Frjáls verslun - 01.05.2000, Qupperneq 72
ÓLAFSFJÚRÐUR
Hvernig er siaðan
Fyrir gjaldþrot Sæunnar Axels var
atvinnuleysi á Ólafsfirði mjög lít-
ið en í desember sl. fór það í 9%.
Núna er atvinnuleysi 4 til 5%. Asgeir
Logi Asgeirsson er bæjarstjóri á
Ólafsfirði. Fyrstu orð hans eru þau
að misdjúpt sé á bjartsýnina hjá fólki
en hún sé þó til staðar. „Það er á
brattann að sækja fyrir þau byggðar-
lög sem hafa einbeitt sér að upp-
byggingu þess sem einu sinni hét
undirstöðuatvinnugreinin," segir
hann. „Það er hins vegar ekki rétt af
mér að segja að við höfum ekki
þekkt atvinnuleysi fyrir gjaldþrotið
en það var yfirleitt aðeins tímabund-
ið. Nú er það með öðrum hætti, orðið varanlegt, og það er
hættulegt að missa fólk inn í atvinnuleysisdróma, - það má
ekki gerast einstaklinganna vegna. Sem betur fer hefur fólks-
flutningur héðan verið lítill og fólk viljað bíða og sjá til hvort
ekki fari eitthvað að gerast. Ég er ánægður með mitt fólk og
stoltur af því hvernig það hefur tekið á erfiðleikunum en ég
vildi gjarnan hafa horfur í atvinnumálum aðrar og betri en
þær eru núna.“
Sigríður Jónsdóttir Sigríður Jónsdóttir er Ólafsfirðingur
sem býr í heimabænum. Hún er starfsmaður á Hornbrekku,
dvalarheimili aldraðra. Hún segir, eins og Ásgeir Logi, að
hljóðið sé misjafnt í fólki en allir geri sér grein fyrir því að
gefa þurfi bænum tíma og tækifæri til að rétta úr kútnum.
„Skellurinn var stór við gjaldþrotið
en þótt margir hafi misst vinn-
una þá hafa fáir flutt í burtu.
Fólk vill frekar búa áfram á
Ólafsfirði og sækja vinnu
annað eins og eiginmaður
minn gerir. Hér
hefur fólk
ákveðið að
búa þar
sem því
líður vel en
fyrir utan
það má
/
Utgerðarfyrirtœkið Sæunn Axels á
/
Olafyfirði, einn stærsti atvinnurek-
andinn þar í bæ, var tekið til gjald-
þrotaskipta í desember á síðasta ári.
Gjaldþrotið var mikið áfallfyrir bæjar-
félagið því fiöldi fólks missti vinnuna.
/
Atvinnuleysi á Olajsfirði hefur minnk-
að verulega frá gjaldþrotinu - en er
samt enn í kringum 4 til 5%.
Eftir Höllu Báru Gestsdóttur. Myndir: Gunnar Sverrisson.
nefna að erfitt er að selja eða leigja
eignir sem gæti hafa hamlað ein-
hverjum flutningum. Aukin atvinnu-
tækifæri að undanförnu hafi þó gert
fólk bjartsýnna."
Nálægðin við Háskólann á Akureyri
Ásgeir Logi talar um að mikilvægt sé
fyrir bæjarfélagið að ná að byggja
upp atvinnutækifæri fyrir konur og
þá sérstaklega þær sem eiga eigin-
menn sem stunda sjóinn. Það sé skilj-
anlegt að þær hugsi alvarlega sinn
gang, atvinnulausar og án eigin-
mannsins í langan tíma, og því þurfi
að finna góð störf fyrir þær í bænum.
Hann neitar því ekki að nálægðin við Háskólann á Akureyri
hafi hjálpað í þeim efnum því nokkrar konur hafi sótt þangað
nám og ekið á milli. Einnig sé eitthvað um það að fólk sæki
vinnu til Dalvíkur og jafnvel til Akureyrar. „Það er ekkert mál
að sækja vinnu og skóla utan Ólafsijarðar á þessum árstíma
en Múlinn getur þó ennþá verið brellinn á veturna."
„Með hækkandi sól höfum við af auknum þunga reynt að
bæta ástandið í atvinnumálunum og hluti af því er að koma á
fót átaksverkefni í samstarfi við Svæðismiðlun Norðurlands.
Þetta er verkefni sem liggur á mörkum almennra sveitar-
stjórnaverka en er samt sem áður þjóðþrifamál. Þar er leitast
við að auka þekkingu og starfskunnáttu manna og gera fólk
hæfara á vinnumarkaðnum, t.d. varðandi tölvuþekkingu, en
mjög er falast eftir fólki í vinnu með þá þekkingu. Það virðist
vera góður skilningur á þessu og fólk er eindregið hvatt til að
taka þátt svo það standi betur að vígi.“
Ágætir hlutir eru að gerast í kringum Ólafsfirðinga að
sögn Ásgeirs Loga en hann viðurkennir að hann vildi gjarnan
sjá meira. ,Auðvitað vill maður trúa því að eitthvað af þessu
góðæri fyrir sunnan fari að berast hingað norður eftir þannig
að það geti skapað ný störf. Mér þykir skrýtið hvað fyrirtæki
eru treg til að skoða það að færa sig um set og kanna nýja
möguleika og hér í Ólafsfirði höfum við nánast ekki fengið
neinar fyrirspurnir frá fyrirtækjum um að koma upp starf-
semi í skjóli lægra fasteignaverðs og vinnuafls."
Extra.ÍS og Risi Undantekningarnar eru þó til staðar og
lengi voru menn bjartsýnir fyrir hönd margmiðlunarfyrirtæk-
isins íslensk miðlun Ólafsijörður ehf., sem stefndi að því að
koma upp starfsemi á Ólafsfirði með 7 til 8 stöðugildum. Þrátt
fyrir að öllum framkvæmdum og uppsetningu tækja sé
Sigrídur Jónsdóttir, starfsmadur á dvalarheimili aldraðra,
með systurson sinn, Sigurjón Ola, í fanginu. „Skellurinn var
stór við gjaldþrotið en þótt margir hafi misst vinnuna þá hafa
fáir flutt í burtu. Fólk vill frekar búa áfram á Ólafifirði og sækja
vinnu annað eins og eiginmaður minn gerir.“