Morgunblaðið - 16.01.2001, Blaðsíða 28
ERLENT
28 ÞRIÐJUDAGUR 16. JANÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ
sögulok?
www.alfa.is
Alfa námskei›i› hefur fari› sigurför
um allan heim í öllum kristnum
kirkjudeildum.
Námskei› um grundvallaratri›i
kristinnar trúar.
Alfa námskei›
fi
a
›
e
r
ti
l
m
e
ir
a
!
eru a› hefjast í kirkju nálægt flér
K
yt
ra
n
-
89
6
37
02
ÝMIS mannréttindasamtök hafa lát-
ið í ljós áhyggjur af því að aftökum
muni fjölga mjög á sjálfstjórnar-
svæðum Palestínumanna, eftir að
Yasser Arafat staðfesti dauðadóma
yfir mönnum sem sakfelldir voru
fyrir samstarf við Ísraela. Tveir
menn voru teknir af lífi og tveir til
viðbótar dæmdir til dauða á laugar-
dag, og yfirvöld á sjálfstjórnarsvæð-
unum hafa gefið til kynna að fleiri
réttarhöld yfir samverkamönnum
Ísraela séu í vændum.
Í uppreisn Palestínumanna á ár-
unum 1987 til 1993 voru hundruð
grunaðra samverkamanna Ísraela
tekin af lífi. En frá stofnun sjálf-
stjórnar Palestínu árið 1994 höfðu
aðeins þrjár aftökur farið fram á
sjálfstjórnarsvæðunum og enginn
dauðadómur var kveðinn upp fyrir
samstarf við Ísraela. Yasser Arafat
verður að staðfesta dauðadóma áður
en aftaka fer fram.
„Skýr viðvörun“
Mennirnir tveir, sem teknir voru
af lífi á laugardag, voru sakfelldir
fyrir að hafa gefið Ísraelum upplýs-
ingar sem leiddu til dauða Palestínu-
manna.
Majdi Makawi, sem var 28 ára
gamall, var leiddur fyrir aftökusveit
á fótboltavelli innan veggja höfuð-
stöðva lögreglunnar í Gaza-borg.
Hann var dæmdur fyrir að hafa að-
stoðað ísraelska hermenn sem urðu
fjórum meðlimum Fatah-hreyfing-
arinnar að bana er þeir skutu á bif-
reið þeirra við ísraelska herstöð í
nóvember. Alam Bani Odeh, sem var
25 ára, var tekinn af lífi á torgi í
borginni Nablus á Vesturbakkanum,
en um eitt þúsund manns fylgdust
með aftökunni. Hann var handtekinn
eftir að bílsprengja varð frænda
hans að fjörtjóni, en sá var kunnur
sprengjusmiður fyrir hryðjuverka-
hópa Palestínumanna.
Dómstóll í Betlehem dæmdi að
auki tvo Palestínumenn til dauða á
laugardag, fyrir að hafa átt þátt í
dauða eins af forystumönnum Fatah,
Hussein Abayat, sem lést í þyrluárás
Ísraelshers í Beit Sahur á Vestur-
bakkanum í nóvember. Tveir til við-
bótar voru dæmdir í lífstíðarfangelsi
og þrælkunarvinnu vegna sama
máls.
Dómsmálaráðherra palestínsku
sjálfstjórnarinnar, Freih Abu Me-
dein, sagði aftökurnar vera „skýr
skilaboð til þeirra sem hafa í hyggju
að svíkja þjóð sína og ættjörð“.
Fatah-hreyfing Yassers Arafats
sendi einnig frá sér yfirlýsingu, þar
sem tekið var í sama streng.
Alþjóðlegar mannréttindahreyf-
ingar, auk mannréttindasamtaka í
Ísrael og Palestínu, hafa fordæmt af-
tökurnar. Fullyrða þær að mennirn-
ir hafi ekki notið réttlátrar málsmeð-
ferðar og benda á að þeir hafi ekki
átt kost á að áfrýja dómnum. „[Pal-
estínski dómstóllinn] braut algjör-
lega í bága við alþjóðleg viðmið um
sanngjörn réttarhöld,“ sagði Bassem
Eid, forstöðumaður Mannréttinda-
samtaka Palestínu, í samtali við AP-
fréttastofuna.
Ehud Barak, forsætisráðherra
Ísraels, fordæmdi aftökurnar. „Það
er miður að palestínska sjálfstjórnin,
sem vonast eftir að hljóta viðurkenn-
ingu á alþjóðavettvangi, skuli hafa
gripið til sýndarréttarhalda sem
minna á myrkustu skeið mannkyns-
sögunnar,“ sagði Barak.
Aftökur Palestínu-
manna gagnrýndar
APAlam Bani Odeh leiddur til aftöku í Nablus á laugardag.
Betlehem, Jerúsalem, Gaza-borg. AFP, AP.
RONALD Reagan, fyrrverandi for-
seti Bandaríkjanna, er nú á bata-
vegi eftir að hafa mjaðmargrind-
arbrotnað síðastliðinn föstudag.
Hann gat sest upp í rúmi sínu á
sunnudag og er sagður bera sig vel.
Reagan hrasaði á heimili sínu í
Bel Air-hverfinu í Los Angeles og
var fluttur á sjúkrahús í Santa Mon-
ica í Kaliforníu. Þar gekkst hann
undir aðgerð á laugardag og að
sögn lækna gekk hún vel. Reagan
mun dvelja á sjúkrahúsinu í nokkra
daga í viðbót og gæti verið farinn
að ganga með aðstoð stoðtækja inn-
an tveggja vikna. Meðal þeirra sem
hafa óskað honum góðs bata eru
Bill Clinton, núverandi Bandaríkja-
forseti, og George W. Bush, verð-
andi forseti.
Reagan gegndi forsetaembætti
frá 1981 til 1989. Hann verður ní-
ræður 6. febrúar næstkomandi og
hefur undanfarin ár þjáðst af alz-
heimer-sjúkdómnum. Nancy, eig-
inkona hans, hefur dvalið hjá hon-
um á sjúkrahúsinu og tvö af
börnum þeirra, Michael og Patti,
heimsóttu föður sinn á laugardag.
Maureen, dóttir Reagans og leik-
konunnar Jane Wyman, hefur
reyndar legið á sama sjúkrahúsi
síðan í desember vegna krabba-
meinsmeðferðar.
Reagan á batavegi
Santa Monica. AP.
HANS Hækkerup, fyrrverandi varn-
armálaráðherra Danmerkur, sagði á
fyrsta vinnudegi sínum sem nýr yf-
irmaður hinnar alþjóðlegu bráða-
birgðastjórnsýslu Kosovo í gær, að
hann líti svo á að ekki sé hægt að festa
neina dagsetningu fyrir almennar
kosningar þar fyrr en búið sé að
ganga frá lagarammanum fyrir slíkar
kosningar. Virtist Hækkerup með
þessu leggja nýjar áherzlur miðað við
fyrirrennara sinn, Frakkann Bernard
Kouchner, sem hafði hvatt Hække-
rup til að einbeita sér
að því að drífa í því að
festa dagsetningu fyr-
ir kosningar frekar en
að leyfa sér þann mun-
að að skapa kjörfor-
sendur fyrir kosning-
unum. Kouchner hafði
með þessu látið að því
liggja að hann teldi að
vinnan við að koma
samfélagslífinu í Kos-
ovo í eðlilegt horf eftir
stríðið missti dampinn
ef lagaleg formsatriði
væru látin tefja kosn-
ingar.
Þykja orð Hække-
rups í gær benda til að
hann sé staðráðinn í að leggja eigin
áherzlur þann tíma sem hann gegnir
þessu vandasama starfi.
Samkvæmt áætlunum Sameinuðu
þjóðanna er stefnt að því að hundruð
brottflúinna Kosovo-Serba snúi aftur
til síns heima fyrir mitt þetta ár. En
Hækkerup tók fram, að af því yrði að-
eins ef Kosovo-Albanar
hættu ofbeldisárásum á
Serba. „Mitt hlutverk er
að skapa það öryggisum-
hverfi sem til þarf til að
Kosovo-Serbarnir snúi
aftur, og það gæti tekið
svolítinn tíma að ná því
marki,“ tjáði Hækkerup
fréttamönnum í Pristina.
Talið er að yfir helming-
ur hinna á að gizka
200.000 Serba, sem
bjuggu í Kosovo áður en
Júgóslavíuher dró sig út
úr héraðinu um mitt ár
1999, hafi flúið undan
hefndarþorsta Kosovo-
Albana.
Kouchner viðurkenndi í kveðju-
ávarpi í síðustu viku, að Sameinuðu
þjóðunum hefði mistekizt að skapa
Kosovo-Serbum viðunandi öryggi,
hann sakaði einnig öfgamenn í röðum
Kosovo-Albana um að standa fyrir
skipulögðum ofsóknum gegn Serb-
um.
Hækkerup leggur nýjar
áherzlur í Kosovo
Hans
Hækkerup
Pristina. AP.