Morgunblaðið - 03.01.2001, Qupperneq 64

Morgunblaðið - 03.01.2001, Qupperneq 64
UMRÆÐAN 64 MIÐVIKUDAGUR 3. JANÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ Á GAMLÁRSDAG í fyrra varð okkur á að staðhæfa á síðum Morgunblaðsins, að menntun, þekking og reynsla vegi þungt í frama ungs fólks. Við máttum þó lúta í lægra haldi fyrir rök- um pólitískra afla og sannreyna að ekkert slær út flokksskírteini í Framsóknarflokkn- um þegar skipað er í stöður á vegum hins opinbera. Í ár eru þeir sem stunda nám á framhaldsskólastigi nauðugir viljugir látn- ir beygja sig eftir sápunni. Nem- endur eru enn og aftur vanvirtir og látnir yfirgefa skóla sína og þessi gengisfelling menntunar gerir þá verr í stakk búna til að takast á við háskólanám. Þetta vekur upp margar spurningar um framhalds- skóla og gildi menntunar. Menntun, þekking og reynsla? Menntun er það ferli, sem þrosk- ar og eykur víðsýni einstaklingsins undir eftirliti skóla og kennara. Uppskeran aukin þekking viðkom- andi einstaklings. Reynsla er þessu náskyld, sú tegund þekkingar sem við öflum okkur gegnum leik og störf og óháð hefðbundu skóla- starfi. Þessi þrjú hugtök eru því allt fyrirbæri sem við, hvert og eitt okkar, notum til að auka við hið persónulega virði okkar. Í nútíma viðskiptaumhverfi er samkeppnis- hæfni einstaklinga, fyrirtækja og landa nátengd þekkingu. Nægir okkur að byggja upp þjóðfélag á reynslu einni saman og láta aðrar þjóðir um að mennta fólk og auka þar með þekkingu sína í heild? Þörf á framhaldsskólum? Verkfall sem hefur verið jafn óbrigðull vorboði og koma lóunnar með sitt dirrindí endurspeglar til- vistarkreppu framhaldsskólastigs- ins. Eftir 8 vikna verkfall dregur lungi þjóðarinnar enn andann, ung- börn fá sína mjólk, spítalar lands- ins starfa, samgöngur góðar, jóla- verslun blómstraði, ungir sem aldnir héldu heilög jól og komu saman til að skiptast á hlutabréfum og/eða pokémon-kortum. Vinnu- veitendur fá langþráð og ódýrt vinnuafl kennara og nemenda. Framleiðsla og þjónusta hafa ekki beðið skaða af verkfallinu. Það er skiljanlegt, þar sem hinn áþreif- anlegi hluti þeirrar afurðar sem framhaldsskólarnir framleiða að- eins er hvítur kollur nýstúdenta. Það er erfitt að mæla þekkingu samkvæmt hefðbundnum mæliein- ingum og sömuleiðis erfitt að gera sér grein fyrir raunvirði þess að skarta hvíta kollinum. En hvert er hlutverk framhaldsskóla? Eru þeir dulbúnir letigarðar þar sem ungu ráðvilltu fólki, því sem ekki nennir að vinna, er safnað saman og skammtað verkefni í 4 ár? Eða eru þeir félagslegt athvarf, forvarna- starf og betrunarhús ungs fólks á því tímabili ævinnar sem flestir nota til að hlaupa af sér hornin og á sama tíma er reynt að koma ein- hverri þekkingu í kollinn á nem- endum? Slíkar staðreyndir kalla á nýtt ráðherraembætti forvarna og betrunar ungmenna og réttlæta tæplega tilveru ráðherraembættis menntamála. Hærri laun til kennara? Kennarar eru og hafa verið lág- launastétt um árabil og er engin haldbær ástæða til þess að víkja frá þeirri stefnu (eða stefnuleysi!?). Kennarar hafa í raun ágætis laun. Starfsárið er 9 mánuðir, klukku- tíminn er í raun aðeins 45 mín. Tímatalskerfið er ólíkt því sem hinn almenni launþegi býr við og hér hallar ekki á kennarastéttina. Sama námsefni er að jafnaði kennt ár eftir ár og undirbúningur því í lágmarki. Þetta er eins og að læra að hjóla, þegar maður hefur lært það einu sinni þá býr maður að því alla ævi. Á að borga mannsæmandi fyrir að kenna sömu þýsku sagna- beyginguna í 30 ár, eða greina frá glímu Grettis við drauginn í hundr- aðasta skipti? Þrátt fyrir þessar klisjukenndu skýringar þá er það staðreynd að þekking og reynsla kennara á hin- um ýmsu menntastigum er eftir- sótt „vara“ meðal stofnana og fyr- irtækja úti um allan heim. Það er ekki óeðlilegt að breyskleiki kenn- ara geri vart við sig þegar þeim eru boðin betur launuð stöf annars staðar, á meðan getuleysi stjórn- valda setur spor sín á íslenska menntasögu. Verkfallið er ekki spurning um krónur eða aura í vasa kennara. Það neyðir okkur til að taka afstöðu til þess hvort fram- haldsskólar landsins séu letigarð- ar, félagslegar betrunarstofnanir eða hvort þar eigi að skapa ramma fyrir vitsmunalegan og félagslega þroska einstaklinga. „Þekking“ í nútíma þjóðfélagi Á tyllidögum mana stjórnmála- menn fram gildi þekkingar eins og andann í lampa Alladíns, og há- menntuðum sérfræðingum er hampað sem væru þeir einu fjör- egg þjóðarinnar. „Þekkingarþjóð- félag er framtíðin“ hrópa menn í kór. Þekking er óáþreifanleg stærð, en engu að síður ein mik- ilvægustu verðmæti einstaklings, fyrirtækis og þjóðar. Leiðandi fyr- irtæki erlendis halda bókhald yfir þekkingu sína og meta virði henn- ar, m.a. til að skýra mun á bók- færðu virði og markaðsvirði fyr- irtækisins á hlutabréfamarkaði. Endurmenntun stuðlar að viðhaldi þekkingar og/eða víkkar sjóndeild- arhring fyrirtækisins. Ef við yfir- færum þennan hugsunarhátt á ís- lenskt þjóðfélag, sjá sennilega flestir aðrir en stjórnmálamenn hversu skammsýnt það er að hægja á þróunarferli nemenda. Þekking verður ekki keypt á nið- ursuðudósum erlendis frá og dælt í fólk í pilluformi, né sótt á verald- arvefinn. Framhaldsskólastigið er hornsteinn – ekki grafsteinn – að frekari menntun. Kunnáttu sem er íslensku þjóðfélagi nauðsynleg verðum við að afla sjálf. Það er ekki nóg að vísa til þess að nær all- ir landsmenn kunni að lesa og skrifa, og telja okkur þar með vera fremsta meðal jafninga hvað varð- ar menntun og almenna þekkingu. Verkfallið setur spor sín á áframhaldandi nám flestra nem- enda. Menntamálaráðherra virðist okkur sammála og segir í pistli á vefsíðu sinni hinn 10. nóvember 2000: „Þekkingin þarf meiri við- urkenningu en hún nýtur ... Að mínu mati er hagfræðileg stærð hennar almennt vanmetin...“ En er það ekki að skjóta sjálfan sig í fót- inn að halda þessu fram og láta verkfall viðgangast í lengri tíma? Er tveggja mánaða skortur á fram- haldskólamenntun í landinu viður- kenning á þekkingu? Hvers virði er menntun, þekking og reynsla? Árni Halldórsson Kennarar Við verðum að taka af- stöðu til þess, segja Árni Halldórsson og Þorsteinn Tryggvi Másson, hvort fram- haldsskólarnir séu leti- garðar, félagslegar betrunarstofnanir eða vettvangur fyrir vits- munalegan og félags- legan þroska einstak- linga. Árni stundar doktorsnám við Viðskiptaháskólann í Kaupmanna- höfn. Þorsteinn Tryggvi stundar meistaranám í sagnfræði og heimspeki við Hróarskelduháskóla. Þorsteinn Tryggvi Másson Gullsmiðir Almanak Háskólans Nýtt ár - Nýtt almanak Almanak Háskólans er ómissandi handbók á hverju heimili Fæst í öllum bókabúðum Gjafavara – matar- og kaffistell . All ir verðflokkar. - Gæðavara Heimsfrægir hönnuðir m.a. Gianni Versace. VERSLUNIN Laugavegi 52, s. 562 4244. Ókeypis lögfræðiaðstoð öll fimmtudagskvöld milli kl. 19.30 og 22.00 í síma 551 1012 Orator, félag laganema
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.