Morgunblaðið - 27.01.2001, Side 55
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. JANÚAR 2001 55
Tilboð
Smellurammar
40x50 cm á 300
50x60 cm á 400 Afsláttur 15%
Innrömmun
Speglar
Tilb. rammar
Afsláttur30%
Plaggöt
innrömmuð
Síðumúla 34 • 108 Reykjavík
Sími 533 3331• Fax 533 1633
Tilboð
Álrammar
Gull/silfur
24x30 cm á 700
30x40 cm á 900
40x50 cm á 1100
59x66 cm á 1600
24x30 svart á 400
Tilboð
Trérammar
Margar stærðir
kr. 200-400
ÚTSÖLULOK
Laugardag 10-16 og
sunnudag 13-17
ÞAÐ fór eins og margir áttu von á.
Alexei Shirov þoldi ekki álagið og
glutraði niður forystunni sem hann
hafði á Corus-skákmótinu í Wijk aan
Zee og Garry Kasparov fékk í hend-
ur forystukyndilinn. Margir óvæntir
atburðir áttu sér stað í elleftu um-
ferð. Englendingurinn Michael
Adams laut í lægra haldi með hvítu
fyrir Hvít-Rússanum Alexei Feder-
ov, Timman stóð betur og hefði átt
a.m.k. hálfan vinning skilið gegn
Kasparov, Kramnik gerði með hvítu
stutt jafntefli við Leko en Ungverj-
inn er haldinn illvígum vírus ættuð-
um frá Indlandi, FIDE-heimsmeist-
arinn Anand vaknaði af dvala og bar
auðveldlega sigurorð af Jeroen Piket
og í eftirfarandi skák gerði Shirov
sig sekan um ótrúlega ódýr mistök í
byrjuninni gegn Vassili Ivansjúk.
Hvítt: Vassili Ivansjúk
Svart: Alexei Shirov
1. e4 c5 2. Rf3 d6 3. d4 cxd4 4.
Rxd4 Rf6 5. Rc3 a6 6. Be3 Rg4 7.
Bg5 h6 8. Bh4 g5 9. Bg3 Bg7 10. h3
Rf6 Þessi hugmynd Juditar Polgar
kom fyrst fram á sjónarsviðið í skák
á milli hennar og Kasparovs á Corus-
mótinu fyrir ári. Þá eins og nú lék
hvítur 11. Bc4 og eftir 11...Db6 12.
O-O var komin upp staða þar sem
svartur þarf að gera upp við sig
hvort hann eigi að ljúka liðskipan
sinni eða seilast eftir peðum and-
stæðinganna. Judit í téðri skák var
skynsöm og lék 12...0-0 og eftir 13.
Rde2 Dxb2 14. Bb3 Da3 15. f4 hafði
hvítur prýðileg færi fyrir peðið.
12... Rxe4?? Ótrúlegt en satt. Eins
og glöggir lesendur Morgunblaðsins
vita var bent á fyrir ári í skýringum
við skák Kasparovs og Polgar að
þessi leikur gengi ekki upp sökum
sama framhalds og kemur upp í
næstu leikjum. Það er með ólíkind-
um að Shirov skuli ekki hafa rann-
sakað þessa flóknu stöðu gaumgæfi-
legar en það að hann taldi sig geta
komist upp með að leika þessu. 13.
Rxe4 Dxd4 14. Rxd6+! exd6 15.
De2+! Svartur er núna dæmdur til
að verja vonda stöðu. Ef hann reynir
að halda í manninn verður kóngur
hans komin á slíka hrakhóla að fljót-
lega yrði hann mát. Sökum þessa gaf
Shirov hann til baka með 15... Be6 en
eftir 16. Bxe6 O-O 17. Had1 var
staða hans töpuð m.a. vegna þess að
17... Dxb2 gengur ekki upp sökum
18. Bxd6! fxe6 19. Bxf8 Bxf8 (19...
Kxf8 20. Df3+ Ke7 21. Hb1 og hvítur
vinnur) 20. Dxe6+ og hvíta sóknin
reynist óstöðvandi. Hann reyndi
17...Df6 en eftir 18. Bd5 var óumflýj-
anlegt að svartur myndi tapa a.m.k.
peði. Framhaldið varð 18...Rc6 19.
c3 Had8 20. Hfe1 Dg6 21. a4! Kh7
22. Bxc6 bxc6 23. Dxa6 d5 24. a5 f5
Svartur rembist eins og rjúpan við
staurinn að fá mótspil á kóngsvæng
en næsti leikur hvíts slekkur þann
vonarneista. 25. Be5! Ha8 26. Db6
Hf7 27. b4 f4 28. f3 h5 29. Df2 Bh6
30. Bd4 g4 31. hxg4 hxg4 32. fxg4 f3
33. gxf3 Haf8 Þótt svartur hafi fórn-
að tveim peðum til viðbótar við það
sem hann missti hefur það ekkert
bætt stöðu hans. Næsti leikur hvíts
er einfaldur og sterkur.
34. Kg2! Hxf3 35. Dxf3 Hxf3 36.
Kxf3 Dc2 37. a6 Dh2 38. Be5 Da2 39.
Ha1 Dc2 40. a7 Dd3+ 41. Kf2 og
svartur gafst upp enda staða hans
koltöpuð.
Ber er hver að baki
nema sér bróður eigi
Sá keppandi sem hefur komið
einna mest á óvart á Skákþingi
Reykjavíkur er Björn Þorfinnsson,
en mestan hluta þess hefur hann leitt
það einn. Björn er mikill baráttujaxl
og lætur sér fátt fyrir brjósti brenna
þegar taflmennskan á í hlut. Bróðir
hans, Bragi, vann síðasta Haustmót
TR og lenti í öðru sæti í vali á skák-
manni ársins fyrir árið 2000 sem
Skáksamband Íslands stóð fyrir í
samvinnu við skak.is. Þó að þeir
bræður séu ekki báðir meðal þátt-
takenda á Skákþinginu hefur eldri
bróðirinn staðið fyrir sínu og virðist
ætla að feta í fótspor litla bróður frá
síðasta ári. Í áttundu umferð kom
hins vegar bakslag í seglin hjá Birni
þegar hann beið lægri hlut fyrir
Arnari E. Gunnarssyni. Þetta gerði
það að verkum að Stefán Kristjáns-
son náði honum að vinningum en
hann hefur unnið tvær skákir í röð
eftir að hafa mætt Birni í eftirfarandi
skák.
Hvítt: Stefán Kristjánsson
Svart: Björn Þorfinnsson
1. e4 e5 2. Rf3 Rc6 3. d4 exd4 4.
Rxd4 Bc5 5. Rxc6 Df6 6. Dd2 dxc6 7.
Rc3 Be6 8. Ra4 Hd8 9. Bd3 Bd4 10.
O-O Rh6 11. c3?! Skoski leikurinn
hefur verið mikið í tísku síðan Garry
Kasparov beitti honum í heimsmeist-
araeinvígi gegn Anatoly Karpov
1990. Afbrigðið sem Stefán beitir
hlaut fyrst viðurkenningu eftir að
Kasparov tefldi það í heimsmeistara-
einvígi gegn Nigel Short 1993. Það
er merkilegt að hvorki í heimsmeist-
araeinvíginu gegn Kramnik á síðasta
ári né í Corus-mótinu hefur Kasp-
arov beitt skoska leiknum. Texta-
leikurinn er vafasamur þar sem
hann í raun hótar engu. 11. h3 er tal-
ið skynsamlegra til að koma í veg
fyrir að svarti riddarinn komist á
virkan reit.
11... Rg4! 12. cxd4 Dxd4 13. b3?
Þótt djúpt í árinni sé tekið má halda
fram að þetta sé tapleikurinn. Þótt
hugmyndin sé prýðileg virðist hún
ekki ganga upp. 13. Dc2 Dxd3 14.
Dxd3 Hxd3 15. Rc5 væri betur til
þess fallið að verða sér úti um frum-
kvæði.
13... De5! Millileikir geta oft kom-
ið að góðum notum og er ekki ofsagt
að þessi sé mikilvægur. Eftir 13...
Dxa1 14. Rc3 Re5 15. Ba3 Hxd3 16.
Dg5 stendur hvítur með pálmann í
höndunum. Jafnframt eftir 13...
Dxd3 14. Dxd3 Hxd3 15. Rc5 stendur
hvítur betur. 14. Df4 Aðrir leikir
ganga ekki upp að því er virðist. 14.
g3 Dxa1 15. Rc3 Re5 og svartur
vinnur. Jafnframt er 14. f4 ófull-
nægjandi sökum 14...Dd4+ 15. Kh1
Dxa1 16. Rc3 Hxd3 17. Dxd3 Dxc1!
og svartur vinnur. 14... Dxa1 15.
Bb2 Dxa2 16. Bc2 Bxb3 17. Bxb3 17.
Ha1 gekk ekki upp sökum 17...Bxc2
18. Hxa2 Hd1#. Þetta afbrigði sýnir
prýðilega í hvers konar úlfakreppu
hvítur er. 17... Dxb3 18. Dxg4 Hg8!
19. Bf6! Eini leikurinn sem reynir að
halda lífi í stöðunni. Núna þarf svart-
ur að taka vandasama ákvörðun.
19... gxf6! Einfalt og gott þar sem
svartur fær unnið endatafl í fram-
haldinu. 20. Dxg8+ Ke7 21. Dxh7
Hd1?! Engin ástæða var til að þvinga
þessi uppskipti fram. 21... Dxa4 hefði
verið ákjósanlegra. 22. g3 Dxa4 23.
h4 a5 24. h5 Hxf1+ 25. Kxf1 Db5+
26. Kg2 a4 27. h6 a3 28. Dg8 a2 29.
Da8 Í síðustu leikjum hefur mikið
kapphlaup átt sér stað um hvor verði
á undan að koma sér upp drottningu.
Hvítur gat ekki haldið áfram leikn-
um þar sem eftir 29. h7 a1=D 30.
h8=D Dbf1+ 31. Kf3 Dad1+ mátar
svartur.
29... Db1! Eftir þetta á hvítur sér
ekki viðreisnar von. 30. Da3+ Kd7
31. h7 Dxe4+! 32. Kg1 Db1+ 33.
Kg2 a1=D 34. Dxa1 Dxa1 35. h8=D
b5 36. g4 De5 og hvítur gafst upp.
Sama gamla sagan
SKÁK
W i j k a a n Z e e
CORUS-SKÁKMÓTIÐ
3.–28.1. 2001
Daði Örn Jónsson
Helgi Áss Grétarsson
Strandganga
Útivistar
FERÐAFÉLAGIÐ Útivist efnir á
sunnudaginn 28. janúar kl. 11 til
strandgöngu sunnan Hafnarfjarðar
Þetta er um 3 klst. ganga frá
Hvassahrauni um Lónakot og
Hraun að Straumsvík. Þarna er
sérstæð strandlengja og á leiðinni
eru merkar minjar um búsetu og
útræði fyrri tíma. Verð. 1.100 kr. f.
félaga og 1.300 kr. f. aðra og far-
arstjóri er Kristján M. Baldursson.
Þetta er ágæt fjölskylduganga,
en allir eru velkomnir í ferðina.
Miðar eru seldir í farmiðasölu BSÍ
en þaðan er brottför kl. 11. Stansað
verður við kirkjugarðinn Hafnar-
firði.
Fyrirhugaðri dagsferð jeppa-
deildar Útivistar sem vera átti um
helgina á Skjaldbreið er frestað til
10. febrúar vegna snjóleysis. Næsta
helgarferð Útivistar er þorrablót í
Húnaþingi vestra 2.-4. febrúar, en
vegna mikillar aðsóknar hefur
plássum verið fjölgað í ferðina.
Gönguferð með
Ferðafélaginu
FERÐAFÉLAG Íslands efnir til
gönguferðar sunnudaginn 28. janúar
nk. Að þessu sinni hefst ganga við
Bláfjallaveg. Gengið verður um
Rjúpnadali og meðfram Sandfelli nið-
ur í Læjarbotna. Þetta eru 10-12 km
og áætlaður göngutími er um 4 klst.
Fararstjóri í ferðinni er Sigurður
Kristjánsson. Brottför eru frá BSÍ kl.
11 og komið við í Mörkinni 6. Þátt-
tökugjald í þessari ferð er 1.500 kr.
Matvís vill
engan innflutn-
ing á kjöti
SAMBANDSSTJÓRN Matvæla- og
veitingasambands Íslands átelur í
ályktun harðlega vinnbrögð land-
búnaðarráðuneytis og embættis yf-
irdýralæknis vegna innflutnings á
nautakjöti frá kúariðusýktum svæð-
um í Evrópu. Matvís skorar á stjórn-
völd að stöðva alfarið innflutning á
kjöti og kjötafurðum þar til settar
hafa verið strangari reglur um inn-
flutning og framfylgt.
Námskeið gegn
reykingum
Í HEILSUSTOFNUN NLFÍ í
Hveragerði hafa mörg námskeið
verið haldin gegn reykingum. Næsta
námskeið verður haldið í 4. febrúar
nk. Námskeiðin taka eina viku og
eru 10 manns í hóp.
Í fréttatilkynningu segir: „Það
hefur verið sýnt fram á það, að
hreyfing, fræðsla, umræður, slökun
og útivist, sem boðið er upp á í
Heilsustofnun, hjálpa mikið. Mörg-
um reynist auðveldara að taka á tób-
aksfíkninni fjarri erli hversdagsins
og er því dvöl í friðsældinni í Hvera-
gerði góður valkostur.“
STUTT