Morgunblaðið - 27.01.2001, Blaðsíða 17
VIÐSKIPTI
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. JANÚAR 2001 17
SEÐLABANKINN keypti krónur
á millibankamarkaði þrjá síðustu
viðskiptadaga þessarar viku í því
skyni að verja gengi krónunnar
gegn frekari lækkunum og námu
inngripin samanlagt 4,2 milljörðum
króna.
Frá upphafi miðvikudags til loka
föstudags fór krónan úr 122,38 stig-
um í 121,93 stig, sem þýðir að hún
styrktist um 0,37%, en sé litið til
vikunnar í heild lækkaði krónan um
0,15%. Lægri vísitala þýðir sterkari
krónu þar sem vísitalan mælir verð
erlends gjaldeyris.
Viðskipti á millibankamarkaði
voru nokkuð lífleg í síðustu viku,
eða rúmir 4 milljarðar króna á dag
að meðaltali, en meðaltal síðasta
árs var rúmir 3 milljarðar króna.
Ellefta febrúar á síðasta ári víkk-
aði Seðlabanki Íslands vikmörk
vísitölu krónunnar úr 6% frá mið-
gildi í 9% frá miðgildi. Miðgildið
sem Seðlabankinn miðar við er
115,01 stig, sem þýðir að neðri
mörkin eru 104,66 stig og efri
mörkin 125,36 stig. Vísitalan er því
ekki langt frá efri mörkunum nú,
en á síðasta ári fór hún undir 108
stig og var þá komin niður undir
neðri mörkin. Fyrri vikmörk, þ.e.
þegar miðað var við 6% frávik, voru
108,11 og 121,91 stig, sem þýðir að
vísitalan hefur farið út fyrir bæði
efri og neðri mörk frá því þau voru
víkkuð.
Á meðfylgjandi línuriti má sjá
gengisvísitölu krónunnar frá upp-
hafi síðasta árs, helstu inngrip
Seðlabankans og þær vaxtahækk-
anir sem orðið hafa á þessu tíma-
bili.
Seðlabankinn styður krónuna gegn frekari lækkunum
Kaupir 4,2 milljarða kr.
!
!
!
"
#
$
%
"
#
& '(
)
#
$*
#
*
!#
& ( + ! #
)
, ! #
)( $
!
● SIGRÚN Bjarnadóttir, fram-
kvæmdastjóri Vöxtu ehf., sem sam-
keppnisráð hefur úrskurðað að beri
að greiða dagsektir þar til gögn hafa
verið látin í té vegna kaupa Banana
ehf. á Ágæti, segir að úrskurður
samkeppnisráðs sé enn í skoðun og
menn séu að íhuga þann möguleika
að fara með málið fyrir dómstóla.
Sigrún segir að Vaxta ehf. starfi
undir lögum um verðbréfaþing og
þar sé skýrt kveðið á um þagn-
arskyldu og Vaxta vilji standa vörð
um hana. „Okkur finnst líka skipta
máli að við erum ekki beinn aðili að
málinu og við teljum því að okkur
beri ekki að afhenda gögn í þessu
máli.“
Vaxta íhugar
dómstóla-
leiðina
● EIMSKIP hefur stofnað dótturfyr-
irtæki í Danmörku, Eimskip Den-
mark A/S, og mun fyrirtækið taka til
starfa 1. mars næstkomandi og reka
tvær skrifstofur í Danmörku. Starfs-
menn verða í byrjun 15 talsins.
Höfuðstöðvar Eimskip Denmark
A/S verða í Árósum þar sem skip
Eimskips hafa viðkomu vikulega, en
einnig verður skrifstofa í Kaup-
mannahöfn. Með stofnun Eimskip
Denmark A/S lýkur umboðssam-
starfi Eimskips og DFDS í Dan-
mörku, en DFDS hefur verið með um-
boð fyrir Eimskip allt frá árinu 1968.
Forstöðumaður Eimskip Denmark
A/S verður Helgi Ingólfsson, en
hann er jafnframt forstöðumaður
Eimskip Transport AB í Svíþjóð.
Eimskip stofnar
dótturfyrirtæki
í Danmörku
● YFIRSTJÓRN Schiphol-flugvall-
arins í Amsterdam hefur tilkynnt að
Flugleiðir séu stundvísasta flug-
félagið sem notaði flugvöllinn á árinu
2000, að því er fram kemur í tilkynn-
ingu frá Flugleiðum. Flugleiðir fljúga
sjö sinnum í viku til og frá Amst-
erdam yfir sumarmánuðina en fimm
sinnum í viku í vetur. Schiphol er
einn stærsti alþjóðlegi flugvöllur Evr-
ópu og nýttur af flestum helstu flug-
félögum álfunnar. Þar er haldin ná-
kvæm samantekt um brottfarir og
komur allra flugvéla og þær tölur eru
síðan bornar saman við áætlanir
flugfélaganna til að skera úr um
hvaða flugfélag stendur sig best.
Flugleiðir hljóta þessi verðlaun fyrir
árið 2000 og voru vélar félagsins á
áætlun í 86% tilfella og er þá miðað
við að brottför sé innan 15 mínútna
frá áætlun. Stundvísi á Schiphol-
flugvellinum hefur aukist frá 1999
og var á árinu 2000 rúmlega 64% að
meðaltali.
Flugleiðir hafa lagt mikla áherslu á
stundvísi á undanförnum misserum
og hafa að mati félagsins náð veru-
legum árangri, eins og sést á sam-
anburði Schiphol.
Flugleiðir
stundvísastar
á Schiphol
STUTTFRÉTTIR
● AUGLÝSINGAMIÐLUN ehf., sem
nýlega var stofnað af auglýsingastof-
unum Fíton, Auk og Nonna &
Manna, hefur ákveðið að kaupa aug-
lýsingabirtingar af Ríkisútvarpinu fyr-
ir 200 milljónir króna á árinu 2001.
Samningur um kaupin var undirrit-
aður í gær af þeim Jóni Erni Valssyni
fyrir hönd Auglýsingamiðlunar og
Markúsi Erni Antonssyni fyrir hönd
Ríkisútvarpsins.
Samningurinn er einn sá stærsti
sinnar tegundar sem einstakur aðili
hefur gert við fjölmiðil hér á landi,
jafnframt fyrsti samningurinn um
kaup á birtingum sem Auglýsinga-
miðlun ehf. gerir.
Kaupa birtingar
fyrir 200 millj-
ónir króna
HLUTABRÉF í sænska Ericsson-
símafyrirtækinu hröpuðu í verði í
gær eftir að tilkynnt var að fyrirtæk-
ið myndi hætta framleiðslu farsíma
og áætlanir fyrirtækisins fyrir árið
2001 voru lækkaðar. Ákvörðun Er-
icsson er talin geta orðið til þess að
um 600 manns missi vinnuna.
Sænskir fjölmiðlar sögðu það í
gær sæta undrun að Ericsson skyldi
hafa tapað um 24 milljörðum skr.,
um 213 milljörðum ísl., á farsíma-
framleiðslu á síðasta ári. Er það Sví-
þjóðarmet. Ástæðan er að sögn Kurt
Hellström, forstjóra Ericsson, bruni
í verksmiðju fyrirtækisins í Mexíkó
og erfiðleikar við að fá einstaka hluta
til framleiðslunnar. Kostnaður við að
bjóða út framleiðsluna nemur um 8
milljörðum skr., rúmlega 70 millj-
örðum ísl. Bandaríska fyrirtækið
Flextronics tekur við farsímafram-
leiðslunni en það hefur haft hana
með höndum um nokkurn tíma.
Hellström kynnti í gær fjárhags-
áætlun fyrirtækisins og lagði áherslu
á heildarhagnað upp á 28,7 milljarða,
um 255 milljarða ísl. kr. Stærstur
hlutinn, yfir 15 milljarðar skr., eru
hagnaður á hlutabréfamarkaði. Þá
hagnaðist fyrirtækið vel á sölu kerfa
fyrir farsíma og varð heildarsölu-
aukningin á síðasta ársfjórðungi um
27%.
Þrátt fyrir að Hellström bæri sig
vel og að hagnaður fyrirtækisins
væri meiri en spáð hafði verið, lækk-
uðu hlutabréf í Ericsson um 10 kr.
sænskar, um 90 ísl. kr. Vegna breyt-
inganna, sem Ericsson tilkynnti um,
er ekki búist við hagnaði á fyrsta árs-
fjórðungi 2001 en svo segist Hell-
ström telja að gera megi ráð fyrir
gróða. Ericsson hefur verið leiðandi í
þróun hinna svokölluðu þriðju kyn-
slóðar síma, eða UMTS, og hyggst
vera það áfram, stefnir að yfir 50%
markaðshlutfalli.
Sænska símafyrirtækið Ericsson
hættir framleiðslu farsíma
Hlutabréf
Ericsson
hrapa í verði
Kaupmannahöfn. Morgunblaðið.