Morgunblaðið - 16.01.2001, Qupperneq 52
MINNINGAR
52 ÞRIÐJUDAGUR 16. JANÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Frank nam við New York há-
skóla og lauk síðan námi í lækn-
isfræði árið 1943 frá Philadelphia
háskóla. Hann var aðstoðarlæknir
við Knickerbocker-spítalann í New
York-borg 1943-1945, og eftir það
heimilislæknir í næstum 30 ár.
Hann lærði til geðlæknis við Nass-
au County Medical Center og lauk
því í byrjun sjöunda áratugarins.
Frank Herzlin var stofnandi, aðal-
eigandi og yfirlæknir Freeport-
spítala á Long Island í New York
ríki í Bandaríkjunum, en sá spítali
lék stórt hlutverk í þeirri byltingu
sem varð hér á Íslandi á áttunda
áratugnum í meðferð áfengis- og
vímuefnasjúklinga. Hann stofnaði
eftirmeðferðarstöð fyrir áfengis- og
vímuefnaneytendur árið 1975 og
keypti til þess Rhinebeck Lodge í
miðjum Hudson-dalnum í New
York-ríki. Rhinebeck Lodge „for
Successful Living“, eins og hann
kallaði eftirmeðferðarstöðina, varð
hans aðal starfsvettvangur þar til
að hann hætti störfum fyrir fáum
árum og seldi staðinn og flutti til
Flórída.
Hann var kosinn í ýmis ráð og
nefndir á sínu sviði. Honum var
veitt viðurkenning fyrir störf sín á
sviði heilbrigðismála af New York-
borg og hann var sæmdur riddara-
krossi hinnar íslensku fálkaorðu
hinn12. ágúst 1986.
Ég var þeirrar gæfu aðnjótandi
að fá Frank sem lærimeistara og
vin. Hann sagði mér að sem heim-
ilislæknir hefði hann oft rekist á
sjúklinga með ýmsa kvilla er auð-
velt var að sjá að stöfuðu aðallega
af mikilli áfengisneyslu.
Þrátt fyrir ýmis læknisráð og
skýr fyrirmæli um að hætta drykkj-
unni til að halda heilsu og lífi, héldu
þeir drykkjunni áfram og margir
drukku sig í hel. Margir tórðu í ein-
hverju geðveikislegu ástandi svo
árum skipti, og slíkt var erfitt fyrir
aðstandendur að horfa upp á.
Á þessum tíma voru meðferðar-
úrræði af skornum skammti, AA
samtökin voru að slíta barnsskón-
um og ekki orðin það afl sem þau
síðar urðu í meðferð áfengissjúk-
linga. Ráðandi sállækningar í
Bandaríkjunum á þessum tíma voru
ýmis afbrigði af sálgreiningu og at-
ferlissálarfræði, og þrátt fyrir góð-
an vilja og ýmsar tilraunir skiluðu
þær sáralitlum árangri og drykkju-
sýki var nánast talin ólæknandi.
Frank runnu til rifja örlög þess-
ara ógæfumanna og reyndi á ýmsan
FRANK
HERZLIN
✝ Frank Herzlinfæddist í New
York borg hinn 19.
september 1918.
Hann lést 19. nóvem-
ber síðastliðinn. For-
eldrar hans voru
David Herzlin, fædd-
ur í Rússlandi árið
1892, og Esther
Herzlin, fædd í Pól-
landi árið 1898.
Frank kvæntist
Normu Wallace
Herzlin árið 1945.
Börn Franks og
Normu voru Alan,
kvæntur Judith; Michael, kvæntur
Laurie; og David, ókvæntur, sem
lést árið 1981. Frank og Norma
eignuðust fjögur barnabörn,
Daniel Herzlin, Alexander Herzl-
in, Emily Herzlin og Kate Herzlin.
Frank Herzlin var jarðsettur í
Beth David kirkjugarðinum í El-
mont, New York hinn 22. nóvem-
ber.
hátt að aðstoða þá.
Komu fljótlega í ljós
hans einstöku hæfi-
leikar til að setja sig í
spor þeirra og frábært
innsæi í tilfinningalíf
þeirra, sem skilaði oft
ótrúlegum bata. Þetta
varð til þess að æ
meira af hans tíma fór
í að sinna þessum sjúk-
lingum, og til að gera
langa sögu stutta þá
endaði þetta með því
að hann stofnað Free-
port-spítala á Long
Island árið 1962, en
spítalinn sérhæfði sig í meðferð við
áfengissýki og öðrum vímugjöfum.
Það var síðan Íslendingum til
happs að þegar fyrsta Íslendingn-
um skolaði á fjörur Freeport-spítala
um miðjan áttunda áratuginn var
Frank komin með dýrmæta reynslu
og þekkingu á áfengissýki og öðrum
vímugjöfum, og að mínum dómi
með eina af árangursríkustu með-
ferðunum sem til voru í Bandaríkj-
unum á þeim tíma. Freeport-spít-
alinn var afeitrunarspítali, en þar
fór fram mikið meðferðarstarf fyrir
utan afeitrunina. Meðferðardag-
skráin var að mestu leyti byggð á
grunni tólf-sporakerfis AA samtak-
anna.
Engan mann hef ég hitt sem
sjálfur er ekki alkóhólisti, sem var
meiri aðdáandi tólf-sporakerfisins
en Frank. Hann notaði ekki áfengi,
en hann átti við ýmsa erfiðleika að
etja í sínu lífi eins og aðrir. Eftir að
hann kynntist tólf-sporakerfinu þá
nýtti hann það fyrir sjálfan sig og
fór oft á opna AA fundi.
Eins og komið hefur fram hér að
framan spilaði Freeport-spítalinn
lykilhlutverk í þróun meðferðar við
drykkjusýki á Íslandi á áttunda og
níunda áratugnum, og nokkur
hundruð manns fóru þangað í
áfengismeðferð á um sjö árum á
þessu tímabili. Þessi mikli fjöldi
gefur til kynna hversu mikil þörfin
var.
Þessar utanfarir leiddu til stofn-
unar Freeport-klúbbsins og síðar
SÁÁ og hafði Frank mikinn áhuga á
hvoru tveggja. Hann eignaðist
fjölda vina á Íslandi og kom ásamt
Normu konu sinni oft til Íslands til
fyrirlestrahalds og til að heilsa upp
á vini og kunningja. Hann sagði
mér einu sinni að þetta íslenska æv-
intýri hefði verið einn skemmtileg-
asti og mest gefandi þátturinn í lífi
sínu. En íslenska þjóðin hefur
kunnað að meta framlag hans til
áfengismála á Íslandi eins og veit-
ing hinnar íslensku fálkaorðu gefur
til kynna.
Í Rhinebeck Lodge undi hann sér
ákaflega vel ásamt Normu konu
sinni og þau byggðu sér þar lítið
einbýlishús við hlið eftirmeðferðar-
stöðvarinnar. Hann samdi alla með-
ferðardagskrána fyrir Rhinbeck
Lodge sjálfur, annar af tveimur
grunnþáttunum var sem fyrr tólf-
spora-kerfi AA, en hinn aðalþátt-
urinn var rökrétt atferlismeðferð
tilfinninga eftir Albert Ellis sál-
fræðing. Mér finnst það bera vott
um mikla framsýni hjá Frank að
velja þessa meðferð, en hún hefur
sannað sig og getur oft komið í stað
lyfjagjafar við ýmsum tegundum
kvíða og þunglyndis.
Mér eru ógleymanleg mín fyrstu
kynni af honum. Ég var þá í eft-
irmeðferð á Rhinebeck Lodge, sem
þá hafði nýlega verið opnað, og
Frank var þarna allt í öllu. Hann
var eigandinn, forstjórinn, yfir-
læknirinn, yfirráðgjafi og dagskrár-
stjóri og samdi einnig alla dag-
skrána. Hann hafði sér við hlið
nokkra mjög góða ráðgjafa og var
sjálfur á hátindi starfsferils síns,
sextugur að aldri og við góða heilsu.
Hafði yfirgripsmikla þekkingu og
reynslu í baráttunni við drykkjusýki
og aðra vímugjafa og naut þess að
ýta úr vör þessari eftirmeðferðar-
stöð, með dagskrá sem hann hafði
sjálfur samið.
Þó að skjólstæðingunum væri
skipt niður á ráðgjafana þá fylgdist
hann náið með hverjum einstökum.
Á Rhinbeck Lodge var sá siður
hafður á að fyrir morgunmat hittust
allir skjólstæðingarnir í 15-20 mín-
útur og lesinn var texti viðkomandi
dags í Tuttugu og fjögurra stunda
bókinni. Frank hafði yndi af að leiða
þennan hóp og fór þá oft um víðan
völl, eins og honum einum var lagið.
Til dæmis var honum mikið kapps-
mál að skjólstæðingarnir gerðu sér
góða grein fyrir muninum á trú og
trúarbrögðum. Hans trú var frjáls-
lynd gyðingatrú en hann sýndi
mikla tillitssemi gagnvart trúar-
brögðum hinna ýmsu skjólstæðinga
sem þarna voru í meðferð. Ef hon-
um fannst pistill viðkomandi dags í
Tuttugu og fjögurra stunda bókinni
þurfa gagnrýni við, þá gerði hann
það hiklaust og hvatti aðra til að
viðra skoðanir sýnar á málinu. Ég
man að þetta kom mér einkennilega
fyrir sjónir í fyrstu, ég hafði vanist
því að allt sem væri í litlum svörtum
bókum og fjallaði um trúmál væri
bara alls ekki gagnrýnt.
Annað sem hann reyndi oft að
koma að á þessum stutta tíma á
morgnana var, að við það að hætta
að drekka og nota eiturlyf þá opnast
fólki möguleikar til miklu meiri lífs-
gæða en hófdrykkja getur boðið upp
á. En til að ná þeim þyrftu menn
verkfæri og í því sambandi vitnaði
hann óspart í tólf-sporakerfið, og
einnig í sálfræðinginn Albert Ellis
og hans rökréttu atferlismeðferð til-
finninga. En í hnotskurn segir sú
meðferð að í raun stafi flest okkar
tilfinningavandamál af því að við
gerum of miklar kröfur til okkar
sjálfra, annarra, eða umhverfisins.
Síðast en ekki síst hamraði hann sí-
fellt á að fólk yrði að hreyfa ein-
hverja vöðva ef það ætlaði að ná
meiri lífsgæðum, ekkert fengist gef-
ins í lífinu.
Honum var það eiginlegt að ná til
flestra og var auðvelt að hrífast af
sannfæringarkrafti hans og því
hversu mennskur hann var. Hann
kom ásamt Normu síðast til í Ís-
lands í boði SÁÁ á 20 ára afmæli
samtakanna haustið 1997, hann var
þá nýstaðinn upp úr erfiðum veik-
indum og var að jafna sig eftir
skurðaðgerð. Þarna voru fluttir
margir prýðilegir fyrirlestrar.
Lokafyrirlesturinn hélt Frank
Herzlin og sannaði, að mér fannst,
hversu frábær fyrirlesari hann var
og ég held að flestir sem á hann
hlýddu hafi hrifist. Þessi fyrirlestur
reyndist vera svanasöngur Franks
sem fyrirlesari.
Að lokum langar mig til að segja
frá dálitlu atviki sem ég varð vitni
að á meðan ég dvaldi í Rhinebeck
Lodge, sem sýndi vel hversu náin
þau Frank og Norma voru. Þannig
var að Frank veiktist og þá voru góð
ráð dýr.
Fyrirmælin sem hann gaf voru
skýr: „sækið Normu“. Þetta var áð-
ur en þau fluttu alveg til Rhinbeck
Lodge og Norma bjó enn í New
York en Frank fór heim um helgar.
Þá sá ég Normu í fyrsta sinn, litla
og netta konu, sem komin var eftir
nokkra klukkutíma áhyggjufull á
svipinn. Hún brosti þó vingjarnlega
til okkar skjólstæðinganna á meðan
hún hljóp á milli herbergis Franks
og eldhússins að malla eitthvert
góðgæti fyrir hann. Viti menn, eftir
tvo daga birtist Frank aftur heill
heilsu. Seinna átti ég eftir að kynn-
ast Normu betur og var hjónaband
þeirra hjóna ákaflega ástríkt og
traust og voru þau búin að vera gift í
55 ár, þegar Frank lést.
Við Dunna kveðjum með miklum
söknuði vin og sérstaklega mennsk-
an drengskaparmann, Frank Herzl-
in, og vottum Normu og öðrum ást-
vinum hans samúð okkar.
Rúnar Guðbjartsson.
✝ Hermann Bjarna-son fæddist á
Þingeyri við Dýra-
fjörð hinn 12. febr-
úar 1930. Hann lést á
Landspítala Fossvogi
8. janúar síðastliðinn.
Foreldrar hans voru
Kristjana Guðlaug
Guðmundsdóttir, f.
25. júní 1901, d. 14.
júlí 1978, og Bjarni
Guðbjartur Jóhanns-
son, f. 16. september
1898, d. 12. janúar
1971. Systkini Her-
manns eru 1) Bryndís
Meyer, f. 21. desember 1922. 2) Jó-
hann Tómas, f. 15. febrúar 1929.
3) Gunnar, f. 18. júlí 1931. 4) Gísli,
f. 28. júní 1933.
Hermann kvæntist eftirlifandi
eiginkonu sinni Elísabetu Svan-
hildi Kristjánsdóttur, f. 20. nóv-
ember 1935 á Þingeyri við Dýra-
fjörð hinn 6. júlí 1954. Börn þeirra
eru: 1) Rafn, f. 5.5. 1953, eigin-
kona hans er Ragn-
hildur Pálsdóttir. 2)
Ómar, f. 10.4. 1963,
sonur hans Hermann
Þór, f. 27.7. 1988. 3)
Einar Gunnar, f.
26.9. 1966, sambýlis-
kona hans Amalía
Vilborg Sörensdótt-
ir, sonur þeirra er
Kristófer Elís, f.
11.8. 1996.
Hermann ólst upp
á Þingeyri en flutti
til Hafnarfjarðar
1968 og bjó þar til
æviloka Hann starf-
aði lengst sem sjómaður bæði á
togurum og minni bátum.Eftir að
hann flutti suður vann hann ýmis
störf þar til hann réð sig til Ís-
lenska álfélagsins 12.janúar 1970
og vann þar til 67 ára aldurs.
Bálför Hermanns verður gerð
frá Víðistaðakirkju í Hafnarfirði í
dag og hefst athöfnin klukkan
13.30.
Mig langar að skrifa kveðju til
hans afa míns. Og þar sem ég kann
ekki að skrifa sjálfur þá fæ ég smá-
hjálp.
Þó ekki sé ég orðinn nema fjög-
urra og hálfs árs gamall hef ég eytt
mörgum dýrmætum stundum hjá
afa og ömmu á Hjallabrautinni og
mig langar að minnast þeirra
stunda sem við afi vorum saman.
Afi var aldrei óþolinmóður við mig,
við smíðuðum saman fullt af frá-
bæru dóti, við fórum í göngutúra
niður á Víðistaðatún og niður í
fjöru að skoða bátana, og fengum
meira að segja að fara um borð í
einn þeirra. Afi átti það líka oft til
að sækja mig á leikskólann stund-
um bara til að fara með mig og
sýna mér eitthvað fallegt eins og
jólasveinana og jólaljósin um allan
bæ sem við skoðuðum í krók og
kring nú fyrir jólin. Og aldrei hefði
mig grunað að þessi stóri sterki
maður sem bar mig á háhesti um
bæinn í desember, yrði ekki með
mér á nýja árinu. En ég veit, að
þótt ég sé ekki gamall að árum, þá
mun minningin um hann Hemma
afa minn ávallt lifa í mínum huga,
hann gaf mér svo margt, og ég veit
að amma og Hermann Þór sakna
hans líka ofsalega mikið en við
verðum bara að vera góð við hvert
annað og þakka fyrir allar frábæru
stundirnar sem afi gaf okkur, þær
stundir verða aldrei frá okkur
teknar. Elsku afi, ég ætla að
geyma þig í hjartanu mínu og ég
get alltaf talað við þig í bænunum
mínum á kvöldin. Og það er gott að
vita að þú verður alltaf nálægt til
að passa mig, þá er ég ekkert
hræddur.
Ég vona að þú verðir duglegur
að lesa bókina sem ég bjó til handa
þér.
Ég man alltaf vísuna okkar:
Seppi seppi situr á hól
og segist vera hundur.
Hann er klæddur í buxur og kjól
og börnunum finnst það undur.
Takk Guð fyrir að gefa Hemma
afa. Ástarkveðjur þinn vinur,
Kristófer Elís.
Í hinni helgu bók stendur skrif-
að: Öllu er afmörkuð stund og sér-
hver hlutur undir himninum hefur
sinn tíma. Að fæðast hefur sinn
tíma og að deyja hefur sinn tíma.
Nú er tímaglas Hermanns út-
runnið og komið að leiðarlokum
eftir stutta baráttu við illvígan
sjúkdóm.
Hermann fæddist í þorpinu okk-
ar fallega fyrir vestan og var okkur
því að góðu kunnur. Það var svo á
sl. sumri þegar við hjón lögðum
land undir fót að við urðum þeirrar
gæfu aðnjótandi að meðal ferða-
félaga okkar voru hjónin Hermann
og Elísbet. Í þeirri ferð gafst okk-
ur tilefni til að endurnýja kynnin
og rifja upp gamlar og góðar minn-
ingar að vestan. Ferð þessi var eitt
sannkallað ævintýri frá upphafi til
enda og ekki síst vegna nærveru
Hermanns.
Hann var glaður og sekmmtileg-
ur og hreif okkur hin með sér.
Hann var áhugasamur um lönd og
lýð og duglegur að skoða nýja staði
og vildi nýta hvern dag í því skyni
til hins ýtrasta. Náttúru- og dýra-
lífi veitti hann athygli og veitti okk-
ur hlutdeild í vitneskju sinni á
þeim sviðum. En umfram allt var
Hermann ákaflega greiðvikinn og
hjálpsamur við alla sína ferðafélaga
og skal það þakkað.
Í einni af mörgum morgungöng-
um sínum fann Hermann trjágrein
sem honum þótti góð til úrskurðar.
Er ekki að orðlengja það á
skammri stund skapaði hann lítið
listaverk með vasahnífnum einum
saman enda maðurinn óvenju hag-
ur í höndum. Þessi hlutur prýðir nú
heimili okkar og mun ávallt minna
okkur á góðan dreng.
Svo viðkvæmt er lífið, sem vordagsins
blóm,
og verður að hlíta þeim lögum
að beygja sig undir þann
allsherjardóm
sem ævina telur í dögum.
Við áttum hér saman svo indæla
stund
sem aldrei mér hverfur úr minni.
Og nú ertu gengin á guðanna fund,
það geislar af minningu þinni.
(Fr. St. frá Grímstöðum)
Elsku elísabet, synir, tengdadæt-
ur og barnabörn. Við vottum ykkur
okkar dýpstu samúð. Blessuð sé
minning Hermanns Bjarnasonar.
Gerður og Ólafur, Selfossi.
HERMANN
BJARNASON
Erfisdrykkjur
50-300 manna
Glæsilegir salir
Bræðraminni ehf., Kíwanishúsinu,
Engjateigi 11, sími 588 4460.
: ( 6
6
))
!"
D8D8
0
1 %
) (
( !!
0 8"
+) 7" +-+
1+7" +-+
-%1"$3) &