Morgunblaðið - 27.01.2001, Side 33
Sími 581-2275 568-5375 Fax 568-5275
K
O
R
T
E
R
Nú er um að gera að grípa
tækifærið og gera það sem
við köllum GÓÐ KAUP!
í örfáa daga
Hjá okkur eru
Visa- og
Euroraðsamningar
ávísun á staðgreiðslu
Ármúla 8 - 108 Reykjavík
Rýmum
til á lag
er okka
r
af sófas
ettum,
hornsóf
um og s
tökum
sófum o
g
borstof
uhúsgö
gnum
o.fl. o.f
l.
Rýming
ar
laugard. 10-17
Sunnud. 13-17
SALA
ÞEGAR ég vaknaði fyrst til vit-
undar um listræn gildi á sjötta
kvartili síðustu aldar, kviknaði
jafnframt áhugi minn á draumum
þegar stefna surrealista datt inn
um dyrnar og Dali, Magritte,
Ernst og aðrir hjárænumenn gerðu
sig heimakomna í huga mér. Þá
skynjaði ég fyrst drauminn sem
eitthvað sérstakt fyrirbæri, bæði
merkilegt og fræðandi, eitthvað
sem fleytt gæti huganum að ystu
mörkum mannlegar þekkingar og
gripið í skottið á dauðanum eða
glitt í önnur líf, væri rækt lögð við
svefninn! Sem einfari af fyrstu
gerð gat ég sökkt mér óhindrað í
pytt dulhyggjunnar og svamlað
óhindrað um forboðin sem þekkt
svæði í leit að skilningi á tilveru
allri, sjálfi mínu og draumum.
Gegnum tíðina hef ég síðan gruflað
meira í draumum og komist að því
að þeir rúma þetta allt og meira til.
Að þeir spegla sannleikann í sinni
hreinustu mynd og þar með Guð
eða það afl sem við teljum okkur
finna sem jákvætt stýriafl tilver-
unnar. Að þeir rúma einnig hið illa
en með þjálfun megi losa sig undan
áhrifum skolla og halda honum
urrandi á mottunni. Gegnum
drauma má skynja hið ókomna
jafnt sem það liðna og þótt okkur
sé ef til vill ekki ætlað að vita allt
erum við sköpuð í Guðs mynd og
þar sem Guð veit allt er ekkert
skrýtið þótt við viljum feta í hans
spor. Hvað er þá draumurinn? Ég
hallast að því að hann sé tengiliður
andans (Spirit) við sálina og líkam-
ann líkt og „faðir, sonur og heilagur
andi“ (yfir-, með- og dulvitund) og
hafi þess vegna þríhyrnt form eða
ásjónu, þrjá eiginlega punkta sem
kallast á þegar svefninn hefur svift
vitundina rænu og vídd draumsins
tekur við. Þá stígur andinn upp af
beði þínu (sjá mynd) og í fylgd sál-
ar, en með heimataug (silfur-
streng) við líkamann, heldur hann
af stað inn í þessa vídd (sem gæti
verið fimmföld) að vinna úr þeim
hughrifum þínum sem hanga þar
sem þvottur á snúru og mynda
tengsl við þær verur sem vilja þér
vel.
Draumur „BÞ“
Mig dreymir oft tákndrauma og
tekst yfirleitt að ráða þá sjálf, þeir
snerta mig oftast persónulega og
færa mér ráðleggingar. Stundum
koma þeir mér mjög á óvart með
því að sýna mér eitthvað í framtíð-
inni, eða segja mér frá einhverju
sem er að gerast í kringum mig
sem ég vissi ekki af, en reynist síð-
ar rétt. (Meðal annarra orða, hvers
vegna í ósköpunum er verið að
færa mér þessi skilaboð og sýna
mér það sem annars væri mér hul-
ið? Hefur þú nokkuð svar við því?)
Allavega, þennan tókst mér ekki að
ráða, og skil eiginlega ekkert í hon-
um. Ég var að hjóla á spegilsléttum
sjó með hóp af fólki, rétt utan við
undurfagra eyju. Svo lengi sem við
hjóluðum þá sukkum við ekki. Við
gerðum þetta okkur til gamans,
sólin skein glatt og við skemmtum
okkur líka mjög vel. Skyndilega er
mér litið til strandarinnar á eyj-
unni, og finn að það er eitthvað að
fara að gerast. Allt í einu rís RISA-
stór alda við ströndina og stefnir
frá landi og til okkar. Þetta var
mjög fögur sjón, hún var heilsteypt
og glitrandi í sólinni, og svo ógn-
arstór og mikilfengleg. Ég sá að
aldan tók eitthvað fólk með sér af
ströndinni, en mér fannst það ekki
vera í neinni hættu. Strax á eftir
kemur önnur jafnstór og fögur
alda. Þá vissi ég að þær myndu
verða þjár saman, og sú þriðja
myndi verða langstærst. Þá varð
ég pínu hrædd, en vissi samt að við
sem vorum að hjóla vorum ekki í
neinni hættu. Við horfðum á þetta
með undrun í hjartanu, og fyllt-
umst ákveðinni lotningu, á meðan
við biðum eftir þeirri síðustu og
stærstu. (Í hræðslu minni greip ég
í tré sem stóð allt í einu upp úr
lygnum sjónum. Um leið og ég
greip í grein þess brotnaði hún af
og ég hélt á henni. Ég varð hissa,
en þetta virtist ekki breyta neinu,
ég sökk ekkert eða neitt.) Um leið
og aldan rís svona hrikalega stór og
fögur, þá slökknar á himninum og
það er komin nótt. Sjórinn kyrrist,
og allt er kyrrt og hljótt, og dimmt,
í smá stund. Stuttu seinna byrjar
að sprautast olía upp úr hafinu í
svörtum, tignarlegum gosbrunni,
sem nær hátt upp í loftið. Og svo
var draumurinn búinn. Hann var
alveg kristaltær, skýr og ég man
hann mjög vel. Allt sem ég sá í hon-
um fannst mér að skipti máli, hrað-
inn í honum var frekar mikill, en
þægilegur. Mér líður vel þegar ég
minnist hans, en ég get engan veg-
inn ráðið hann.
Ráðning
Eins og áður hefur komið fram er
ekki allt sem sýnist þegar draum-
urinn er annars vegar og fyrir utan
það að villa um fyrir manni með
umsnúnum myndum á hann það til
að raða myndunum á þann veg að
túlka megi á marga vegu. Þar sem
við erum mannleg en seilumst inn á
guðlegt svæði í viðleitni okkar að
skilja drauma er ekki nema von
þótt slíkir draumar sem þínir geti
vafist fyrir manni.
En við tímamót sem þessi má bú-
ast við merkum draumum enda
renna straumar tímans í ákveðna
átt og gefa viss fyrirheit. Draumur
þinn er einn af þessum draumum
og gefur hann í skyn að eitthvað
mikilfenlegt sé í farvatninu, að
mikill og jákvæður kraftur sé í
þann veginn að sópast yfir okkur,
einskonar „heilög þrenning“ sem
snúi viðteknum gildum á hvolf og
marki okkur nýjan farveg gulli
sleginn. Táknin sem gefa þetta í
skyn eru; sjórinn spegilslétti (al-
heimsvitund), hjólin (ferð um tíma),
eyjan (lífið í vitundinni), öldurnar
þrjár (trú, von og kærleikur),
greinin af trénu (mannkyn), úr degi
í nótt (snögg breyting), olían (ork-
an). Það eru svo viðbrögð þín og
félaganna við sýnunum sem segja
að komandi tímar verði magnaðir
andlegum sviðum, friði og spekt.
Draumur á ferð
DRAUMSTAFIR Kristjáns Frímanns
Mynd/Kristján Kristjánsson
Skuggi draumsins skundar af stað.
Þeir lesendur sem vilja fá drauma sína
birta og ráðna sendi þá með fullu nafni,
fæðingardegi og ári ásamt heimilisfangi og
dulnefni til birtingar til:
Draumstafir
Kringlunni 1
103 Reykjavík
eða á heimasíðu Draumalandsins
http://www.dreamland.is.
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. JANÚAR 2001 33