Morgunblaðið - 27.01.2001, Qupperneq 29
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. JANÚAR 2001 29
MJALLHVÍTI varð ekki gott af epl-
inu heldur stóð það í henni og varð
henni næstum að aldurtila. Til allrar
hamingju eru ávextir alla jafna holl-
ari en ráða má af ævintýrinu og
reyndar hafa þeir sem og grænmeti í
sér ýmis næringarefni sem styrkja
ónæmiskerfi líkamans og draga úr
líkum á mörgun sjúkdómum, svo sem
krabbameini og hjarta- og æðasjúk-
dómum. Ávextir og grænmeti eru því
ekki bara verndandi ævintýraprins-
ar. Þau eru konungar sem ættu að
sitja í hásæti á sérhverjum matseðli.
Margar rannsóknir hafa sýnt fram
á verndandi eiginleika grænmetis og
ávaxta. Rannsókn sem vísindamenn
við Harvard-háskóla í Bandaríkjun-
um framkvæmdu leiddi t.d. í ljós að
þeir sem borðuðu um 9 skammta af
ávöxtum eða grænmeti dag hvern
voru 31% ólíklegri en þeir sem borð-
uðu að meðaltali 2,5 skammta á dag
til að fá hjartaáfall. Einhverjum kann
að þykja 9 skammtar fullmikið af því
góða og skal þess því getið hér að vís-
indamennirnir sögðu að 6 skammtar
gerðu u.þ.b. sama gagn a.m.k. hvað
varðar hjartaáfall. Manneldisráð,
Krabbameinsfélagið og Hjartavernd
hafa um nokkurt skeið hvatt lands-
menn til að borða 5 skammta á dag
og ber því ekki mikið í milli.
Mikið fyrir lítið
Sagt eru um egg að þau séu fullt
hús matar. Sú speki á svo sannarlega
við um ávexti og grænmeti, sem eru
afar rík af trefjum, steinefnum, víta-
mínum og andoxunarefnum. Það
góða við þessa fæðu er að hún er til-
tölulega hitaeiningalítil og því má
segja að maður fái mikið fyrir lítið.
Þar á ofan er nánast ekki hægt að
borða yfir sig af grænmeti og ávöxt-
um þótt vissara sé reyndar að fara
ekki alveg að ráði Péturs og Óla, sem
kunnu sér ekki magamál í sögunni
um Stubb.
Verndandi eiginleikar andoxunar-
efna hafa verið settir í samhengi við
hæfileika þeirra til að veiða svokölluð
sindurefni í líkamanum. Sindurefnin,
sem eru í eðli sínu afar hvarfgjörn
efni, myndast við efnahvörf sem
nefnast oxun. Þessi efnahvörf eiga
sér sífellt stað í líkamanum og eru
hluti af eðlilegu og náttúrulegu ferli.
Við ákveðnar aðstæður geta þau far-
ið úr böndunum þannig að meira
myndast af sindurefnum en líkaman-
um tekst að losa sig við. Þá fara þau
að hvarfast við prótein, fitur og
erfðaefni og valda skemmdum, sem í
sumum tilvikum þróast yfir í sjúk-
dóma á borð við krabbamein.
Í sínu náttúrulega samhengi
Rannsóknir hafa rennt stoðum
undir þær hugmyndir manna að holl-
usta grænmetis og ávaxta sé ekki
hvað síst fólgin í samsetningu þeirra
og að þess vegna séu næringarefnin
sem þau innihalda hollari og verndi
betur gegn sjúkdómum ef þau eru
borðuð í sínu náttúrulega samhengi
heldur en ef þau eru tekin sem fæðu-
bótarefni t.d. í töflum. C-vítamínríkir
ávextir og grænmeti virðast til að
mynda vernda betur gegn myndun
krabbameins en C-vítamín á töflu-
formi. Ástæðan er m.a. talin vera sú
að næringarefnin í tilteknum fæðu-
tegundum spili saman eins og hljóð-
færaleikarar á hljómleikum.
Ýmsar rannsóknir benda til þess
að reykingafólk hafi ekki sama gagn
af andoxandi fæðubótarefnum í töflu-
formi og þeir sem ekki reykja heldur
þvert á móti auki þau hættuna á
myndum sumra krabbameina. Nið-
urstöður viðamikillar, finnskrar
rannsóknar, svonefndrar ATBC-
rannsóknar, benda t.d. til þess að
stórir skammtar af andoxunarefninu
beta-karóteni, sem framleitt er á
efnafræðilegan hátt, auki tíðni
lungnakrabbameins í reykingamönn-
um af karlkyni um 18%. Sama andox-
unarefni hefur aftur á móti vernd-
andi áhrif ef reykingamaðurinn fær
það úr ávöxtum og grænmeti.
Litríkar afurðir
Þau efni sem þekktust eru fyrir að
hafa andoxandi áhrif og þar með
vernda frumur líkamans t.d. gegn
myndun krabbameins eru C-vítamín,
selen, E-vítamín og A-vítamín. Til að
tryggja að maður fái nóg af þessum
efnum er einfaldast að hafa fjöl-
breytnina að leiðarljósi og hafa það
hugfast að litríkir ávextir og græn-
meti eru sérstaklega auðug af flest-
um þessum sem og mörgum öðrum
hollum næringarefnum.
Sítrusávextir, svo sem appelsínur
og sítrónur, brokkólí, tómatar og
spínat eru auðug t.d. af C-vítamíni.
A-vítamín fær maður m.a. í tómötum,
apríkósum, gulrótum og spínati en
E-vítamín aftur í möndlum, hnetum,
lárperu og rauðum paprikum. Selen
fær maður aftur á móti úr matvælum
eins og fiski, kornmat og mjólk.
Líka fyrir aldraða
Aldrað fólk er oft ragt við að borða
grænmeti og ávexti vegna þess að
það á orðið erfitt með að tyggja og
melta. Tönnum hefur gjarnan fækk-
að og gómurinn er viðkæmari en áð-
ur. Þar á ofan minnkar sýrufram-
leiðsla í maga með aldri en
magasýrur gegna mikilvægu hlut-
verki í meltingu auk þess sem þær
drepa óæskilegar örverur.
Í fréttabréfi læknaskólans í Har-
vard er bent á það ráð að sjóða mat-
vöruna lítillega þannig að hún mýk-
ist. Eitthvað tapast af næringar-
efnum við það en gott ráð við því er
að borða bara aðeins meira af henni.
Þá má líka búa til ávaxta- og græn-
metismauk og fá þannig fjölbreytni í
matseðilinn.
Í fréttabréfinu er líka bent á að
stuttur göngutúr eftir máltíð geri sitt
gagn gegn loftmyndun í meltingar-
færum, en mörgum finnst hún ein-
mitt hvimleiður fylgifiskur þess að
borða ávexti og grænmeti. Önnur ráð
til að draga úr vindgangi eru að fá sér
piparmyntu eftir matinn eða kamillu-
te.
Ávextir og grænmeti
í hásæti hollustunnar
Morgunblaðið/Golli
Engin ástæða er til að ganga svona hratt fram hjá paprikunni.
TENGLAR
.....................................................
Manneldisráð:
http://www.manneldi.is/.