Morgunblaðið - 20.03.2001, Qupperneq 13
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. MARS 2001 13
Í KRINGLUNNI, fyrir utan versl-
unina Nanoq, er hafin sýning á ljós-
myndum nokkurra af helstu
háfjallaklifrurum Bretlands,
þeirra Chris Bonington, Doug
Scott, David Oswin og Jim Fothr-
ingham, sem hafa verið í framlínu
háfjallamennskunnar sl. 30 ár. Sýn-
ingin nefnist Travels in High Places
og í tilefni af opnun sýningarinnar
mættu sjálfar fjallgöngukempurnar
Oswin og Scott í Kringluna sl.
föstudagskvöld.
Elstu myndirnar eru frá miðjum
áttunda áratugnum og sýna m.a.
fyrstu uppgöngu Breta á hátind
Everest árið 1975. Þá neyddust
leiðangursmenn til að verja nótt
undir berum himni á leið niður af
tindinum, en úr slíkri raun hafði þá
enginn sloppið lifandi.
Á sýningunni getur einnig að líta
sögulega mynd af Doug Scott þar
sem hann mjakar sér niður af tindi
Ogre í Karakorum, fótbrotinn á
báðum fótum. Myndina tók Chris
Bonington, sem sjálfur var slasaður
þegar hann smellti af. „Það brotn-
uðu þrjú rif í Chris þegar hann slas-
aðist í falli við að reyna hjálpa
Doug niður af fjallinu,“ rifjaði
David Oswin upp þegar Morg-
unblaðið leit inn á sýningunni.
Hann bætti við að ekki þýddi nein
sérhlífni við myndatökur á fjöllum.
„Stundum verður maður að neyða
sjálfan sig til að taka myndir í erf-
iðum aðstæðum og oft koma sér-
stakar myndir út úr því, en á það
ber líka að líta að margir fjall-
göngumenn hafa lífsviðurværi sitt
af myndum, sem fara í bækur eða
eru sýndar á sýningum.“
Lík á fjallaleiðum
Þegar Doug Scott ræddi um fjall-
gönguljósmyndun nam hann staðar
við viðkvæmt málefni, þ.e. ljós-
myndatökur af líkum fjallgöngu-
manna sem liggja fyrir allra augum
á sumum fjallaleiðum. Scott er
þeirrar skoðunar að ekki sé siðlegt
að fara strax í blöðin og selja þeim
myndir af látnum klifrurum, heldur
taka hagsmuni ættingja fram yfir
eigin hagsmuni eftir fremsta
megni. Hann tók dæmi af nýlegum
fundi líksins af Georg Mallory, sem
dó á Everest árið 1924. Enn er á
huldu hvort Mallory hafi í raun náð
tindinum, þrem áratugum á undan
Hillary og Tenzing. „Eins og t.d.
með myndirnar af líki Mallorys,“
segir Scott. „Þær voru seldar hæst-
bjóðanda í fjölmiðlaheiminum. Slíkt
hefur mikil tilfinningaleg áhrif á
eftirlifandi ættingja. Við sem erum
alltaf að klifra finnum mörg lík á
vegi okkar en við hlaupum ekki til
og seljum blöðunum myndir af
þeim. Það finnst mér ógeðfellt.“
Hættir maður með tímanum að
kippa sér upp við að sjá lík af fjall-
göngumönnum?
„Nei, það er alltaf ónotalegt. Ég
vildi t.d. ekki fara á Everest núna
þar sem líkin eru út um allt á leið-
inni um Suðurskarð. Það er kominn
tími til að fjallgöngusamfélagið
taki á þessu og færi líkin til byggða
með aðstoð Sérpanna.“
Sýning á ljósmyndum háfjallaklifrara í Kringlunni
Stundum þarf maður að neyða
sjálfan sig til að taka mynd
Morgunblaðið/Kristinn
David Oswin og Doug Scott í Kringlunni.
ELDUR kviknaði í Mercedes-Benz
fólksbifreið í Reykjavík á sunnu-
dagskvöld og er bíllinn talinn ónýtur.
Samkvæmt upplýsingum frá
slökkviliði höfuðborgarsvæðisins var
bílnum lagt í bifreiðastæði við Rauð-
arárstíg og var vél hans ekki í gangi
þegar eldurinn kviknaði. Vélin hrökk
hins vegar í gang við eldinn. Bíllinn
var sjálfskiptur og í stöðugír en hefði
bíllinn verið beinskiptur er hætt við
því að hann hefði ekið af stað, ann-
aðhvort út á götu eða inn um glugga
kaffistofu. Slökkvistarf gekk vel.
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
Hrökk í gang við eldinn
SNORRI Olsen, tollstjóri í Reykja-
vík, segir að dómur Hæstaréttar um
að tollstjóra sé óheimilt að opna
bókasendingar að utan breyti engu
um innheimtu lögboðinna gjalda af
slíkum sendingum. Dómurinn geti
haft í för með sér aukið óhagræði
þeirra sem panta vörur að utan.
„Raunverulega má segja að breyt-
ingin verði sú að þessar sendingar
verða óopnaðar þar til sá sem á send-
inguna gerir grein fyrir innihaldi
með framvísun vörureiknings. Hafi
hann ekki vörureikning mun við-
komandi væntanlega koma til okkar
í Jörfa, opna pakkann sjálfur og ná í
reikninginn,“ segir Snorri.
Hann segir að það sé misskilning-
ur að tollayfirvöld opni pakka til þess
að hnýsast í hvað menn eru að flytja
inn. Tilgangurinn sé sá að flýta fyrir
og auðvelda tollaafgreiðsluna. „Ef
menn eru ósáttir við það þá er hitt
fyrirkomulagið ekkert vandamál fyr-
ir okkur. Hins vegar gefur það auga-
leið að það er óhagræði fyrir þá sem
eru að panta eina og eina bók að utan
að þurfa að leggja leið sína hingað til
þess að opna pakkann og ná í vöru-
reikninginn.“
Óbreytt innheimta hjá
tollstjóra vegna bóka