Morgunblaðið - 20.03.2001, Side 14

Morgunblaðið - 20.03.2001, Side 14
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ 14 ÞRIÐJUDAGUR 20. MARS 2001 MORGUNBLAÐIÐ Albínu Thordarson. Húsið er rautt og felld inn í það „álfabyggð“, þannig að nafnið er ekki úr lausu lofti gripið. Enda fékk leikskól- inn afhentan álfastein úr lóðinni við sérstaka viðhöfn. Lóð var hönnuð hjá Teikni- stofu Kjartans Mogensen. Við opnunina, sem var fjölmenn, fluttu ávörp þau Magnús Gunnarsson, bæj- arstjóri, Sigurlaug Ein- arsdóttir, leikskólafulltrúi og Hildur Gísladóttir, for- maður leikskólanefndar. Börn af leikskólanum NÝR leikskóli var formlega opnaður við Háholt í Hafn- arfirði á fimmtudag síðast- liðinn og var honum gefið nafnið Álfasteinn. Er hér um að ræða um 700 m2 byggingu að flatarmáli, en lóðin sjálf um 5.015 m2. Leikskólinn er byggður og rekinn í einkaframkvæmd af Nýsi hf., en aðalverktaki var Ístak hf. Framkvæmdir hófust í apríl 2000 og fékk Hafnarfjarðarbær húsið af- hent 12. mars á þessu ári. Haldin var sérstök hönn- unarsamkeppni um bygg- inguna og deiliskipulagið. Leikskólinn er hannaður af Hvammi sungu fyrir gesti og blásarakvartett frá Tón- listarskóla Hafnarfjarðar lék tvö lög. Síðan bauð Inga Líndal, leikskólastjóri, gest- um að skoða skólann og þiggja veitingar. Skólastarfið verður eftir kenningarkerfi Johns Dew- ey, en þar er frjálsi leik- urinn í fyrirrúmi enda tal- inn vera frumafl í þroska barnsins. Hlutverk leik- skólakennarans er m.a. að skapa umgjörð um leikinn svo börnin geti unnið úr reynslu sinni og sínu nán- asta umhverfi, verið virk og skapandi í leikjum sínum. Nýr leikskóli í „álfabyggð“ Morgunblaðið/Árni Sæberg Nýi skólinn. Á minni myndinni tekur leikskólastjóri við gjöf frá bæjarstjóra. Hafnarfjörður MIKLAR gatnaframkvæmd- ir standa nú yfir í Smára- hverfi í Kópavogi. Annars vegar er verið að tvöfalda Fífuhvammsveg milli hring- torganna við Lindarveg og Dalsmára og gera undirgöng við Fífuhvammsveg milli Dal- vegar og Smárahvammsveg- ar. Hins vegar er unnið að tvöföldun og fleiri endurbót- um á Smárahvammsvegi suð- urfyrir Hagasmára. Samtals verða sett upp fimm ný um- ferðarljós á gatnamótum í hverfinu og er gert ráð fyrir að kostnaður við framkvæmd- ir nemi um 256 m.kr. JVJ hf. annast fram- kvæmdir á Fífuhvammsvegi fyrir 183,1 m.kr. en Háfell ehf. vinnur verkið við Smára- hvammsveg fyrir um 73,4 m.kr. Þórarinn Hjartarson, bæj- arverkfræðingur, sagði að þegar Smárahverfi var byggt hafi í upphafi aðeins verið lögð önnur akbrautin með það í huga að tvöfalda göturnar þegar þörf krefði. Sá tími væri nú kominn þegar opnun Smáralindar er framundan. Smáralindin kallar á fleiri verkefni í vegagerð í landi Kópavogs og fyrir helgi kom fram í Morgunblaðinu að bær- inn vill beita sér fyrir og bera kostnað af því að áformum um tvöföldun Reykjanesbrautar væri flýtt. Þórarinn sagði að fyrrtöld verkefni við Fífuhvammsveg og Smárahvammsveg væru alfarið á vegum bæjarins en auðvitað þyrfti að gera skurk í því að tvöfalda Reykjanes- braut suðurfyrir Arnarnesveg og eðlilegt væri að tvöfalda samtímis akbrautina á Arnar- nesvegi upp að Smára- hvammsvegi. Þá þurfi einnig að vinna að því að auka afköst vinstri beygjunnar á brúnni yfir Hafnarfjarðarveg inn á Arnarnesveg með því að setja þar umferðarljós eða hring- torg. Nú þegar myndist þarna biðröð á annatíma sem nái út á Hafnarfjörð og ljóst sé að ástandið muni versna þegar Smáralind verður opnuð. Reykjanesbraut, Arnarnes- vegur og Hafnarfjarðarvegur eru stofnbrautir í umsjón Vegagerðarinnar og þessar framkvæmdir eru á vegaáætl- un, að sögn Þórarins, sem segir þó nauðsynlegt að hefja allar þessar framkvæmdir fyrr en ætlað er. Um leið og í þær verði ráðist þurfi bærinn að huga að því að tvöfalda lokakaflann á Smárahvamms- vegi að Arnarnesvegi. 256 m.kr. gatna- gerð í Smárahverfi Morgunblaðið/Kristinn Gatnaframkvæmdir setja nú mikinn svip á Smárahverfið. Kópavogur Í NESKIRKJU eru starf- andi mömmumorgnar og hafa verið svo um árabil, raunar í 13 ár. Þessir mömm- umorgnar heita samt eigin- lega foreldramorgnar núorð- ið, í takt við nýja tíma. Elínborg Lárusdóttir er upp- hafsmanneskja að þessum morgnum í Neskirkju. Morg- unblaðið leit til hennar á dög- unum og spurði um aðdrag- anda málsins. „Þannig er, að ég er félagsráðgjafi, og ég varð þess vör á sínum tíma, að mæður einangruðust dálítið heima fyrir eftir barnsburð,“ sagði Elínborg. „Um þær mundir var ég að kenna ung- barnanudd og sá að konur höfðu jafngaman af því að hittast og spjalla og að læra nuddið. Þá fékk ég þessa hugmynd um mömmumorgna og henni var vel tekið í Nes- kirkju. Það er gefin út dagskrá strax á haustin og allir geta komið með tillögur um efni, þannig að eiginlega má segja að þetta sé nokkurskonar grasrót. Í kirkjunni hittast foreldrar ungra barna og líka þeirra sem eru á forskóla- aldri og raunar allir sem vilja, og spjalla saman um landsins gagn og nauðsynj- ar.“ Hittast á miðvikudögum „Þar eð þetta starf hefur staðið óslitið í 13 ár virðist það mæta vissri þörf í sam- félaginu, og það hefur verið vinsælt allt frá byrjun. Foreldramorgnar eru allt- af á miðvikudögum, frá hausti og fram á vor, og í annað hvert skipti höfum við fræðslu af einhverju tagi. Síðast t.d., 14. mars, kom Herdís Storgaard, fulltrúi hjá heilbrigðisráðuneytinu, til okkar og fjallaði um slys á börnum í heimahúsum, og fékk svo öllum í hendur gát- lista um öryggi heimilisins, til að fara með heim með sér. Þann 28. mars kemur hjúkr- unarfræðingur til okkar og heldur erindi um aga og upp- eldi, og 2. maí ætlar Helga Rut Guðmundsdóttir lektor við Kennaraháskólann að fjalla um áhrif tónlistar á þroska ungbarna. Þá hafa hjúkrunarfræðingar á Sel- tjarnarnesi reglulega verið með fræðslu hjá okkur. Og þannig mætti lengi áfram telja. Á móti þessum fræðslu- morgnum höfum við svo kaffi og spjall.“ Feðurnir koma líka „Feður hafa ekki átt eins heimangengt, en hafa þó samt mætt fjórir talsins í þessi ár. Það er mjög hvetj- andi fyrir aðra feður og er skemmtileg tilbreyting í því,“sagði Elínborg. „Það er líka mjög áhugavert að er- lendar konur sem eru stadd- ar á Íslandi tímabundið koma með börnin sín í kirkjuna og svo hafa ömmur komið líka og auðvitað eru allir vel- komnir, en í upphafi var þetta hugsað til þess að rjúfa einangrun þeirra sem eru heimavinnandi. Og ekki er verra að hafa þetta í kirkj- unni, því þá venst fólk því að hitta prestana og er ekki eins feimið við að leita aðstoðar þeirra, ef svo ber undir. Og eins er með börnin, þegar þau verða eldri. Þannig að það er svona ýmislegt sem vinnst með þessu. Við förum svo alltaf í vor- ferðalag, t.d. í Fjölskyldu- og húsdýragarðinn, þar sem börnin njóta þess að sjá skemmtilega og fræðandi hluti og við grillum saman. Núna eru foreldramorgnar starfandi í flestum kirkjum Reykjavíkur og víða úti á landi, sem er mjög ánægju- legt.“ Morgunblaðið/Jim Smart Foreldrar og börn njóta samveru á foreldramorgnunum. Virðist mæta ákveðinni þörf í samfélaginu Vesturbær Foreldramorgnarnir í Neskirkju orðnir 13 ára gamlir og alltaf jafnvinsælir BAKKATJÖRN á Seltjarn- arnesi hefur verið friðuð og verða fljótlega sett upp upp- lýsingaskilti í kringum tjörn- ina til verndar varpi fugla s.s. kríu og anda. Ákvörðun um friðunina var tekin í nóv- ember og verður upplýsinga- skiltunum beint að vegfar- endum þeim til upplýsinga um umgengnisreglur sem gilda á friðlandinu. Krían kemur til landsins um miðjan maí og hefst varptíminn um mánaðamótin maí-júní. Kríunni hefur fjölgað umtalsvert á Sel- tjarnarnesi á liðnum árum. Í fyrra komu um 1800 pör á vesturhluta Seltjarnarness á móti 900 pörum fyrir fáein- um árum, samkvæmt taln- ingu Ólafs Jóhanns Hilmars- sonar. Jafnframt hefur sílamávi, skaðvaldi í fugla- varpi, fjölgað við tjörnina. Að sögn Jens P. Hjaltested, formanns umhverfisnefndar Seltjarnarness, veldur sú fjölgun nokkrum áhyggjum og er útlit fyrir að grípa verði til ráðstafana, ef fjölg- unin heldur áfram. Á Seltjarnarnesi hafa nú þrír staðir verið friðaðir, þ.e. Grótta, vestasti hluti Val- húsahæðar, og nú síðast Bakkatjörn. Að auki eru fjörurnar á vesturhluta Sel- tjarnarness og Daltjörn á náttúruminjaskrá. Jens segir áhuga almenn- ings á fuglalífi á Seltjarnar- nesi fara ört vaxandi, enda sé óvíða hægt að komast í návígi við eins fjölbreytt fuglalíf á höfuðborgarsvæð- inu. Bakka- tjörn friðuð Seltjarnarnes MÓTÁS hf. hefur sótt til borgarráðs um lóð í Grafar- holti til að byggja fjölbýlishús með fjörutíu leiguíbúðum fyr- ir almennan markað. Bergþór Jónsson, fram- kvæmdastjóri Mótáss, sagði í samtali við Morgunblaðið að stefnt væri að því að húsið yrði 3-5 hæðir og í því 40 íbúð- ir, flestar þriggja herbergja en einnig 2ja og 4ra her- bergja. Fátítt hefur verið að einka- aðilar reisi hús með almenn- um leiguíbúðum hér á landi. „Þetta er algengt í Evrópu og Bandaríkjunum,“ sagði Berg- þór. „Ég kann enga skýringu á því af hverju þetta hefur ekki verið gert hér.“ Hann sagði stefnt að því að bjóða íbúðirnar í húsinu til langtímaleigu til einstaklinga. Undanfarið hefði borið á því að sveitarfélög hefðu óskað eftir því að einstaklingar tækju að sér að byggja og reka leiguíbúðir. Hann sagði að Mótás hefði byggt yfir 400 íbúðir og hefði því mikla reynslu á þessu sviði. Marga vantar íbúð en fáa bílskýli Borgarráð fjallaði um um- sóknina á fundi á þriðjudag og sendi hana til umfjöllunar hjá félagsmálaráði og skrif- stofustjóra borgarverkfræð- ings. Bergþór sagði að til greina kæmi að ræða við borgina um að hluti hússins yrði leigður út sem félagsleg- ar leiguíbúðir. Bergþór sagði að auk þess að óska eftir lóð í Grafarholti mundi Mótás óska eftir breyt- ingum á skipulagi í þá átt að fallið verði frá kvöð um bíl- skýli. „Það er fullt af fólki, sem vantar íbúð, en það eru ekki margir sem vilja leigja bílskýli,“ sagði hann. Sækir um lóð undir leiguíbúðir Grafarholt

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.