Morgunblaðið - 03.01.2001, Side 29
ERLENT
B ú s e t i h s f . S k e i f u n n i 1 9 s í m i 5 2 0 - 5 7 8 8
w w w . b u s e t i . i s
Fyrsta skrefið að öruggu húsnæði!
Umsóknarfrestur til
9. janúar kl. 16.00
Allar nánari upplýsingar fást á skrif-
stofu Búseta hsf. Opið virka daga
frá 8:30 til 15:30. Með umsóknum
um íbúðir á leiguíbúðalánum þarf
að skila: síðustu skattskýrslu og
launaseðlum síðustu sex mánaða.
Úthlutun íbúðanna fer fram
miðvikudaginn 10. janúar
kl. 12:00 - 12:30 að Skeifunni 19.
Umsækjendur verða að mæta
á tilskyldum tíma og staðfesta
úthlutun sína að öðrum kosti
gætu þeir misst réttindi sín
og íbúðinni yrði úthlutað til
annars félagsmanns.
3ja herb.
Miðholt 1 Mosfellsbæ
81m2 íbúð, 103 Alm.lán
Búseturéttur kr. 1.401.324
Búsetugjald kr. 51.691
Afhending í mars
Klapparstígur 20, Reykjavík
Nánari upplýsingar á skrifstofu
Miðholt 13 Mosfellsbæ
70m2 íbúð, 202 Leiguíb.lán
Búseturéttur kr. 1.206.791
Búsetugjald kr. 33.805
Afhending í febrúar
N Ý T T H Ú S - 26 Í B Ú Ð I R
KIRKJUSTÉTT 7 - 13, Grafarholti - Reykjavík
Umsóknarfrestur til 15. janúar nk.
Þrjár 5 herbergja, 114,3m2. Búseturéttur kr. 2.012.903
Búsetugjald kr. 78.482
Tuttugu og ein 4ra herbergja, 99,3m2 til 112,2m2
Búseturéttur frá kr. 1.756.542 til kr. 1.970.176
Búsetugjald frá kr. 68.725 til kr. 76.856
Tvær 3ja herbergja, 86,7m2 og 86,9m2
Búseturéttur kr. 1.528.667
Búsetugjald kr. 60.052
Áætluð afhending íbúðanna er í júní 2001
Íbúðirnar eru allar með almennum lánum
Allar nánari upplýsingar fást á skrifstofu Búseta hsf.
Opið virka daga frá 8:30 til 15:30.
Úthlutun íbúðanna fer fram miðvikudaginn 17. janúar
kl. 12:00 - 12:30 að Skeifunni 19.
Umsækjendur verða að mæta á tilskyldum tíma og staðfesta
úthlutun sína að öðrum kosti gætu þeir misst réttindi sín og
íbúðinni yrði úthlutað til annars félagsmanns.
2ja herb.
STARFSMENN ríkissjónvarpsins
í Tékklandi lýstu yfir verkfalli í
fyrradag til að leggja áherslu á
kröfu sína um að Jiri Hodac, ný-
ráðinn sjónvarpsstjóri, léti af störf-
um. Starfsmennirnir sögðust þó
ætla að halda áfram að senda út
fréttir.
Stéttarfélag starfsmannanna
lýsti yfir verkfalli til að koma í veg
fyrir að lögreglan réðist inn í
fréttastofu sjónvarpsins sem tugir
sjónvarpsmanna lögðu undir sig
skömmu fyrir jól til að mótmæla
ráðningu Hodac. Tékknesk lög
kveða á um að lögreglan megi ekki
grípa til aðgerða gegn friðsömum
verkfallsmönnum og ekki sé hægt
að segja þeim upp.
Fréttamenn ríkissjónvarpsins
segja að tékkneska útvarpsráðið
hafi ráðið Hodac sjónvarpsstjóra af
pólitískum ástæðum og saka hann
um að draga taum Vaclavs Klaus,
fyrrverandi forsætisráðherra.
Uppreisnarmennirnir í frétta-
stofunni krefjast þess að fréttir
þeirra verði sendar út og örygg-
isverðir sem staðið hafa við frétta-
stofuna frá því á sunnudag verði
fjarlægðir. Einn fréttamannanna
sagði að Hodac hefði farið inn í
fréttastofuna í fyrradag ásamt
fimm lögreglumönnum og byrjað
að skoða persónuskilríki um 40
sjónvarpsmanna sem taka þátt í
uppreisninni. Einn af aðstoðar-
mönnum Hodac sagði að lögreglan
hefði verið beðin um að skoða per-
sónuskilríkin til að ganga úr
skugga um hvort fólkið væri í leyf-
isleysi í sjónvarpsbyggingunni.
Sjónvarpsstjórinn hefur rekið upp-
reisnarmennina og krafist þess að
lögreglan fjarlægi þá úr fréttastof-
unni en yfirvöld hafa neitað því.
Uppreisnarmennirnir segja að
tveir þriðju starfsmanna ríkissjón-
varpsins styðji aðgerðir þeirra.
Vaclav Havel forseti styður upp-
reisnarmennina og talið er að þeir
njóti stuðnings mikils meirihluta
Tékka. Flokkur Klaus, Borgara-
legir demókratar, er eini flokkur-
inn sem styður enn ráðningu Ho-
dac.
Uppreisn hjá tékkneska ríkissjónvarpinu
AP
Starfsmaður tékkneska ríkis-
sjónvarpsins dregur matvæla-
poka upp á aðra hæð sjónvarps-
byggingar í Prag.
Sjónvarps-
mennirnir lýsa
yfir verkfalli
Prag. AP.
DYRUM hinnar umdeildu Þúsald-
arhvelfingar í London var lokað í
síðasta sinn á gamlársdag. 27.000
gestir sóttu hana heim á þessum síð-
asta degi, þar á meðal Tony Blair
forsætisráðherra og Cherie eig-
inkona hans ásamt þremur af fjór-
um börnum sínum. En þrátt fyrir
vel sóttan lokadag breytir það því
ekki að gestir hvelfingarinnar á
árinu eru nær helmingi færri en
upphaflegar spár gerðu ráð fyrir.
Sex og hálf milljón manna skoðaði
hvelfinguna á árinu en spár höfðu
gert ráð fyrir heimsóknum 12 millj-
óna.
Þúsaldarhvelfingin stendur á
bakka Thames-árinnar sem rennur
í gegnum London. Áður en hún var
tekin í notkun hafði Blair lýst því yf-
ir að hún yrði öfundarefni gervallr-
ar heimsbyggðar. Málin snerust aft-
ur á móti fljótt á annan veg, m.a.
vegna gífurlegs kostnaðar við bygg-
inguna en alls voru yfir 800 millj-
ónir punda, eða það sem svarar 100
milljörðum ísl. kr., lagðar í hana.
Á lokadeginum var Þúsaldarsýn-
ingin sýnd í 999. og síðasta skipti og
tóku áhorfendur henni afar vel.
Framkvæmdastjóri hvelfing-
arinnar, Pierre-Yves Gerbeau,
faðmaði leikara hennar og lýsti yfir
ánægju með frammistöðuna.
Spár um aðsókn
óraunsæjar
Gerbeau sagði í viðtali við Sky-
sjónvarpsstöðina fyrr um daginn að
dagurinn væri mjög sorglegur.
„Okkur tókst að snúa mislukkuðu
verkefni yfir í heimsviðburð,“ sagði
hann og bætti við að helsta vanda-
mál hvelfingarinnar hefði verið spá-
in um fjölda gesta. Hún hefði verið
óraunsæ og vel mætti una við þann
fjölda gesta sem skoðuðu hvelf-
inguna á árinu.
Óháð úttekt á framkvæmdastjórn
hvelfingarinnar sýndi hins vegar að
rekstur hvelfingarinnar var óskipu-
lagður og skortur á yfirsýn og að-
haldi með útgjöldum var verulegur.
Opnunarhátíðin þótti einnig takast
illa, en miklar tafir urðu á henni.
Umfjöllun fjölmiðla um hvelfinguna
var einnig mjög neikvæð en þeir
sögðu sýninguna vera smekklausa.
Vangaveltur
um framhaldið
Nú þegar byggingunni hefur ver-
ið lokað er þegar farið að velta
vöngum yfir framhaldinu. Talið er
líklegast eins og mál standa nú að
Legacy-samsteypan, sem lýtur
stjórn auðkýfings sem er í góðum
tengslum við Verkamannaflokkinn,
taki yfir lóðina. Hún hefur boðist til
að kaupa hana fyrir sem svarar
tæplega 16 milljörðum ísl. króna
sem er sex sinnum minna en hún
kostaði og breyta svæðinu í vísinda-
og tæknisafn. Gerbeau hefur hins
vegar stutt keppinaut Legacy sem
vill halda svipaðri starfsemi áfram á
svæðinu og nú.
Þúsaldarhvelfingin, sem er 50
metra há og einn kílómetri í þver-
mál, var upphaflega hönnuð til þess
að endast í 40 ár. Leikar fóru aftur
á móti svo að nýliðnum áramótum
var ekki einu sinni fagnað í hvelf-
ingunni.
Þúsaldarhvelf-
ingunni lokað
London. AFP.
þ
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 3. JANÚAR 2001 29