Morgunblaðið - 03.01.2001, Síða 39
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 3. JANÚAR 2001 39
www.hanspetersen.is
Fáðu filmuna á
geisladisk.
Deildu minningunum
með vinum þínum á
hanspetersen.is
Fáðu hágæðaútprentun á
ljósmyndapappír í gegnum
hanspetersen.is
Gerðu meira úr
myndunum þínum!
BÆKUR norska spennusagna-
höfundarins Karin Fossum hafa
þrisvar orðið fyrir valinu til útgáfu
hjá Máli og menningu og fyrir þessi
jól kemur út í kiljubroti Sá er úlfinn
óttast. Áður hafa komið út Auga Evu
(1998) og Líttu ekki um öxl (1999).
Hér segir frá rannsóknarlögreglu-
manninum „geðþekka“ Konrad Sej-
er, sem er rúmlega fimmtugur
ekkjumaður, en í þessari sögu glímir
hann við að upplýsa hrottalegt morð
á aldraðri bóndakonu. Inn í söguna
fléttast eltingaleikur við bankaræn-
ingja og leit að týndum geðsjúklingi
en samkvæmt frásögn unglingspilts
af upptökuheimili var geðsjúklingur-
inn á staðnum þegar morðið var
framið.
Frásögnin færist til á milli þessara
þriggja þar sem bankaræninginn og
geðsjúklingurinn lenda saman fyrir
tilviljun og milli þeirra þróast sér-
kennilega náið samband meðan á
flóttanum stendur. Yfir sögunni er
rólyndistónn, þetta er ekki atburða-
saga, frásögnin er nákvæm en stíll
höfundarins geldur þýðandans þar
sem ritleikni höfundarins hverfur að
mestu í stirðbusalegri þýðingu.
Sagan verður því fremur daufleg
aflestrar í þessum búningi og vand-
séð hvers vegna hún hefur verið val-
in til útgáfu þegar vitað er að fjöldi
afbragðsgóðra spennusagnahöfunda
er að störfum víða í Skandinavíu.
Persóna Sejers er fremur óljós og
fjarlæg, hann verður ekki það sjón-
gler sem lesandinn virðir fyrir sér
sögusviðið í gegnum. Lýsingin sem
gefin er á honum er þó giska ná-
kvæm. „Alvarlegur og gráhærður.
Dálítið valdsmannslegur. Segir fátt.
Duglegur. Ljónskarpur. Nákvæmur,
þolinmóður, ábyrgur og þolgóður.
Veikur fyrir litlum börnum og göml-
um konum.“ Þrátt fyrir þessa ná-
kvæmu lýsingu lifnar Sejer ekki við
á síðum sögunnar og verður ekki
minnisstæð persóna.
Til samanburðar má nefna Kurt
Wallander hinn sænska, sem er mið-
aldra einhleypingur af svipaðri sort
og Sejer, honum er aldrei lýst á
þennan hátt, en er þó mun betur
mótuð persóna úr penna Hennings
Manckells.
Fossum fer þá leiðina að leiða
smám saman í ljós að glæpurinn var
framinn fyrir hálfgerða tilviljun,
meginviðfangsefni höfundar eru hin-
ar fjölmörgu birtingarmyndir mann-
legra samskipta og ljær það sögunni
gildi umfram hinn dæmigerða reyf-
ara. Glæpurinn kraumar undir sem
áminning um að án hans væri engin
saga en í sjálfu sér skiptir hann ekki
máli fyrir viðfang höfundarins.
Þannig verður sagan aldrei mjög
spennandi en andrúmsloft hennar er
sterkt þótt persónurnar séu misvel
mótaðar. Þetta er ágæt saga sem líð-
ur nokkuð fyrir þýðinguna en er
engu að síður vel yfir meðallagi sem
afþreyingarlesning.
BÆKUR
S p e n n u s a g a
eftir Karin Fossum, þýðandi: Erna
Árnadóttir. Útgefandi Mál og
menning 2000. 259 bls. Prentað í
Danmörku.
SÁ ER ÚLFINN ÓTTAST
Úlfurinn í okkur
Hávar Sigurjónsson
Gefið ástinni
hlýja gjöf
Ekta pelsar
verð frá kr. 50.000 Fákafeni (Bláu húsin),
s. 588 4545
Sigurstjarna