Morgunblaðið - 27.01.2001, Side 2
FRÉTTIR
2 LAUGARDAGUR 27. JANÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Fylgstu
með
nýjustu
fréttum
www.mbl.isSvíar halda með Íslendingum á
HM í Frakklandi / B3
Róbert Julian Duranona sá
handbolta fyrst 18 ára / B2
4 SÍÐUR20 SÍÐUR
Sérblöð í dag
Á LAUGARDÖGUM L a u g a r d a g u r27.
j a n ú a r ˜ 2 0 0 1
5,7 milljarða kr. árið 2000. Bent er á að sveiflur
í innheimtu geti skekkt heildarmyndina.
Útgjöld hækkuðu um
17,4 milljarða króna
Heildargjöld ríkissjóðs námu 195,4 milljörð-
um króna í fyrra og hækkuðu um 17,4 milljarða
kr., eða tæp 10%, frá fyrra ári. Þegar vaxta-
kostnaður er frá talinn nemur útgjaldahækk-
unin milli ára um 7,5%. Útgjöld til almennra
mála hækka um 2,5 milljarða kr., eða um 12%,
en þar undir fellur æðsta stjórn ríkisins, lög-
gæsla, dómgæsla og fleira. Útgjöld til félags-
mála hækka um 6,9% og til atvinnumála um
4,2%.
Tekjuafgangur ríkissjóðs var 12,2 milljarðar króna í fyrra
Tekjur af fjármagnstekju-
skatti hækkuðu um 78%
rekstrargrunni, eða um 23 milljörðum kr. sem
sé svipað og varð á árinu 1999 og sex millj-
örðum króna meira en ráð hafi verið fyrir gert í
fjárlögum.
Fram kemur að heildartekjur ríkissjóðs á
árinu 2000 námu 207,5 milljörðum króna sam-
anborið við 195 milljarða kr. árið áður. Hækk-
unin nemur 6,5% en skatttekjur hækka meira,
eða um 10%, samanborið við 15% hækkun
skatttekna milli áranna 1998 og 1999.
Þannig hækkaði tekjuskattur einstaklinga
um tæpa sex milljarða króna milli ára eða um
rúm 16%, tekjuskattur lögaðila dróst lítils hátt-
ar saman og skattur á fjármagnstekjur hækk-
aði um 78% úr 3,2 milljörðum króna árið 1999 í
TEKJUAFGANGUR ríkissjóðs á síðasta ári
samkvæmt greiðsluuppgjöri nam 12,2 milljörð-
um króna, samanborið við 17 milljarða króna
árið 1999. Minni afgangur nú en á árinu 1999
skýrist fyrst og fremst af fimm milljarða kr.
hækkun vaxtaútgjalda ríkisins vegna sérstakr-
ar forinnlausnar spariskírteina og sex milljarða
kr. minni tekjum af eignasölu á árinu 2000 að
því er fram kemur í frétt fjármálaráðuneytisins
af þessu tilefni.
Tekjuskattur einstaklinga
hækkaði um tæpa 6 milljarða
Bent er á að hér sé um greiðsluuppgjör að
ræða og gert sé ráð fyrir mun meiri afgangi á
MIÐSTJÓRN Sjálfstæðisflokksins
ákvað á fundi sínum í gær að næsti
Landsfundur Sjálfstæðisflokksins
verði haldinn 11.–14. október 2001.
Landsfundur Sjálfstæðisflokks-
ins er að jafnaði haldinn annað
hvert ár en síðast var Landsfund-
ur haldinn 11.–14. mars 1999.
Á Landsfundi fer fram kjör for-
manns, varaformanns og mið-
stjórnar. Landsfundur markar
stjórnmálastefnu flokksins til
næstu ára en fyrir fundinn munu
málefnanefndir flokksins, sem eru
24 talsins, leggja fram málefna-
ályktanir til umræðu og afgreiðslu.
Á landsfundi flokksins komandi
haust verður að auki fjallað sér-
staklega um skipulagsmál flokks-
ins og stefnumál í upphafi nýrrar
aldar.
Félög flokksins um allt land
kjósa fulltrúa til setu á landsfund-
inum en seturétt á landsfundum
Sjálfstæðisflokksins eiga 1.200–
1.400 manns.
Sjálfstæðisflokkurinn heldur Landsfund í haust
Rætt um stefnu-
mál nýrrar aldar
FASTEIGNAVERÐ er nú í sögu-
legu hámarki og var verðið í des-
ember síðastliðnum 9% hærra en
verðið varð hæst áður í ársbyrjun
ársins 1988, að því er fram kemur í
nýjum hagvísum Þjóðhagsstofnun-
ar.
Í hagvísunum er meðal annars
fjallað um þróun íbúðaverðs og hús-
bréfalán og kemur fram að fer-
metraverð í fjölbýlishúsum á höfuð-
borgarsvæðinu hefur vaxið um 37%
á síðustu tveimur árum sem er 25%
umfram hækkun vísitölu neyslu-
verðs á sama tímabilli. Fasteigna-
verð nú sé í sögulegu hámarki en
fyrra hámark hafi verið í ársbyrjun
árið 1988 en verðið í desember síð-
astliðnum sé 9% hærra en þá.
Í hagvísunum er einnig fjallað um
breytingar á gengi gjaldmiðla gagn-
vart íslensku krónunni og hvernig
þær hafa áhrif á fjölda ferðamanna
hingað til lands.
Fram kemur að á síðustu fimm ár-
um hefur gengi Bandaríkjadals
gagnvart íslenskri krónu hækkað
um 18,3% en á sama tíma hefur
gengi á þýsku marki gagnvart ís-
lensku krónunni lækkað um 15,3%.
Áhrifa þessara gengisbreytinga
gætir í ferðaþjónustunni, því á þessu
tímabili hafi ferðamönnum hingað til
lands fjölgað um 55%. Fjöldi þýskra
ferðamanna hafi verið stöðugur en
hlutfall þeirra af heildinni hafi lækk-
að úr 17% í 11%. Á sama tímabili hafi
bandarískum ferðamönnum hingað
fjölgað um 80% og hlutfall þeirra af
heildarfjölda vaxið úr 15% í 18%.
Fasteignaverð í sögulegu hámarki
9% hærra en
það hefur hæst
orðið áður
TINNA Marín Jónsdóttir, 15 ára,
bar í gærkvöldi sigur úr býtum í
söngkeppni Samfés, Sambands
félagsmiðstöðva, með lagi Celine
Dion, All Coming Back To Me.
Tinna keppti fyrir hönd Tóna-
bæjar en alls tóku 43 keppendur
þátt í söngkeppninni sem fram fór
í troðfullri Laugardagshöllinni. Í
öðru sæti varð Birna Dröfn Jóns-
dóttir frá félagsmiðstöðinni
Frostaskjóli sem flutti lagið Roads
með Portishead. Í þriðja sæti lenti
Klara Ósk Elíasdóttir, félags-
miðstöðimni Verinu í Hafnarfirði,
með lagið Can’t Fight the Moon-
ligt með Leann Rimes. Sigurveg-
arinn frá í fyrra, Ragnheiður
Gröndal, söng tvö lög á meðan
beðið var eftir úrslitum og eld-
gleypirinn og fjöllistamaðurinn
Mighty Garreth sýndi listir sínar.
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
Sigraði í
söngkeppni
Samfés
HÁKON Már Örvarsson, sem á
miðvikudag hreppti brons-
verðlaun í matreiðslukeppninni
Bocuse d’Or í Lyon í Frakklandi,
fékk höfðinglegar móttökur frá
félögum sínum í Klúbbi mat-
reiðslumeistara og Kokkafélaginu
Freistingu við komuna í Leifsstöð
í gær.
Brocuse d’Or er óopinber
heimsmeistarakeppni matreiðslu-
meistara og ríkir því mikil
ánægja meðal starfsfélaga
Hákons með þennan glæsta ár-
angur.
Morgunblaðið/Jim Smart
Meistara-
kokkur
kemur heim