Frjáls verslun - 01.10.1999, Blaðsíða 46
Hörður Arnarson, forstjóri Mar-
els. Marel er sigurvegari ársins
á Verðbréfaþingi.
Valur Valsson, Islandsbanka, og Halldór Jón Krist-
jánsson, Landsbanka. Mikil eftirsþurn er eftir bréfum
í bönkunum um þessar mundir.
þykja iðnfyrirtækin ekkert sérlega spenn-
andi kostur, nema auðvitað Marel - sem veg-
ur raunar um helming í vísitölu iðnfyrirtækj-
anna. Búist er við að Islenska útvarpsfélagið
komi á hlutabréfamarkaðinn á næsta ári. Þá
gera margir sér vonir um að Sjóvá-Almennar
og Samskip, sem núna eru á Opna tilboðs-
markaðnum, komi inn á aðallista Verðbréfa-
þingsins á næsta ári.
Hvar á að I járfesta tyrir jólin?
rátt fyrir að gengi bréfa í Marel
hafi nær þrefaldast í verði á árinu -
og ávöxtunin sé lyginni líkust -
mæla margir verðbréfasalar með kaupum í
Marel, sem og Össuri, um þessar mundir.
Gengi bréfa í þeim báðum er orðið býsna
hátt en margir trúa því að það eigi eftir að
hækka. Þá eru viðskiptabankarnir þrír,
Landsbankinn, Islandsbanki og Búnaðar-
banki, mjög ofarlega á blaði i vinsældum.
Allir ættu að nýta sér stórsöluna sem
framundan er í Landsbankanum og Búnað-
arbankanum. Flestir telja að hjá fjármála-
fyrirtækjunum verði sameiningar fýrr en síðar - og að afkoma
þeirra haldi áfram að batna. Margir trúa á FBA og forstjóra
hans, Bjarna Ármannsson. Gengi bréfa í FBA er núna um 3,10
og telja ýmsir að það sveiflist eitthvað á næstunni en fari aldrei
niður fýrir 2,80 sem var það gengi sem meirihlutinn í bankan-
um var seldur á nýlega. í stuttu máli mæla flestir verðbréfasal-
ar með því að kaupa í bönkunum, Marel, Össurri, Eimskip og
tölvufyrirtækjunum. Ýmsar blikur eru á lofti hjá sjávarútvegs-
fýrirtækjum. Frekari sameiningar þar gætu hækkað gengi
bréfanna, auk þess sem þorskstofninn er að styrkjast. A móti
kemur erfið staða hjá fyrirtækjum með uppsjávarfisk vegna
lélegrar alkomu af loðnuvinnslu. Mikill áhugi hefur verið á ol-
íufélögunum þremur á árinu og hefur gengi bréfa í þeim
hækkað mikið, mest í Skeljungi. Allt í einu hafa menn fengið
áhuga á olíufélögunum! Gengi bréfa í tölvufyrirtækjunum hef-
ur hækkað verulega, mest í Skýrr, um 110%, og
Nýherja, um 81%. Þó má geta þess að íslenski
hugbúnaðarsjóðurinn hefur hækkað um 118% á
ári - sem auðvitað er mögnuð hækkun. Nokkur
deyfð hefur verið yfir sölu bréfa í SIF og IS þótt
þar sé komið á koppinn stærsta fyrirtæki Islend-
inga. I pípunum gætu legið miklar hækkanir hjá
SÍF-ÍS risanum kæmi til þess að hann sameinað-
ist SH á næstu misserum. Ýmsir sjá þá samein-
ingu fýrir sér. Hún gæfi af sér umtalsverða hag-
ræðingu og þar með hækkun á gengi bréfa i fýr-
irtækjunum. Það vekur á vissan hátt athygli að
almennir hlutabréfasjóðir hafa ekki gefið neitt
stórkostlega af sér í samanburði við mörg stór-
fýrirtækjanna á markaðnum. Um þessar mundir
MYNDIR: GEIR ÓLAFSSON
Salan í ríkisbönkunum Utspil ríkis-
stjórnarinnar um að selja 15% hlut í bæði
Landsbanka og Búnaðarbanka núna í
desember kom eins og þruma úr heið-
skíru lofti! Flestir áttu von á því að af
þessari sölu yrði ekki fyrr en á næsta ári.
Miðað við gengi bréfa í bönkunum að
undanförnu er um að ræða sölu fýrir um
6,6 milljarða króna - en til samans er
markaðsverð beggja bankanna núna um
44 milljarðar króna. Þessi óvænta sala
núna kemur í kjölfarið á sölu ríkisins á
51% hlut í FBA fyrir tæplega 10 millj-
arða. Flestir telja að sala bréfanna í Landsbankanum og Bún-
aðarbankanum reynist ríkinu auðveld. Ætla má að stofnana-
fjárfestar muni kaupa fyrir um 4 milljarða og almenningur fyr-
ir um 2 milljarða! Á síðasta ári seldi ríkið um 15% í þessum
bönkum þannig að eftir söluna núna í desember mun það eiga
um 70% í hvorum bankanna fyrir sig. Stóra spurningin er um
framhaldið. Ætla stjórnmálamenn að sleppa tökunum á báð-
um bönkunum að fullu og selja þá? Þeir segja það! Menn eiga
hins vegar eftir að sjá það. En hvernig ætlar ríkið þá að haga
sölunni á afganginum, 70%? Setur það lög um dreifða eignar-
aðild á bönkum, bæði í frumsölu og á eftirmarkaði, og halda
slík lög þegar til lengdar lætur? Verður útboð með sama hætti
og í FBA? Markaðsverð Landsbankans er núna um 25,3 millj-
arðar króna, m.v. gengið 3,90, og Búnaðarbankans um 18,7
milljarðar, m.v. gengið 4,55. Mikil eftirspurn eftir hlutabréfum
í viðskiptabönkunum þremur helgast meðal ann-
ars af væntingum og vangaveltum manna um að
tveir þeirra verði sameinaðir á næstu misserum.
Verður það Landsbanki og Islandsbanki eða Bún-
aðarbanki og íslandsbanki? Landsbanka og Bún-
aðarbanka verður tæplega pakkað saman í einn
banka þótt allt geti svo sem gerist í þeim efnum.
Þá trúa margir því að FBA og Kaupþingi verði
slegið saman á næsta ári.
Kaup vegna skattafsláttar; 133 þúsund Sala á
hlutabréfum í Landsbankanum og Búnaðarbank-
anum núna í desember fyrir um 6,6 milljarða eyk-
ur verulega framboð á hlutabréfum á markaðnum.
Ríkið ætlar ekki að missa af jólasölunni og gerir út
Margir verðbréfasalar mæla með
kaupum í Islandsbanka, Lands-
banka, Búnaðarbanka, FBA, Mar-
el, Össurri og Eimskip um pessar
mundir. Arið hefur hins vegar ein-
kennst affáheyrðri hækkun á bréf-
um Marels og mikilli verðhækkun á
hlutabréfum í bönkunum og olíufé-
lögunum!
FJÁRMÁL:
Jón G. Hauksson
46