Morgunblaðið - 03.01.2001, Side 13
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 3. JANÚAR 2001 13
reiðar. Fyrirtækið hefur gert sam-
starfssamning við Olíufélagið hf. um
dreifingu og sölu á metani og var
fyrsta metanáfyllingarstöðin opnuð
29. júní sl. á Bíldshöfða 2.
Jón Atli Benediktsson, prófessor
við Verkfræðideild Háskóla Íslands
og stjórnarformaður Metan hf, segir
að kosturinn við notkun metans sé í
fyrsta lagi sá að það sé umhverfis-
vænn orkugjafi auk þess sem að
auðlindin sé innlend og því í rauninni
óskynsamlegt að nýta hana ekki. Að
sögn Jóns Atla hníga sterk umhverf-
isrök að því að nota metan til að
knýja bíla áfram. Þegar metan er
brennt í vélum bifreiða myndast kol-
díoxíð í útblæstrinum sem í reynd er
eingöngu tilflutningur á því koldíox-
íði sem annars verður til við bruna
hauggassins í Álfsnesi. Þannig eykst
koldíoxíð ekki í andrúmsloftinu við
brennslu metans í bílvélum en við
notkun metans sparast jafnframt sú
koldíoxíðmengun sem annars hefði
orðið til vegna bruna þess eldsneytis
sem metanið kemur í staðinn fyrir.
Mestur ávinningurinn er þó vegna
þess að metan er mun hreinna elds-
neyti en bæði bensín og dísilolía. Við
brennslu metans verða skaðleg út-
blástursefni talsvert minni, t.d. er
20% minna koldíoxíð í útblæstri frá
metanvélum en bæði frá bensín- og
dísilvélum. Kolmónoxíð er 90%
minna en í dísilvélum og 74% minna
en í bensínvélum og þá kemur 60%
minna af sóti frá metanvélum heldur
en frá bensínvélum og 80% minna af
sóti en dísilvélar gefa frá sér.
Þá segir Jón Atli annað eftirsókn-
arvert atriði vera það að vélar, sem
brenna metani, séu hljóðlátari en
aðrar bílvélar og af þeim sökum sé
mun þægilegra að aka þeim. Einnig
sé mikilvægt að gera sér grein fyrir
því að metan er ekki eitruð loffteg-
und, auk þess sem það er léttara en
loft og gufar því mjög fljótt upp.
Góður árangur náðst
í hreinsun á metani
Vinnsla á metani fer þannig fram
að hauggasi er dælt úr sorphaugn-
um á Álfnesi og þaðan í hreinsistöð
Metan. Í hreinsistöðinni er metanið
skilið frá koldíoxíðinu og dælt á
flöskur, eða kúta, sem safnað er
saman í sérhannaðan geymslugám.
Gáminum er síðan ekið að áfylling-
arstöð fyrir bíla. „Þetta er ákveðinn
flöskuháls sem stendur, að hafa bara
einn gám, en það þýðir að þegar
metanið klárast þarf að keyra með
gáminn upp í Álfsnes til að fylla
hann og síðan til baka. Þetta er eitt
af því sem við erum að bæta úr með
því að fjölga sérhönnuðum gámum í
umferð,“ segir Jón Atli.
Hreinsistöðin er fremur lítil enda
er starfsemi Metans enn þá á þróun-
arstigi en stöðin hefur þó komið vel
út og framleiðir mjög hreint metan.
„Okkar litla hreinsistöð hefur komið
ágætlega út og er að hreinsa metan
sem er yfirleitt 98% hreint þótt það
geti farið niður í 94%, þannig að hún
nær mjög góðum árangri í að
hreinsa metanið frá.“
Tæknin við hreinsun metans er
vel þekkt en fyrsti metanbíllinn kom
fram árið 1930. Jón Atli segir að
miðað við umhverfisvæna orkugjafa,
eins og vetni, sé kostur metans sá að
tæknin sé þegar til reiðu og fram-
leiðsla komin í gang. Á Íslandi eru
nú 20 bílar með svokallaða tvíorku-
vél sem fluttir voru hingað síðasta
sumar. Þeir eru ræstir með bensíni
en geta síðan gengið bæði fyrir met-
ani og bensíni. Vélarnar eru eins og
annarra bíla, aðeins hefur verið bætt
við innspýtingarbúnaði fyrir metan.
Sorpbílar knúnir með
metani loka hringnum
Í síðasta mánuði kom til landsins
sorpbíll til kynningar, sem gengur
eingöngu fyrir metangasi, og var
hann notaður hér í eina viku. Jón
Atli segir að mikil ánægja hafi verið
með bílinn enda sé það spennandi
kostur að nota metan til að knýja
sorpbíla áfram. Segja má að hring-
urinn lokist þegar sorpbílarnir eru
drifnir áfram af hauggasi sem til
verður í úrgangi sem bílarnir aka
með á haugana.
Í Svíþjóð er orðið algengt að sorp-
bílar noti metan en að sögn Jóns
Atla hafa mörg sveitarfélög þar tek-
ið pólitíska ákvörðun um að fara þá
leið, þó svo að metan sorpbílar séu
heldur dýrari í verði.
Jón Atli segir að stjórn Metans
vonist til þess að borgaryfirvöld í
Reykjavík taki innan skamms
stefnumarkandi ákvörðun um notk-
un metanknúinna sorpbíla. Laga-
breyting um lækkun vörugjalds á
tvíorkubifreiðar var samþykkt á Al-
þingi sl. vor og batnaði samkeppn-
isstaða metans sem orkugjafa við þá
breytingu en samkvæmt henni var
vörugjald á slíkar bifreiðar lækkað
um 120 þúsund krónur.
Metan er aðili að ENGVA
(European Natural Gas Vehicle
Association) en það er félagsskapur
156 félaga í 30 löndum í Evrópu um
jarðgasbíla.
Í nýlegu fréttabréfi félagsins seg-
ir að umhverfisráðherra Þýska-
lands, Jurgen Tritten, hafi sett í
framkvæmd nýja áætlun sem miðar
að því að fjölga metanknúnum leigu-
bílum og skólabílum. Ástæður þess
að áætlunin snýst eingöngu um
fjölgun metanknúinna bifreiða er sú
að aðrir umhverfisvænir kostir, s.s.
vetni, verða almennt ekki til reiðu
fyrir en eftir 10 til 15 ár.
Til verkefnisins verður varið 8
milljónum þýskra marka, eða um
320 milljónum íslenskra króna, og fá
m.a. fyrstu 400 leigubílstjórarnir
sem taka þátt í verkefninu 360.000
króna styrk til að skipta yfir í met-
anknúnar bifreiðar.
Hauggas nýtt til
framleiðslu á rafmagni
Jón Atli segir að þótt hauggasið
sé nú þegar til staðar, þýði það ekki
að þessi orkugjafi geti verið ókeypis.
Það ætti hins vegar að geta verið
ódýrara og hefur fyrirtækið einbeitt
sér að því að hreinsa og selja metan
sem orkugjafa fyrir bifreiðar. Verð-
ið á metani er heldur lægra en bens-
ínverð í dag. Einn rúmmetri af met-
ani kostar 80 krónur en hver
rúmmetri gefur sömu orku og 1,12
lítrar af bensíni.
„Sé litið til framtíðar er ljóst að
við viljum fjölga þeim bílum sem
nota metan. Markhópurinn er fyrst
og fremst fyrirtæki sem hafa marga
bíla í notkun og hafa mörg slík fyr-
irtæki sýnt málinu umtalsverðan
áhuga. Þetta er auðvitað sterkt
ímyndarmál fyrir fyrirtækin. Því
miður hefur hins vegar gætt minni
áhuga hjá bílainnflytjendum, ef
Hekla hf. er undanskilin en fyrir-
tækið flutti inn fyrstu 20 bílana og
sorpbíllinn sem hingað kom var á
vegum fyrirtækisins.“
Jón Atli segir að nái Metan hf ekki
fótfestu á þessum markaði, muni
fyrirtækið snúa sér að öðrum mörk-
uðum. „Það er mikill áhugi víða, eins
og í stóriðnaði þar sem hauggasið er
annað hvort notað hreinsað eða
óhreinsað. Það hafa ýmsar hug-
myndir komið fram og ef af slíku
yrði myndum við líklega leggja gas-
leiðslu beint frá Álfsnesi til þeirra
sem myndu nota gasið.“
Í maí sl. var Metan hf. veitt leyfi
til framleiðslu á rafmagni sem fer
þannig fram að vélar til rafmagns-
framleiðslu eru knúnar áfram af
hauggasi. Í framhaldi af því var und-
irritaður samningur við Orkuveitu
Reykjavíkur um kaup Orkuveitunn-
ar á óhreinsuðu hauggasi til raf-
magnsframleiðslu. Var samið um að
Orkuveitan ætti tækjabúnaðinn en
fengi aðstöðu á athafnasvæði Met-
ans á Álfsnesi. Samkvæmt samn-
ingnum er Orkuveitunni tryggt
nægt magn af hauggasi þegar raf-
orkuþörf borgarbúa er sem mest frá
nóvember til mars.
Morgunblaðið/Þorkell
Jón Atli Benediktsson, stjórnarformaður Metans hf.
Morgunblaðið/Þorkell
Fyrsti metanknúni sorpbíllinn var kynntur hér á landi í síðasta mánuði.
ÁKVEÐIÐ hefur verið að færa
sölu spariskírteina í áskrift til
verðbréfafyrirtækja frá og með 5.
febrúar nk. Í bréfi sem Lánasýsla
ríkisins hefur sent áskrifendum
spariskírteina segir að breytingin
sé gerð vegna þess að nú bjóði fjöl-
margir aðilar upp á reglulegan
sparnað og því þyki rétt að rík-
issjóður hætti áskriftarsölu ríkis-
verðbréfa og láti hana alfarið í
hendur markaðsaðila.
Í bréfinu segir að Lánasýslan
hafi nýverið kannað hverjir gætu
boðið áskrifendum spariskírteina
svipaðan valkost varðandi sparnað
þeirra. Óskað var eftir að áskrif-
endum yrði boðið upp á ríkis-
tryggðan verðbréfasjóð og bárust
gild tilboð frá þremur aðilum. Hag-
stæðasta tilboðið kom frá Lands-
bréfum, en þar á eftir komu Kaup-
þing/SPRON og Verðbréfamark-
aður Íslandsbanka-FBA, VÍB.
Þórður Jónasson, forstjóri Lána-
sýslunnar, segir að um 10.000
manns hafi sparað reglulega með
kaupum á spariskírteinum. Þessi
þáttur sé þó ekki mjög stór hluti
starfsemi fyrirtækisins.
„Við kynntum nýjar áherslur í
starfsemi okkar sl. haust og breyt-
ingarnar nú taka mið af því. Við
viljum setja aukinn kraft í að
lækka fjármögnunarkostnað ríkis-
sjóðs.“
Þórður sagði líklegt að störfum
hjá Lánasýslunni fækkaði eitthvað
með þessum breytingum en sam-
hliða breytingunum nú hefði verið
samið við verðbréfafyrirtækin um
að ráða fólk með reynslu af slíkum
viðskiptum.
Lánasýsla ríkisins
Sölu spari-
skírteina í
áskrift hætt
FÁIR ERU á ferli á lóð Háskóla Íslands þessa dag-
ana, enda stúdentar í langþráðu jólafríi. Þeir allra
samviskusömustu grúska í námsbókunum og
velta fyrir sér kenningum lærimeistaranna en
láta fagurlega innpakkaðar jólabækurnar bíða
betri tíma.
Aðrir fara í rösklega heilsubótar- og hressing-
argöngu á þessu fyrirtaks útivistarsvæði, enda er
fátt betra en góður göngutúr í frísku vetrarloft-
inu. Göngugarpurinn á myndinni getur heldur
ekki kvartað yfir félagsskapnum þar sem Snati
fetar trúr og traustur í hvert fótspor eiganda síns.
Morgunblaðið/Þorkell
Göngutúr á stilltum degi
mér finnst það skrýtið, að nú var
hann ráðinn til LÍÚ til þess að koma
með einhvern ferskan blæ í þessar
viðræður til þess að menn gætu tal-
HELGI Laxdal, formaður Vél-
stjórafélags Íslands, segir LÍÚ ein-
göngu hafa boðið kjarasamninga
sem ekki hafa í för með sér neina
launahækkun fyrir sjómenn og því
sé ekki hægt að ná samkomulagi um
nýja kjarasamninga. Þá segir Helgi
það ósannindi að forystumenn sjó-
manna séu ósamstæðir og tefji fyrir
viðræðum líkt og Friðrik J. Arn-
grímsson, framkvæmdastjóri LÍÚ,
heldur fram í frétt sem birtist í
Morgunblaðinu á gamlársdag. Að
sögn Helga hefur framkvæmda-
stjóri LÍÚ ekkert nýtt haft fram að
færa í samningaviðræðunum. „Og
að saman. En það eina sem hann
hefur til málanna að leggja er að éta
upp nákvæmlega það sama og
Kristján Ragnarsson hefur sagt í
gegnum tíðina. Þetta hefur allt snú-
ist um það að við getum ekki talað
saman og annað bull. Það liggur fyr-
ir að hann hefur sagt að þeir geri
ekki kjarasamning sem hefur í för
með sér útgjaldaauka. Og ég skil
það ekki öðruvísi en svo að það sé
ekki verið að bjóða neitt.“ Samn-
ingar sjómanna og útvegsmanna
runnu út 15. febrúar í fyrra, en
næsti fundur samningsaðila verður
hjá ríkissáttasemjara 5. janúar nk.
klukkan 10. Að sögn Helga er nú
verið að afla verkfallsheimildar sem
stefnt er að að liggi fyrir 15. mars
næstkomandi.
Formaður Vélstjórafélagsins segir LÍÚ fara með ósannindi
Bjóða einungis
samninga án
launahækkunar