Morgunblaðið - 03.01.2001, Page 28
ERLENT
28 MIÐVIKUDAGUR 3. JANÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ
BILL Clinton Bandaríkjaforseti
veitti á sunnudag heimild til að
fulltrúi Bandaríkjanna undirritaði
samning sem kveður á um að stofn-
aður verði alþjóðlegur stríðsglæpa-
dómstóll á vegum Sameinuðu þjóð-
anna. Á hinn bóginn sagði Clinton að
samningurinn myndi ekki verða lagð-
ur fyrir öldungadeild þingsins fyrr en
búið væri að tryggja betur að dóm-
stólnum yrði ekki misbeitt gegn
bandarískum hermönnum. Er sam-
þykkt forsetans því einkum táknræns
eðlis. Hörð andstaða er við samning-
inn í varnarmálaráðuneytinu banda-
ríska og meðal repúblikana á þingi.
„Ég tel að alþjóðlegur stríðsglæpa-
dómstóll, sem styðst við vandaðar
reglur og gott skipulag, geti átt mik-
inn þátt í að sporna við vaxandi tíðni
mannréttindabrota um allan heim,“
sagði Clinton í yfirlýsingu sem gefin
var út í Hvíta húsinu.
„Ég tel að Clinton forseti hafi með
undirrituninni ýtt undir vonir ótal-
inna milljóna manna um allan heim
um að réttlæti nái fram að ganga er
hann gaf til kynna stuðning Banda-
ríkjanna við mikilvægasta alþjóða-
dómstól frá því að Nürnberg-dóm-
stóllinn var og hét,“ sagði Richard
Dicker, einn af ráðgjöfum mannrétt-
indasamtakanna Human Rights
Watch.
Sem stendur eru tveir alþjóðlegir
dómstólar á vegum SÞ starfandi,
annars vegar vegna átakanna í Júgó-
slavíu og hins vegar þjóðarmorðsins í
Rúanda. Settur var á sínum tíma
frestur sem rann út á sunnudags-
kvöld; þau ríki sem ekki hefðu þá
undirritað samninginn fyrir þann
tíma hefðu þurft að staðfesta hann
skilyrðislaust ef þau ætluðu sér að
taka einhvern þátt í samstarfinu um
gerð hans.
Gert er ráð fyrir að dómstóllinn
taki til starfa eftir tvö ár. Árið 1998
voru nokkrar grundvallarreglur um
starfsemi hans samþykktar af fulltrú-
um 120 ríkja á ráðstefnu í Róm.
Öldungadeildarþingmaðurinn
Jesse Helms, sem er repúblikani og
mjög hægrisinnaður, gagnrýndi
ákvörðun Clintons af mikilli hörku.
Sagði hann Clinton vera að reyna að
binda hendur verðandi forseta,
George W. Bush, í málinu. Helms er
formaður utanríkismálanefndar
þingdeildarinnar.
Stríðs-
glæpadóm-
stóll sam-
þykktur
SÞ. AP.
Clinton
Bandaríkjaforseti
NEÐRI deild kambódíska þings-
ins samþykkti í gær lagafrumvarp
sem kveður á um að stofnaður
verði sérstakur dómstóll til að
sækja helstu leiðtoga Rauðu
khmeranna til saka fyrir þjóðar-
morð á árunum 1975–79. Dómstóll-
inn verður skipaður kambódískum
og erlendum dómurum samkvæmt
samkomulagi Kambódíustjórnar
og Sameinuðu þjóðanna frá því í
apríl.
92 þingmenn af 120 voru við-
staddir atkvæðagreiðsluna og
frumvarpið var samþykkt einróma.
Umræðan um dómstólinn stóð að-
eins í tvo daga þar sem leiðtogar
allra þingflokkanna höfðu sam-
þykkt frumvarpið.
Öldungadeild þingsins og stjórn-
lagaráð Kambódíu þurfa að sam-
þykkja frumvarpið áður en það
verður að lögum. Stjórnin og Sam-
einuðu þjóðirnar þurfa síðan að
undirrita samning um framkvæmd
réttarhaldanna til að hægt verði að
stofna dómstólinn.
Norodom Ranariddh prins, for-
seti þingsins, sagði á föstudag að
undirbúningur réttarhaldanna
gæti tekið allt að tvö ár. Sam-
kvæmt frumvarpinu á að saksækja
„hátt setta leiðtoga Rauðu khmer-
anna og þá sem bera mesta
ábyrgð“ á grimmdarverkum
kommúnistahreyfingarinnar frá
apríl 1975 til janúar 1979. Áætlað
er að ógnarstjórn Rauðu khmer-
anna hafi kostað 1,7 milljónir
Kambódíumanna lífið.
Margir fyrrverandi liðsmenn
Rauðu khmeranna gengu í flokk
Huns Sens forsætisráðherra,
Kambódíska þjóðarflokkinn, og
lögðust gegn stofnun dómstólsins
af ótta við að þeir yrðu dregnir
fyrir rétt. Þeir ákváðu þó að styðja
frumvarpið vegna ákvæðisins um
að aðeins þeir sem bæru „mesta
ábyrgð“ á grimmdarverkunum
yrðu sóttir til saka.
Varað við óeirðum
Ekki hefur enn verið ákveðið
hverjir verði ákærðir. Aðeins tveir
af helstu forystumönnum Rauðu
khmeranna, Ta Mok, fyrrverandi
yfirmaður hersveita þeirra, og
Kaing Khek Iev, sem stjórnaði af-
tökum hreyfingarinnar, eru nú í
varðhaldi. Leiðtogi Rauðu khmer-
anna, Pol Pot, lést fyrir tveimur
árum en margir af fylgismönnum
hans dvelja nú óáreittir nálægt
landamærunum að Taílandi.
Hun Sen sagði í síðasta mánuði
að ekkert væri því til fyrirstöðu að
ákæra tvo af helstu forystumönn-
um kommúnistahreyfingarinnar,
Nuon Chea, helsta hugmyndafræð-
ing hennar, og Khieu Samphan,
sem var leiðtogi hennar að nafninu
til. Þeir sögðu sig úr hreyfingunni
skömmu áður en hún leystist upp
fyrir tveimur árum og búa í bæn-
um Pailin, nálægt landamærunum
að Taílandi.
Hun Sen varaði hins vegar við
miklum óeirðum ef reynt yrði að
saksækja Ieng Sary, sem var utan-
ríkisráðherra á valdatíma Rauðu
khmeranna og gekk til liðs við
stjórn Huns Sens árið 1996 ásamt
þúsundum félaga í kommúnista-
hreyfingunni. Forsætisráðherrann
sagði að fylgismenn Sarys myndu
gera uppreisn ef hann yrði leiddur
fyrir rétt.
Réttarhöld yfir Rauðum
khmerum samþykkt
Phnom Penh. Reuters, AP.
SORG ríkti í Hollandi í gær
vegna eldsvoðans sem varð að
minnsta kosti níu ungmennum að
bana á dansstað í borginni Vol-
endam, skammt norðan við Amst-
erdam, á gamlárskvöld. 60 að
auki slösuðust og voru um 30
þeirra með mikil brunasár og
sum í lífshættu.
Embættismenn brunavarna
álíta að kviknað hafi í skreyt-
ingum í lofti salarins en vitað er
að deilt var út stjörnuljósum
meðal gestanna til að tendra þeg-
ar nýja árið gengi í garð. Húsið
sjálft var ekki mikið skemmt af
eldinum og margt bendir til þess
að orsök manntjónsins hafi frem-
ur verið fát og skelfing sem greip
um sig þegar eldurinn varð laus.
Talsmaður borgaryfirvalda sagði
að eldurinn hefði staðið stutt en
verið öflugur og honum hefði
fylgt geysimikill reykur.
Frank IJsselmuiden, borgar-
stjóri Volendam, sagði að tvennar
af þrennum neyðardyrum stað-
arins hefðu verið lokaðar. „Þetta
var hryllingsnótt. Ég sá ráðvillta
unglinga, augnatillitið var fullt af
ótta. Ég sá einn þeirra deyja,“
sagði hann.
Þrjár krár voru á staðnum. Ör-
yggisráðstafanir í húsinu hafa
verið gagnrýndar og hefur lög-
reglan hafið rannsókn á þeim
þætti málsins. Eigandinn var í
hópi þeirra sem slösuðust og því
ekki hægt að yfirheyra hann
strax. Fullyrt er að brunastigi
hafi á sínum tíma verið fjarlægð-
ur vegna framkvæmda í næsta
húsi og sjónarvottar sögðust hafa
séð gesti taka flugelda með sér
inn í húsið. Um 700 manns voru
innandyra er eldurinn braust út
sem mun hafa verið um klukkan
hálfeitt að morgni nýársdags.
Fórnarlömb slyssins voru flutt
á sjúkrahús víða um landið, sum
með þyrlum til Þýskalands og
Belgíu þar sem þau fengu sér-
staka aðhlynningu vegna bruna-
sára. Alls fengu um 90 manns að-
stoð á sjúkrahúsi vegna elds-
voðans en af þeim fengu 40 að
fara heim samdægurs. Hin látnu
voru á aldrinum 13 til 22 ára.
Aðeins eitt sjúkrahús í Hol-
landi er með sérfræðimiðstöð
vegna brunasára. Einn af starfs-
mönnum stöðvarinnar, dr. Martin
Hunseld, sagðist óttast mjög um
líf a.m.k. 15 þeirra sem slösuðust.
Sérfræðingar unnu að því í gær
að bera kennsl á þá sem létust
eða slösuðust illa. Mikil óvissa
ríkti síðdegis í gær hjá ættingjum
margra ungmenna sem ekki hafði
spurst til. Öldruð kona sagðist
vita að 25 ára gömul frænka
hennar hefði fengið meðhöndlun á
sjúkrahúsi í Rotterdam. „Bróðir
hennar, sem er bara 17 ára, var
þarna líka en við vitum ekkert um
afdrif hans. Við höfum ekki heyrt
neitt,“ sagði konan.
Kráin sem brann heitir Het
Hemeltje eða Litla himnaríki og
er mikið sótt af ungu fólki. Hún
er í hverfi gamalla timburhúsa
við höfnina en þar er nú fjöldi
diskóteka, kráa og veitingahúsa.
Margir slösuðust er þeir stukku
út um glugga til að forða sér en
staðurinn er á annarri hæð. Einn-
ig þjáðust margir af reykeitrun.
Slökkviliðsmaður sagði að ofboðs-
leg hræðsla hefði gripið um sig
meðal fólksins, sumir hefðu troð-
ist undir og fátið svo mikið að
hópar hefðu orðið fastir í dyrum
þar sem enginn komst áfram eða
aftur á bak. Allir hefðu í ofboði
reynt að komast burt frá eldtung-
unum.
Datt niður stiga
og bjargaðist
Ung stúlka sem var á staðnum
og slapp lifandi segist hafa séð
blossa en síðan hafi ljós slokknað.
Fólk hafi æpt og grátið. „Eld-
urinn virðist fljótlega hafa verið
slökktur en margir höfðu þegar
stokkið út um gluggana eða þá að
eldurinn hafði náð til þeirra á
gólfinu.“ Átján ára drengur sagði
að í ringulreiðinni hefði hann
dottið niður stigann niður á
fyrstu hæðina og hefði þannig
bjargað lífinu, aðeins brunnið á
höndum.
Flestir íbúar í Volendam eru
kaþólskir og prestar safnaðarins
fóru á milli ættingja til að hug-
hreysta þá eftir mætti. Sjálfboða-
liðar mönnuðu neyðarmiðstöð
sem sá um að veita fólki upplýs-
ingar jafnóðum og þær bárust.
Níu fórust í eldsvoða í borginni Volendam í Hollandi á gamlárskvöld
Reuters
Einu af fórnarlömbum eldsvoðans í diskótekinu ekið inn í sjúkrabíl að
morgni nýársdags. Vitað er að minnst níu manns fórust.
Reuters
Beatrix Hollandsdrottning ræðir við syrgjandi ættingja í Amsterdam
í gær. Hollendingar eru harmi slegnir vegna eldsvoðans.
Skelfing greip um
sig á dansstaðnum
Volendam. AP, Daily Telegraph, Reuters.
EINN af þriggja stjörnu kokkunum
í Frakklandi, Alain Passard, til-
kynnti sl. föstudag, að hann ætlaði
að hætta að bjóða upp á kjöt á hin-
um fína Arpége-veitingastað í Par-
ís. „Þegar kemur fram á vorið verð-
ur matseðillinn upp á grænmeti og
raunar hef ég sjálfur ekki etið kjöt í
langan tíma,“ sagði Passard í við-
tali við dagblaðið Libération.
Kvaðst ekki lengur hafa neina
ánægju af því að matreiða kjötrétti
og vildi verða fyrsti þriggja stjörnu
kokkurinn sem helgaði sig græn-
metinu. Arpége verður þó ekki al-
veg grænn í gegn því að á matseðl-
inum verður áfram einn
kjúklingaréttur. Passard sagði, að
einn af kostunum við grænmetið
væri, að það væri miklu ódýrara en
kjötið og því yrði unnt að lækka
verðið á réttunum.
Arpége
helgaður
græn-
metinu
♦ ♦ ♦