Morgunblaðið - 27.01.2001, Síða 23
STARFSLOK
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. JANÚAR 2001 23
MÁR Jóhannsson á lengsta starfs-
aldurinn hjá Sjálfstæðisflokknum,
56 ár á hann að baki, en Hilmar
Guðlaugsson starfaði þar í rösk-
lega 30 ár og Kristín Guðjóns-
dóttir starfaði um 16 ára skeið.
„Ég var ákaflega ungur þegar
ég fékk áhuga á þjóðmálum og
fjölskylda mín aðhylltist ákaft
sjálfstæðisstefnuna. Þegar ég var
barnungur stofnaði ég með fleirum
Félag sjálfstæðra drengja og með-
al annarra var þar Geir Hallgríms-
son sem síðar varð formaður
flokksins. Þessi félagsskapur var
þó ekki langlífur, en eftir að ég út-
skrifaðist frá Verslunarskólanum
árið 1939 fór ég að vinna sem
þingskrifari og vann á þinginu þar
til Jóhann Hafstein framkvæmda-
stjóri Sjálfstæðisflokksins réð mig
til skrifstofustarfa. Þá vorum við
aðeins þrjú, auk Jóhanns síma-
dama. Auk okkar starfaði Bjarni
Jónsson frá Vattarnesi fyrir Varð-
arfélagið. Síðan hef ég verið
starfsmaður Sjálfstæðisflokksins,
lengi vel skrifstofustjóri,“ sagði
Már er Morgunblaðið ræddi við
hann í vikunni.
Þegar Már var beðinn um að líta
um öxl, yfir farinn veg, og segja
frá því hvað honum væri efst í
huga svaraði hann svona: „Það
góða við þetta, það sem veitti mér
ákaflega mikla ánægju, var að hafa
á tilfinningunni að ég væri að gera
eitthvert gagn og leggja mitt af
mörkum til að stuðla að framgangi
sjálfstæðisstefnunnar. Það sam-
ræmdist uppeldi mínu og lífssýn.“
Vann með flestum fram-
kvæmdastjórum flokksins
Már vann með öllum fram-
kvæmdastjórum flokksins að Jóni
Þorlákssyni undanskildum. Fyrst
var það Jóhann Hafstein, þá
Magnús Jónsson frá Mel, því næst
Þorvaldur Garðar Kristinsson, þá
Sigurður Hafstein og loks Kjartan
Gunnarsson.
„Ég var í persónulegum
tengslum við þessa menn. Mest þó
við Jóhann, þar var alltaf mikill
trúnaður og vinátta. Allir voru
þessir menn mikilhæfir afburða-
menn, en ég tel þó að Kjartan
Gunnarsson sé sá í hópi þeirra
sem unnið hefur flokknum mest
gagn. Hann er búinn að vera
lengst í starfi, er mjög áhugasam-
ur og ákaflega hugkvæmur á fram-
farir.
Ég hef einnig kynnst formönn-
unum hverjum af öðrum. Best þó
Ólafi Thors, en ég var ritari hans.
Var oft og iðulega á heimili hans í
Garðastræti 41 og gekk frá ræðum
hans. Samstarf okkar var náið og
ég dáðist að honum. Hann var
mikill leiðtogi, mikill skörungur.
Allir hafa þeir formenn sem ég hef
unnið með verið afburðamenn og
ég hef átt gott og náið samstarf
við þá alla, t.d. Bjarna Benedikts-
son og Geir Hallgrímsson. Þá met
ég mikils okkar glæsilega og stór-
kostlega formann Davíð Oddsson.“
Már sagði að það væru einmitt
kynnin við fólk í flokksstarfinu
sem hefði gefið sér hvað mest í
gegnum árin. „Ég hef verið þeirr-
ar gæfu aðnjótandi að eignast fjöl-
marga vini og kunningja sem
höfðu sömu hugsjón og ég sjálfur,
að starfa fyrir flokkinn, hjálpa til
við að framfylgja sjálfstæðisstefn-
unni, landi og þjóð til farsældar.“
Og Már bætti við að lokum, að
þótt hann væri formlega hættur
störfum hjá Sjálfstæðisflokknum,
þá væri erfitt að „kenna gömlum
hundi að sitja“, eins og hann
komst að orði og átti við að enn
mætir hann í Valhöll og dundar við
tilfallandi sérverkefni, enda „spor-
léttur enn og við góða heilsu“, eins
og hann kemst að orði.
Meiri pólitík
Hilmar Guðlaugsson er mennt-
aður múrari og starfaði sem slíkur,
auk þess að vera formaður Múr-
arafélags Reykjavíkur, er hann
réðst til ábyrgðarstarfa hjá Sjálf-
stæðisflokknum. Hann var skipað-
ur framkvæmdastjóri Verkalýðs-
ráðs Sjálfstæðisflokksins, en það
fór með ýmis mál, einkum ýmis
verkefnismál. Hilmar segir að
Verkalýðsráðið hafi verið nokkurs
konar „móðurskip þeirra sem
störfuðu við verkalýðsmál á vegum
flokksins víðs vegar um landið“,
eins og hann orðar það, en laun-
þegafélög á vegum flokksins voru
starfandi um land allt og var þetta
„ráðgjafanefnd um allt sem snerti
launþega“.
Hilmar segir að margt hefði
breyst á þeim árum sem hann
starfaði við þessi og önnur mál-
efni, m.a. 24 ár í borgarstjórn.
„Þetta hefur gjörbreyst. Öll þessi
vinna og umræða er miklum mun
faglegri og málefnalegri en áður.
Fyrrum var miklu harðari pólitík
og tíðum mikil átök í þessum mála-
flokkum,“ segir Hilmar.
Hilmar kom að fleiru, m.a. sá
hann um ferðamál fyrir Lands-
málafélagið Vörð sem bauð upp á
ódýrar menningarferðir til Kaup-
mannahafnar og sólarlandaferðir
til Majorka, auk þess sem hann sá
um, ásamt Má Jóhannssyni, hin
svokölluðu Héraðsmót Sjálfstæð-
isflokksins sem haldin voru á
hverju sumri, 2–3 í viku hverri um
land allt. „Þetta var mikil vinna,
ferðalögin voru geysivinsæl og
héraðsmótin gríðarlega mikið sótt.
Í þetta fór mikill tími og umstang,
en að því var ekki spurt. Maður
var bara í vinnunni og skilaði sínu.
Þótt starfsferli Hilmars hjá
Sjálfstæðisflokknum sé lokið hefur
maðurinn ekki sest í helgan stein.
Hann er framkvæmdastjóri Sam-
taka eldri sjálfstæðismanna, sem
vinna að því að bæta kjör eldri
borgara og hafa lagt fram tillögur
þar að lútandi, t.d. varðandi skatta
á lífeyristekjur o.fl. Hann er enn
fremur sestur á skólabekk til að
læra á tölvur, nokkuð sem gekk
honum úr greipum í Valhöll og nú
skal einnig læra á hljómborð sem
honum áskotnaðist þegar hann
varð sextugur. „Það er nokkuð
sem ég hef látið mig dreyma um
frá því ég var ungur maður. Ég
hef þótt hafa tóneyra, en það dug-
ar manni ekki að geta bara spilað
eitthvað eftir eyranu.“
Sér eftir
fólkinu
Kristín Guðjónsdóttir hætti
einnig um síðustu áramót og hafði
þá gefið Sjálfstæðisflokknum
sextán ára trygga þjónustu. Hún
sá um happdrættin og styrktar-
mannamálin og sagði í samtali við
Morgunblaðið að það hefði verið
„skemmtilegt og gefandi starf, en
það hafi verið farið að róast nokk-
uð þar sem fleiri væru komnir til
starfa og svo væri vélvæðingin á
skrifstofunni orðin allt önnur og
miklu meiri heldur en þegar hún
sat við fyrstu árin.
„Þegar ég lít um öxl verð ég að
segja að ég sakna fólksins. Ég er
bara hérna heima og sakna félaga
minna. Auðvitað get ég heimsótt
þegar mig langar, en það er ekki
það sama. Það var með fádæmum
gott að vinna þarna og virkilega
gaman. Það er ekki hægt að hugsa
sér betri vinnustað eða betra fólk
heldur en það sem ég kynntist
þarna,“ segir Kristín.
Sjálfstæðisflokk-
urinn kveður
máttarstólpa
Stjórnmálaflokkar, jafnt sem aðrar stofn-
anir, félög eða fyrirtæki, væru lítið ef ekki
kæmi til trygglynt og drífandi starfsfólk.
Sjálfstæðisflokkurinn er þar engin undan-
tekning. Um áramótin hættu þar þrír af
elstu og tryggustu starfsmönnum flokksins,
þau Már Jóhannsson, Hilmar Guðlaugsson
og Kristín Guðjónsdóttir sem unnu samtals
yfir 100 ár hjá flokknum.
Hilmar Guðlaugsson Kristín Guðjónsdóttir
Morgunblaðið/Jim Smart
Már Jóhannsson
Láta af störfum hjá stærsta stjórnmálaflokki þjóðarinnar eftir áratugalöng störf