Frjáls verslun - 01.10.1999, Blaðsíða 69
VIÐTAL
Sævar segir það hafa munað
gríðarlega miklu fyrir fyrirtækið að
eignaraðildinni var breytt. „Fyrstu
sex mánuðina eftir breytingarnar
var talsvert meiri velta hjá Kaupingi
Norðurlands en allt árið í fyrra og
starfsmönnum hefur fjölgað um 50%
á tæpu ári. Eg og Sveinn Torfi Páls-
son aðstoðarframkvæmdastjóri kom-
um því að ffamkvæmdastjórn fyrir-
tækisins á áhugaverðum tímamótum
í starfsemi þess.“
Framúrskarandi starfsmenn Sævar
viðurkennir að hann hafi spurt sig
þeirrar spurningar hvort hann ætti að
taka starfið að sér. „Eg og Sveinn Torfi
ákváðum síðan að slá til eftir örlitla um-
hugsun m.a. vegna mikils stuðnings frá
þeim sem koma að fyrirtækinu, þ.e. eig-
endum og starfsmönnum. Einnig fann
ég fyrir því að margir vildu hafa heima-
mann við stjórnvölinn. í raun var það
ekki aldurinn sem vafðist fyrir mér, ég
þekki markaðinn ágætlega, heldur frek-
ar að verða stjórnandi; sjá um starfs-
mannamál, bókhald og öll þau mál sem
tengjast rekstri fyrirtækis. Mér líkar
það hlutskipti vel. Stuðningur sam-
starfsmanna hefur verið ómetanlegur á
þessum tíma. Fyrirtækið er afar heppið
með starfsfólk en í þjónustu og þekk-
ingarfyrirtæki sem þessu er það
mannauðurinn sem skiptír öllu máli;
hann fleytir okkur langt. Hópurinn er
samheldinn og andinn í hópnum er eins
og best verður á kosið.“
Samningur við Aberdeen Því fylgir því
mikil vinna að taka að sér vaxandi fyrir-
tæki og það krefst mikils skipulags, að
sögn Sævars. Hann hefur lagt áherslu á
það að menn hafi skýr verksvið og hafi
frjálsar hendur innan þess sviðs. „Þegar
ég tók við fyrirtækinu vildi ég skipta
starfsemi þess í nokkur svið en fyrst og
fremst vildi ég auka vægi eignastýring-
arsviðsins. Við settum okkur ákveðin
markmið í þessum efnum í upphafi fyr-
ir árið í heild og erum komin talsvert
fram úr þeim í dag.
I tengslum við eignastýringuna höf-
um við gert samstarfssamning við
skoskt sjóðavörslufyrirtæki sem heitir
Aberdeen. Við ætlum m.a. að fara að
selja þeirra sjóði á íslandi en Aberdeen
er með 2 þúsund milljarða íslenskra
króna í sinni vörslu í sjóðum og beinni
stýringu og hefur því yfirgripsmikla
„Það sem hajoi nvuu" starfrækja
einstakur árangur s,oðasÞ árangur.
tH fjölda alþjóðlegra verálauna jy
reynslu í slíkum málum sem nýtist okk-
ur vel. Það sem hafði hvað mest áhrif á
ákvörðun okkar um að leita eftír sam-
starfi við Aberdeen er einstakur árang-
ur sjóða sem þeir starfrækja. Þeir hafa
tengst nokkrum sjóðum sem unnið
hafa til fjölda alþjóðlegra verðlauna fyr-
ir góðan árangur."
Ásamt áherslu á eignastýringu er
kapp lagt á að stofna nýja verðbréfasjóði
hjá Kaupþingi Norðurlands. Sá nýjasti
heitír Tækifæri en hann er nýsköpunar-
og áhættuijármagnssjóður sem fyrir-
tækið er að stofna með sveitarfélögum,
fyrirtækjum og einstaklingum á Norð-
urlandi eystra og vestra. Honum er ætl-
að að fjárfesta í nýjum fyrirtækjum eða
nýjum hugmyndum hjá fyrirtækjum
sem teljast arð-
vænlegar og eru líklegar tíl að skila
góðri arðsemi tíl framtíðar og ýmsum
nýsköpunarverkefnum. Miðað er við að
eftir þrjú ár verði hann orðinn um 600 tíl
700 milljónir króna.
Nýtt nafn: íslensk Verðbréf Vöxtur
Kaupþings Norðurlands á árinu hefur
verið mikill. „Við erum einmitt að ljúka
núna við stefnumótun og útbúa þjón-
ustustaðal fyrir fyrirtækið og um ára-
mót mun það fá nýtt nafn. Það mun
heita íslensk Verðbréf hf. en nafnbreyt-
ingin er í tengslum við breytta eignarað-
ild að fyrirtækinu þar sem það er ekki
lengur í eigu Kaupþings," segir Sævar
að lokum og bætír við.fyrir utan það
að allur markaðurinn er nú undir og
engin miskunn sýnd lengur!“ BD
Samningur við Aberdeen
„Þegar ég tók við fyrirtækinu vildi ég fyrst og fremst auka vægi eignastýringarinn-
ar. Við settum okkur ákveðin markmið í þeim efnum fyrir árið í heild og erum
komin talsvert fram úr þeim í dag. í tengslum við eignastýringuna höfum við gert
samstarfssamning við skoskt sjóðavörslufyrirtæki sem heitir Aberdeen og ætlum
m.a. að selja þeirra sjóði á íslandi."
69