Frjáls verslun - 01.10.1999, Blaðsíða 35
VIÐTAL
„Það er erfitt fyrir samvinnufélög að
þrífast í nútíma fjármálaumhverfi og
sýna þann sveigjanleika og snerpu
sem til þarf,“ bætir Ragnheiður við.
„Það að gera einingar fálagsins að
sjálfstæðum hlutafálögum er liður í því
að gera þær samkeppnishæfar í þessu
umhverfi."
umhverflsins er á þessum breytinga-
tímum," segir Ragnheiður Björk.
„Fljótlega eftir að ég hóf störf sem
markaðsstjóri hjá KEA kannaði ég
þessi viðhorf og í ijós kom að viðhorf-
ið til félagsins var mjög jákvætt, marg-
ir litu á KEA sem gamaldags félag en
engu að síður mjög traust. Það skiptir
máli fyrir okkur stjórnendur að hafa
skýra mynd af því hvernig við viljum
að umhverfið skynji félagið og reyna
að gera það nútímalegra án þess að
gleyma þeim trausta grunni sem félag-
ið byggir á.“
Framtíðin björt Þegar spurt er um
stefnu KEA í markaðs- og starfsmanna-
málum eru Ragnheiður Björk og
Heiðrún sammála um að stórt sé spurt.
Vinnuumhverfi þeirra sé ákaflega sér-
stakt að því leyti að miklar breytingar
séu framundan sem hindri þær í því að
gera langtímaáætlanir. „Þessa dagana
er í gangi stefnumótun fyrir móðurfé-
lagið, þ.e. samvinnufélagið, og er hún
unnin í nánu samstarfi við félagsmenn,
enda skiptir miklu máli að framtíðar-
hlutverk félagsing sé skýrt.“ segir
Ragnheiður Björk en mótun markaðs-
starfs fyrir móðurfélagið verður síðan
unnin samkvæmt niðurstöðum stefnu-
mótunarinnar. Um starfsmannamálin
segir Heiðrún: „A nýrri öld þegar hin
nýju fyrirtæki taka til starfa verður
hægt að hefja markvissa stefnumótun í
starfsmannahaldi einstakra félaga. Sú
stefnumótun mun taka mið af hverri
einingu tyrir sig þar sem KEA starfar á
mörgum og ólíkum sviðum víðsvegar
um land.“
„Framtíðin er björt,“ segja þær stöll-
ur að lokum. „KEA, sem er eitt af fáum
fyrirtækjum á Islandi sem getur státað
af því að vera á leið inn í þriðju starfsöld
sína, mun mæta nýrri öld með þeim
sveigjanleika sem viðskiptaumhverfið
krefst en jafnframt eiga þær styrku
stoðir sem byggst hafa upp á liðinni
oid.“ m
35