Morgunblaðið - 16.01.2001, Blaðsíða 8
FRÉTTIR
8 ÞRIÐJUDAGUR 16. JANÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Nýr aðstoðarmaður borgarstjóra
Spennandi
tækifæri
NÝLEGA var AnnaKristín Ólafsdótt-ir stjórnmála-
fræðingur ráðin aðstoðar-
maður Ingibjargar Sól-
rúnar Gísladóttur, borgar-
stjóra Reykjavíkur. Anna
Kristín hefur undanfarin
ár verið við nám og störf í
Bandaríkjunum en kemur
til starfa hjá Reykjavíkur-
borg 1. mars nk. Hún var
spurð hvernig nýja starfið
legðist í hana.
„Mér líst bara vel á þetta
allt saman, hlakka mikið til
að takast á við þessi verk-
efni og vonast til að geta
orðið góður liðsauki í þeim
góða hópi sem borgarstjóri
hefur þegar kringum sig í
ráðhúsinu, bæði meðal
starfsmanna og borgarfull-
trúa.“
– Hefur þú komið að svona
starfi áður?
„Ekki beinlínis en hluti af mínu
starfi hjá sendiráðinu var að vera
vakandi hvað snerti stjórnmál og
ráðleggja bandarískum yfirvöld-
um í málefnum sem vörðuðu sam-
skipti Bandaríkjanna og Íslands.
Þá vann ég hér við ýmis verkefni
meðan á náminu stóð og loks felst
starf mitt við ríkisendurskoðun
hér einkum í því að gera úttektir á
ýmsum málaflokkum innan
stjórnsýslunnar – sjá hvað mætti
betur fara og leggja til leiðir til úr-
bóta.“
– Ert þú kunnug starfi því sem
fram fer í Ráðhúsi Reykjavíkur?
„Nei, ekki svo mjög. Ekki nema
það sem ég hef verið að kynna mér
á undanförnum dögum og vikum.
Svo hef ég fylgst ágætlega með
borgarmálefnum gegnum frétta-
flutning að heiman meðan ég hef
verið hér.“
– Hvernig bar það til að þú
varst ráðin í þetta starf?
„Ég þekki Ingibjörgu Sólrúnu
frá því við störfuðum saman í
Kvennalistanum og við höfum allt-
af haldið sambandi. Svo þegar það
kom upp að Kristín A. Árnadóttir
ákvað að hætta eftir sitt langa og
góða starf hafði borgarstjóri
samband við mig og það leiddi til
ráðningarinnar.“
– Hvaðan ert þú af landinu?
„Ég er Reykvíkingur í húð og
hár, fædd þar og uppalin nema ég
bjó um tíma sem unglingur í Nor-
egi og Bandaríkjunum þar sem
foreldar mínir, Lára Margrét
Ragnarsdóttir, þingmaður Sjálf-
stæðisflokksins, og Ólafur Grétar
Guðmundsson augnlæknir, voru
við nám. Ég er elst þriggja barna
þeirra.“
– Hver eru þín helstu áhugamál
fyrir utan stjórnmálin?
„Fyrst og fremst börnin mín og
fjölskyldan. Þá hef ég gaman af að
hlaupa og fara á skíði. Ég hef líka
gaman af að elda og borða góðan
mat með góðu fólki.“
– Hvað málaflokki hefur þú
mestan áhuga á hvað snertir
rekstur borgarinnar?
„Vegna menntunar minnar hef
ég mikinn áhuga á auk-
inni hagræðingu og nú-
tímavæðingu í stjórn-
sýslu borgarinnar en
svo er ég líka mjög
spennt fyrir ýmsum
málefnum sem borgar-
stjóri og samstarfs-
menn hans hafa verið
að vinna við undanfarin ár. Þar má
nefna skólamál, málefni nýrra
borgarbúa, bæði utan af landi og
erlendis frá, umhverfismál ýmis-
konar og ýmis verkefni sem miða
að enn meiri grósku í menningar-
lífi og greiðari aðgangi fólks að
menningarstarfi í borginni. Ég hef
undanfarin ár búið í borginni
Madison í Wisconsinfylki þar sem
fólk ber mikla umhyggju fyrir um-
hverfi sínu – vill vera og er virkir
þátttakendur í að móta umhverfi
sitt. Hérna í stjórn borgarinnar er
mikil áhersla lögð á að gefa borg-
arbúum tækifæri til taka þátt í
ákvörðunum um öll möguleg mál-
efni. Það hefur orðið talsverð þró-
un í átt að auknu þátttökulýðræði í
Reykjavík undanfarin sex ár en ég
sé mikla möguleika á þessu sviði.“
– Hefur þú kynnt þér vel í
hverju hið nýja starf er fólgið?
„Ég á eftir að móta starfið á
minn hátt og sinni því vafalaust
dálítið öðruvísi heldur en Kristín
Árnadóttir hefur gert. Eins og
hún mun ég aðstoða borgarstjóra í
hennar daglegu verkefnum og
þess utan býst ég við að starfið
muni felast í að finna hagkvæmar
leiðir til að framkvæma þá stefnu
sem hún og aðrir borgarfulltrúar
móta. Ég mun reyna að vera vak-
andi fyrir því sem betur má gera í
borginni og fyrir skoðunum borg-
arbúa á borgarmálefnum. Einnig
fyrir ýmsum nýjungum í rekstri
sveitarfélaga, bæði á Íslandi og er-
lendis.“
– Ertu búin að fá húsnæði?
„Ég kem fyrst ein með minnsta
barnið og bý hjá fjölskyldunni en í
sumar koma eiginmaður minn og
hin börnin tvö, þau þurfa að ljúka
skólanum ytra. Ég þarf að að finna
gott húsnæði áður en fjölskyldan
sameinast á ný.“
– Hafðir þú ætlað þér
að koma heim til Ís-
lands svona fljótt?
„Nei, við höfðum
ekki alveg tekið
ákvörðun um hvort og
hvenær við flyttum
heim, en þetta rak á eft-
ir þeirri ákvörðun. Mér finnst
þetta mjög spennandi tækifæri og
ég hlakka til að fá að vinna með
Ingibjörgu Sólrúnu og öðrum
starfsmönnum borgarinnar að
þeim málefnum sem ég hef mikinn
persónulegan áhuga á og ég hef
verið að mennta mig til að sinna.“
Anna Kristín Ólafsdóttir
Anna Kristín Ólafsdóttir fædd-
ist í Reykjavík 26. mars 1966.
Hún lauk stúdentsprófi frá
Menntaskólanum við Hamrahlíð
1985 og BA-prófi í stjórn-
málafræði frá Háskóla Íslands
1995. Hún hefur auk þess lokið
meistaraprófi í opinberri stjórn-
sýslu og stefnumótun (MPA-próf)
frá La Follette School of Public
Affairs. Hún starfaði í banda-
ríska sendiráðinu um sex ára
skeið sem aðstoðarstjórnmála-
fulltrúi og frá í vor hefur hún
unnið við ríkisendurskoðun Wisc-
onsin-þings. Anna er gift Sigurði
Böðvarssyni krabbameinslækni
og eiga þau þrjú börn.
Hefur mikinn
áhuga á auk-
inni hagræð-
ingu og nú-
tímavæðingu
í stjórnsýslu
Þér getið treyst því, frú, að þetta er ekkert Búkollu-beljukjöt. Þetta er fyrsta flokks írskt
kúariðufrítt nautakjöt.
FRAMKVÆMDIR við Vatnsfells-
virkjun ganga samkvæmt áætlun,
að sögn Þorsteins Hilmarssonar,
upplýsingafulltrúa Landsvirkjunar.
Samkvæmt áætlunum á virkjunin að
komast í gagnið næsta haust.
Síðastliðið haust var stöðvarhúsið
reist og er nú unnið að því að setja
niður vélbúnaðinn og ganga frá inn-
taksmannvirkjum. Fyrir áramót var
verið að setja niður neðstu hluti vél-
búnaðarins. Þarna verða tvær vélar
og er uppsett afl þeirra 90 mega-
vött. Framundan er vinna við raf-
búnað. Búið er að setja niður þrýsti-
vatnspípur inn í stöðvarhúsið.
Jarðvinna liggur niðri yfir vetrar-
mánuðina og hefst á ný í vor. Tæp-
lega 200 manns eru við vinnu í vetur
við virkjunina.
Vatnsfellsvirkjun
Framkvæmd-
ir ganga
eftir áætlun
Sumar 2001
www.freemans.is
Listinn er seldur
í öllum helstu
bókaverslunum.
Nýi Freemanslistinn
er kominn út. Hringdu
núna og pantaðu í
síma 565 3900 - erum
við símann frá 9 til 22
alla daga vikunnar.
10%
afsláttur af fyrstu
pöntun ef keypt er
fyrir 50£ eða meira
Til að fá afslátt
þarf að gefa upp
kóðann FZ1 SEX grafíklistaverk, sem
stolið var úr sýningarsal í
Hafnarhúsinu í Reykjavík,
líklega aðfaranótt sunnudags,
hafa ekki komið í leitirnar.
Upp komst um gripdeildirnar
um kl. 13 á sunnudag.
Þjófarnir þurftu hvorki að
brjóta upp hurð né glugga því
svo virðist sem gleymst hafi
að læsa safninu og því hafa
þjófarnir að öllum líkindum
gengið óhindraðir inn í húsið.
Engar skemmdir voru unnar
á húsnæði. Verkin voru á sýn-
ingu nemenda í Listaháskól-
anum, samkvæmt upplýsing-
um lögreglu. Stærsta verkið
er um 2 metrar á lengd og því
hefur væntanlega kostað tals-
verða fyrirhöfn að koma því á
brott.
Grafík-
verkum
stolið