Morgunblaðið - 27.01.2001, Page 50
MINNINGAR
50 LAUGARDAGUR 27. JANÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ
✝ María Rós-mundsdóttir
fæddist að Langhús-
um í Viðvíkursveit
9. október 1920.
Hún lést 11. janúar
síðastliðinn. For-
eldrar hennar voru
hjónin Rósmundur
Sveinsson og Elísa-
bet Júlíusdóttir.
Hún var næstyngst
þriggja systkina.
María giftist árið
1943 Óskari Björns-
syni, f. 1917, d.
1995, frá Teigum í
Fljótum, syni hjónanna Björns
Jónssonar og Rósu Jóakimsdótt-
ur. María og Óskar eignuðst
þrjú börn: 1) dreng, fæddan and-
vana. 2) Sigurbjörgu, f. 1946, d.
1972, hún var gift Braga Hrólfs-
syni. Þeirra börn eru Hrólfur
Viðar, sambýliskona hans er
Hulda Sæland og eiga þau eitt
barn, fyrir átti Hrólfur eina
dóttur; og Rós-
mundur Ómar, sam-
býliskona hans er
Guðbjörg Sigfús-
dóttir, þau eiga tvö
börn, fyrir átti Óm-
ar einn son. 3)
Rósamunda, f. 1949,
hún er gift Haraldi
Friðrikssyni, þeirra
börn eru Málfríður
Ólöf, hennar maður
er Ásmundur Bald-
vinsson, þau eiga
tvö börn; María
Ósk, hennar maður
er Baldur Baldvins-
son, þau eiga tvö börn; Friðrik
Örn og Fannar Valur.
María og Óskar fluttust að
Efra-Ási í Hjaltadal árið 1946 og
unnu þar við búskap allt til árs-
ins 1976 er þau fluttust til Sauð-
árkróks.
Útför Maríu fer fram frá
Sauðárkrókskirkju í dag og
hefst athöfnin klukkan 14.
Það er með miklu þakklæti sem ég
skrifa þessar línur, þakklæti fyrir
trygglyndi þitt og góðvild. Hversu
vandvirk þú varst til orðs og æðis er
mikið hægt að læra af, – hljóð og
sterk.
Þú varst svo þroskuð. Að öðlast
hann er okkur misjafnt. Þú fékkst
ekki alltaf góð spil á hendi, en spilaðir
rétt og útkoman varð einhvers konar
blanda. Annars vegar manneskjunn-
ar sem er búin að reyna ýmislegt en
hefur sætt sig við það, – allavega hætt
að bera vandamál sín á torg og svo
hins vegar hinnar sem er ekki sett
undir neitt kynslóðabil, – glettin,
fróðleiksfús, nútímagjarnt náttúru-
barn.
Þær eru ófáar hannyrðirnar sem
liggja eftir þig og aðrir hafa fengið að
njóta. Alltaf varstu að tileinka þér
eitthvað nýtt í þeim efnum og það var
sko auðvelt að finna vanmátt sinn
gagnvart þér. En þú tókst þig ekki
hátíðlega og hlóst glettnislega þegar
ég reyndi að segja þér hverslags
ómynd ég væri.
Vinátta sumra einnkennist oft af
miklum samgangi. Þannig var það
ekki í okkar tilfelli, samt sem áður
skilur þú eftir ríkulega minningu,
minningu um trausta manneskju og
fyrir Freyju mína yndislega lang-
ömmu.
Núna ert þú farin og ert örugglega
sátt við það eins og annað sem þú gast
ekki breytt. Það hefði ekki verið í þín-
um anda að verða upp á aðra komin
þú varst nefnilega sterk nútímakona.
Bestu þakkir fyrir að fá að kynnast
þér og fá það staðfest hvers virði góð
vinátta er.
Signý Einarsdóttir.
MARÍA
RÓSMUNDSDÓTTIR
& %
(3G
6 (' ')'H
$ -'%'%$
,/% %'*&
'$
$
%
336 $ '%%
< &7' H
$.7-' /7
9!
( ) % :&$% &
%': $%/*&
( )#'*& '&'#%
: &2'%%#% A3% '*&
!%'*& 0'7 %'#%
#% %%'
'$% ' '*&
:' $.'*& @$ ,- %%'#%
#)'%') %
(
,36:
1'$7
/' 2$
0' %0' %'
%' 6 $% &%(0' *&#%
!% 6 $% 0 %*#%
(' 6 $% (' $$ 6 $%0'$ %I7
%% '
6 $% <77'0$'%%*&
)'%') %#)'%')'%') %
'$
A3
3%%'J0&
/ & &%%%%*#%
&2'%%',/%%**&
-&%%*#% ,/%
'*&
"# ' *&%#% !%-'%'*&
'%2$%**& &%0- '#%
!%%**& %K&3%)$#%
) %#)'%') %
(
6 ! % ; 33 < % &
& ) $
+&$
"0 $ <7'%'#% '(/ %**&
%%'%''%'*&
0' $%%'%'#% $%%%0- '*&
#.7%') %
( %
,3336 '%* DH
$7'F'
9!
""
) ,% '
% % =,
&
: -'0 *'%*&
0$ ',%*&
,/%,%*& ,' #%
-&%,%#% '% '' $%*&
%,%*&
/')$%*& <'%%'&%#%
#)'%') %
Sumt fólk á meira
að gefa en aðrir og
hefur gengið í hárri
elli og farsælu lífi.
Þetta er hægt að
segja um hana ömmu mína og það
er vægt til orðatekið.
Ein af mínum uppáhaldsminn-
ingum er þegar ég sat við eldhús-
borðið heima og drakk kaffi sem
var eiginlega bara mjólk og sykur
og dýfði svo kringlu í. Enn fæ ég
vatn í munninn við tilhugsunina.
Það eru margar minningar sem
fara um huga minn þegar horft er
til baka á slíkri kveðjustund og
alltaf kemur það sama upp í huga
minn en það er góða skapið sem
hún amma hafði og hláturinn. Hún
var gjörn á að sjá spaugilegu hlið-
arnar á hlutunum strax, það var
henni í blóð borið.
Amma gat verið ákveðin og föst
fyrir og sem dæmi var að þegar
hún fékk sitt fyrsta hjartaáfall sem
var í nóvember síðastliðnum. Þá
hringdi læknir frá Ísafirði í ömmu
og lét hana vita að sjúkrabíll væri
á leið til hennar og sagði henni að
hún ætti að leggjast á börurnar.
Hún tjáði honum hinsvegar að
hann gæti nú bara sent bílinn til
baka því ekki vildi hún fá bílinn í
GUÐRÚN
VALDIMARSDÓTTIR
✝ Guðrún Valdi-marsdóttir
fæddist á Suðureyri
við Súgandafjörð
20. maí 1913. Hún
lést á Landspítalan-
um 21. janúar síð-
astliðinn og fór út-
för hennar fram frá
Suðureyrarkirkju
27. janúar.
þorpið og hefði ekkert
að gera með hann en
skaut því að honum að
hún hefði ætlað norð-
ur seinnipartinn og
hún kæmi þá eins og
til stóð sem hún og
gerði, tilbúin með
náttsloppinn sinn fal-
lega samanbrotinn,
ásamt öðru sem hún
þurfti að hafa með-
ferðis.
Kvenskörungur er
það sem hún amma
mín var en hún fór á
Laugarvatn 1929 í
tveggja ára nám, þá 16 ára gömul.
Seinna fór hún til Danmerkur í
þrjú ár og vann þar sem stofu-
stúlka í Holti hjá Jóni Krabbe. Til
að framkvæma allt þetta á þessum
tíma, þurfti kjark og áræði til en
það var eitthvað sem hana síst
skorti. Hún viðhélt dönskukunn-
áttu sinni við með lestri dönsku
blaðanna þar til sjónin fór að dapr-
ast og hún fylgdist alltaf mjög vel
með öllu sem var málefnalegt og
gefandi og voru ferðalög hennar
ær og kýr. Þegar ég var tvítug, þá
bauð amma mér til útlanda og
mátti ég velja land. Þar sem Álf-
heiður frænka var í Danmörku, þá
varð það land fyrir valinu og var
það eitt skemmtilegasta ferðalag
sem ég hef upplifað. Fórum við
meðal annars að Holti og skoð-
uðum býlið þar sem hún hafði dval-
ið og á þessu ferðalagi kynntist ég
ömmu sem vinkonu.
Eitt af því sem var hvað
skemmtilegast við hana ömmu var
frásagnargáfa hennar og þegar
hún spilaði við okkur í fjölskyld-
unni sem var daglega, þá sagði hún
okkur frá svo mörgu á ótrúlega
heillandi hátt hvort sem það var
bíómynd sem hafði verið í sjón-
varpinu kvöldinu áður eða í raun
hvað sem var. Hún hafði skoðanir
á flestöllu og kom hún því oft að
með vísum og ljóðum þar sem það
átti við og mest gaman hafði hún
þótt af því að fara með vísur sem
höfðu verið ortar um viðkomandi.
Dauðinn gerir ekki alltaf boð á
undan sér og er ekki hægt að und-
irbúa hann á nokkurn hátt. Það er
margt sem ég get þakkað henni
ömmu, hún ól mig upp að miklu
leyti og hefur verið mín fyrirmynd
og mitt stolt. Það var ósjaldan að
þegar ég hringdi í hana. Þá var
hún sest niður í símastólinn sinn
og var á leið að gera slíkt hið
sama, líkt og um hugskeyti væri að
ræða. Ég átti mikið og gott sam-
band við hana alla tíð. Hún var mín
amma, mamma, vinkona og sálu-
félagi. Elsku amma mín, takk fyrir
að hafa verið til.
Hún Gunna amma göfug er
og þakka ég það sem hún hefur gefið
mér.
Hefur hún ætíð verið mín fyrirmynd.
Ekki er hægt að líta á það sem synd
Hennar hlátrasköll eru engu lík.
Frásagnargáfan og minni er slík.
Gáfur og athygli ógleymanleg,
umhyggja, elja og ásýnd tignarleg.
Þín
Elín Bragadóttir.
EIGI minningargrein að birt-
ast á útfarardegi (eða í sunnu-
dagsblaði ef útför er á mánu-
degi), er skilafrestur sem hér
segir: Í sunnudags- og þriðju-
dagsblað þarf grein að berast
fyrir hádegi á föstudag. Í mið-
vikudags-, fimmtudags-, föstu-
dags- og laugardagsblað þarf
greinin að berast fyrir hádegi
tveimur virkum dögum fyrir
birtingardag. Berist grein eftir
að skilafrestur er útrunninn
eða eftir að útför hefur farið
fram, er ekki unnt að lofa
ákveðnum birtingardegi. Þar
sem pláss er takmarkað getur
þurft að fresta birtingu greina,
enda þótt þær berist innan hins
tiltekna skilafrests.
Skilafrestur
minning-
argreina