Frjáls verslun - 01.10.1999, Blaðsíða 31
NÆRMYND
Hörður var virkur í rannsóknum á
námstímanum í Kaupmannahöfn,
skrifaði töluvert af fræðigreinum á
verkfræðisviðinu í blöð og alþjóðlegar
bækur, og gerir reyndar enn. Hörður
fékk Hvatningarverðlaun Rannsóknar-
ráðs Islands árið 1992 en þau eru veitt
vísindmönnum undir fertugu. Hörður
var aðeins þrítugur þegar hann fékk
þessi verðlaun og er sá yngsti sem þau
hefur hlotið. Hann var einnig fyrsti mað-
urinn innan fyrirtækis til þess að fá þessi
hvatningarveðlaun. Verðlaunin fékk
Hörður fyrir vísindastörf sín og eru þau
meðal þeirra hæstu sem veitt eru. Upp-
hæð verðlaunanna var um 1,8 milljónir
króna.
Hörður hefur sinnt ýmsum störfum
utan Marels, meðal annars sat hann í út-
hlutunarnefnd Tæknisjóðs Rannsóknarráðs
Islands síðustu þijú árin og einnig vann
hann ýmis störf fyrir Evrópubandalagið. Þar
hefur hann unnið að vísindaráðgjöf og tekið
út stór rannsóknarverkefni fyrir EB. Hörður
situr einnig í stjórn Islenska hugbúnaðarsjóðsins.
Fjölmörg áhugamál: Áhugamál Harðar eru mörg og ijöl-
breytileg. Fjölskyldan og börnin eru náttúrlega númer eitt
hjá honum, en hestamennskan er ríkur þáttur. Fjölskyldan á
að sjálfsögðu hesta til að sinna því áhugamáli. Hörður er mik-
ill áhugamaður um íþróttir og leggur mikla áherslu á að halda
sér í góðu formi. Hann spilaði um nokkurra ára skeið í körfu-
bolta með gullaldarliði Framara og einnig í Armanni. Hörður
spilar ennþá reglulega körfubolta með gömlum félögum sín-
um en stundar einnig ýmsar aðrar íþróttir s.s. skokk, líkams-
rækt (spinning) og fjallahjólreiðar. Hann gætir þess að finna
sér alltaf tima til þess stunda íþróttir enda gefur það honum
aukinn kraft í vinnunni að vera í góðu líkamlegu formi.
Hörður hefur verulega gaman af ströngum gönguferðum
og fór einmitt í sumar í 7 daga gönguferð með fjölskyldunni
um Lónsöræíi frá Snæfelli niður í Lón. Til viðbótar þessum
áhugamálum Harðar má nefna að hann er mikill áhugamaður
um léttvín og er í félagsskap sem hittist einu sinni í mánuði til
þess að bragða á góðum léttvínum.
Fjölskyldan: Eiginkona Harðar er Guðný Hallgrímsdóttir,
fædd árið 1963. Guðný er nú við nám i Háskóla Islands. Hörð-
ur og Guðný kynntust árið 1981 og gengu í hjónaband árið
1988. Börn þeirra eru þrjú, Hulda, 16 ára, Arna, 9 ára, og
Kristján, 7 ára.
Stíllinn: Hörður er sagður víðsýnn forstjóri og leggja
áherslu á að starfsmenn hafi greiðan aðgang að sér. Að sögn
vinnufélaga hans er Hörður keppnis-
maður fram í fingurgóma og mjög
metnaðargjarn. Hann er ákaflega
stefnufastur og á auðvelt með að fá
fólk til að samsinna sínum skoðun-
um. Hann er mjög opinn og á auðvelt
með að umgangast fólk. Hörður er
mikið fyrir að hlusta á skoðanir ann-
arra til þess að öðlast betri yfirsýn
og sjá hvar vandamálin liggja. Hann
leggur áherslu á að samskiptin við
starfsmenn séu á jákvæðu nótun-
um. Hörður þykir vera glöggur á
vandamálin og fljótur að greina
kjarnann frá hisminu. Hann hefur
vanið sig á langan vinnudag; mæt-
ir snemma til vinnu (um 7:30 á
morgnana) og vinnudeginum lýk-
ur oft ekki fyrr en um klukkan
19:00. Hörður gætir þess þó að
brjóta langan vinnudag upp með
likamsrækt af einhverju tagi
flesta daga vikunnar.
Vinirnir: Bestu vinir Harðar eru að sjálfsögðu fjölskyldan
en þess utan á hann mjög stóran vinahóp. Hörður hefur að
mestu samskipti við tvo vinahópa. Annar vinahópurinn bygg-
ist á skólafélögum úr Menntaskólanum við Sund. Þar eru
nánustu vinir hans Hannes Guðmundsson, verkfræðingur hjá
Rafteikningu, og Helgi Geirharðsson, verkfræðingur og mik-
ill hjólreiðakappi. Hinn vinahópurinn byggist á félögum Harð-
ar úr háskólanum í Danmörku. Þar má nefna Magnús Krist-
bergsson, verkfræðing hjá Silfurtúni, og Hermann Olafsson,
verkfræðing hjá Tryggingastofnun.
Hörður er einnig í hjólahópi sem í eru um 12 menn, allt
harðir naglar úr viðskiptalífinu sem gæta þess að halda sér í
góðu líkamlegu formi. Að sögn eins þeirra eru þó fáir í betra
formi en Hörður sjálfur sem hefur griðarlegt úthald.
Stefnan: Stefna Marels hefúr ekki tekið grundvallarbreyt-
ingum með tilkomu Harðar þó að nýjar áherslur fylgi nýjum
forstjóra. Stefna fyrirtækisins er að sjálfsögðu að vaxa og
styrkjast, auka ljölbreytni í vöruúrvali og bæta við nýjum
mörkuðum. Hörður leggur áherslu á að einn helsti styrkleiki
fyrirtækisins sé samhent, hæfileikaríkt starfsfólk þess. Um
95% veltu Marels er á erlendum mörkuðum og þó að heima-
markaðurinn verði alltaf mjög mikilvægur er ekki búist við
miklum vexti þar. Hins vegar eru sóknartækifærin mörg á er-
lendum mörkuðum að áliti Harðar, bæði innan fiskiðnaðarins
og í kjúklinga- og kjötvinnslu. Hörður leggur áherslu á að
ijölga vöruflokkum og vinna nýja markaði úti um allan heim
en þar er verið að vinna að nýjum hugmyndum sem eiga að
hjálpa til við markaðssókn Marels. [0
hópi Og sagður t O h ^t stundvislega
Stíll Harðar
Hörður er sagður víðsýnn forstjóri og leggja áherslu á að starfsmenn hafi greiðan aðgang að sér. Að sögn vinnufálaga hans
er hann keppnismaður fram í fingurgóma og mjög metnaðargjarn. Hann er ákaflega stefnufastur og á auðvelt með að fá fólk
til að samsinna sínum skoðunum.
31