Frjáls verslun - 01.10.1999, Blaðsíða 68
Yngsti framkvæmdastjóri verðbréfafyrirtœkis á íslandi, Sœvar Helgason hjá Kaupþingi Norðurlands, 26 ára að aldri.
Sá yngsti
Sœvar Helgason hjá Kauþþingi Nordurlands er
yngsti framkvæmáastjóri verðbréfafyrirtœkis á ís-
landi. Raunar mun Kauþþing Nordurlands fá nýtt
nafn um áramótin; Islensk Veröbréfhf
ann er 26 ára, heitir Sævar
Helgason, og var ráðinn fram-
kvæmdastjóri Kaupþings Norð-
urlands í febrúar sl. Hann tók við starf-
inu af Þorvaldi Lúðvíki Sigurjónssyni.
Sævar hefur unnið hjá fyrirtækinu frá
því í júlí i fyrra og annaðist í upphafi
starf sjóðsstjóra og forstöðumanns
eignastýringarsviðs. Aður en hann
réðst til Kaupþings Norðurlands var
hann ráðgjafi hjá Landsbréfum á Akur-
eyri og hjá Viðskiptastofu Landsbank-
ans á Akureyri. Runar fær Kaupþing
Norðurlands nýtt nafn um áramótin og
mun á nýju ári heita Islensk Verðbréf
hf. Þess má geta að fyrirtækið hefur
gert athyglisverðan samstarfssamning
við skoska sjóðavörslufýrirtækið Aber-
deen. Fyrstu sex mánuði þessa árs var
velta Kaupþings Norðurlands meiri en
allt árið í fyrra.
Áhugaverð tímamót Þessi ungi fram-
kvæmdastjóri er fæddur 2. júlí árið 1973
og er frá Akureyri. Hann er stúdent úr
Menntaskólanum á Akureyri og mál-
arasveinn frá Verkmenntaskólanum á
Akureyri en við þá starfsgrein vann
hann öll sumur hjá föður sínum meðan
VIÐTAL: Halla Bára Gestsdóttir
MYNDIR: Gunnar Sverrisson
hann var i námi. Eftir árshlé frá bók-
námi að loknu stúdentsprófi fór Sævar í
rekstrarfræði við Háskólann á Akureyri
og lauk þaðan BS gráðu í rekstrarhag-
fræði að þremur árum liðnum. Einnig
hefur hann fengið löggildingu í verð-
bréfamiðlun frá Háskóla íslands. Sam-
býliskona Sævars er Sara Dögg Péturs-
dóttir og eiga þau soninn Andra Snæ
sem er eins árs. Annað barn er væntan-
legt.
Þótt Sævar hefði ekki unnið lengi hjá
Kaupþingi Norðurlands var honum í
febrúar síðastliðnum boðin staða fram-
kvæmdastjóra fýrirtækisins. Það kom
til vegna breytinga á eignaraðild fýrir-
tækisins en þá keyptu sparisjóðirnir á
landsbyggðinni meirihlutann í félaginu
af Kaupþingi hf. Fram að því hafði fýrir-
tækið í raun haft takmarkaða mögu-
leika til að vaxa þar sem ekki var ætlast
til þess að það myndi sækja inn á höfuð-
borgarsvæðið vegna stöðu Kaupþings
þar. Núna á Sparisjóður Norðlendinga
rúm 50% í Kaupþingi Norðurlands, þ.e.
meirihluta, en hinn helminginn eiga
ýmsir sparisjóðir og lífeyrissjóðir á
landsbyggðinni. Margir hafa sýnt
áhuga á kaupum á hlut í fýrirtækinu
undanfarið og því má búast við að hlut-
höfum í félaginu fjölgi enn frekar á
næstu misserum.
68