Morgunblaðið - 27.01.2001, Side 27
NEYTENDUR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. JANÚAR 2001 27
VERÐHRUN
Allt með 50% afslætti
Í BRETLANDI eru í gildi skýr lög
varðandi innflutning milli Evrópu-
sambandslanda. Framleiðendur
geta ekki komið í veg fyrir að smá-
salar kaupi vörur í einu Evrópusam-
bandslandi og selji í öðru. Lögin gera
eigendum vörumerkjanna samt sem
áður kleift að stjórna því hvaða
verslanir selji varning þeirra og er
því haldið fram að þannig geti þeir
haldið uppi verði vörunnar. Stór-
markaðir á borð við Tesco hafa ítrek-
að leitað leyfis til að selja í versl-
unum sínum þekktar merkjavörur á
borð við Levı́s gallabuxur en ávallt
verið neitað um það. Þeir hafa því
fundið upp á því að fara í kring um
þessi lög og í auknum mæli flutt inn
merkjavöru frá löndum utan Evr-
ópusambandsins sem þeir síðan selja
á lægra verði en tíðkast um vöruna.
Helstu rök Levi’s í málaferlunum
voru þau að starfsfólk þyrfti sér-
staka þjálfun í því að útskýra fyrir
neytendum muninn á hinum ýmsum
gallabuxnasniðum.
Ennfremur hafa eigendur vöru-
merkja haldið því fram að nauðsyn-
legt sé fyrir ímynd vörunnar að þeir
hafi um það að segja hvar hún sé seld
því auk þess að þurfa að hafa yfir að
ráða hæfu, sérþjálfuðu starfsfólki,
þurfi verslanir að hafa upp á að bjóða
réttan verslunaranda og ímynd. Auk
þess hjálpi það þeim við að spyrna
við sölu eftirlíkinga í nafni vörunnar.
Stórmarkaðirnir halda því hins
vegar fram að málið standi um lágt
verð og vörumerkjasnobb.
Ekki eining um lögmæti
samhliða innflutnings
Ekki er eining um lögmæti þessa
innflutnings frá svokölluðum gráum
svæðum utan Evrópusambandanna
og nefndur hefur verið „parallel
trade“ eða samhliða innflutningur.
Eigendur vörumerkjanna halda því
fram að hann sé ólögmætur en eig-
endur stórmarkaðanna mótmæla
því. Margir töldu að niðurstaðan í
hinu svokallaða Silhouette-máli árið
1998 hafi tekið af allan vafa um lög-
mæti innflutnings frá löndum utan
Evrópusambandsins þegar Evrópu-
dómstóllinn ályktaði að leita þyrfti
samþykkis framleiðenda til þess að
flytja mætti inn vörur utan sam-
bandsins. Hæstaréttur Bretlands
flækti hins vegar málið enn frekar
ári síðar með því að komast að þeirri
niðurstöðu að framleiðandi Davidoff
gæti ekki takmarkað sölu varnings
síns í Evrópusambandslöndum sem
fluttur hefði verið inn frá öðrum
löndum vegna þess að hann hefði
ekki tekið það skýrt fram í dreifing-
arskilmálum að það væri bannað.
Tveggja ára undirbúningur
málaferla
Tekið hefur Tesco tvö ár að koma
málinu fyrir dómstóla en að lokum
höfðaði fyrirtækið mál á hendur
Levı́s á þeim grundvelli að það hefði
uppi „ástæðulausar hótanir“ varð-
andi sölu á vörumerki Levı́s en hver
sá sem hótað er málsókn vegna
gruns um brota á lögum um skrásett
vörumerki hefur rétt á því að fara
með málið fyrir Evrópudómstólinn
til þess að ganga úr skugga um að
ásakanirnar séu á rökum reistar.
Ákvæði þessu er ætlað að koma í veg
fyrir að eigendur vörumerkja eða
einkaleyfa geti misnotað einkarétt
sinn.
Búist er við því að bíða þurfi eftir
niðurstöðum í nokkra mánuði en þær
munu að öllum líkindum enda alla
lagalega óvissu varðandi samhliða
innflutning og skera úr um hvort
smásölum er leyfilegt að flytja inn
merkjavöru frá ódýrari markaðs-
svæðum, s.s. Suðaustur-Asíu, og
selja hana í Evrópu.
Evrópuherferð gegn
núgildandi lögum
Á sama tíma og Tesco-Levi’s
málaferlin hófust hrinti breska rík-
isstjórnin af stað Evrópuherferð í
því skyni að afnema núgildandi Evr-
ópusambandslög sem banna sölu
merkjavara í stórmörkuðum. Átta
önnur lönd í Evrópusambandinu, Ír-
land, Danmörk, Finnland, Belgía,
Lúxemborg og Holland, styðja her-
ferðina og sendu viðskiptaráðherrar
landanna Evrópuráðinu skriflega yf-
irlýsingu í desember sl. þar sem þeir
hvöttu til þess að innflutnings- og
smásölulög Evrópusambandsins
yrðu endurskoðuð. Auk þess standa
bresku neytendasamtökin að baki
herferðinni.
Talsmaður Evrópusambandsins
skýrði hins vegar frá því á miðju síð-
asta ári að ekki væru líkur á því að
lögum um vörumerki yrði breytt.
Hætta væri á því að aukin samhliða
innflutningur gæti staðið í vegi fyrir
því að fjárfestar sæju sér hag í að
fjárfesta í nýjum vörumerkjum og
einnig gæti hann orðið til þess að eig-
endur vörumerkja tækju vöru sína af
markaðnum.
Laganefnd Evrópuþingsins mun
fjalla um málið í vikunni en ljóst er
að niðurstaða í Tesco-Levi’s mála-
ferlunum muni hafa afgerandi áhrif
á hugsanlegar lagabreytingar, og þá
helst ef dæmt verður Tesco í vil.
Stórmarkaðir
vilja ódýrari
merkjavöru
Stórmarkaðakeðjan Tesco í Bretlandi hefur
leitað til Evrópudómstólsins til að berjast
fyrir rétti til þess að selja Levi’s gallabuxur
á niðursettu verði gegn vilja framleiðanda.
Sigríður Dögg Auðunsdóttir segir að
beðið sé eftir niðurstöðum.
Málaferli Tesco og Levi’s varðandi
sölu gallabuxna á niðursettu verði
MYNDMARK, sameiginleg mark-
aðssamtök myndbandaleigna og út-
gefenda, hefur sent frá sér tilmæli
til allra myndbandaleigna um að
breyta innheimtuaðferðum sínum
sem og að gefa kvittun við móttöku
og við skil myndbandsspólna. Marg-
ar kvartanir hafa borist Neytenda-
samtökum vegna innheimtuaðferða
myndbandaleigna.
„Við vorum í sambandi við Neyt-
endasamtökin vegna þessa máls í
lok síðasta árs og í kjölfar sendum
við tilmæli um breyttar innheimtu-
aðgerðir til allra myndbandaleigna,“
segir Stefán Unnarsson hjá Mynd-
mark. „Myndmark eru ekki samtök
myndbandaleigna þannig að við ráð-
um ekki yfir mynd-
bandaleigunum, við
sendum því tilmæli til
þeirra en ekki reglur en
vonum engu að síður að
sem flestar myndbanda-
leigur fari eftir þessu.“
Engin samtök eru til
meðal myndbandaleigna
og aðspurður um hvort
standi til að setja einhverjar reglur
segist Stefán ekki vita hver ætti í
raun að gera það. „Ég er sammála
því að brýnt er að taka á þessum
málum og þess vegna sendum við
tilmælin. Ef farið verður eftir þeim
þá er þetta komið í það form sem
bæði Neytendasamtökin og við vilj-
um.“
Stefán segist vita um mynd-
bandaleigur sem farnar eru að
fylgja þessum tilmælum en engar
tölulegar upplýsingar liggja þó fyrir
enda ekki í umsjón markaðssamtak-
anna að fylgjast með því, að hans
sögn. „Það er brýnt að myndbanda-
leigur taki á þessum málum þannig
að allir tryggi hag sinn, bæði leigu-
takar og leigusalar.“
Kvittun þegar spólu er skilað
„Í tilmælum stjórnar Myndmarks
til félagsmanna sinna um samræmd-
ar starfsaðferðir kemur fram að það
þurfi í raun að taka á tveimur atrið-
um, annars vegar innheimtu og inn-
heimtuaðferðum og hins vegar skil á
spólum,“ segir Björk Sigurgísla-
dóttir, lögfræðingur hjá
Neytendasamtökunum.
„Stjórn Myndmarks
mæltist til að innheimta
á skuldum færi þannig
fram að fyrst yrði hringt
í viðkomandi, þá sent
bréf þar sem minnt væri
á skuld og jafnframt til-
kynnt að viðkomandi
yrði settur á skuldalista. Ef við-
brögðin væru engin væri óhætt að
fela þriðja aðila innheimtuna.“
Ennfremur segir Björk að stjórn
Myndmarks hafi mælst til þess að
skuld vegna hverrar spólu færi ekki
yfir 20.000 krónur og vegna tækja
40.000 krónur.
„Þá var mælst til að ekki skyldi
líða meira en mánuður frá því að
spóla er tekin og að send er tilkynn-
ing um að viðkomandi spóla hafi
ekki borist til leigunnar. Hvað varð-
ar skil á spólum var lagt til að
myndbandaleigur myndu gefa kvitt-
un. Þegar fólk tekur spólu að láni
þarf að skrifa undir kvittun og því
er jafn eðlilegt að gefin sé kvittun
þegar spólunni er skilað,“ segir
Björk.
Margir hafa kvartað
Aðspurð segir hún Neytendasam-
tökin ekki hafa kannað hve margar
myndbandaleigur hafi tekið upp
framangreint ferli. „Það var brýnt
að taka á þessu máli því við höfum
varla undan kvörtunum. Skemmst
er að minnast einstaklings sem fékk
kröfu upp á hálfa milljón króna sem
var til komin vegna spólna sem talið
var að ekki hafi verið skilað. Ljóst
er að hér er um tómlæti að ræða af
hálfu myndbandaleigunnar, það er
að segja að láta ekki heyra í sér í
nokkur ár. Sönnun nokkur ár aftur í
tímann er mjög erfið.“
Ekki hefur reynt á þetta fyrir
dómstólum svo Björk viti og þá seg-
ir hún ennfremur að á meðan gömlu
vinnuaðferðirnar séu enn við lýði,
þ.e. að ekki sé gefin kvittun við skil,
verði að telja að myndbandaleigurn-
ar beri sönnunarbyrði fyrir því að
spólu var ekki skilað. „Mjög erfitt er
að innheimta þessar kröfur vegna
þessa og það er því öllum í hag að
þessi mál komist í lag sem fyrst.“
Skuld vegna spólu ekki
hærri en 20.000 krónur
Morgunblaðið/Halldór Kolbeins
Nokkrar myndbandaleigur eru farnar að fylgja nýju tilmælunum en engar tölulegar upplýsingar liggja þó fyrir.
Myndbanda-
leigur hafa
fengið tilmæli
um að breyta
innheimtu-
aðferðum
Eðalvörur
hafa hafið
innflutning á
Actigener-
meðferðars-
jampói og
hármeðferð-
arvörum. Í fréttatilkynningu kemur
fram að Actigener sé framleitt úr líf-
rænum efnum sem meðal annars sé
ætlað að auka hárvöxt og koma í veg
fyrir flösu- og húðflögumyndun.
Um er að ræða 5 vöruliði; sterkt
og milt sjampó, íssjampó, sem er
gegn kláða í hársverði, hárnæringu
og næringarvökva.
Actigener-meðferðarsjampó og
hármeðferðarvörur fást í apótekum
um allt land.
Nýtt
Sjampó
♦ ♦ ♦