Morgunblaðið - 03.01.2001, Síða 51

Morgunblaðið - 03.01.2001, Síða 51
MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 3. JANÚAR 2001 51 ✝ Clara Jenný Sig-urðardóttir fæddist á Melum í Árneshreppi á Ströndum 21. ágúst 1920. Hún lést á Elli- heimilinu Grund 22. desember síðastlið- inn. Foreldrar henn- ar voru hjónin Sveinsína Guðrún Steindórsdóttir, f. 13.5. 1898, d. 13.12. 1988, og Sigurður Bjarnason, trésmið- ur, f. 6.6. 1894, d. 7.3. 1926. Þau eignuðust þrjú börn: Clöru, sem var elst þeirra; Steindór Emil, f. 4.2. 1922, d. 9.6. 1979, og Sigríði, f. 23.11. 1924. firði og svo aftur á Akranesi. Lengst af, eða frá 1954, hafa þau svo búið á Langholtsvegi 178 í Reykjavík. Börn þeirra eru: 1) Halldór, framkvæmdastjóri í Stykkishólmi, f. 26.11. 1943, kvæntur Sigríði Pétursdóttur, meinatækni, f. 25.7. 1945, og eiga þau fjögur börn og fimm barna- börn. 2) María Jenný, banka- fulltrúi, f. 1.11. 1945, gift Jóhanni Diego Arnórssyni skrúðgarð- yrkjumeistara, f. 13.12. 1949, og eiga þau tvö börn. 3) Sigurður, leiðbeinandi, f. 2.3. 1953, kvæntur Elsu Hrönn Búadóttur, röntgen- tækni, f. 26.10. 1953, og eiga þau fjögur börn. 4) Jónas, bílasmiður, f. 7.5. 1961, kvæntur Júlíönu Björk Garðarsdóttur, f. 21.6. 1965, og eiga þau eitt barn. Clara og Jónas hafa dvalið á Elliheimilinu Grund frá því snemma á síðasta ári. Útför Clöru Jennýjar fer fram frá Langholtskirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 15. Clara ólst upp á Ísa- firði fram undir tíu ára aldur. Þá fluttist hún á Akranes og óx þar upp. Hinn 30. október 1944 giftist Clara eft- irlifandi maka sínum, Jónasi Halldórssyni, skipasmið, f. 30.6. 1921 í Bolungarvík. Hann er sonur hjónanna Maríu Jenn- ýjar Jónasdóttur, f. 27.9. 1895, d. 24.2. 1979, og Halldórs Kristinssonar, læknis, f. 20.8. 1889, d. 18.6. 1968. Þau hófu búskap á Akranesi, þar sem Jónas lagði stund á skipasmíðar. Þá bjuggu þau nokkur ár á Siglu- Elskuleg tengdamóðir mín hefur nú tekist á hendur ferðina löngu og í dag verður hún til grafar borin, eftir rúmlega áttatíu ára jarðvist. Það var fyrir um þrjátíu árum að ég hóf að gera hosur mínar grænar fyrir einkadóttur hennar. Varð ég þess vegna tíður gestur á Langholts- veginum og að endingu dagaði ég þar uppi. Var mér vel tekið af öllu heim- ilisfólkinu, og þegar sýnt var hvert stefndi gekkst hún í að hagræða svo hlutum á heimili sínu, að við hjóna- leysin gátum hafið búskap okkar þar. Við fengum til afnota tvö herbergi og gerðum annað að eldhúsi, en hitt að svefnherbergi. Þetta fyrirkomulag gerði okkur kleift að eiga vísan sama- stað og að vera út af fyrir okkur. Það jók einnig á áræði okkar til að takast á við lífið. Við fórum að byggja nýtt, og búa okkur eigið heimili. Okkur var þetta fyrirkomulag þess vegna alveg ómetanlegur stuðningur. Ekki leið heldur á löngu áður en við urðum svo þrjú í vistinni, þegar drengurinn okkar fæddist. Varð hann þegar augasteinninn hennar ömmu sinnar. Börnum okkar var hún líka ævinlega elskuleg amma og gaf þeim svo margt úr fortíðinni að byggja framtíð sína á. Þau áttu sér kærar stundir hjá ömmu Clöru á Langó, sem alltaf var tilbúin að grípa inn í, ef við for- eldrarnir þurftum að bregða okkur frá. Síðar gafst mér ánægjulegt tækifæri á að fá að launa hjálpsemi tengdaforeldra minna, er ég sá um eitt og annað smástúss fyrir þau við lagfæringar á Langholtsveginum. „Nú er hún Snorrabúð stekkur.“ Engan óraði fyrir því að örlögin tækju svona skjótt öll völd af þeim hjónum Jónasi og Clöru. Heilsu þeirra fór skyndilega að hraka, og það svo ört að þau treystu sér ekki lengur til að sjá um sig sjálf. Þau fengu vist á Elli- og hjúkrunarheim- ilinu Grund og þau hafa notið þar góðrar forsjár og umönnunar. Þökk sé öllu því góða fólki er þar starfar. Nú í sumar gátum við samt opnað þeim heimili okkar og haldið upp á áttatíu ára afmælið hennar Clöru. Þar nutu þau sín í návist glaðra vina og ættingja. En þrátt fyrir allt er það auðna sem ræður för hvers manns. Bráð lungnabólga að morgni, og svo...? Söknuður og tregi verða eftir á skiln- aðarstund. Blessun Guðs veri með þér, hvíl þú í friði. Góði faðir, lát ekkert verða af því vér viljum það, heldur verði allt sem þú vilt. (Lúther.) Elskulegur tengdafaðir, Jónas Halldórsson. Guð veiti þér og þínum styrk í sorginni. Jóhann Diego Arnórsson. Svo skjótt skipast veður í lofti, að okkur auðnaðist ekki stund til að kveðja þig. Elsku amma á Langó, það er svo erfitt að sætta sig við að nú sért þú horfin á braut. Þú varst alltaf svo ánægð þegar við komum í heimsókn til þín, og líka þegar þú komst í heimsókn til okkar. Nú eig- um við þig aðeins í minningunni, ógleymanlegar myndir flögra um í huganum. Við kveðjum þig með söknuði. Megi guðs hönd leiða þig í ljósinu, elsku amma. Nú sofa menn og saklaus dýr. Nú sofa dagsins ævintýr. Nú ríkir þögn að ysta ós, svo ekkert vekur þyrnirós. (Davíð Stef.) Markús Már og Barbara Rut. CLARA JENNÝ SIGURÐARDÓTTIR ✝ Margrét Kjart-ansdóttir var fædd á Bægisstöðum í Þistilfirði 13. mars 1920. Hún lést á líknardeild Land- spítalans í Kópavogi 20. desember síðast- liðinn. Foreldrar hennar voru Guðrún Soffía Jónsdóttir og Kjartan Jónsson. Hún missti föður sinn sex ára gömul og fór þá í fóstur til föðursystur sinnar, Kristínar Salínar Jónsdóttur og manns hennar Guðjóns Þórðarsonar á Jaðri á Langanesi. Margrét átti þrjú systkini, Jónínu, f. 16. desember 1922, og Björn, f. 9. febrú- ar 1925, d. 8. des- ember 1998, og hálfbróðurinn Þor- leif Gunnarsson, f. 23. nóvember 1931. Margrét vann við ýmis störf er til féllu, lengst af þó við matreiðslu á Mjólkurbarnum, hjá Hjálpræðishernum og síðast í eldhúsi Landspítalans. Hún var ógift og barn- laus. Útför Margrétar fór fram frá Háteigskirkju 29. desember. Þegar við systurnar fæddumst voru báðar ömmur okkar dánar. Það kom þó aldrei að sök í upp- vextinum því hún mamma útvegaði okkur ömmu sem reyndist und- urgóð. Af stríðni kenndi mamma okkur að kalla eina sína bestu vin- konu, Margréti Kjartansdóttur, ömmu, en það sem byrjaði sem grín varð fljótlega alvara því Margrét, eða amma Kjartans eins við kölluðum hana alltaf, tók hlut- verkið að sér. Sjálf var hún ógift og barnlaus en umhyggja hennar fyrir okkur og gæði voru slík að engu var líkara en við værum henni náskyldar. Við fundum því aldrei fyrir því að eitthvað vantaði í líf okkar þó við ættum enga ömmu á lífi. Oft þegar við heimsóttum ömmu vorum við systur ærið uppivöðslu- samar, en aldrei missti amma þol- inmæðina gagnvart okkur, en var ákveðin og föst fyrir. Okkur lærð- ist líka fljótt að bera virðingu fyrir henni og eftir því sem við uxum að þroska (og viti vonandi) gerðum við okkur æ betur grein fyrir því hvílík afbragðskona amma var og lærðum að meta hana á nýjan hátt. Við fundum fljótt hvað hún var bráðgreind, vel lesin og viðræðu- góð og bar gott skynbragð á menn og málefni. Það var nánast sama hvar var borið niður, alls staðar hafði amma einhverja þekkingu og á flestum hlutum hafði hún ákveðnar skoðanir. Réttlætiskennd hennar var sterk, hún þekkti fá- tæktina og skortinn sem var við- varandi á Íslandi á fyrstu áratug- um þessarar aldar enda alin upp í kreppunni. Hún hafði alltaf mikla samúð með lítilmagnanum, var mikil jafnaðarmanneskja í eðli sínu og taldi æðsta skyldu hvers sam- félags að sjá þegnum sínum fyrir viðunandi lífskjörum, að samhjálp væri mikilvægasta tækið til að svo mætti verða. Fannst henni mikill ójöfnuður og spilling ríkja í okkar þjóðfélagi og þráði breytingar þar á. Ein okkar systra bjó heilan vet- ur hjá ömmu og fékk þá að kynn- ast enn betur örlæti hennar, gest- risni og óeigingjarnri umhyggju fyrir öðrum. Síðar hóf hún búskap með manni sínum í sama húsi og amma bjó í á Laugaveginum, og þá munaði um að eiga hauk í horni hinum megin við ganginn. Það sem einkenndi ömmu einnig auk greindar hennar og mann- gæsku, var hversu heiðarleg og hreinskiptin hún var. Rétt skyldi vera rétt. Henni lét heldur ekki að vera með látalæti, hún talaði tæpi- tungulaust um hlutina. Hún var einnig afskaplega greiðvikin og fannst ætíð óþarfi að þiggja laun fyrir greiða, en væri henni greiði gerður launaði hún hann margfalt. Síðustu árin var amma sjúkling- ur og þrátt fyrir að oft ætti hún erfitt æðraðist hún aldrei, enda ekki vön að kvarta þótt eitthvað bjátaði á. Hún stóð meðan stætt var en að lokum varð jafnvel dugn- aðarforkur eins og hún að láta undan síga og nú er hún farin. Við systurnar höfum misst mikið og við viljum kveðja hana ömmu okkar og votta henni innilegt þakklæti okkar fyrir allt sem hún hefur verið okk- ur. Við huggum okkur við að minn- ingin um ömmu lifir með okkur og viðkynningin við hana mun vonandi verða til þess að gera okkur að betri manneskjum en ella. Far vel amma okkar, við vitum að þú átt góða heimkomu í öðrum heimi. Margrét, Steingerður og Helen Sjöfn Steinarsdætur. MARGRÉT KJARTANSDÓTTIR            ! "#                    !"    #   $#  "  !" #      $%                                               !"   #$  !!"   % &%#$  '($  !!"   % ) %!#$  *   !!"  + +* " + + +* ,                             !"#!$$  $"%& ''(  $"%& ) *"$ !"" ) "$ +'  $"%& !" ,  "#!$$ !  '-*   $"%& . +' #!$$ -  -*   -  -  -* /                                !                                                                                             ! "    #  $   %&&'                   ! " #  #  " #  #  # $
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.