Frjáls verslun - 01.10.1999, Blaðsíða 34
Heiðrún Jónsdóttir er héraðsdómslögmaður og
starfaði sem slíkur í þrjú ár hjá Lögmannsstofu Ak-
ureyrar áður en hún tók við starfi starfsmanna-
stjóra KEA.
félög sem rekin verði sem sjálfstæðar
einingar. Þetta hefur meðal annars í för
með sér aukin tækifæri til samstarfs við
aðra aðila og gefur möguleika á að fá
inn aukið hlutafé. Einnig ætti starfsemi
einstakra fyrirtækja að verða markviss-
ari og leiða þannig til aukinnar sam-
keppnishæfni þeirra. Með þessu er ver-
ið að bregðast við breyttu viðskiptaum-
hverfi.
„Það að breyta rekstaríyrirkomu-
laginu er ekki lausn eitt og sér ef ekki
er gripið til annarra aðgerða sam-
hliða,“ segir Heiðrún og nefnir að
meira hefði komið til þar sem öllum
var ljóst að Kaupfélag Eyfirðinga hefði
átt í rekstrarerfiðleikum undanfarin ár.
Slíkum erfiðleikum væri ekki
hægt að vinna sig út úr án rót-
tækra breytinga og hagræðingar
sem alltaf hlyti að koma við ein-
hverja. „Það er erfitt fyrir sam-
vinnufélög að þrífast í nútíma ljár-
málaumhverfi og sýna þann
sveigjanleika og snerpu sem til
þarf,“ bætir Ragnheiður við. „Það
að gera einingar félagsins að sjálf-
stæðum hlutafélögum er liður í
því að gera þær samkeppnishæfar
í þessu umhverfi."
Hlutverk markaðsstjóra og
starfsmannastjóra hjá KEA hafa
verið viðamikil undanfarna mán-
uði og margt fellur í verkahring
Ragnheiðar Bjarkar og Heiðrúnar
nú þegar KEA gengur inn í nýtt ár-
þúsund. Sem starfsmannastjóri
hefur Heiðrún oft verið í þeirri erf-
iðu aðstöðu að standa frammi fýrir
starfsfólkinu, útskýra umdeildar
ákvarðanir og gera því grein íýrir
markmiðum KEA á sem upp-
byggilegastan hátt. „Það er að
mörgu að hyggja í mínu starfi sem
starfsmannastjóri en þess utan er
ég sem héraðsdómslögmaður að
vinna við það að stofna þessi nýju
fyrirtæki fyrir KEA. Það er áhuga-
vert fyrir mig sem lögmann að
taka þátt í því, svo ekki sé minnst
á sögulega sjónarmiðið, að stokka
félagið upp.“
„Það er nauðsynlegt fyrir okk-
ur að fylgjast með því hver imynd
félagsins er, þ.e. hvert viðhorf
Bitruhálsi 2 • 569 1616 Skólavörðustíg 8 • 562 2772
Við bjóðum allar stærðir og gerðir af öskjum
eða gjafakörfum. Þú ákveður stærðina og setur
fram þínar hugmyndir um samsetningu og útlit
og þá upphæð sem þér finnst viðeigandi. Þú getur
bætt í pakkann vínflösku, konfekti. korti eða
því sem andinn blæs þér í brjóst.
Hringdu eða komdu til okkar með óskir þínar
- við útfærum þær á smekklegan hátt.
kærkomin gjöf
í sönnum jólaanda
■■
34