Morgunblaðið - 03.01.2001, Side 26
VIÐSKIPTI
26 MIÐVIKUDAGUR 3. JANÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Útsalan
er hafin
Strandgötu 11,
sími 565 1147
Opið laugardag frá kl. 10.00—16.00
NUDDNÁM
hefst 10. janúar nk.
Kvöld- og helgarnám.
Námið er viðurkennt af
menntamálaráðuneytinu og
Félagi íslenskra nudd-
fræðinga. Útskriftarheiti
er nuddfræðingur.
Upplýsingar og innritun í
síma 897 2350 og 511 1085
virka daga frá kl. 13—17.
Nuddskóli Guðmundar,
Hólmaslóð 4, Reykjavík. NETSÖLUFYRIRTÆKIÐ Lets-
buyit.com hefur sótt um greiðslu-
stöðvun og hefur hætt að taka við
pöntunum frá viðskiptavinum.
Stephen Cox, sem sér um samskipti
fyrirtækisins við fjárfesta, segir á
AP-fréttavefnum að einn möguleik-
inn í stöðunni sé að draga starfsemi
fyrirtækisins verulega saman. Höf-
uðstöðvar Letsbuyit.com eru í
Amsterdam í Hollandi og rekur fyr-
irtækið verslunar- og þjónustuvef
víða í Evrópu.
Gengi hlutabréfa í Letsbuyit.com
var 1,25 evrur þegar viðskiptum
með þau var hætt á Neuer Markt
hlutabréfamarkaðnum í Frankfurt í
Þýskalandi 29. desember síðastlið-
inn. Útboðsgengi fyrirtækisins var
hins vegar 3,5 evrur þegar það fór á
markað í júlí 2000. Íslenskir fjár-
festar og sjóðir eiga hlut í
Letsbuyit.com.
Styrkurinn átti að vera í fjöldanum
Tilkynningin um að Letsbuyit.-
com hefði sótt um greiðslustöðvun
kom eftir að nokkurrar bjartsýni
gætti hjá fyrirtækinu á meðan jóla-
innkaupin stóðu sem hæst og tekjur
þess jukust. Verðbréfasérfræðingar
höfðu hins vegar látið í ljós efasemd-
ir um að viðskiptahugmyndin, sem
fyrirtækið byggist á, geti gengið
upp. Letsbuyit.com tekur við pönt-
unum frá viðskiptavinum um kaup á
vörum, sér síðan um að útvega þær
og reynir að semja um lækkun á
verði þeirra frá birgjum. Hugmynd-
in gengur út á að styrkurinn búi í
fjöldanum, þ.e. því fleiri sem kaup-
endurnir séu því lægra verð þurfi að
greiða fyrir keyptar vörur.
Reynt var að laga stöðu Letsbuy-
it.com með 20% fækkun starfsfólks í
ágúst síðastliðnum. Tap fyrirtækis-
ins lækkaði við þær aðgerðir og var
26,4 milljónir evra, um 2,1 milljarður
íslenskra króna, á ársfjórðungnum
frá júlí til september 2000 í sam-
anburði við 43,3 milljónir evra, um
3,4 milljarða íslenskra króna, næstu
þrjá mánuði þar á undan frá apríl til
maí.
Stjórnendur Letsbuyit.com hafa
reynt að útvega fjármagn til að
koma í veg fyrir gjaldþrot fyrirtæk-
isins. Martin Coles, framkvæmda-
stjóri Letsbuyit.com, segir á AP-
fréttavefnum að viðræður hafi átt
sér stað við hluthafa um hugsanlegt
aukið rekstrarfé, en Stephen Cox
segir hins vegar að það hafi ekki
skilað sér enn. Hann segir jafnframt
að ekki liggi fyrir hvort til greiðslu-
stöðvunar muni koma. Það sé hins
vegar vilji stjórnenda Letsbuyit.com
að starfsemi fyrirtækisins haldi
áfram.
Letsbuyit.com sækir um greiðslustöðvun
Starfseminni verði
haldið áfram
Lundúnum, AP.
BÚNAÐARBANKI Íslands sendi frá
sér afkomuviðvörun eftir lokun Verð-
bréfaþings Íslands 29. desember sl.,
síðasta viðskiptadag ársins. Þar kom
fram að afkoma bankans verði tals-
vert undir áætlunum.
Í fréttatilkynningu Búnaðarbank-
ans í lok nóvember vegna uppgjörs
bankans fyrir fyrstu níu mánuði árs-
ins var á það bent að aðstæður á fjár-
magnsmarkaði jafnt innanlands sem
erlendis hafi verið mjög erfiðar á
árinu. „Á fjórða ársfjórðungi hafa að-
stæður á fjármálamörkuðum áfram
farið versnandi. Sveiflur á fjármála-
mörkuðum hafa talsverð áhrif á
rekstrarafkomu bankans og því er
ljóst að rekstrarniðurstaða ársins
verður talsvert undir áætlun. Al-
mennur bankarekstur hefur hins veg-
ar gengið mjög vel á árinu og er
tekjuaukning af grunnstarfsemi
bankans í takt við áætlanir,“ segir í
tilkynningu bankans.
Hagnaður Búnaðarbankans fyrir
skatta fyrstu níu mánuði ársins nam
438 milljónum króna og var það nokk-
uð minni hagnaður en gert hafði verið
ráð fyrir í rekstraráætlunum. Loka-
gengi bréfa í Búnaðarbankanum var
4,75 fyrir áramótin en viðskipti voru
með bréf félagsins fyrir tæpar 11
milljónir króna 29. desember sl.
Rekstur Búnaðarbankans
undir áætlunum
SALA Flugleiða mæld í seldum sæt-
iskílómetrum jókst um 14,6% í nóv-
ember í ár frá sama mánuði í fyrra en
framboðið mælt á sama mælikvarða
var 4,7% minna. Sætanýting var því
71,6%, eða rúmlega 20% betri en í
sama mánuði 1999. Í tilkynningu frá
Flugleiðum segir að þetta gefi vonir
um að nýting verði töluvert betri í
upphafi næsta árs en hún var í upp-
hafi þessa árs. Í heild hefur sætanýt-
ing hjá Flugleiðum aukist um tæp 2%
á árinu.
Í yfirliti um framboð og flutninga í
nóvember segir að í þeim mánuði hafi
komið fram fyrstu vísbendingar um
árangur þeirra breytinga á rekstri
millilandaflugs Flugleiða sem kynnt-
ar voru í tengslum við níu mánaða
uppgjör félagsins á dögunum. Kom-
inn sé til framkvæmda verulegur
hluti þeirrar 8–10% minnkunnar
framboðs sem boðuð var yfir vetrar-
mánuðina og eins og vonast hafi verið
til hafi það ekki dregið úr sölu heldur
bætt sætanýtinguna.
Í nóvember fjölgaði farþegum í
millilandaflugi Flugleiða um 15,2%
samanborið við nóvember 1999 og
voru farþegar alls 99.465. Farþegum
fjölgaði meira á flugleiðum til og frá
Íslandi en á leiðum yfir Norður-Atl-
antshafið, eða um 17,5%. Farþegum á
almennu farrými fjölgaði í nóvember
um 16,1% og á viðskiptafarrými um
5,3%.
Farþegum í innanlandsflugi
fjölgar um 18,5%
Fyrstu ellefu mánuði ársins hefur
millilandafarþegum félagsins í heild
fjölgað um tæp 8% ef miðað er við
sama tíma í fyrra, en farþegum til og
frá Íslandi hefur fjölgað mun meira,
eða um 13,7%.
Farþegar í innanlandsflugi Flug-
félags Íslands, dótturfélags Flug-
leiða, voru í nóvember 26.732 og fjölg-
aði um 18,5% frá fyrra ári. Fyrstu
ellefu mánuði ársins voru farþegar í
innanlandsflugi 328.201 og hefur
þeim fjölgað um 19,9% frá 1999.
Í nóvember fluttu Flugleiðir–
Frakt, dótturfélag Flugleiða, 3.316
tonn af frakt, sem er 21,4% meira en í
sama mánuði í fyrra. Fyrstu ellefu
mánuði ársins jukust fraktflutningar
um rúm 43% og urðu vel yfir 30 þús-
und tonn.
Framboð og flutningar Flugleiða í nóvember
Sætanýting jókst um
2% árið 2000
Í nóvember fluttu Flugleiðir–Frakt, dótturfélag Flugleiða, 3.316 tonn af
frakt, sem er 21,4% meira en í sama mánuði í fyrra.
Ljósmynd/Baldur Sveinsson
FJÁRFESTINGARFÉLAGIÐ
Gilding ehf. eignaðist þann 29. des-
ember 5% í Kaupþingi hf. og er þar
með orðið fjórði stærsti eigandi í
félaginu með 5,02% hlut. Nafnvirði
hlutarins er 48,63 milljónir króna.
Þrír stærstu eigendur í Kaupþingi
eru Sparisjóður Reykjavíkur og ná-
grennis með 20,10%, Sparisjóðurinn í
Keflavík með 10,02% og Sparisjóða-
banki Íslands hf. með 7,35%.
Sparisjóður Hafnarfjarðar (SPH)
var annar stærsti hluthafinn í Kaup-
þingi áður en hann seldi 6,05% hlut í
félaginu skömmu fyrir jól. Þau við-
skipti eru nú gengin í gegn án þess að
forkaupsréttarhafar hafi nýtt sér rétt
sinn. SPH á nú 4,95% í Kaupþingi.
Gilding
eykur hlut
sinn í Kaup-
þingi hf.VÍSITALA iðnaðarframleiðslu í
Bandaríkjunum hefur ekki mælst
lægri en í desember sl. frá árinu 1991
og er enn ein staðfesting á að farið sé
að draga verulega úr hagvextinum.
Margir óttast að lendingin geti orðið
hörð og að hætta sé á að niðursveifl-
an geti orðið meiri en áður var talið.
Gengi hlutabréfa í Bandaríkjunum
féll í kjölfar fréttanna. Talið er víst
að þrýstingur á stjórnendur seðla-
banka Bandaríkjanna að lækka vexti
nú í lok mánaðarins aukist fyrir vik-
ið. Fjármálamaðurinn George Soros
hefur sagt að alþjóðleg fjármála-
kreppa hljóti að vera yfirvofandi og
að stjórnvöld í Bandaríkjunum geti
lítið gert til þess að afstýra henni.
Soros segir að stjórnendur seðla-
bankans hafi verið of seinir að bregð-
ast við samdráttarmerkjum.
Sumir sérfræðingar telja að of
mikið sé gert úr lækkun vísitölu iðn-
aðarframleiðslunnar, staðreyndin sé
sú að vægi þjónustugeirans aukist
stöðugt á kostnað framleiðslunnar
og að vöxtur í þjónustustarfsemi sé
enn góður en um 80% Bandaríkja-
manna vinna við verslun og þjón-
ustu.
Hægir á í
Banda-
ríkjunum
LOKAGILDI gengisvísitöl-
unnar í lok ársins 2000 var
121,49, sem er hæsta lokagildi
hennar til þessa. Krónan veikt-
ist því um 10,40% á árinu, en
upphafsgildi vísitölunnar var
110,05, samkvæmt upplýsing-
um frá Íslandsbanka-FBA.
Lægst náði vísitalan 107,75
hinn 28. apríl sl. Heildarvið-
skipti á millibankamarkaði
voru 766,5 milljarðar á síðasta
ári og meðalvelta á dag því 3,06
milljarðar en var 1,873 millj-
arðar árið 1999 og 1,570 millj-
arðar 1998. Mest viðskipti urðu
14. júlí fyrir 20,750 milljarða.
Krónan
veiktist um
10,4% á árinu
LANDSBANKINN spáir
0,45% hækkun á vísitölu
neysluverðs milli desember
og janúar. Gangi spáin eftir
hefur vísitala neysluverðs þá
hækkað um 3,84% á síðustu 12
mánuðum. Ennfremur verður
verðbólga milli áranna 1999
og 2000 um 5,05%.
Helstu forsendur í spánni
eru að þensla á húsnæðis-
markaði sé minni en á síðasta
ári og þá hefur verðlækkun á
bensíni um 0,2% áhrif til
lækkunar á vísitölunni í mán-
uðinum.
Landsbank-
inn spáir
5,5% verð-
bólgu