Morgunblaðið - 03.01.2001, Qupperneq 16
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
16 MIÐVIKUDAGUR 3. JANÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Reykjavíkurborg og Kópavogsbær taka höndum saman
!"#$%&
'(%&)*!
Sameiginlegt deiliskipu-
lag Fossvogsmýrar
Fossvogur cm djúpar. Í hámarksflóði,sem stendur í stuttan tíma, er
gert ráð fyrir að mesta dýpi í
læk og tjörnum geti orðið 105
cm. Einnig er reynt að gera
svæðið allt aðgengilegra og
meira aðlaðandi sem útivistar-
svæði, t.d. með því að fjölga
gönguleiðum. Í því skyni eru
m.a. lagðir stígar að tjörnun-
um og bakkarnir hlaðnir úr
grjóti og brýr byggðar yfir
lækinn og komið upp áningar-
stöðum með borðum og bekkj-
um. Einnig munu bætast við
nokkur bílastæði fyrir almenn-
ing gegnt Birkigrund 60–66.“
Að sögn Yngva er gert ráð
fyrir að malarfylling í lækjum
og lækjarbotni verði 30 cm og
að jarðvegsdúkur verði undir
malarfyllingu í tjarnarbotni.
Heildarhæð á grjóthleðslum
verður 105 cm. Þá er gróður-
setning fyrirhuguð meðfram
um; en þarna er engin mýri
lengur.“
Affallsvatn sett í settjarnir
Hvernig er svæðið núna og
hverju er verið að breyta?
„Á svæðinu eru núna gras-
flatir, matjurtagarðar og
göngustígar og framræslu-
skurður sem var grafinn fyrr á
öldinni skilur á milli sveitar-
félaganna tveggja. Skipulagið
gengur út á að færa affalls-
vatn, sem núna fer í Fossvogs-
ræsið, í Fossvogslækinn. Á
þessu svæði er skurðurinn
þráðbein lína með mjög háum
bökkum og er eitt markmið
skipulagsins að gera hann
náttúrulegri, þ.e.a.s. landið að
honum er lækkað og hann for-
maður til að ýmsu leyti, og
búnar til settjarnir. Undir
venjulegum kringumstæðum
verða tjarnir ekki nema um 25
SKIPULAGSSTJÓRAR
Reykjavíkur og Kópavogs
hafa nýverið auglýst í samein-
ingu tillögu að deiliskipulagi
vesturhluta Fossvogsdals, sem
Yngvi Þór Loftsson, landslags-
arkitekt hjá Landmótun í
Kópavogi, hefur gert. Í aðal-
skipulagi fyrir Reykjavík er
svæðið skilgreint sem almennt
útivistarsvæði og í aðalskipu-
lagi Kópavogs er það skil-
greint sem opið svæði.
„Þetta er u.þ.b. 8 hektara
svæði sem afmarkast af íbúð-
arbyggð í Reykjavík og Kópa-
vogi, Hermannsskógi í vestri,
og íþróttasvæði HK í austri,“
sagði Yngvi í samtali við Morg-
unblaðið í gær. „Til að afmarka
svæðið í Fossvogsdalnum kalla
ég það Fossvogsmýri, sem er
gamalt örnefni af þessum slóð-
stígum, læk og tjörnum, og
hæðarmunur við vestustu
tjörnina á svo að mynda lágan
foss, svo eitthvað sé nefnt.
Hvenær er ráðgert að hefja
framkvæmdir?
„Þetta var auglýst á milli
jóla og nýárs, og það ferli tek-
ur fjórar vikur. Síðan hefur
fólk tvær vikur til að gera at-
hugasemdir. Það eru því ekki
fyrr en eftir 6 vikur að kemur
að næsta skrefi. Það merkir að
frestur til að gera athuga-
semdir rennur út 8. febrúar
næstkomandi. Þegar sam-
þykkt deiliskipulag liggur fyr-
ir verður farið að vinna að út-
boðsgögnum og gert ráð fyrir
að framkvæmdir hefjist í vor.
Þar sem verkið er hluti af
framkvæmd vegna regnvatns-
lagna er það á vegum gatna-
deilda sveitarfélaganna,“ sagði
Yngvi að lokum.
standi fyrir sundinu er það
öllum opið og þeir Kristinn
Einarsson og Skúli Þorvalds-
son tóku sundsprettinn með
lögreglumönnunum. Syntir
voru um 100 m. Eftir sundið
var farið á lögreglustöðina
við Hverfisgötu og drukkið
heitt kakó.
Jón Otti segir mikla sund-
kappa ætíð hafa verið í röð-
um lögreglumanna, t.d. þeir
Eyjólfur Jónsson og Axel
Kvaran. Fyrst hafi lög-
reglumenn synt nýárssund
árið 1910. Þá var keppt en á
nýársdag var synt hópsund.
NÝÁRSSUND Sjósundfélags
lögreglunnar var þreytt á ný-
ársdag í ísköldum sjónum og í
allhvössum vindi við Æg-
isgarð í Reykjavíkurhöfn.
Samkvæmt hitamæli lögregl-
unnar var sjávarhiti -1°C og
lofthiti -3°C.
Jón Otti Gíslason lögreglu-
varðstjóri var einn þeirra
sem stungu sér til sunds.
„Þetta var óvenjukalt en
gaman,“ segir Jón. „Það var
vel hressandi að byrja árið
svona.“ Sundið styrki líkam-
ann og hressi hug og anda.
Það sé því lögreglumönnum
hollt að leggja stund á sjóböð.
Þátttaka lögreglumanna varð
þó minni en til stóð vegna
annasams nýársmorguns.
Fylgdarbátur og kafarar
voru til taks í höfninni en Jón
segir slíkar ráðstafanir nauð-
synlegar.
Auk Jóns Otta synti lög-
reglumaðurinn Arnþór Dav-
íðsson og Ingibjörg Sigurð-
ardóttir sem starfaði í
lögreglunni í sumar. Þó svo
Sundfélag lögreglunnar
Nýárssund Sjósundfélags lögreglunnar
Júlíus Sigurjónsson
Skúli Þorvaldsson stingur sér til sunds en Arnþór Davíðsson (nær) og Kristinn Einarsson
gera sig líklega til að fylgja á eftir.
Styrkir
líkamann
og hressir
andann
Ægisgarður
FRAMKVÆMDIR eru nokk-
uð á veg komnar við húsið
Skógarhlíð 12 en nýlega felldi
úrskurðarnefnd skipulags- og
byggingarmála úr gildi deili-
skipulag sem borgin hafði
samþykkt vegna lóðarinnar.
Á lóðinni, sem stendur
gegnt slökkvistöð Reykjavík-
ur, hefur Ísarni hf. verið veitt
leyfi til að reisa fimm hæða
hús með bílageymslu.
Niðurstaða úrskurðar-
nefndarinnar byggðist fyrst
og fremst á því að gert hafði
verið deiliskipulag fyrir lóð-
ina eina en ekki allan göt-
ureitinn. Fram hefur komið í
Morgunblaðinu að vinna við
skipulag svæðisins frá Litlu-
hlíð að Miklubraut milli Bú-
staðavegar og Skógarhlíðar,
sé á lokastigi og að ný tillaga,
sem taki til svæðisins alls,
verði auglýst í janúar. Þar er
áfram gert ráð fyrir fimm
hæða húsi á lóðinni við Skóg-
arhlíð 12.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Tvær hæðir nýja hússins við Skógarhlíð eru komnar upp.
Unnið á umdeildri lóð
Hlíðar
ELDRI borgarar í Hafnar-
firði munu fá nýja aðstöðu
fyrir félagsstarf sitt í nýbygg-
ingu verkalýðsfélagsins Hlíf-
ar við Flatahraun 3.
Eldri borgarar í Hafnar-
firði hafa nú félagsaðstöðu í
Hraunseli við Reykjavíkur-
veg en nýja aðstaðan verður á
rúmlega 600 fermetrum á 1.
hæð Flatahrauns 3 og er að-
eins ein lóð milli núverandi að-
stöðu og þeirrar nýju.
Ráðgert er að nýbyggingin
verði tekin í notkun 1. febrúar
2002.
Forsvarsmenn bæjarins og
verkalýðsfélagsins Hlífar
gerðu með sér samning vegna
húsbyggingarinnar í gær.
Ný aðstaða fyrir eldri
Hafnfirðinga
Hafnarfjörður
ÞAÐ er ekki á hverjum
degi að rúllubaggar eru
settir upp á húsþök, hvað
þá í miðri höfuðborg Ísland,
og eflaust eru þeir margir
borgararnir sem rekið hafa
augun í þá baggafjöld sem
blasir við uppi á þaki húss
BSÍ, og velt fyrir sér hvað
þar væri eiginlega að ger-
ast. Morgunblaðið er þar
engin undantekning og
hafði samband við Odd Ein-
arsson, framkvæmdastjóra
BSÍ, og bar einmitt fyrir
hann þá spurningu.
„Við settum þetta upp
fyrir nokkrum vikum. Hug-
myndin kom upphaflega
vegna þess, að BSÍ var
þjónustuaðili fyrir Go Air-
lines og við erum raunar að
búa okkur undir að taka
það hlutverk að okkur aft-
ur. Merki fyrirtækisins er
eintómir hringir, svo okkur
datt í huga að rúllubagg-
arnir gætu minnt á þá um-
boðsmennsku okkar. Það
var maður, sem hefur unnið
dálítið fyrir okkur við
hönnun og breytingar hér
innanhúss, sem fékk þessa
hugmynd. Það er nú eig-
inlega lítið meira um það
að segja. Við höfum kallað
þetta umhverfislistaverk,
þegar einhver hefur spurt.
Ein hugmyndin, sem kom
upp, var að fá lánuð hrein-
dýr úr Húsdýragarðinum,
dagana fyrir jólin, og beita
þeim á þakið. En það varð
nú ekkert út því,“ sagði
Oddur, léttur í bragði.
Eiga rúllubaggarnir að
vera þarna lengi?
„Nei, það finnst mér nú
ekki líklegt. Annars veit ég
það ekki. En á næstu vikum
kemur það í ljós. Við erum í
raun búin að ná því mark-
miði, sem við settum okkur.
Þetta hefur vakið ótrúlega
mikla athygli og við höfum
verið spurð margra og
ólíkra spurninga. Einn
spurði t.d. hvort við ættum
í vandræðum með að halda
þakinu niðri.“
Hafa borgaryfirvöld haft
samband við ykkur út af
þessu, í einhverjum klögu-
tón?
„Nei, nei. Og enginn hef-
ur svosem fett fingur út í
þetta, en menn hafa haft
misjafnar skoðanir. Sumir
hafa kallað þetta glapræði
og okkur erkifávita, en aðr-
ir eru hrifnir af þessu fram-
taki og segja þetta
skemmtilegt uppátæki. En
allir hafa skoðun á því.“
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Rúllubaggarnir á þaki BSÍ hafa vakið ómælda athygli, en
ekki finnst öllum þetta beinlínis til prýði.
„Umhverfis-
listaverk“ á
þaki BSÍ
Vatnsmýri