnið í tengslum við það
fyrirtæki. Hörður lét ekki BS-prófið nægja heldur lauk dokt-
orsprófi í rafmagnsverkfræði með myndgreiningu sem sér-
svið frá DTH í Kaupmannahöfn 1990. Doktorsritgerð Harðar
íjallaði um notkun myndgreiningar í matvælaiðn-
aði. Námið var í nánum tengslum við störf
Harðar hjá Marel, því hann var starfs-
maður Marels á námstímanum í
Kaupmannahöfn. Marel fékk styrk
frá Norræna iðnþróunarsjóðnum
og Hörður var á þeim styrk þau
þrjú ár sem hann var við nám í
DTH. Hann kom síðan með þekk-
inguna til baka inn í Marel og nú er
myndgreining orðinn stór hluti af starf-
seminni. Vöruúrval Marels byggist í dag
að umtalsverðu leyti á myndgreiningu.
NÆRMYND: ísak Örn Sigurðsson
30