Morgunblaðið - 16.01.2001, Page 47

Morgunblaðið - 16.01.2001, Page 47
MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 16. JANÚAR 2001 47 stofnun sem heitir Noregs idrætts- og ungdomskontor en hún er deild í menntamálaráðuneytinu. Þorsteinn sagði að fostöðumaðurinn þar væri góðvinur sinn til margra ára og myndi hann áreiðanlega greiða götu mína. Lét hann mig hafa umburða- bréf til hans og sagðist hann einnig skyldi boða komu mína símleiðis. Þegar ég hafði lokið störfum mín- um hringdi ég í forstöðumanninn og talaðist svo til okkar á milli að ég kæmi til hans á skrifstofuna næsta morgun. Hann tók mér alúðlega og spurði frétta af Þorsteini vini sínum. Eftir stutt spjall hringdi hann í einn starfsmann sinn og í sameiningu skipulögðu þeir þriggja daga skoðun- arferð um Suður-Noreg. Fór ég þessa ferð í boði stofnunarinnar með leiðsögumanni frá henni. Var þetta bæði fróðleg og skemmtileg ferð. Í sambandi við Ólympíuleikana í München 1972 átti að halda ráðstefnu í Regensburg, sem er þar skammt frá München, um sundlaugar og búnað þeirra. Þorsteinn hvatti mig og einn samstarfsmann minn til að sækja þessa ráðstefnu. Þannig var Þor- steinn sívakandi og síhvetjandi að samstarfsmenn hans kynntu sér nýj- ungar á sviði íþróttamannvirkjagerð- ar. Sundlaugin í Regensburg var þá tiltölulega nýtt mannvirki, eiginlega bæði úti- og innilaug. Yfirbyggingin er gerð úr segldúk sem borinn er uppi af stálmörkum og köðlum. Á góðviðrisdögum má draga segldúk- inn upp að toppi mastranna og verður laugin þá útilaug. Á heimleiðinni fórum við um Norð- urlöndin til þess að kynna okkur skautahallir og búnað þeirra. En þá voru byrjaðar umræður hjá ráða- mönnum íþróttahreyfingarinnar að byggja skautahöll í Reykjavík. Við fengum hvarvetna góðar mót- tökur og góð ráð og leiðbeiningar um tæknibúnað skautahalla og rekstur þeirra. Þessi draumur varð þó ekki að veruleika fyrr en Þorsteinn hafði látið af embætti. Þorsteinn hafði mikinn áhuga á gerð íþróttavalla með mismunandi yfirborði. Lét hann útbúa bæklinga bæði um gerð malar- og grasvalla. Þá hafði hann brennandi áhuga á að láta gera knattspyrnuvöll í Laugardal með gervigrasyfirborði og upphitun til snjóbræðslu að vetri til. Tók ég þátt í undirbúningi þess mannvirkis og var það boðið út ári eftir að Þor- steinn lét af embætti. Við gamla Melavöllinn voru fjögur ljósamöstur og voru þau flutt þaðan og sett upp við gervigrasvöllinn. Framkvæmdar- tími var tiltölulega stuttur og kostn- aður vonum lægri. Segja má að völl- urinn sé í stöðugri notkun frá morgni til kvölds flesta daga ársins. Ef gert væri hagkvæmnismat á íþróttamann- virkjum hér á landi finnst mér trúlegt að gervigrasvöllurinn yrði meðal þeirra sem best kæmu út. Upp úr 1970 fór ég að stunda hestamennsku í hestamannafélaginu Gusti í Kópavogi. Til að byrja með voru aðstæður þar allar ákaflega frumstæðar. Ef eitthvað átti að gera til úrbóta varð að treysta á sjálfboða- liðavinnu og ágóða af happadrættum o.s.frv. Mér datt í hug að spyrja Þorstein um hvernig staðið væri að þessum málum á hinum Norðurlöndunum. Sagði hann mér að eftir því sem hann vissi best sætu hestaíþróttamenn þar við sama borð og aðrir íþróttamenn. Nokkru seinna færði hann mér 40 blaðsíðna sænska bók sem heitir „Ridanläggingar“ sem gefin var út af Staten Naturvårdsverk 1978. Þar eru ítarlegar upplýsingar um hesthús, reiðhallir, skeiðvelli, reiðstíga og hvaðeina sem nauðsynlegt er til þess að unnt sé að stunda hestamennsku við bestu aðstæður án verulegrar áhættu. Árið eftir var haldinn hér á landi fundur norrænna íþróttafulltrúa. Eftir fundinn var farið í ferð til Ak- ureyrar og Mývatns. Ég fór með í þessa ferð og gat komið því svo fyrir að kunningi minn á Akureyri gat náð saman nægum hrossafjölda til þess að unnt væri að bjóða öllum þing- fulltrúunum á hestbak. Einnig feng- um við lánaðan sumarbústað svo hægt væri að bjóða reiðmönnunum upp á hressingu á eftir. Mér er minnisstætt hvað áseta Þorseins var góð, það var greinilegt að hann hafði einhvern tíma komið á hestbak áður. Nokkrum árum síðar voru samtök hestaíþróttafélaga tekin inn í ÍSÍ sem fullgildur aðili og mannvirki á sam- bandi við íþróttina styrkhæf til jafns við önnur íþróttamannvirki. Fyrir um 15 árum var byggð reið- höll á Fákssvæðinu í Reykjavík og nokkrum árum síðar reiðhöll á Gusts- svæðinu í Kópavogi. Þar er nú blómlegt íþróttastarf með reiðnámskeiðum fyrir börn og unglinga. Þau fá þar lánaða hesta, reiðtygi og hjálma en þeir sem vilja geta komið með eigin hesta. Fátt er þroskavænlegra fyrir börn og unglinga en náin kynni af íslenska hestinum. Af þessu sést að víða kom Þorsteinn við og þokaði góðum mál- um áleiðis. Í framkomu og dagfari var Þor- steinn maður ákaflega hispurslaus. Hann kom til dyranna eins og hann var klæddur og var hreinskiptinn og heilsteyptur maður. Þegar hann gekk að verki var áhuginn svo mikill að hann breiddist út til allra er með honum störfuðu. Hann var ekki gef- inn fyrir að kvarta undan einu né neinu. Þar var þó ein undantekning. Honum féll ekki að vinna með þeim sem voru deigir til verka. Hann trúði því alltaf statt og stöðugt að það sem hann tæki sér fyrir hendur, smátt eða stórt, það myndi heppnast, og hann kaus að þeir sem með honum ynnu væru sömu skoðunar. Þorsteinn lét af störfum íþrótta- fulltrúa ríkisins fyrir aldurs sakir 1981. Hann lagði þó ekki hendur í skaut heldur fór að huga að ýmsum áhugamálum svo sem fuglafræði og tók saman bók um fugla – Fugla- handbókina. Greiningarbók um ís- lenska fugla. Er sú bók að dómi kunnáttumanna einstaklega vel heppnuð. Ég hitti Þorstein oft á göngu í Laugardalsgarðinum þar sem hann var að gefa fuglunum, vin- um sínum, brauð. Rifjuðum við þá upp gömul og góð kynni. Ég kveð mikinn heiðursmann og votta aðstandendum hans innilega samúð. Minning Þorsteins Einars- sonar mun lifa í verkum hans og af- komendum. Jóhannes Guðmundsson, verkfræðingur. Þorsteinn var á allan hátt einstak- ur maður. Um hann og öll hans störf mætti skrifa margar bækur. Ég kynntist honum fyrst sem ungur glímumaður fyrir 35 árum. Þorsteinn var þá mjög aðsópsmikill maður og öllum sem nærri honum komu varð strax ljóst að þar fór maður sem var vanur að segja öðrum fyrir verkum. Allar götur síðan hef ég verið þeirrar gæfu aðnjótandi að hafa átt þess kost að starfa með Þorsteini að ýmsum verkefnum tengdum okkar ágætu þjóðaríþrótt, glímu. Þorsteinn var alltaf boðinn og búinn að vinna í þágu glímunnar, hvort sem það voru dóm- arastörf, halda námskeið, flytja fyr- irlestra, sjá um glímusýningar, sinna útlendingum, koma á æfingar og segja til, skrifa blaðagreinar o.s.frv.. Í hvert sinn kom Þorsteinn á óvart með starfsorku sinni, nýjum hug- myndum og ótrúlegu minni. Nú að leiðarlokum kveðjum við hjónin stórbrotinn mann og þökkum honum ógleymanlega og afar lær- dómsríka viðkynningu. Öllum hans mörgu afkomendum færum við okkar innilegustu samúð- arkveðjur. Blessuð sé minning Þorsteins Ein- arssonar. Hjálmur Sigurðsson og Sigríður Rut. Í dag verður Þorsteinn Einarsson, einn af okkar svipmestu íþrótta- mönnum fyrri hluta síðustu aldar, til moldar borinn. En seinni hluta ald- arinnar var hann einn atkvæðamesti íþróttafrömuður landsins. Hann gekk ungur að árum í Glímu- félagið Ármann og hóf þar glímuiðk- un og þátttöku í frjálsum íþróttum. Þessar greinar fóru þá vel saman. Glímuiðkun fór fram innanhúss að vetrarlagi, en hin var þá eingöngu iðkuð úti að sumarlagi. Þorsteinn varð fljótlega einn af glímusnillingum okkar og vann hann þar marga sigra. En Þorsteinn vann einnig það afrek að vinna til fegurðarverðlauna sem þá voru oft veitt. Í frjálsum íþróttum keppti hann oftast í kastgreinum og bar þá oft sigur úr býtum. Átti hann meðal annars met í kúlukasti um ára- bil. Á þessum árum var Þorsteinn ímynd hins sanna íþróttamanns, beinn í baki og léttur í spori. Af þeirri ástæðu var hann oft valinn fánaberi fyrir íþróttaflokka. Á Ólympíuleikun- um 1936 var hann fánaberi íþrótta- manna okkar. Þá var hann einnig val- inn til þess á lýðveldishátíðinni 1944 er þingmenn gengu fylgtu liði á Lög- berg. Nokkur þáttaskil urðu þegar Þor- steinn flutti til Vestmannaeyja 1934 og gerðist þar kennari og prent- smiðjustjóri. Samhliða störfum sín- um gerðist hann þar mikill forystu- maður um íþróttir. Þar dreif hann upp mikið íþróttalíf. Áður fyrr höfðu Eyjaskeggjar verið þekktir sem miklir íþróttakappar og mættu til leiks í Reykjavík til þátttöku í fyrsta Íslandsmóti í knattspyrnu 1912, þrátt fyrir alla erfiðleika á slíku ferðalagi þá. Nú gerðist Þorsteinn formaður Íþróttaráðs Vestmannaeyja og vann þar mikið uppbyggingarstarf. Þá gerðist hann einnig félagsforingi Skátafélagsins Faxa og vann þar að æskulýðsmálum. Eftir það var hann ávallt trúr þessari ágætu hreyfingu og varð síðar varaskátahöfðingi um nokkurn tíma. Í Vestmannaeyjum kvæntist Þor- steinn konu sinni Ásdísi Jesdóttur, sundkennara. Hún var frá þekktu íþróttaheimili, en bróðir hennar var frægur íþróttamaður að nafni Friðrik Jesson. Meðan hennar naut við studdi hún mann sinn dyggilega í hans margþættu störfum og hugsaði afbragðs vel um hið stóra heimili þeirra hjóna. Kom það sér vel þar sem starf Þorsteins kom til að út- heimta mikil ferðalög og þar með fjarveru frá heimilinu. Á þessum tíma var mikil vöntun á allri aðstöðu til íþróttaiðkana. Íþróttasalir voru fáir og litlir. Vellir svo til engir. Notast varð við mela, sem unglingarnir höfðu rakað og reynt að slétta. Með íþróttalögunum, er samþykkt voru 1940, skyldi verða breyting til batnaðar á allri aðstöðu til íþróttaiðk- unar. Ríkisvaldið lofaði verulegum styrkjum til uppbyggingar íþrótta- mannvirkja og íþróttakennslu í félög- um. Þá skyldi og ráða íþróttafulltrúa ríkisins. Þegar ráðið var í starfið varð Þorsteinn Einarsson fyrir valinu. Það kom fljótt í ljós að þar var vel valið. Þarna var óplægður akur og mikið verk að vinna fyrir hinn unga íþrótta- fulltrúa. Vegna þess uppbyggingar- starfs sem hann hafði unnið í Eyjum þekkti hann starfið en nú var það allt landið sem skyldi byggjast upp fyrir íþróttaæskuna. Hann gekk að þessu mikla verkefni með opnum huga staðráðinn í því að vinna æskunni allt það gagn sem hann gæti. Hann vissi að víða þurfti að taka til hendi, bæta og byggja svo aðstaða til íþróttaiðk- ana yrði þolanleg. Vinna Þorsteins varð fljótt þrotlaust starf. Hann hóf uppbygginguna með því að ferðast um landið og kynnast starfinu og að- stöðu á hverjum stað, svo hann gæti fengið glögga yfirsýn yfir viðfangs- efnið. Gaf hann sér þá ávallt góðan tíma til að ræða við heimamenn um íþróttastarfið og staðsetningu mann- virkja sem þurfti að gera ráð fyrir í framtíðaruppbyggingu á hverjum stað. Hélt hann oft erindi, þar sem hann útskýrði hin nýju íþróttalög og hvernig heimamenn gætu nýtt sér þau í framtíðinni. Þá kynnti hann sér rækilega upp- byggingu íþróttamannvirkja og stóð að útgáfu fræðirita um þau, í samráði við tæknimenn á umræddu sviði. Þannig gaf íþróttanefndin út rit um grasvelli, malarvelli, hlaupabrautir og fleira. Öll slík rit voru vel þegin af forystumönnum í íþróttum um land allt. Þorsteinn kynnti sér vel þessi tæknimál erlendis og var einn af stofnaðilum Alþjóðasamtaka um íþrótta- og tómstundamannvirki (I.A.K.S.), sem stofnuð voru í Sviss af þeim er fremstir stóðu þá í slíkum byggingarframkvæmdum í Vestur- Evrópu. Þessi samtök standa nú fyrir miklum sýningum á tveggja ára fresti, þar sem allt er til sýnis er varð- ar slíkar framkvæmdir. Þá stóð hann einnig að fundarhöldum hér heima á norrænum grundvelli varðandi íþróttamannvirki. Þótt starfsdagur Þorsteins væri oft langur hjá Íþróttanefndinni, var eins og hann hefði ávallt tíma fyrir margþætt störf fyrir hina frjálsu íþróttahreyfingu. Þegar landsleikir í frjálsum íþróttum hófust hér var Þorsteinn ávallt fenginn til þess að vera leikstjóri á þessum landsleikj- um, enda þótti það trygging fyrir því að landsleikirnir færu fram sam- kvæmt settum lögum og tímaplan yrði haldið. Þá starfaði hann í fram- kvæmdanefndum ÍSÍ er stóðu fyrir hinum fyrstu stóru íþróttahátíðum 1970 og 1980. En í þeirri fyrri tóku 5000 íþróttamenn þátt, en í hinni síð- ari voru það 10.000 íþróttamenn eða litlu færri en nú taka þátt í Ólymp- íuleikunum. Um áraraðir var hann fulltrúi ráðuneytisins í Ólympíunefnd Íslands og síðar í Fræðsluráði nefnd- arinnar eftir að það var stofnað. Þar hélt hann erindi fyrir ólympíufara um uppruna leikanna og reglur er giltu fyrir þá. Jafnframt kenndi hann þeim meðferð íslenska fánans og hélt gönguæfingar fyrir leikana. Þorsteinn er löngu þjóðkunnur fyrir ritstörf sín. Má þar nefna að hann var um árabil ritstjóri Íþrótta- blaðsins og ritaði margar greinar í blaðið. Þá skrifaði hann bækur og kver um glímuna, frjálsar íþróttir, skíðaíþróttina og fleira. Mesta vinnu hefur hann sennilega lagt í að kynna sér og skrifa um uppruna glímunnar og hverskonar fangbragða hér heima og erlendis. Vegna þessara rann- sókna var Þorsteinn beðinn um að halda erindi um fangbrögð á alþjóða- þingi glímumanna (F.I.L.A.) er fram fór í sambandi við Ólympíuleikana í Seoul 1988. Hann gekk frá ræðu sinni, en því miður komst hann ekki á þingið sökum veikinda, svo hann fékk einn úr stjórninni til að flytja sitt er- indi. Slíkt boð var mikil viðurkenning á þekkingu Þorsteins á fangbrögð- um, enda var hann síðar beðinn um að halda sitt erindi við annað tæki- færi. Eftir að félagsheimilasjóður var stofnaður varð Þorsteinn einnig framkvæmdastjóri sjóðsins. Þessi sjóður stóð traustum fótum lengi vel. Varð það því verulegt viðbótarálag á vinnu íþróttafulltrúans. En hann varð ánægður með þá tilhugun. Nú sá hann að með því var víða hægt að fá sæmilegan íþróttasal þar sem góð félagsheimili yrðu byggð. Búnings- herbergi þar gætu líka oft nýst fyrir íþróttavelli, ef hægt var að staðsetja húsin í námunda eða við íþróttavöll- inn. Við byggingu þessara húsa studdi hann ávallt við bakið á þeirri leikstarfsemi sem skyldi fara fram með því að þoka leiksviðinu í hæfilega stærð, svo leikarar gætu sýnt sínu listrænu takta sem best. Hann var einn af drifkröftum til að stofna heild- arsamstök þeirra er létu leiklistina til sína taka í þessum félagsheimilum. Hafa þau unnið markvisst starf. Þegar Þorsteinn hóf starf sitt hjá Íþróttanefndinni voru fá íþrótta- mannvirki í landinu er stóðu undir nafni. En þegar hann lét af störfum skiptu þau hundruðum. Öll höfðu þau verið reist með tilstyrk hans þar sem hann lagði á ráðin og var þá oft stór- huga, svo ráðamönnum þótti nóg um. En með rökum og ábendingum var sem betur fer oftast farið eftir hans leiðsögn. Undirritaður átti því láni að fagna að starfa með Þorsteini í áraraðir að umfangsmiklu uppbyggingarstarfi fyrir íþróttir í landinu. Það var mikill og góður skóli fyrir sérhvern mann að fá tækifæri til að starfa með hon- um og fylgjast með þeirri alúð er hann lagði í sérhvert verk er hann hafði með að gera hverju sinni. Þá var mér sérstök ánægja að ferðast um landið með honum. Oftast keyrði hann í sínum ágæta jeppa. Hann keyrði ekki hratt, en örugglega, svo við komumst á leiðarenda á réttum tíma, enda var stundvísi honum í blóð borin. Það var því oft góður tími til að ræða saman. Var það oft fróðlegur fyrirlestur um fuglalíf og náttúru landsins. En af ótal ferðum árlega gjörþekkti hann alla staðhætti hvar sem farið var. Hann skýrði frá sögu- stöðum þar sem bardagar voru háðir til forna og fyrirsát gerð. Þá hafði hann kynnt sér alla þá staði er heitar uppsprettur var að finna. En það var liður í rannsókn er hann hafði með höndum, að finna út hvar heitar laug- ar hefðu verið notaðar til baða fyrr á öldum. Þá gat hann skýrt öll heiti fugla er lyftu sér til flugs er framhjá var keyrt svo og varpstað og helstu heimkynni. Þegar á áfangastað var komið gekk hann markvisst til starfa með heimamönnum. Voru málin rædd og krufin til mergjar. Ef ekki fannst sameiginleg lausn, var Þor- steinn reiðubúinn að koma aftur og funda um málið. Fyrir hið mikla starf er Þorsteinn lætur eftir sig í æskulýðsmálum hef- ur hann reist sér óbrotgjarnan minn- isvarða um ókomin ár. Að lokum er leiðir skilja vil ég þakka samfylgdina og senda ástvin- um hans innilegar samúðarkveðjur. Gísli Halldórsson.                 !"  #            !"  ! !  !#    !"   $ %&& '  !( (  )        "$% &'()*  %  + '()*  ,*  +)-+       + $+-% +%$ $+& *    !   ! !    !  ./ 0,' ' 1   1 #2 3" (   +  , -+ +. -)  )"    / +% ++  1)*  -(%.4 )*   "*+5 ) -+  1 .4 -+ 6 %4 ,-%)*   +.4 )*    .4 )*      (-+ 1 $+-% +% 1 $+&

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.