Morgunblaðið - 03.01.2001, Page 84
AUSTFIRÐINGAR og íbúar á suð-
austurlandi hafa fengið að finna
fyrir vetrinum nú í árs- og ald-
arbyrjun. Snjó hefur kyngt niður
og valdið samgöngutruflunum á
þjóðvegum og innan þéttbýlis.
Einnig varð að fresta sumstaðar
áramótabrennum og flugeldasýn-
ingum á Austurlandi fram á þrett-
ándann sökum veðursins en þó
rétt náðist að halda brennu og
flugeldasýningu á Egilsstöðum áð-
ur en óveðrið skall á. Þannig urðu
Seyðfirðingar að fresta sinni
brennu til þrettándans.
Snjóflóð féll í gærmorgun á veg-
inn undir Grænafelli í Fagradal,
skammt frá Reyðarfirði, og á leið-
inni til Egilsstaða. Flóðið var 2–3
metra djúpt og 40–50 metra breitt.
Engan sakaði í flóðinu en á meðan
starfsmenn Vegagerðarinnar
ruddu leið í gegn er vitað til þess
að nokkrir Reyðfirðingar hafi
misst af flugi frá Egilsstöðum.
Ekkert lát er á veðurhamnum
en hætta þó ekki talin á frekari
snjóflóðum eystra. Veðurstofan
gerir ráð fyrir stormi suðaust-
anlands í dag af norðlægum átt-
um, með vindhraða allt að 20
metrum á sekúndu og yfir. Él
verða norðan- og austanlands en
annars léttskýjað á landinu öllu.
Norðanáttin á að fara minnkandi
næstu daga sem og éljagangurinn.
Morgunblaðið/Hafdís Erla
Á skömmum tíma um áramótin kyngdi niður snjó á Austfjörðum og bíla fennti víða í kaf. Þessir krakkar á Egils-
stöðum tóku fönninni fagnandi og veltu sér um á stöðum í bænum sem leyfa ekki slíkt þegar snjólaust er.
Snjóflóð í Reyðar-
firði og samgöngu-
truflanir eystra
Nokkru áður varð harður árekstur
á Reykjanesbraut vestan Vogaveg-
ar. Tveir fólksbílar sem komu úr
gagnstæðum áttum skullu saman.
Fjórir voru í öðrum bílnum, þar af
tvö börn, en ökumaður var einn í hin-
um bílnum. Sá sem var einn í bílnum
hafði tekið fram úr öðrum bíl. Hann
sá þá að framúraksturinn myndi ekki
takast og sveigði út í vegkantinn, á
röngum vegarhelmingi. Þar lenti
hann á bifreið sem kom úr gagn-
stæðri átt. Allir í bílunum voru fluttir
á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja en
fengu að fara heim að lokinni skoðun.
Þá lentu fimm bílar í árekstri á
Reykjanesbraut við Breiðholtsbraut.
TVEIR harðir árekstrar urðu á
Reykjanesbraut í gær. Skömmu eftir
hádegi lést eldri karlmaður þegar
fólksbifreið hans skall framan á
vöruflutningabíl. Slysið varð á
Reykjanesbraut til móts við Moldu-
hraun í Garðabæ.
Að sögn lögreglunnar í Hafnar-
firði virðist sem fólksbifreiðinni hafi
verið ekið yfir á rangan vegarhelm-
ing þar sem hún skall á vöruflutn-
ingabílnum sem ekið var í norðurátt.
Fólksbifreiðin er ónýt eftir árekst-
urinn en vöruflutningabíllinn er mik-
ið skemmdur og óökufær. Lögreglan
í Hafnarfirði lokaði Reykjanesbraut
í þrjár klukkustundir vegna slyssins.
Karlmaður beið
bana í árekstri á
Reykjanesbraut
Harðir árekstrar í Garðabæ og við Voga
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 MIÐVIKUDAGUR 3. JANÚAR 2001 VERÐ Í LAUSASÖLU 165 KR. MEÐ VSK.
STJÓRN Árvakurs hf., útgáfufélags
Morgunblaðsins, hefur ráðið Björn
Vigni Sigurpálsson, sem verið hefur
ritstjórnarfulltrúi Morgunblaðsins,
fréttaritstjóra blaðsins og þá Karl
Blöndal blaðamann og Ólaf Þ. Steph-
ensen, forstöðumann stefnumótun-
ar- og samskiptasviðs Samtaka at-
vinnulífsins, aðstoðarritstjóra
Morgunblaðsins.
Björn Vignir Sigurpálsson er 54
ára gamall. Hann starfaði sem blaða-
maður við Morgunblaðið frá 1964 til
1979. Sama ár tók hann þátt í stofn-
un Helgarpóstsins og var annar af
ritstjórum blaðsins til 1982 er hann
varð framkvæmdastjóri hjá Ísmynd/
Framsýn. Í ársbyrjun 1985 kom
Björn Vignir á ný til starfa á Morg-
unblaðið sem umsjónarmaður við-
skiptablaðs. Hann tók einnig við um-
sjón sunnudagsblaðs sumarið 1990.
Hann var ráðinn ritstjórnarfulltrúi
Morgunblaðsins í júní 1991.
Eiginkona hans er Kristín Ólafs-
dóttir upplýsinga- og bókasafns-
fræðingur og eiga þau tvö uppkomin
börn.
Karl Blöndal er 39 ára gamall.
Hann lauk B.A.-prófi í stjórnmála-
fræði frá University of Massachu-
setts í Boston árið 1990 og hélt síðan
í meistaraprófsnám í stjórnmála-
fræðum í Massachusetts Institute of
Technology sem hann lauk árið 1993.
Karl starfaði sem fréttaritari Morg-
unblaðsins í Vestur-Berlín og Hann-
over árin 1982-85 er hann gerðist
blaðamaður Morgunblaðsins. Árin
1987-88 starfaði hann sem frétta-
maður Sjónvarpsins og síðan frétta-
ritari Morgunblaðsins í Bandaríkj-
unum árin 1989-95 er hann sneri á ný
til starfa á Morgunblaðinu þar sem
hann hefur starfað síðan.
Eiginkona hans er Stefanía Þor-
geirsdóttir, líffræðingur á Tilrauna-
stöð Háskólans í meinafræði að
Keldum, og eiga
þau tvö börn.
Ólafur Þ.
Stephensen er 32
ára gamall. Hann
lauk B.A.-prófi í
stjórnmálafræði
frá Háskóla Ís-
lands árið 1992 og
M.Sc.-prófi í al-
þjóðastjórnmál-
um frá London
School of Economics and Political
Science 1994.
Ólafur starfaði sem blaðamaður á
Morgunblaðinu árin 1987 til 1998.
Árin 1998-2000 var hann forstöðu-
maður upplýsinga- og kynningar-
mála hjá Landssíma Íslands hf. Ólaf-
ur hefur að undanförnu verið
forstöðumaður stefnumótunar- og
samskiptasviðs Samtaka atvinnulífs-
ins.
Eiginkona hans er Halldóra
Traustadóttir, markaðsstjóri Glitnis
hf. Þau eiga eina dóttur.
Ýmsar fleiri breytingar urðu á rit-
stjórn Morgunblaðsins um áramótin.
Breytingar á ritstjórn
Morgunblaðsins
Ólafur Þ.
Stephensen
Björn Vignir
Sigurpálsson
Karl
Blöndal
Nýtt skipulag/42-43
SALA sjófrystra afurða Sölumið-
stöðvar hraðfrystihúsanna hf. gekk
vel á síðasta ári, að sögn Kristjáns
Hjaltasonar, framkvæmdastjóra SH-
þjónustu. Fyrirtækið hefur styrkt
stöðu sína verulega á Bretlandsmark-
aði, einkum með sölu þorskflaka og er
Bretland nú í fyrsta sinn orðinn
stærri markaður fyrir þorsk en
Bandaríkin sem þó er áfram mjög
sterkur markaður. Þá varð á síðasta
ári 50% aukning í rækjusölu hjá Icel-
andic UK, söluskrifstofu SH á Bret-
landseyjum, miðað við árið á undan,
að sögn Magna Þórs Geirssonar,
framkvæmdastjóra Icelandic UK.
Kristján segir sölu á sjófrystum af-
urðum almennt hafa gengið vel á síð-
asta ári og að SH hafi t.d. náð að
skapa sér sterka stöðu fyrir karfa á
Asíumarkaði. Hann segist bjartsýnn
á að næsta ár verði einnig hagstætt í
sjófrystingunni.
Magni Þór segir ástæður aukning-
ar í rækjusölu á Bretlandi eiga rætur í
markvissu markaðsstarfi. Hann segir
að útlitið sé bjart og að samkvæmt
áætlun sé markmiðið að auka söluna
um 20 til 25% á þessu ári. Þá vonar
hann að verð á rækju hækki en það
var í sögulegu lágmarki um jólin.
Um 50% aukin
rækjusala hjá SH
Nýliðið ár/F1 og F2
VERKFALL framhaldsskólakenn-
ara er orðið það lengsta sem skráð
er frá stofnun embættis ríkissátta-
semjara, eða 57 dagar. Fundur
deiluaðila í gær var sá 55. frá því
kjaradeilunni var vísað til ríkissátta-
semjara. Á síðasta ári voru haldnir
tæplega 1.150 fundir í húsnæði rík-
issáttasemjara og hafa aldrei fyrr í
sögu embættisins frá stofnun þess
árið 1980 verið haldnir svo margir
fundir á einu ári.
Um er að ræða bæði fundi í mál-
um sem vísað var til ríkissáttasemj-
ara og eins í þeim kjaradeilum sem
leystust án afskipta embættisins.
Hægt miðar í viðræðum
framhaldsskólakennara
Samkvæmt upplýsingum frá emb-
ætti ríkissáttasemjara hafa aðeins
verið haldnir fleiri fundir í fjórum
sáttamálum frá árinu 1925.
Hægt miðaði í viðræðum fram-
haldsskólakennara og ríkisins í gær.
Elna Katrín Jónssdóttir, formaður
Félags framhaldsskólakennara, seg-
ir að kennarar bíði eftir svari frá
samninganefnd ríkisins um hvað
ríkið sé tilbúið að ganga langt í til-
færslum á vinnuþáttum. Kennarar
hafi sett fram hugmyndir um að
ganga lengra í því efni en áður hafi
verið rætt um. Jafnframt því sem
þeir hafi sett fram hugmyndir um að
nýtt launakerfi verði tekið upp strax
í vetur en ekki næsta sumar eins og
áður hafi verið ráðgert.
Verkfall kennara það
lengsta frá upphafi
Tekist á/14