Morgunblaðið - 03.01.2001, Síða 74

Morgunblaðið - 03.01.2001, Síða 74
FÓLK Í FRÉTTUM 74 MIÐVIKUDAGUR 3. JANÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ ROBERT Kelly er rosalegur, þið munið kannski eftir honum syngj- andi lög eins og „I believe I can fly“ og nú síðast „I wish“. Hann samdi þau bæði sem og fleiri smelli og hefur fengið nokkur Grammy-verðlaun fyrir vik- ið. R. Kelly ætlaði alltaf að verða körfuboltaleikari til að komast úr skítahverfinu sem hann ólst upp í en fór svo að semja og syngja og varð frægur. Hann leikur samt ennþá smáatvinnu- bolta, hjálpar bágstöddum, semur fyrir Aaliyuh, Whitney, Toni og Michael Jackson og var að gefa út sína fimmtu sólóskífu sem er hér gerð að umtalsefni. Þegar ég fékk TP-2.COM með R. Kelly í hendurnar hugsaði ég mér nú gott til glóðarinnar þar sem mað- urinn er R’n’B-kóngurinn sjálfur. En kóngurinn er kelling. Byrjum á umslag- inu. Aldrei hef ég séð eins örvæntingarfulla tilraun til að sýna kynþokkann. Hann notar allt, pels (rauðan og hvítan), sólgleraugu, klúta um hausinn, hatta, olíu, þrýstir fram vörunum og er með tonn af skartgripum. En allt kemur fyrir ekki því hann ofgerir svo illilega í þessu R’n’B-útliti að það er bara bjánalegt og ekki vitund kyn- þokkafullt. En tónlistin er það sem skiptir kannski meira máli. Útsetning og- hljóðfæraleikur er til fyrirmyndar enda velur Kelly aðeins besta fólk- ið til að vinna með. Hljómurinn á plötunni er nánast óaðfinnanlegur, annað en sagt verður um tónsmíð- arnar. Nokkur lög á diskinum eru alveg einstaklega vond og má þar nefna lög eins og „Just Like That“ þar sem hann syngur 4 sekúndna „whooa“ á undan hverri einustu setningu – þ.e.a.s. 38 sinnum. Ofsalega pirr- andi og leiðinlegt lag og það er fárán- legt að enginn hafi sagt Kelly að slaka aðeins á í „whooa-inu“. Í „Don’t You Say No“ er hann við sama heygarðshornið og vælir stanslaust yfir textann sem bak- raddirnar syngja og maður heyrir varla laglínuna. „A Womans Threat“ er líka mjög einhæft og leiðigjarnt lag en textinn er um eftirsjá manna sem eru vondir við konurnar sínar. Í gegnum plötuna syngur Kelly um hvað hann sé góður í rúminu, réttlátur, æðislegur við fjölskyld- una sína, bestur, flottastur og meira um hvað hann sé góður í rúminu. Á tímum finnst manni eins og hann sé annaðhvort að sannfæra sjálfan sig eða að egóið sé að drepa hann. Það er líka sér- staklega ófyndið þegar hann eyðir heilli mínútu í Eminem-brandar- ann... „Now will the real R. Kelly please stand up?“ á undan óðnum til sjálfs sín „One Me“. Ekki mjög töff. TP-2.COM er samt ekki alvond plata og R. Kelly kann að búa til góð lög eins og hann kann að búa til vond. „R’n’B Thug“ er til dæmis alveg frábært lag og allt í einu er Kelly hættur að vera kelling og orðinn „true baller“. Í þessu lagi er líka þessi dæmigerði „offbeat“ taktur sem maður heyrir svo oft í þessari tegund tónlistar og þetta á án efa eftir að heyrast mikið á Píanóbarnum. „Like A Real Freak“ og „Fiesta“ eru líka töff og fönkí R’n’B-smellir með góðu grúvi. Spænsku gítararnir setja flottan svip á þau og svo auðvitað rappararnir General („Like A Real Freak“) og Boo og Gotti („Fiesta“) sem algjörlega setja lögin á hærri stall. Fleiri lög eru flott eins og endurhljóðblöndunin af „I Don’t Mean It“ sem heitir „Mean It“ en rólegu lögin eru lösturinn. Hann vælir einfaldlega of mikið, er of væminn, of mikil vægð. Aðdáendur R. Kelly ættu nú samt að tékka á plötunni og gera upp við sig sjálfir hvort Kelly er eins mikill töffari og hann vill vera í þessum 11 bún- ingum á umslaginu eða einfaldlega væmin vælandi kelling. TP-2.COM er eins og áður sagði fimmta plata R. Kelly og greini- legt er að hann kann á R’n’B- markaðinn. Hann kann að semja lög sem eru fullkomin fyrir „bömp- ið“ og „grændið“ en of mikið af venjulegu og óspennandi efni fer í gegnum síuna. Á plötunni eru 19 lög, sum ofsa góð, önnur ofsa vond og hin liggja á víð og dreif í með- almennskunni. Ef hann myndi henda helmingnum af lögunum af TP-2.COM væri þetta án efa alveg frábær plata. En því miður lítur út fyrir að R. Kelly hendi engu og að hann hafi aldrei fengið hugmynd sem hann ekki deili með heim- inum. ERLENDAR P L Ö T U R Elísabet Ólafsdóttir setur R’n’B listamanninn R. Kelly og nýjustu breiðskífu hans, TP-2.COM, undir smásjána.  Er Kelly kelling? R. Kelly hefur lengi vel verið eitt af stærstu nöfnum R’n’B-tónlistarinnar. Súrefnisvörur Karin Herzog Vita-A-Kombi olía Kennsla hefst 9. janúar 2001 Kennt í Íþróttahúsinu v/Strandgötu Jazzballett 12 — 14 ára                          Í HLAÐVARPANUM Missa Solemnis helgieinleikur á síðasta degi jóla 9. sýn. lau. 6. jan kl 17:30 síðasta sýning „Jórunn Sigurðardóttir flutti einleikinn frá- bærlega..einstök helgistund í Kaffileikhúsinu“ (SAB Mbl). Stormur og Ormur 22. sýn. sun. 14. jan. kl 15:00 23. sýn. sun. 21. jan. kl 15:00 „Halla Margrét fer á kostum“. (GUN Dagur) „Óskammfeilni ormurinn...húmorinn hitti beint í mark...“ SH/Mbl Eva bersögull sjálfsvarnareinleikur 5. sýn. þri. 9. jan kl 21:00 6. sýn. fös. 12. jan kl 21:00 7. sýn. fim. 18. jan kl 21:00 8. sýn. lau. 20. jan kl 21:00 „...textinn er bæði skemmtilegur og sannur í allri sinni tragi-kómik...ég skora á [konur]að fjölmenna og taka karlana með...“ (SAB Mbl.) Háaloft geðveikur svartur gamaneinleikur 18. sýn laugardag 13. jan kl 21:00 19. sýn þriðjudag 16. jan kl 21:00 20. sýn föstudag 19. jan kl 21:00 „Áleitið efni, vel skrifaður texti, góður leikur og vönduð umgjörð.“ (SAB Mbl) „... undirtónninn sár og tregafullur.“ (HF DV)          ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ sími 551 1200 Stóra sviðið kl. 20.00:           !" #$%   !" #$%    &$" #$% &$" #$ '()*+),+)+-. /&0(1&  &$" #$    Smíðaverkstæðið kl. 20.00: ,*+2*)/ # /&     &$" #$  &$" #$      34( +)56(78 #9: #    ;;; 0$ <   <###= 0$ <   ! " ##$  %#     >### &? !@A  B@ C% >@$ B@D  552 3000 Á SAMA TÍMA SÍÐAR KL. 20 fös 5/1, C&D kort gilda UPPSELT sun 7/1, Aukasýning fim 11/1 UPPSELT lau 13/1, E&F kort gilda örfá sæti fim 18/1 Aukasýning fös 19/1, G&H kort gilda nokkur sæti lau 27/1 nokkur sæti laus SJEIKSPÍR EING OG HANN LEGGUR SIG lau 6/1 kl. 20 nokkur sæti laus fös 12/1 kl. 20 lau 20/1 kl. 20 fös 26/1 530 3030 SÝND VEIÐI lau 6/1 kl. 20 örfá sæti laus fös 12/1 kl. 20 lau 20/1 kl. 20 TRÚÐLEIKUR sun 7/1 kl. 20 örfá sæti laus fim 11/1 kl. 20 örfá sæti laus fös 19/1 kl. 20 Miðasalan er opin kl. 12-18 virka daga, kl. 14-18 um helgar og fram sýningu alla sýningardaga. Hópasala fyrir leikhús og/eða veitingahús er í síma 530 3042, opið kl. 10-16 virka daga. Ekki er hleypt inn í salinn eftir að sýning hefst. midasala@leik.is — www.leik.is
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.