Morgunblaðið - 16.01.2001, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 16.01.2001, Blaðsíða 24
ÚR VERINU 24 ÞRIÐJUDAGUR 16. JANÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ Skrifstofutækni 250 stundir! Markmið námsins er að þjálfa nemendur til starfa á skrifstofum og er áhersla lögð á tölvugreinar og bókfærslu. Námið er mjög hagnýtt og byggist að verulegu leyti á verklegum æfingum. Námið eykur samkeppnishæfni nemenda og býr þá undir krefj- andi störf á vinnumarkaði. Helstu námsgreinar eru:  Handfært bókhald  Tölvugrunnur  Ritvinnsla  Töflureiknir  Verslunarreikningur  Glærugerð  Mannleg samskipti  Tölvubókhald  Internet STARFSMENNTUN fjárfesting til framtíðar Mig langaði að vera vel samkeppnisfær í öllum almennum skrifstofustörfum og eftir vandlega umhugsun valdi ég Tölvuskóla Íslands. Þar bætti ég kunnáttuna í Word- ritvinnslu og Excel-töflureikni og lærði hand- og tölvufært bókhald, glærugerð, verslunarreikning ásamt undirstöðuatriðum í mannlegum samskiptum og Interneti. Námið er vel skipulagt og kennsla frábær. Nú finnst mér ég vera fær í flestan sjó!. Steinunn Rósq, þjónustu- fulltrúi, Íslenska Útvarpsfélaginu Öll námsgögn innifalin Tölvuskóli Íslands B í l d s h ö f ð a 1 8 , s í m i 5 6 7 1 4 6 6 Opið til kl. 22.00 HEILDARKOSTNAÐUR við smíði hafrannsóknaskipsins Árna Friðriks- sonar er orðinn um 1,7 milljarðar króna. Inni í þeirri upphæð eru öll veiðarfæri skipsins og rannsóknar- tæki. Beinar greiðslur til ASMAR- skipasmíðastöðvarinnar í Chile eru tæplega 1,2 milljarðar króna en við- bótarkostnaður vegna búnaðar utan tilboðs var um 430.000 milljónir króna. Loks var eftirlitskostnaður ferða- og uppihaldskostnaður og fleira um 115 milljónir króna. Sam- kvæmt útreikningi Hafrannsókna- stofnunar hefði heildarkostnaður við smíði skipsins hjá Slippstöðinni á Ak- ureyri orðið um 2,1 milljarður króna. Þessar upplýsingar koma fram í svari sjávarútvegsráðherra við fyrir- spurn Svanhvítar Jónaasdóttur, þing- manns Samfylkingarinnar. Svanfríð- ur spurði hversu mikið hafrannsókna- skipið hefði hækkað meðan það var í smíðum; hve smíðin hefði dregist mikið og hve miklar dagsektir hefðu verið greiddar vegna þess; hvaða vandkvæði hefðu komið upp og hvaða lagfæringar þyrfti að gera á skipinu eftir heimkomuna og hve mikið þær hefðu kostað; hversu mikill heildar- kostnaður væri orðinn við skipið; Hvort fyrirsjáanlegar væru fleiri breytingar og ef svo væri hve mikið þær myndu kosta; og hvernig tilboð Slippstöðvarinnar í smíði skipsins hefði verið. Viðbótarverk kostuðu 17,9 milljónir króna Svar sjávarútvesgráðherra fer hér á eftir: „Viðbótarverk og viðbótar- búnaður vegna smíði hafrannsókna- skipsins Árna Friðrikssonar hjá ASMAR-skipasmíðastöðinni í Chile kostuðu 37,9 milljónir króna (USD 515.696, gengi 16. apríl 2000: 73,58). Þar voru 17,9 milljónir (USD 243.092) vegna kaupa á KajoDenki Sonar, en ákveðið var að skipasmíðastöðin keypti þennan búnað og kaupandi greiddi við afhendingu skipsins. Vegna tafa hækkaði kostnaður við eftirlit og heimsiglingu skipsins hins vegar um rúmar 30 milljónir króna. Þar er um að ræða viðbótarlauna- kostnað eftirlitsmanna, kostnað við uppihald og fargjöld. Rúmlega 10 mánaða dráttur Samkvæmt upphaflegum samningi við ASMAR-skipasmíðastöðina var gert ráð fyrir að skipið yrði afhent 31. maí 1999. Þegar við undirritun samn- ings var ljóst að afhendingardagur rafbúnaðar frá ALSTOM í Frakk- landi sem kaupandi útvegaði stæðist ekki. Í samkomulagi við ASMAR var síðar gert ráð fyrir frestun á afhend- ingu vegna þessa til 30. september 1999. Skipið var afhent 16. apríl 2000. Dráttur miðað við upphaflegan samn- ing var því 10,5 mánuðir en 6,5 sam- kvæmt samkomulagi því sem gert var vegna dráttar á afhendingu rafbún- aðar. Smíðatími skipsins var því 26,5 mánuðir miðað við upphaflegan samning. Dagsektir sem seljandi greiddi voru 95,4 milljónir króna (USD 1.297.000, gengi 73,58). Seljandi greiddi einnig 29,4 millj- ónir króna (USD 400.000, gengi 73,58) þar sem honum tókst ekki að uppfylla ákvæði samningsins um djúpristu skipsins og þyngd, og 15 milljónir króna (USD 204.000, gengi 73,58) vegna verka sem ekki stóðust kröfur í smíðalýsingu. Endanleg greiðsla til ASMAR var því, 1.110,5 milljónir króna (USD 16.314.696, meðalgengi á greiðslum til ASMAR 72,51) en samn- ingsverð var USD 16.700.000 eða 1.196 millj. króna (gengi 71,62 við opnun tilboða). Þónokkrar lagfæringar Lagfæringar eftir heimkomu og reynslusiglingar undanfarna 5 mán- uði hafa átt sér stað á eftirfarandi búnaði: Raflögnum, lögnum fyrir raf- eindatæki, þ.m.t. viðvörunarkerfi, innréttingum, vindubúnaði, háþrýsti- vökvakerfi, loftræsikerfi og stálvirki, auk ýmissa minni lagfæringa. Lag- færingar á skipinu og vinna við það eftir heimkomu hefur kostað 40,5 milljónir króna. 3. nóvember sl. fór skipið í slipp í nokkra daga vegna bil- unar á fellikili. Sú viðgerð er talin kosta um 6 milljónir króna og mun ASMAR bera þann kostnað. Heildarkostnaður við skipið er nú um 1.700 milljónir króna. Inni í þeirri upphæð eru öll veiðarfæri skipsins og rannsóknartæki. Kröfur hafa verið gerðar á ASMAR vegna viðgerða á ábyrgðartíma og nema þær nú um 20 milljónum króna, en niðurstaða þar um liggur ekki fyrir. Til þess að mæta bilunum eða göllum sem upp koma innan árs frá afhendingu skipsins hef- ur ASMAR sett bankaábyrgð að upp- hæð USD 835.000 eða um 73 milljónir króna. Helstu breytingar og fyrirsjáanleg- ar viðgerðir eru viðgerð á innrétting- um og loftum, endurbætur á loft- ræstikerfum og endurbætur á frysti- og kælikerfi. Ætla má að kostnaður vegna þeirrar vinnu verði á bilinu 10– 15 milljónir króna. Heildarkostnaður 2,1 milljarður hefði verið smíðað á Akureyri Tilboð Slippstöðvarinnar á Akur- eyri hjóðaði upp á 1.596 milljónir króna, en tilboð ASMAR-skipasmíða- stöðvarinnar var eins og fyrr segir 1.196 milljónir króna á verðlagi í des- ember 1997 (gengi USD 71,62). Smíðatími samkvæmt tilboði Slipp- stöðvarinnar var 18 mánuðir en 15 mánuðir í tilboði ASMAR. Báðir að- ilar gerðu ráð fyrir 20% upphafs- greiðslu. Samkvæmt tilboði Slipp- stöðvarinnar áttu 80% að greiðast á smíðatíma samkvæmt framgangi verksins en tilboð ASMAR gerði ráð fyrir 80% við afhendingu skips. Gera má ráð fyrir að heildarkostnaður við smíði skipsins hefði að lágmarki verið á bilinu 2.050 til 2.100 millj. króna ef tilboði Slippstöðvarinnar á Akureyri hefði tekið.“ Hafrannsóknaskipið Árni Friðriksson Heildarkostnaður orðinn 1,7 milljarðar LOÐNUAFLI frá áramótum er orð- inn tæplega 22.000 tonn samkvæmt upplýsingum Samtaka fiskvinnslu- stöðva. Aflinn á sumar- og haustver- tíðinni varð alls 126.000 tonn. Fyrstu loðnunni var landað áttunda janúar, en lítil sem engin veiði hefur verið síðustu daga vegna brælu. Mestu hefur verið landað í Nes- kaupstað, ríflega 7.700 tonnum. Á Eskifirði hefur verið landað um 5.800 tonnum, 4.700 hjá SR-mjöli á Seyðisfirði og mun minna annars staðar. Aflahæsta skipið er Börkur NK sem hefur landað tvívegis, sam- tals ríflega 3.200 tonnum. Morgunblaðið/Jón Páll Ásgeirsson Björg Jónsdóttir tekur loðnutrollið á Reyðarfirði um helgina. Fleiri skip voru þá inni vegna brælu. Um 22.000 tonn af loðnu veidd ÍSFISKTOGARINN Breki VE frá Vestmannaeyjum seldi um 72 tonn af karfa á fiskmarkaðnum í Brem- erhaven í gær og var meðalverðið um 142 krónur fyrir kílóið. Það er töluvert lægra verð en fengist hefur fyrir karfa á markaðnum undan- farnar vikur. Alls voru seld 72 tonn úr Breka VE á markaðnum í gær, af 110 tonna afla sem fékkst á sex dögum, nánast eingöngu karfi. Afgangurinn verður seldur á markaðnum í dag. Að sögn Samúels Hreinssonar, framkvæmdastjóra Íseyjar, sem rekur fiskmarkaðinn í Bremerhav- en, var meðalverðið fyrir karfann í gær um 142 krónur sem sé töluvert lægra verð en fengist hefur á mark- aðnum frá áramótum. Í síðustu viku fengust á bilinu 230 til 250 krónur fyrir karfakílóið á markaðnum í Bremerhaven. „Þeir sem hafa náð því að vera út á sjó yfir jól og ára- mót hafa vanalega fengið mjög hátt verð fyrir aflann fyrstu daga ársins. Breki varð hinsvegar að koma í land milli jóla og nýárs vegna bil- unar og setti þá aflann í gáma sem seldir voru í síðustu viku.“ Samúel segir framboð hafa aukist töluvert og því sé eðlilegt að verð lækki umtalsvert. „Það hefur verið ágætt veður á Íslandsmiðum og því komið meira þaðan en eins er fram- boð annars staðar frá að komast í eðlilegt horf eftir hátíðarnar.“ Samúel segir umræðuna um kúa- riðu í Evrópu hafa greinileg áhrif á fisksölu í Þýskalandi og ljóst að svo verði áfram. „Um helgina var lokað sláturhúsi í Bremerhaven eftir að þar kom upp kúariða. Við verðum því meira varir við þessa umræðu en áður og vafalaust verður það okkur til framdráttar. Á hinn bóg- inn hefur fiskverð verið hátt að undanförnu og því verið lítil sveifla í sölunni fyrr en nú og verðið að nálgast það sem eðlilegt getur tal- ist.“ Töluverð verðlækkun Breki VE seldi í Bremerhaven í gær Ofn æmisprófað Úr ríki náttúrunn ar
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.