Morgunblaðið - 16.01.2001, Qupperneq 49

Morgunblaðið - 16.01.2001, Qupperneq 49
MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 16. JANÚAR 2001 49 lyndi að leyfa okkur að hafa Æsu sína í nánd við okkur einmitt þegar okkar eigin krakkar voru flognir úr hreiðri og við í mestri þörf fyrir upp- lífgandi ungling til að halda jarðsam- bandi. Þarf ekki að geta þess að hún sannaði áþreifanlega hið fornkveðna að ekki fellur eplið langt frá eikinni. Sumarið 1984 vorum við saman í París allan júnímánuð af hreinni til- viljun ef nokkuð er þá tilviljun undir- orpið í þessum skrýtna heimi. Þá var Æsa orðin þar hagvanari en heima- maður og leiðsögn hennar á við há- skólanám í undrum heimsborgarinn- ar. Ógleymanleg er ferð okkar til Bretagne með gistingu í Paimpol og heimsókn til Yves frænda sem hafði á Vigdísi forseta þvílíka helgi að hann hafði ekki lokið upp aðaldyrum húss síns frá því er hún gekk út um þær. Síðsumars 1986 kom séra Sigur- jón sem oftar í heimsókn til okkar í Suðurgötu, og þegar við vorum að kveðjast á útidyratröppunum barst í tal að tilfinnanlega vantaði íslensku- kennara að Klaustri. „Er ekki rétt- ast að ég taki þetta að mér?“ sagði ég. „Jú, gerðu það,“ svaraði prestur. Af svip hans mátti ráða grun um ég væri að spauga eða kannski hélt hann ég væri að bjóða fram vinar- greiða við sig. Ef til vill í aðra rönd- ina en ekki eingöngu. Sannleikurinn var sá að mig hafði lengi langað til að kynnast þessum slóðum forföður míns og formóður, Jóns Steingrímssonar og Þórunnar Hannesdóttur, sem ég er kominn af í beinan kvenlegg svo að tryggari get- ur ættfærslan ekki verið! Er ekki að orðlengja það að þetta var fastmæl- um bundið, og í þeirri ætt eru orð jafngildi skriflegs samnings. Þetta varð mér ánægjulegur vetur. Oft hugleiddi ég þá sem einnig fyrr og síðar, hvílíkt heimslán það væri lítilli byggð á borð við Klaustur að fá til sín tvær hámenntaðar mikilhæfar manneskjur á besta aldri með menn- ingarleg viðhorf af hæstu gráðu og þar á ofan valmenni slík sem Jónu Þorsteinsdóttur og Sigurjón Einars- son – þangað komin með þeim ásetn- ingi að helga þessu héraði ævistarf sitt. Þau höfðu ekki fyrr komið sér fyr- ir í prestakallinu en þau hófu ung- lingakennslu á Klaustri. Um framfarir fræðslumála í sveit- unum milli Sanda á þeirra tíð og for- göngu þeirra í þeim efnum getur hver fræðst sem vill, því verkin sýna merkin. Undirstaða andlegrar menningar er gott bókasafn. Ætli safnið á Klaustri sé ekki eina sér- hannaða byggingin af því tagi á Ís- landi að undanskildu Landsbóka- safninu í Reykjavík? Bókakostur þess er mikill og vandaður. Og ekki var kylfa látin ráða kasti um innra skipulag. Jóna aflaði sér háskóla- menntunar í bókasafnsfræðum, kom öllu fyrir eftir kúnstarinnar reglum og sá sjálf um safnið fram að eðlileg- um starfslokum vegna aldurs. Minn- ingarkapella Jóns Steingrímssonar er önnur bygging sem vert er að staðnæmast við á Klaustri. Hún bætti ekki aðeins úr þörf þorpsins fyrir húsnæði til kirkjulegs og margs annars félagsstarfs, heldur er húsið sjálft kjörgripur sem setur fagran svip á byggðarlagið, hressir upp á andlegheit íbúanna í hvert sinn sem þeir leiða það augum og dregur að sér athygli ferðalanga. Ónefnt er það fordæmisgildi sem myndarlegt menningarheimili í sveit hefur fyrir umhverfi sitt. Á heimili þeirra Klausturhjóna var enginn kotungs- bragur. Og vel gættu þau þess að forpokast ekki í fásinninu. Þau voru sannir heimsborgarar. Þegar ég lít á kortin frá þeim sé ég að þau eru dag- sett í London, París, Lissabon, Sofíu, Køben, Prag, Lübeck, Vínarborg og víðar og víðar. Fagrar minningar hrannast upp þegar hugsað er til hennar Jónu á Klaustri. Sælt er að hafa lifað lífinu þannig. Við hefðum viljað njóta miklu lengri samvista við hana. En enginn má sköpum renna. Við erum öll í fjölskyldu minni hnípin þessa daga eins og við hefðum misst náinn ættingja. Einlægar þakkir fylgja henni úr húsi okkar, og hugheilar samúðar- kveðjur sendum við ástvinum henn- ar öllum. Einar Bragi. Í dag verður til moldar borin mikil vinkona mín Jóna Þorsteinsdóttir frá Sauðlauksdal, um árabil prestsfrú á Kirkjubæjarklaustri, V- Skaft. Á Nýja-Garði bjuggum við Sigurjón Einarsson úr Arnarfirði um nokkur ár. Var samgangur í mill- um herbergja okkar, sem von bar, báðir í guðfræðideild og enda aðeins yfir ganginn þveran að fara. Laust fyrir miðjan 6. áratuginn, að ég hygg – man ekki lengur að ár- setja einstaka atburði þessarar ljúfu tíðar – lögðust þau á hugi Sigurjón og sú glæsilega kona, er nú hefur kvatt. Komum mínum í inni Sigurjóns fækkaði eitthvað, en á móti kom að oftlega var te á katli hjá hinni ungu bústýru og brauð á borði, er kom sér vel er eigi var í fullu fæði verið í mötuneyti Garðanna, sökum fjár- eklu, enda etið til að lifa en ekki öf- ugt. Minnist ég þessara stunda með ánægju og þökk. Myndarskapur hennar kom vel í ljós er hún stýrði heimili á Klaustri árum saman. Voru allar móttökur hjá henni hinar veglegustu. Kom brosandi og hress til dyra er þeirra var kvatt. Glaðvær og skemmtileg í hvívetna. Var jafnan ánægjulegt við hana að ræða, kunni hún enda vel skil á mönnum og málefnum. Hún lagði sig eftir menntun bæði í Dan- mörku og hér heima, bókasafnsfræði o.fl. Mun henni hafa þótt þau fræði fýsileg enda víðlesin og bókamann- eskja mikil. Í þessum fáu orðum rek ég ekki lífshlaup hennar. Verður það efalítið gjört af öðrum þeim er henni kynnt- ust og þykir nokkurt skarð fyrir- skildi orðið hafa við hennar fráfall. Síðustu misseri kenndi hún þess sjúkdóms, er batt að lokum enda á hennar hérvist. Enga æðru var á henni að merkja í samtölum okkar þá ég hringdi í þau hjón. Var þvert á móti glaðværð og léttleika að merkja í ræðu hennar, enda var hún að eðl- isfari léttrar lundar. Má hiklaust segja, að hún hafi borið með hug- prýði ok veikinda sinna. Eins gætti í orðum eiginmanns hennar, að tvísýnt mundi um bata og tjáði hann mér á stundum hvað færi hennar sjúkdómi. Vissum við báðir að hverju dró. Kom mér í hug hið gamla stef úr kveðskap þjóðar vorr- ar: En Heljar grind/heyrði ek á ann- an veg/þjóta þunglega. Við hjónin vottum bekkjarbróður mínum, vini og kollega og herberg- isfélaga sr. Sigurjóni Einarssyni dýpstu samúð okkar, svo og börnum þeirra tveimur Æsu og Katli og öðr- um aðstandendum. Baldur Vilhelmsson, Vatnsfirði. Það var í Kaupmannahöfn síðla sumars árið 1968, nánar tiltekið í Nörre Sögade 25c, að ég sá Jónu í fyrsta skipti. Hún og Sigurjón höfðu leigt íbúð okkar hjóna um sumarið og voru á förum. Við að koma, há- skólinn var að byrja. Þessi fyrstu kynni eru mér mjög minnisstæð því að konan hafði strax mikil áhrif á mig. Ekki aðeins vegna þess hve vel var tekið á móti okkur, hve vel og samviskusamlega var gengið frá íbúðinni og að ýmislegt var skilið eftir sem ekki var til áður hjá fátækum námsmönnum, heldur var einnig þessi leiftrandi greind og áhugi á lífinu og tilverunni sem end- urspeglaðist strax í umræðunum. Áhuginn á okkur námsmönnunum var ósvikinn og ekta. Enda leið ekki á löngu uns þau hjón létu heyra frá sér og buðu í heilmikla veislu í nýju íbúðinni sem þau leigðu um veturinn í Köben. Smám saman varð til vin- átta sem hélst ætíð síðan. Það eru margar ástæður til þess hve vel ég kunni við Jónu, ástæður sem flestir geta samþykkt sem þekktu þessa bráðágætu konu. Mig langar því til að þakka Jónu sam- fylgdina og viðkynninguna með því að hrósa henni aðeins. Það mat komst aldrei beint til hennar en ég veit að hún vissi samt að ég mat hana mikils. Jóna meðhöndlaði fólk af ein- stakri virðingu og alltaf sem jafn- ingja. Í návist hennar fann fólk að það mátti sín einhvers. Alla tíð með- höndlaði hún mig sem algjöran jafn- ingja, hlustaði vel, spurði um álit og leitaði ráða. Hún vildi gjarnan ræða um menn og málefni út frá sálfræð- inni. Jóna vildi skilja hlutina. Henni dugðu ekki einfaldar skýringar. Skörp greind hennar og það hve vel hún fylgdist með öllu í þjóðlífinu hér heima og erlendis varð til þess að hún lagði alltaf eitthvað nýtt til í allri umræðu. Vegna þessa m.a. var aldrei hægt að finna nokkurn aldursmun og hún var ein af þessum manneskjum sem eru fastar fyrir og hún gat tekið ein- arða afstöðu í málefnum sem voru henni mikilvæg. Hún flíkaði ekki eig- in tilfinningum en var þeim mun næmari á tilfinningar annarra. Hún var ábyrg, fylgin sér og starfaði sam- kvæmt kenningum sínum. Jóna átti mjög auðvelt með að setja sig í spor annarra og alltaf stóð hún með þeim sem minna máttu sín. Hún þoldi alls ekki yfirlæti, hroka né valdbeitingu. Því gat hún ekki liðið þegar menn höfðu fengið vald en misbeittu því vegna heimsku eða vankunnáttu. Þessi kona elskaði menntun og vissi að þekking er undirstaða framfara og hamingju fólks. Sjálf bætti hún alltaf við sig og á fullorðinsárum með meiri háskólamenntun. Jóna var mikil fjölskyldumann- eskja, hún vissi hve mikilvæg fjöl- skyldan er fyrir andlega heilsu. Hennar verður sárt saknað, ekki bara af fjölskyldunni heldur einnig öllum vinum hennar. Innilegustu samúðarkveðjur fylgja frá minni fjölskyldu til allra þinna nánustu og kæra þökk, Jóna, fyrir að vera góð fyrirmynd og einstaklega góð kona. Guðfinna Eydal. Í dag, 12. janúar, kveðjum við kæra vinkonu, Jónu Þorsteinsdótt- ur. Margs er að minnast frá góðum samverustundum, í Norræna hús- inu, á Kirkjubæjarklaustri og annars staðar þar sem tilefni gafst til. Hún var skemmtileg, greind og afar fjöl- hæf og vel að sér. Hafði af miklu að miðla og var óspör á að gefa af sjálfri sér. Jóna kom til starfa í bókasafni Norræna hússins 1985 og starfaði þar með nokkrum hléum til 1989. Af og til síðar sinnti hún kvabbi okkar að koma í afleysingar. Henni leið vel hér hjá okkur og hefði gjarnan viljað vera hér lengur, en það var svo margt annað sem kallaði á starfs- krafta hennar og nærveru, að af því gat ekki orðið. Það var alveg einstakt að vinna með Jónu. Hún var dugleg, ósérhlíf- in og ráðagóð. Ekkert fyrir það að slá á frest leiðinlegum eða flóknum viðfangsefnum, heldur leysa málin og ljúka þeim. Og með sterka rétt- lætiskennd; ekkert fyrir það að láta ganga á rétt sinn eða annarra. Norræna húsið er vinnustaður sem átti vel við Jónu. Hér er boðið upp á svo margt á menningarsviðinu. Listsýningar, fyrirlestra um ýmis efni og margt fleira. Að ógleymdu bókasafninu með öllu því sem þar er í boði fróðleiksþyrstum og list- elskandi manneskjum. Þetta kunni Jóna að notfæra sér öðrum fremur. Starfsemi Norræna hússins er fjölbreytt og krefst þess að allir geti unnið saman. Starfsfólkið kynnist vel og er nánast eins og stórfjöl- skylda. Oft gefast tækifæri til sam- verustunda utan vinnutíma og þá eru eiginmenn og konur með. Þannig fengum við líka að kynnast Sigurjóni og njóta nærveru hans á gleðistund- um. Og við fengum líka að fylgjast nokkuð með Æsu og Katli og fjöl- skyldum þeirra. Þau voru stolt henn- ar og gleði. Fyrir alla samveru með Jónu þökkum við af heilum hug. Við minn- umst með söknuði þessarar glæsi- legu konu, sem gaf okkur svo mikið. Guð blessi minningu hennar og veiti vini okkar, Sigurjóni, börnum þeirra og fjölskyldum blessun og styrk á sorgarstund. Starfsfólk Norræna hússins. ✝ Sigríður Júlíus-dóttir fæddist að Hokinsdal í Arnar- firði 4. september 1917. Hún lést á Víf- ilsstöðum 8. janúar. Foreldrar hennar voru Jóhanna Jó- hannsdóttir og Júlíus Guðlaugsson. Syst- urnar voru: Guðlaug, elst, og Guðríður sem var yngst. Sig- ríður ólst upp á Bíldudal en fór 16 ára suður til Hafnar- fjarðar í vist. Eftir að suður kom stundaði hún ýmis störf. Árið 1945 giftist Sigríður Jósef Finnbjarnarsyni, málarameist- ara, f. í Aðalvík 28. nóvember 1903, hann lést 15. maí 1971. Þau eign- uðust tvær dætur, Ragnhildi, f. 27. apr- íl 1945, gift Páli Karlssyni, f. 22. júlí 1944 og eiga þau þrjú börn; Sigríði, Jósef og Karl Berg- mann og Huldu, f. 10. maí 1952, gift Antonio Fernandez Ortega, f. 7. febrúar 1949. Dóttir þeirra er Yolanda, fyrir átti Hulda dótturina Karen og synina Pál og Vilhelm. Alls eru langömmu- börnin orðin átta. Útför Sigríðar fer fram frá Fossvogskirkju í dag og hefst at- höfnin klukkan 13.30. Kæra tengdamamma. Á kveðju- stund koma margar minningar upp í hugann. Ég minnist þess að fyrir 40 árum rúmum lágu leiðir okkar fyrst saman er ég fór að vera með dóttur þinni, Ragnhildi. Ég hef alla tíð ver- ið stoltur af að vera mömmustrákur og á þessum tímamótum varð ég svo ríkur að eignast aðra mömmu. Síðan hef ég átt í huga mér tvær og þótt jafn vænt um báðar. Öll þau ár sem við höfum átt sam- leið hefur engan skugga borið á okk- ar samskipti. Allt þitt líf snerist um þitt fólk. Dæturnar, við tengdasyn- irnir þínir, öll barnabörnin og barna- barnabörnin áttum skjól hjá þér. Þitt heimili var okkar. Aldrei heyrði ég þig hallmæla nokkrum manni. Þú hafðir einstaklega góða návist. Und- ir það geta allir tekið sem áttu með þér samleið á langri lífsleið. Síðustu ár hafa verið þér erfið. Það var ekki þinn stíll að vera heft vegna sjúkdóma, en aldrei vissi ég til að þú létir það bitna á neinum og hélst til hinstu stundar þinni léttu lund. Síðustu vikur hafa verið okkur öll- um þungbærar ekki síst þér, sem hélst í lífsneistann af öllum þeim kröftum sem eftir voru, umvafin ást- úð þíns fólks. Ekki get ég látið hjá líða að þakka fyrir hönd okkar allra þá ástúð og hlýju sem þú naust frá hjúkrunar- fólki, læknum og öðru starfsfólki Vífilsstaðaspítala. Þessi tími hefur sýnt okkur og sannað að þar fer fólk sem leggur sig allt í einstakt starf. Ég hef kosið í þessu greinarkorni að beina hugsunum mínum og orð- um beint til þín, þannig finnst mér ég koma þeim best til skila, þannig hafa öll okkar samskipti verið í gegnum árin, hrein og bein. Ég veit að nú líður þér vel, laus við alla þjáningu. Hittumst þó síðar verði. Þinn tengdasonur Páll Karlsson. Elsku amma. Mig langar að minn- ast þín í fáeinum orðum. Þín er hægt að minnast á margan hátt, en ég vil minnast þín fyrst og fremst sem vin- konu ekki síður en ömmu. Ég minnist allra góðu stundanna sem við áttum saman er þú bjóst í Stigahlíðinni. þá gátum við oft spjallað klukkustundum saman. Ekki má heldur gleyma öllum há- degis heimsóknunum til þín, eftir leikfimi á leið í vinnuna. Betri kjöt- bollur og hrísgrjónagraut var ekki hægt að fá. Í biblíunni er ritningastaður sem segir: „Sælla er að gefa en að þiggja“. Þú hafðir svo sannarlega yndi af því að gefa og oft og mörgum sinnum gegnum árin gafst þú mér pening sem .mér þótti oft erfitt að þiggja, en ég sá hversu mjög það gladdi þig að gefa, svo að ég lærði að þiggja. Frá Stigahlíðinni lá leið þín á Víf- ilstaðaspítala, þar sem þú dvaldir síðustu ár ævi þinnar. Þaðan vil ég minnast þín sem glæsilegrar hetju. Alveg sama hvernig þér leið, á fætur fórstu og alltaf varstu vel til fara og svo falleg. Ég sagði það oft við þig hversu falleg þú værir og ég við- urlenni að ég var oft stolt af minni fallegu ömmu. Þegar veður var gott og sólin skein, varstu alltaf með þeim fyrstu út í garð, enda varstu alltaf með góðan lit. Palla mínum fannst gaman að heimsækja langönuu sína í sumar og byrjaði oftast á því að fara á þann stað, sem þú varst vön að sitja á úti, því hann var alveg viss um að skini sólin, væri langamma alltaf úti. Jós- ef Benjamín fannst líka gaman að heimsækja langömmu sína og hann var alltaf „svangur í nammið“ þitt, því alltaf áttir þú eitthvað sælgæti til að gefa. Elsu amma, þú varst oft mikið veit gegnum árun sem þú áttir á Víf- ilsstöðum en alltaf reistu upp aftur. Þú varst ótrúleg. Ég veit að síðustu dagar þínir voru þér erfiðir. Þú varst ekki vön að liggja án þess að fara eitthvað á fætur, en þarna gastu ekkert gert. Ég sá að þú þjáð- ist mjög og þú varst hrædd. Ég er þakklát fyrir að hafa getað komið til þín á hverjum degi þína síðustu daga. Nú ertu laus við allar súrefn- isslöngur, alla verki, allan ótta. Það er dýrmædd minning, sem ég alltaf mun geyma í hjarta mínu er ég varð vitni að því hvernig þjáningin hvarf úr andliti þínu og þú sofnaðir rótt. Ég veit að nú hvílir þú í faðmi Drottins. Blessuð sé minning þín, elsku amma mín. Þín Sigríður. SIGRÍÐUR JÚLÍUSDÓTTIR
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.