Morgunblaðið - 27.01.2001, Page 35
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. JANÚAR 2001 35
Landssímann og neytendur í landinu. Þó telur
nefndin að höfuðáherslu eigi að leggja á sölu til al-
mennings og starfsmanna fyrirtækisins. Því legg-
ur nefndin til að hugsanleg sala á umtalsverðum
hlut til eins aðila eigi sér ekki stað í fyrsta áfanga,“
segir í skýrslunni.
Sérstakir greiðsluskilmálar
við sölu til starfsmanna
Í umfjöllun nefndarinnar um sölu hlutabréfa til
starfsmanna fyrirtækisins kemur fram að komið
hafi til umræðu í nefndinni hvort tryggja eigi
Landssímanum sérstakan kauprétt á hlutabréfum
í útboði til nota við valréttarsamninga starfs-
manna. „Nefndin telur það vera stjórnunarlega
ákvörðun í fyrirtækinu hvort það tekur þátt í út-
boði og tryggja sér þannig hlutabréf til ráðstöf-
unar til starfsmanna. Tvær mögulegar útfærslur
eru fyrir hendi ef tryggja á jafnræði fyrirtækisins
við þátttöku í útboði. Annars vegar að taka þátt í
tilboði annarra fyrirtækja t.d. verðbréfafyrir-
tækja, þar sem Landssíminn hefði engin áhrif á
upphæð tilboðs og hins vegar að
ákvörðun yrði tekin um að skilja til-
tekinn hluta af bréfum eftir og fyr-
irtækið myndi kaupa þann hluta á
meðalgengi í tilboðssölu. Auk þessa
er mögulegt að fyrirtækið kaupi ein-
faldlega hlutabréf í þessum tilgangi
á almennum hlutabréfamarkaði eftir að fyrsti
áfangi hefur farið fram,“ segir í skýrslunni um
þetta atriði.
Tekið er fram í skýrslunni að við einkavæðingu
ríkisfyrirtækja á undanförnum árum hafi verið
lögð áhersla á sölu á hlutabréfum til starfsmanna.
„Mótuð hefur verið sérstök aðferðafræði sem
nefndin leggur til að lögð verði til grundvallar við
sölu á hlutabréfum til starfsmanna Landssíma Ís-
lands hf. Í þessu sambandi leggur nefndin til að
boðið verði upp á sérstaka greiðsluskilmála.
Starfsmenn greiði við gerð samnings a.m.k. 10%
þeirrar fjárhæðar sem þeir skrá sig fyrir en af-
ganginn með jöfnum greiðslum næstu þrjú ár.
Hlutabréfin verði afhent viðkomandi þegar þau
hafa verið að fullu greidd. Gengi hlutabréfa til
starfsmanna verði hið sama og í almennri sölu,“
segir í skýrslunni.
Mælt með samanburðarútboði
á þriðju kynslóð farsíma
Nefndin fjallar í sérstökum kafla um úthlutun
leyfa fyrir svonefnda þriðju kynslóð farsíma, sem
mun bjóða meiri gagnaflutningsmöguleika en nú-
verandi farsímakerfi. Bent er á að tvær aðferðir
hafi verið notaðar við úthlutun tíðnisviða fyrir
þriðju kynslóð farsíma í þeim löndum þar sem
ákvörðun liggur fyrir, annars vegar verðútboð og
hins vegar samanburðarútboð.
„Í verðútboði felst að leitað er verðtilboða í þau
leyfi sem eru til úthlutunar en þau
hafa verið á bilinu 4–6. Þeir sem
bjóða hæsta verð fá síðan úthlutað
leyfunum. Í samanburðarútboði (sk.
„fegurðarsamkeppni“) er hins vegar
leitað eftir bestu þjónustunni en
minni áhersla lögð á verð. Nefndin
telur mikilvægt að ákvörðun um fyrirkomulag við
úthlutun á rekstrarleyfum fyrir þriðju kynslóð
farsíma verði tekin sem fyrst. Við ákvörðun um
aðferðafræði telur nefndin mikilvægast að tryggja
trausta samkeppni, mikla útbreiðslu, ódýra þjón-
ustu og gæði. Samanburðarútboð er að mati
nefndarinnar líklegra til að ná fram þessum mark-
miðum. Áhersla er lögð á að notaðar verði hlut-
lægar aðferðir við mat á tilboðum og telur nefndin
að hægt sé að tryggja slíkt við framkvæmd sam-
anburðarútboðs ekki síður en við verðútboð,“ seg-
ir í skýrslu einkavæðingarnefndar.
Gjaldskrá taki mið af magni
gagnaflutnings
Fjallað er ítarlega í skýrslunni um stöðu Lands-
símans á fjarskiptamarkaði, þjónustu fyrirtækis-
ins og lagalegt umhverfi og um ýmis sjónarmið
varðandi skiptingu fyrirtækisins.
Gerð er grein fyrir stefnu stjórnvalda í fjar-
skiptamálum sem fram kemur í lögum, m.a. um
nauðsyn þess að fyrirtækjum sem eiga þjóðbraut-
ina (fjarskiptanetið) og aðra innviði sé gert skylt
að opna aðgang að Netinu og annarri aðstöðu á
sanngjörnum kjörum, nauðsyn þess að stuðla að
raunverulegri samkeppni á markaðnum og að
þörfum allra landsmanna um að njóta ákveðinnar
lágmarksþjónustu sé mætt. Telur nefndin brýnt
að gætt verði vel að þessum markmiðum við
einkavæðingu Landssímans.
„Í dag er sama verð um allt land á hefðbundn-
um talsíma, á ISDN-þjónustu, á ADSL-þjónustu,
á ATM-þjónustu svo og í NMT- og GSM-farsíma-
kerfunum. Verð á leigulínum sem ætlaðar eru fyr-
ir stærstu fyrirtækin og sérhæfð fyrirtæki í upp-
lýsingatækni, hefur lækkað mjög að undanförnu á
landsbyggðinni. Með uppbyggingu ATM-kerfisins
á allra næstu árum verður fullnægt þörf lang-
flestra fyrirtækja fyrir þjónustu sem krefst mik-
illar bandbreiddar og dregur þannig úr eftirspurn
þeirra eftir leigulínum. Gjaldskrá fyrir leigulínur
hvílir á vegalengd og afkastagetu en ekki á magni
þeirra gagna sem flutt eru. Nefndin telur rétt að
skoða hvort ekki sé mögulegt að miða gjaldskrá
fremur við magn gagnaflutnings. Þetta hefði þau
áhrif að verð á leigulínum myndi jafnast enn frek-
ar yfir landið,“ segir í skýrslunni.
Skipting fyrirtækisins hefði
neikvæð áhrif á þjónustu
Í skýrslunni er farið í ítarlegu máli yfir ýmis
sjónarmið varðandi hvort æskilegt væri að skipta
upp starfsemi Landssímans. Kemst nefndin að
þeirri niðurstöðu að ekki sé nauðsynlegt að skilja
grunnkerfi Símans frá öðrum rekstri fyrirtækis-
ins áður en til sölu kemur og ekki sé ástæða til að
skipta upp rekstri Landssímans m.t.t. tækni, sam-
keppni, reksturs eða þjónustu vegna fyrirhugaðr-
ar sölu.
Bent er á að þegar skipting á kerfi Landssím-
ans sé íhuguð beri að hafa í huga að fjarskiptakerfi
nútímans séu gífurlega flókin þar sem hlutar vinni
saman á mörgum mismunandi sviðum. „Öll skipt-
ing á kerfinu í minni sjálfstæðar einingar sem
gæti leitt til óhagræðingar eða takmarkana í
virkni eða gert innleiðingu nýrrar tækni eða virkni
erfiða, annaðhvort frá tæknilegu eða viðskipta-
legu sjónarmiði er óæskileg frá sjónarhóli notenda
kerfisins,“ segir í skýrslunni.
Þar er því ennfremur haldið fram að aðskiln-
aður grunnflutningskerfisins frá notendatengiein-
ingum kerfisins sé óæskilegur.
Nefndin fjallaði einnig um álitamál varðandi
skiptingu fyrirtækisins út frá samkeppnissjónar-
miðum og segir m.a. í skýrslu sinni: „Framboð
þjónustu bæði hjá Landssímanum og hjá öðrum
fjarskiptafyrirtækjum verður best tryggt með
markaðsumhverfi þar sem gegnsæi og traust rík-
ir. Eins og fram hefur komið er þjónusta Lands-
símans framarlega samanborið við verð og gæði
þjónustunnar í þeim löndum sem við berum okkur
helst saman við. Ekkert bendir til þess að einka-
væðing fyrirtækisins og þær nýjungar í rekstri
sem hún hefur í för með sér, muni breyta þessari
staðreynd. Tæknileg uppbygging á fjarskiptakerfi
fyrirtækisins gerir því kleift að bjóða upp á fyrsta
flokks þjónustu um allt land í fyrirsjáanlegri fram-
tíð. Ný þjónusta t.a.m. þriðja kynslóð farsíma og
auknir möguleikar í gagnaflutningum, fellur auð-
veldlega inn í núverandi þjónustuframboð fyrir-
tækisins. Möguleg skipting fyrirtækisins líkt og
rakið er í þessum kafla, er ekki
nauðsynleg forsenda nægjanlegs
framboðs á þjónustu. Reyndar má
færa rök fyrir því að slík skipting
hefði neikvæð áhrif á þjónustufram-
boð. Aðskilnaður grunnnetsins frá
annarri starfsemi myndi líklega
draga úr hvata til framfara og tækninýjunga. Eig-
endur slíks félags eða fyrirtækis, þyrftu að standa
undir fjárfestingum vegna tæknilegrar uppbygg-
ingar. Slíkur kostnaður myndi líklega lenda á rík-
issjóði og rekstraraðilar ættu á hættu að skortur á
viðhaldi og uppbyggingu grunnnetsins hefði áhrif
á gæði þjónustu þeirra. Aðskilnaður farsímaþjón-
ustu frá öðrum rekstri myndi einnig líklega tor-
velda samspil mismunandi þjónustu til að leysa
þarfir viðskiptavina. Með lögum og reglum er
tryggt að lágmarksþjónusta er í boði bæði fyrir
einstaklinga og fyrirtæki. Alþjónustukvöð sem
lögð er á rekstrarleyfishafa á fjarskiptamarkaði
tryggir aðgang að talsímaþjónustu og gagnaflutn-
ingsþjónustu með 128 kb/s,“ segir í skýrslunni.
Meginniðurstaða nefndarinnar hvað þetta atriði
varðar er því sú að ekki sé nauðsynlegt að skilja
grunnkerfið frá öðrum rekstri fyrirtækisins. „Rík-
isstofnun eða félag í eigu ríkisins sem eingöngu
hefði það hlutverk að sjá um rekstur grunnkerf-
isins hefði ekki nægjanlegan hvata til tæknilegrar
uppbyggingar og þróunar þjónustu til að geta
sinnt hlutverki sínu og gæti orðið baggi á rík-
issjóði. Án skiptingar fyrirtækisins og með þeim
úrræðum sem til staðar eru megi halda uppi þjón-
ustustigi með sambærilegum hætti og tíðkast hef-
ur til þessa, að því gefnu þó að aðrir samkeppn-
isaðilar Landssímans eigi ætíð greiðan og
öruggan aðgang að grunnkerfinu fyrir eðlilegt og
sanngjarnt verð. Aðgangurinn er tryggður með
lagasetningu og öflugu eftirliti Póst- og fjarskipta-
stofnunar og Samkeppnisstofnunar.
Nefndin hefur jafnframt, [...], skoðað hvort til
álita komi að skilja að einstakar þjónustueiningar
Landssímans svo sem farsímaþjónustuna með því
að stofna um hana sjálfstætt félag, og sölu slíkra
eininga með sjálfstæðum hætti. Nefndin hefur
komist að þeirri niðurstöðu að slíkt sé ekki hag-
kvæmt enda kynni þess háttar fyrirkomulag að
hafa áhrif á heildarverðmæti fyrirtækisins og gera
þjónustu þess ómarkvissari. Þá er slík aðgreining
og sala ekki einföld í framkvæmd og hefur án efa
víðtækari áhrif í málefnum starfsmanna en ella.
Innan nefndarinnar hafa loks verið ræddar
hugmyndir um stofnun sérstaks félags um grunn-
kerfið sem yrði í fullri eigu Landssímans, a.m.k
fyrst í stað. Nefndin vekur einungis athygli á þess-
um hugmyndum en gerir ekki sérstakar tillögur í
því efni. Á grundvelli viðskiptasjónarmiða getur
Landssíminn framkvæmt slíka skiptingu óháð
einkavæðingu fyrirtækisins.
Að öllu framangreindu virtu er það niðurstaða
nefndarinnar að ekki sé ástæða til þess að skipta
upp rekstri Landssímans sé litið til tækni, sam-
keppni, reksturs eða þjónustu vegna fyrirhugaðr-
ar sölu fyrirtækisins,“ segir í skýrslu einkavæð-
ingarnefndar.
Þörf á skýrari reglum um
eftirlitsstofnanir
Í skýrslunni segir að ítrekað hafi komið fram á
fundum nefndarinnar með fyrirtækjum og hags-
munaaðilum á fjarskiptamarkaði að traustar eft-
irlitsstofnanir hafi verulega þýðingu að því er
varðar framkvæmd laga og reglugerða á fjar-
skiptasviði og mikilvægi þess að efla þessar stofn-
anir. Gerð er grein fyrir hlutverkum Póst- og fjar-
skiptastofnunar og Samkeppnisstofnunar í þessu
sambandi og síðan segir orðrétt: „Nefndin telur að
með nýrri lagasetningu um eftirlitsstofnanir sé
lagður traustur grunnur að starfsemi þeirra. Á
hinn bóginn telur nefndin þörf á skýrari reglum
um verkaskiptingu þeirra og telur nauðsynlegt að
skoða hvort skilgreina eigi í lögum hvernig henni
skuli háttað. Nefndin telur mikilvægt að tryggja
gegnsæi í verðlagningu þeirrar þjónustu Lands-
símans sem ekki er í boði á samkeppnismarkaði.
Einnig sé mikilvægt að stjórnsýslu- og eftirlits-
aðilar hins opinbera hafi greiðan aðgang að nauð-
synlegum upplýsingum þannig að tryggt sé að
framboð og verðlagning slíkrar þjónustu sé jafnan
í samræmi við stefnu stjórnvalda í fjarskipta- og
verðlagsmálum. Nefndin telur eðlilegt að þetta
verði fyrst og fremst tryggt á grundvelli laga um
fjarskipti og laga um Póst- og fjarskiptastofnun.“
Búist við miklu framboði hlutabréfa
í fjarskiptafyrirtækjum
Í umfjöllun sinni um markaðsaðstæður erlendis
bendir einkavæðingarnefnd m.a. á að sérfræðing-
ar á erlendum hlutabréfamarkaði telji að hann sé
tiltölulega mettaður og að framboð á hlutabréfum
í fjarskiptafyrirtækjum verði mikið á næsta miss-
eri. „Sérstaklega er von á útboðum vegna útgáfu á
nýju hlutafé í farsímafélögum og til fjármögnunar
farsímasviða símafyrirtækja. Verðútboð á leyfum
vegna þriðju kynslóðar farsíma í löndum eins og
Bretlandi, Þýskalandi, Hollandi, Frakklandi og
Belgíu, hefur kallað á aukna fjármögnun með
hlutafjárútboðum í viðkomandi fyrirtækjum og
haft neikvæð áhrif á gengi hlutabréfa þeirra. Á
Norðurlöndum er fyrirsjáanlegt mikið framboð á
hlutabréfum í símafyrirtækjum á næsta misseri.
Útboð á hlutabréfum í sænska fyrirtækinu Telia
sem fram fór sl. sumar, og útboð á
hlutabréfum í norska fyrirtækinu
TeleNor hafa aukið mjög framboð á
hlutabréfum í símafyrirtækjum á
norrænum mörkuðum,“ segir í
skýrslunni.
Við undirbúning skýrslunnar
heimsóttu fulltrúar nefndarinnar erlend stjórn-
völd og áttu fundi með símafyrirtækjum og ráð-
gjöfum, m.a. forstjóra Telestyrelsen og Teledan-
mark í Danmörku og fyrrum ráðuneytisstjóra
írska samgönguráðuneytisins. Einnig kynntu
starfsmenn Verðbréfaþings Íslands nefndinni
NOREX-samstarfið og haldnir voru fundir með
innlendum og erlendum sérfræðingum.
ur að selja beri hlut ríkisins í Landssímanum í þremur áföngum á árunum 2001–2002
ningur og starfsfólk
r keypt í 1. áfanga
Framkvæmdanefnd um einkavæðingu leggur til að sala á
hlut ríkisins í Landssímanum hefjist í vor. Í fyrsta áfanga
verði 14% seld til almennings og starfsmanna og smærri
og meðalstórum fjárfestum gefinn möguleiki á að bjóða í
2–3% hlut hverjum, allt að 10% heildarhlutafjár. Á síðari
hluta ársins 2001 verði leitað eftir kjölfestufjárfesti í 25%
hlutafjárins, sem geti síðar stækkað í 30–35% hlut. Í
þriðja áfanga verði áhersla lögð á dreifða sölu til almenn-
ings og fjárfesta á íslenskum og erlendum mörkuðum og
gæti sú sala hafist á árinu 2002.
Í skýrslu framkvæmdanefndar um einkavæðingu kemur fram að nokkur erlend símafyrirtæki
hafa lýst áhuga sínum á kaupum í Landssímanum.
Ónauðsynlegt
að skilja
grunnkerfi frá
öðrum rekstri
Lagafrumvarp
um sölu verði lagt
fram í upphafi
vorþings