Morgunblaðið - 20.03.2001, Page 22
VIÐSKIPTI
22 ÞRIÐJUDAGUR 20. MARS 2001 MORGUNBLAÐIÐ
ÍSLENSKI framtakssjóðurinn
Arctic Ventures og fjárfestingafyr-
irtækið Argnor Wireless Ventures
hafa gert með sér víðtækan sam-
starfssamning. Að sögn Ragnars
Þórissonar, framkvæmdastjóra hjá
Arctic Ventures, stendur GSM Cap-
ital að Argnor ásamt með North-
stream ráðagjafarfyrirtækinu.
Ragnar segir að GSM Capital sé
sjóður sem sé í eigu fimmtán stærstu
farsímafyrirtækja í heimi. Þar megi
til að mynda nefna fyrirtæki á borð
við British Telecom, France Tele-
com, KPN Quest, Smart Tone og
Singapore Telecom. Á meðal helstu
viðskiptavina Northstream AB,
megi nefnaNTT DoComo, Voda-
phone, Nokia og Ericsson.
Einbeita sér að fjárfestingum
á Norðurlöndunum
„Argnor hafði áhuga á að fjárfesta
á Norðurlöndum og í stað þess að
opna skrifstofu sjálfir kusu þeir að
vinna með aðila sem fyrir er á mark-
aðinum. Þeir koma til okkar sem út
af fyrir sig er mjög góð viðurkenning
því það eru 220 framtakssjóðir starf-
andi í Svíþjóð. Þeir ákveða síðan að
velja okkur og telja að við höfum
staðið okkur vel á markaðinum og
séum með góð sambönd. Það má því
segja að það sé í raun þrír stofnend-
ur að þessu fyrirtæki, þ.e. GSM
Capital, Northstream og við. Við er-
um sem sagt að stofna fyrirtæki sem
mun einbeita sér alfarið að fjárfest-
ingum á Norðurlöndunum á sviði
þráðlausra fjarskipta og er Ísland
þar með talið. Við lítum svo á að það
sé eðlilegt skref fyrir okkur og okkar
fjárfesta að geta komist inn í þetta
fjárfestingarferli með GSM Capital
og Northstream.“
Aðspurður segir Ragnar að þetta
sé fjárfestingin af hálfu Arctic Vent-
ures í Argnor upp á hálfan milljarð
íslenskra króna. Öllum öðrum fjár-
festingum Arctic verði haldið utan
við þetta. „Þessi samvinna gerir okk-
ur hins vegar kleift að leggja niður
rekstrarfélag okkar, allur rekstrar-
kostnaður sem sjóðfélagar hafa
þurft að borga fellur niður og það
sparar tæpar 150 milljónir á þriggja
ára tímabili hjá Arctic. Við sem störf-
um hjá Arctic núna verðum starfs-
menn hjá Argnor.
Göngum inn í heimsnet Argnor
Ragnar segir að fyrir um ári hafi
nær allir fengið fjármögnun, menn
hafi sett mikið fjármagn í alls kyns
hugmyndir. „Staðan er þannig núna
að fólk hættir ekki í fastri vinnu til
þess að stofna fyrirtæki. Það er bæði
erfitt að fá fjármagn auk þess sem
mjög sterkur hópur verður að standa
á bak við hugmyndina. Það eru þessi
vegna færri fjárfestingartækifæri en
sem betur fer eru þau miklu betri og
traustari en var og auðveldara að
finna hina sönnu frumkvöðla sem
vilja leggja allt í sölurnar. Við þurf-
um að geta boðið þessum frumkvöðl-
um eitthvað meira en bara fjármagn.
Við höfum vitaskuld reynt að kynna
okkar fyrirtæki en með þessu heims-
neti Argnor opnast auðvitað miklu
fleiri möguleikar. Við höfum alltaf
unnið náið með þeim fyrirtækjum
sem við fjárfestum í en núna er við að
taka þetta enn lengra. Áður vorum
við með eins konar staðarnet í sam-
böndum við fyrirtæki á Norðurlönd-
unum en núna getum við boðið frum-
kvöðlafyrirtækjum, sem við
fjárfestum í, aðgang að fimmtán
stærstu farsímafyrirtækjunum sem
gætu síðan hugsanlega orðið við-
skiptavinir þeirra enda eru þau um
leið eigendur þeirra. Tvisvar sinnum
ári býðst þeim fyrirtækjum sem við
fjárfestum í að hitta æðstu stjórn-
endur allra þessar farsímafyrirtækja
og kynna hugmyndir sínar. Við erum
að búa til svona fjölskyldu og þeir
sem komast inn í hana standa mjög
vel að vígi. Farsímafyrirtækin fá að
sjá samningsdrög þegar Argnor ætli
að fjárfesta í fyrirtækjum og geti lát-
ið álit sitt í ljós og það sé mjög mik-
ilvægt við mat á viðskiptahugmynd-
um. Þegar við fjárfestum í
fyrirtækjum þá erum við ekki bara
að leggja þeim til peninga heldur
komum við þeim inn í fjölskyldunetið
og það skiptir ákaflega miklu máli.
Ég held ég þekki ekki nokkurn sjóð í
Evrópu sem hefur betra skipulag á
þessu sviði en Argnor.“
Víðtæk samvinna Arct-
ic Ventures og Argnor
Morgunblaðið/Golli
F.v. Ragnar Þórisson og Simon Hallquist, framkvæmdastjórar Arctic.
REKSTRARTEKJUR Austur-
bakka hf. námu 1.964 milljónum
króna á síðasta ári, sem er aukning
um 300 milljónir króna, eða 18,2%,
frá árinu 1999. Veltufé frá rekstri
var 62,2 milljónir króna, sem er
hækkun um 7,7 milljónir frá 1999.
Rekstrarhagnaður án afskrifta var
85,4 milljónir króna, sem er aukn-
ing um 21,6 milljónir, eða 33,8%.
Hagnaður fyrir skatta var 29,8
milljónir króna, en skattar og
óreglulegir liðir námu 15,7 millj-
ónum króna, þannig að hagnaður
ársins varð 14,1 milljón króna.
Reiknaðir gjaldaliðir hafa
veruleg áhrif á afkomu ársins
Reiknaðir gjaldaliðir í uppgjöri
2000, sem ekki munu koma til
greiðslu, eru mun stærri en áður í
uppgjörinu og hafa veruleg áhrif á
lokaniðurstöðu, að því er fram
kemur í fréttatilkynningu frá
Austurbakka hf.
Þessir liðir eru afskriftir,
13.970.879 krónur, gjöld vegna
verðlagsbreytinga, 4.667.466 krón-
ur, niðurfærsla viðskiptakrafna,
4.836.064 krónur og aukning eft-
irlaunaskuldbindingar 14,3 milljón-
ir króna. Hagnaður félagsins að
teknu tilliti til þessara fjárhæða er
51,9 milljónir króna. Árið 1999 var
sambærileg tala 48,7 milljónir
króna.
Viðburðaríkt ár í
sögu félagsins
„Árið 2000 var viðburðaríkt og
ár mikilla umbreytinga. Helstu tíð-
indi í sögu félagsins voru að í júní
fékkst félagið skráð á Verðbréfa-
þingi Íslands og flutt var í nýjar
höfuðstöðvar í apríl. Rekstrarlega
einkenndist árið af breyttum að-
stæðum í húsnæðismálum og geng-
islækkun íslensku krónunnar síð-
ari hluta ársins,“ segir í
tilkynningunni.
Afskriftir voru 13,9 milljónir
króna og fjármunagjöld 41,6 millj-
ónir. Óregluleg gjöld voru 4,8
milljónir, sem er niðurfærsla við-
skiptakrafna. Í fjármunaliðum er
gjaldfærður gengismunur 18,5
milljónir króna.
Árið 1999 var gengismunur til
tekna 6,3 milljónir króna. Einnig
er inni í fjármunaliðum reiknuð
gjöld vegna verðlagsbreytinga 4,7
milljónir króna.
!"##$
!"%&'
!
$
($!
$))
*&'
%%
&+
,!-+*.
(
!"
#
#
#
#
$
% & &
% & &
% & &
$
$
Hagnaður Aust-
urbakka 14,1
milljón króna
FJÁRFESTINGARBANKINN
Merrill Lynch hefur birt nýtt mat á
fyrirtækinu Norske Skog og setur
hlutabréf fyrirtækisins á lista yfir
evrópsk hlutabréf sem hann mælir
með kaupum á. Svo virðist sem hefð-
bundið iðnfyrirtæki eins og Norske
Skog sé ekki lengur algjört andheiti
netfyrirtækis, að því er fram kemur í
Dagens Næringsliv, og margir fjár-
málasérfræðingar eru á þeirri skoðun
að gengi bréfa Norske Skog sé of lágt.
Norske Skog er mjög stór papp-
írsframleiðandi og sér blaðaútgefend-
um á Norðurlöndunum og víðar fyrir
pappír. Áður voru fjárfestar á þeirri
skoðun að lestur dagblaða og tímarita
myndi minnka með tilkomu netfjöl-
miðla og kom það fram í lækkandi
gengi fyrirtækja eins og Norske
Skog. Fjárfestarnir voru ekki
sannspáir, hefðbundnir prentmiðlar
hafa haldið velli og gengi bréfa net-
fyrirtækja hefur lækkað.
Norske skog góður
fjárfestingarkostur
Ósló. Morgunblaðið
EVRÓPSKA flugfélagið, EADS, hef-
ur tilkynnt um góðar horfur í rekstri
félagsins í ár en samt sem áður verði
ekki hvikað frá þeirri ákvörðun um að
segja upp 3 þúsund manns.
Síðastliðið sumar runnu Dasa, sem
var loftferðahluti DaimlerChrysler,
hins franska Aerospatiale Matra og
hins spænska CASA í EADS. Nafnið
stendur fyrir European Aeronautics,
Defence & Space Company sem gæti
á íslensku útlagst Evrópska loft-
ferða-, varnar- og geimfélagið.
Á síðasta ári nam tap EADS 909
milljónum evra eða sem svarar til
tæplega 72 milljarða íslenskra króna.
Fjárfestingarfyrirtækið Lehman
Brothers mælir sterklega með kaup-
um í EADS en félagið var skráð á
markað í júlí á síðasta ári.
Gott gengi hjá EADS