Frjáls verslun - 01.09.2000, Side 81
Hátækni:
Bylting þráðlausra fjarskipta
Hátækni ehf. varstofnað 1985 ogstarfa nú 17 manns hjá
Jyrirtækinu í þremur deildum; Jjarskiþtadeild, þjónustuverkstæði
og hita- og loftræstideild.
r
Ihita- og loftræstideild veitum við ráðgjöf við hönnum og
útfærslu loftræstikerfa," segir Gunnar Þórðarson,
framkvæmdastjóri Hátækni ehf. „Auk þess flytjum við inn
loftræstisamstæður og hluti þeim tengda frá ABB og
stjórnbúnað frá Honeywell. Vegna eðlis þessa rekstrar er
hann nokkuð mismunandi ffá ári til árs, en í augnablikinu og
nánustu framtíð er verkefnastaðan mjög góð, enda fjöldi
stórbygginga óvenju mikill um þessar mundir."
Virkur þátttakandi í farsímavæðingunni Tildrög þess að
fyrirtækið hóf afskipti af fjarskiptum eru þau að Hátækni
gerðist umboðsaðili fyrir Nokia á Islandi árið 1985 þegar
Landssíminn setti upp NMT farsímakerfi hér. Fyrirtækið
hefur því verið virkur þáttakandi í farsímavæðingu
landsmanna frá upphafi. Fyrst um sinn sá fyrirtækið sjálft um
dreifingu á Nokia vörum til endursöluaðila, en árið 1994
stofnuðu Hátækni, Radíómiðun og Nýherji saman fyrirtækið
íslensk fjarskipti sem í dag sér um alla dreifingu á Nokia
GSM símum og aukahlutum til íslenskra endursöluaðila.
Þetta fyrirkomulag hefur gefist vel og hefur Nokia í dag mjög
sterka stöðu á íslenska GSM markaðnum. Hátækni hefur
þess í stað einbeitt sér að því að gerast sérhæft þjónustu-
fyrirtæki í fjarskiptabúnaði. Þar er hægt að fá á einum stað
símtæki, aukahluti, ráðgjöf og upplýsingar um notkun ásamt
viðgerðarþjónustu á símum frá Nokia, Ericsson og Motorola.
„Við gerðum okkur snemma grein lyrir þeirri byltingu sem
þráðlaus fjarskipti koma til með að hafa á líf okkar allra í
framtíðinni og höfúm þvi alla tið lagt sérstaka áherslu á að bjóða
upp á og kunna skil á þeim búnaði sem gerir mönnum kleift að
nota saman farsímann og jaðartæki eins og far- og lófatölvur.
Sala þessa búnaðar var fremur litil til að byrja með en hefur
aukist ár frá ári samfara almennri farsímaeign og einfaldari og
ódýrari tengingum á milli þessara tækja. Takmarkaður
gagnaflutningshraði í GSM kerfinu er þó óneitanlega ákveðinn
flöskuháls hvað varðar notkun þessara tækja, en með nýrri
tækni eins og GPRS, Bluetooth og síðan þriðju kynslóð
farsímakerfa, UMTS, reikna menn með stóraukinni notkun
Jafiiframt því munu ný og notendavænni tæki koma fram þar
sem einhvers konar afsprengi tölvu og farsíma hafa runnið
saman í eitt. Þá mun almenningur véra sítengdur Internetinu,
og getur þannig verslað, sótt sér alþreyingu og upplýsingar,
sent og tekið á móti lifandi myndum og stundað sín
bankaviðskipti, svo eitthvað sé nefnt, allt í gegnum farsímann
sinn. í þessu umhverfi mun sú reynsla og þekking sem við
höfum aflað okkur í gegnum tíðina nýtast okkur vel varðandi
jrjónustu við sístækkandi notendahóp sem mun þurfa á meiri
og ítarlegri þjónustu og upplýsingum að halda.“
Fullkomlð verkstæði Hátækni hóf rekstur eigin
þjónustuverkstæðis fýrir GSM síma árið 1997 og þar starfa í
Gunnar Þórdarson, framkvœmdastjóri Hátækni: „I framtíðinni sjáum
við Hátæknifyrir okkur sem allsherjarþjónustumiðstöðfyrir notendur
þráðlausra fjarskiþtatœkja. “
dag 7 manns. GSM símar eru flókin tæki og þörf er á
tækjabúnaði af fullkomnustu gerð og vel jijálfuðu starfsfólki
til að ráða við þess konar viðgerðir. Verkstæðið hefur gert
þjónustusamning um ábyrgð og almennar viðgerðir á tækjum
frá Nokia, Ericsson og Motorola, en þessir þrír stærstu
framleiðendur GSM síma í heiminum í dag semja aðeins við
fýrirtæki sem uppfýlla ítrustu kröfur um gæði, öryggi og
tæknikunnáttu. Með þróun GSM tækninnar hafa tækin
minnkað, sem hefur í för með sér að viðgerðir og skipti á
íhlutum verða flóknari og erfiðari. Til að mæta þessum auknu
kröfum hefur Hátækni ákveðið að ráðast í umfangsmiklar
breytingar á þjónustuverkstæðinu.
,Að þeim loknum, í lok þessa árs, hefur fýrirtækið yfir að
ráða fullkomnasta verkstæði af þessari gerð á íslandi, með
tækjabúnaði sem gerir okkur tæknilega kleift að ráða við
nánast hvaða bilun sem er, en hingað til hefur þurft að senda
síma með erfiðustu bilanir til viðgerðar erlendis. Þetta nýja
verkstæði verður fyllilega samkeppnisfært við það sem gerist
allra best erlendis og mun þannig spara tíma og fyrirhöfn og
flytja inn hátækniþekkingu sem annars væri ekki tíl staðar
hér á landi.
I framtíðinni sjáum við Hátækni fyrir okkur sem allsherjar
þjónustumiðstöð fyrir notendur þráðlausra fjarskiptatækja.
Þar getur fólk á einum stað keypt tæki og aukahluti og fengið
faglega ráðgjöf, upplýsingar, aðstoð og þjónustu við
farsímann sinn. Og í dag er ekki annað fyrirsjáanlegt en að
verkefnin verði næg því nú í byrjun nýrrar aldar sé ég engan
einn hlut sem er líklegri arftaki á sæmdarheitinu „þarfastí
þjónninn" en einmitt farsímann.“B!j
81