Morgunblaðið - 20.03.2001, Page 26
ERLENT
26 ÞRIÐJUDAGUR 20. MARS 2001 MORGUNBLAÐIÐ
KÍNVERSKA lögreglan leitaði í
gær að heyrnarlausum flótta-
manni, sem er grunaður um fjögur
sprengjutilræði sem urðu að
minnsta kosti 108 manns að bana í
borginni Shijiazhuang á föstudag-
inn var. Að sögn lögregluyfirvalda
er hugsanlegt að glæpahópur hafi
aðstoðað manninn. Embættismenn
í Shijiazhuang sögðust þó telja að
reiðir verkamenn, sem sagt hefur
verið upp störfum, hefðu verið að
verki til að mótmæla fjöldaupp-
sögnum í vefnaðariðnaðinum.
Málgögn kínversku stjórnarinn-
ar birtu aðeins frétt frá kínversku
fréttastofunni Xinhua þar sem því
var enn haldið fram að ótiltekinn
glæpahópur væri viðriðinn tilræð-
in.
Lögreglan birti um helgina
mynd af flóttamanninum, Jin
Ruchao, sem er fertugur, og sagði
að hann væri grunaður um morð á
unnustu sinni og „sérlega alvarlega
glæpi“. Heitið var andvirði rúm-
lega hálfrar milljónar króna fyrir
upplýsingar sem leiddu til hand-
töku hans.
Lögreglan tók þó ekki fram að
Jin væri grunaður um sprengju-
tilræðin. Lögreglufulltrúi í Shiji-
azhuang staðfesti þó í samtali við
fréttamann Reuters að svo væri.
„Við teljum að einhverjir hafi
hjálpað honum,“ sagði hann. „Við
erum að rannsaka hvort einhverjir
aðrir menn eða einhver glæpahóp-
ur hafi lagt honum lið á bak við
tjöldin.“
Sprengjur sprungu í fjórum
íbúðarbyggingum í Shijiazhuang á
föstudag og ein þeirra gereyðilagð-
ist. Hún var í eigu bómullarverk-
smiðju í borginni og hýsti að
minnsta kosti 30 fjölskyldur. Xin-
hua segir að 108 manns hafi látið
lífið og 38 særst en læknar í Shiji-
azhuang segja að hundruð manna
hafi beðið bana. Kínversk stjórn-
völd héldu því fram í fyrstu að til-
ræðin hefðu kostað 18 manns lífið.
Liður í mótmælum gegn
fjöldauppsögnum?
Íbúar Shijiazhuang segja að Jin
hafi verið sagt upp störfum í bóm-
ullarverksmiðjunni árið 1983 fyrir
spellvirki en haldið herbergi í einni
af íbúðarbyggingum hennar.
Embættismaður í Shijiazhuang,
sem ekki vildi láta nafns síns getið,
sagði að sprengjutilræðin væru lík-
lega liður í mótmælum gegn fjölda-
uppsögnum í borginni, en hún er
miðstöð kínverska vefnaðariðnað-
arins sem hefur átt undir högg að
sækja síðustu árin. 1,4 milljónum
manna var sagt upp í vefnaðariðn-
aðinum á árunum 1998–2000 til að
draga úr framleiðslunni og auka
skilvirkni.
„Getur einn heyrnarlaus maður
valdið öllum sprengingunum fjór-
um?“ spurði embættismaðurinn.
„Ég er 90% viss um að verkamenn,
sem misstu vinnuna, hafi verið að
verki. Markmiðið var að vekja at-
hygli kínversku ríkisstjórnarinn-
ar.“
Þetta er í annað sinn á tíu dög-
um sem kínversk stjórnvöld kenna
utangarðsmanni um mannskæðar
sprengingar. Kínverska stjórnin
heldur því fram að þroskaheftur
maður hafi valdið sprengingu sem
varð að minnsta kosti 42 manns,
aðallega börnum, að bana í skóla
bæjarins Fanglin í suðausturhluta
landsins 7. mars. Læknar, embætt-
ismenn í bænum, ýmsir fjölmiðlar
og foreldrar barnanna sögðu að
nemendur skólans hefðu verið
neyddir til að vinna við flugelda-
gerð en kínverska stjórnin sagði að
ekkert væri hæft í því.
Heyrnarlaus flóttamaður
grunaður um tilræðin
Peking. Reuters, The Daily Telegraph.
Rannsókn á mannskæðum sprengingum í kínverskri iðnaðarborg
KRISTILEGUM demókrötum,
CDU, í Þýskalandi vegnaði vel í
kosningunum í Hessen á sunnudag
þrátt fyrir þau vandræði, sem
flokkurinn hefur átt í vegna leyni-
reikninga Helmuts Kohls, fyrrver-
andi kanslara.
Bráðabirgðatölur um kosninga-
úrslitin sýna, að kristilegir demó-
kratar fengu 39,6% atkvæða eða
6,6 prósentustigum meira en í
kosningunum fyrir fjórum árum.
„Þetta er mikill sigur fyrir
CDU,“ sagði Laurez Meyer, fram-
kvæmdastjóri flokksins, í gær og
bætti við, að niðurstaðan væri gott
veganesti fyrir flokkinn í kosning-
unum í Rheinland-Pfalz og Baden
Württemberg næsta sunnudag.
Hessen var á síðasta ári vettvang-
ur rannsóknar á leynireikningum
Kohls og ólöglegri fjármögnun
Kristilega demókrataflokksins og
lagt var að Roland Koch, forsætis-
ráðherra sambandslandsins, að
segja af sér þegar í ljós kom, að
sumir frammámenn í flokknum
réðu yfir leynireikningum erlendis.
Græningjar og Lýðveld-
isflokkur töpuðu
Jafnaðarmannaflokkur Gerhards
Schröders kanslara varð nú í öðru
sæti með 38,2% en hann bætti þó
við sig 0,2 prósentustigum frá síð-
ustu kosningum. Græningjar, sam-
starfsflokkur jafnaðarmanna í rík-
isstjórn, fékk nú 8,7%, tapaði 2,3
prósentustigum, og hinn hægri-
sinnaði Lýðveldisflokkur fékk
4,1%, tapaði 2,5 prósentustigum.
Búist er við, að endanleg úrslit
verði kunn á morgun.
Í borgarstjórakjörinu í Frank-
furt fékk Petra Roth, frambjóð-
andi CDU, 48,6% eða 14 prósentu-
stigum meira en Achim Vandreike,
frambjóðandi jafnaðarmanna.
Roth fékk þó 52% atkvæða í borg-
arstjórakosningunum árið 1995 og
vegna þess, að hún náði ekki
meirihluta verður kosið aftur milli
hennar og Vandreike 1. apríl næst-
komandi.
Virðist hafa gengið vel í
kosningum í Hessen
Frankfurt. Reuters.
CDU í Þýskalandi að jafna sig á leynireikningahneykslinu
ROMANO Prodi, forseti fram-
kvæmdastjórnar Evrópusambands-
ins, lýsti áhyggjum sínum í gær vegna
þeirrar tilhneigingar Svía að forðast
ósætti. Svíar fara með formennsku í
ESB fyrri hluta árs og í lok vikunnar
verður fyrri leiðtogafundur samb-
andsins af tveimur haldinn í Svíþjóð.
Sagði Prodi að vegna linku sænskra
stjórnvalda væri hætta á að engin nið-
urstaða fengist á fundinum, aðeins ný
markmið.
Prodi lýsti þessu yfir á blaða-
mannafundi í gær en sænska stjórnin
hefur enn ekki brugðist við yfirlýs-
ingum hans. „Á leiðtogafundinum í
Lissabon voru bæði sett markmið og
teknar ákvarðanir. Það er hætta á að
við verðum að láta okkur nægja
markmið í Stokkhólmi,“ sagði Prodi.
Hann hefur sent yfirvöldum aðild-
arríkja ESB bréf þar sem hann legg-
ur fram kröfur um ákvarðanir á fjölda
sviða, m.a. um að ákveðin verði dag-
setning þegar einokun einstakra ríkja
á rafmagns- og gasmarkaði verði af-
numin. Auk þess krefst hann þess að
aðildarríkin samþykki nýjar reglur
sem auðvelda eiga myndun innri fjár-
málamarkaðar ESB.
Leiðtogafundur ESB í Stokkhólmi
hefst á föstudag og lýkur um hádegi á
laugardag. Rætt verður hve vel aðild-
arríkjunum hafi gengið að uppfylla
þau markmið sem sett voru á leið-
togafundinum í Lissabon fyrir ári, en
þá var samþykkt að eftir 10 ár yrði
Evrópa samkeppnishæf við Banda-
ríkin án þess að það kæmi niður á vel-
ferðarkerfinu.
Ræða á hvernig aðildarlöndunum
hefur gengið að ráða niðurlögum at-
vinnuleysisdraugsins og auka tölvu-
og tæknikunnáttu, ýta undir nýsköp-
un í atvinnulífi, styðja rannsóknir og
margt fleira. Fullyrt er í Svenska
Dagbladet að Göran Persson, for-
sætisráðherra Svíþjóðar, muni helst
vilja komast hjá því að átök á Balk-
anskaga og kreppa í landbúnaði,
vegna kúariðu og gin- og klaufaveiki,
yfirtaki fundinn. Ólíklegt er talið að
Persson verði að ósk sinni. Þá mun
heimsókn Vladimírs Pútíns Rúss-
landsforseta án efa vekja athygli en
hann mun eiga stuttan fund með
ESB-leiðtogunum.
Mótmæli hafa verið undirbúin í
Stokkhólmi vegna fundarins. Eru
Attac-samtökin á meðal þeirra sem
hyggjast standa fyrir þeim en Dagens
Nyheter vakti fyrir skemmstu athygli
á því að skipuleggjendum þeirra hefði
orðið illilega á í messunni því mót-
mælin áttu að hefjast skömmu eftir að
fundinum lýkur á laugardaginn, þar
sem sú tímasetning var talin myndu
henta mótmælendunum betur. Búist
er við að þau verði færð fram.
Prodi sak-
ar Svía
um linku
Kaupmannahöfn. Morgunblaðið.
MINNINGARATHÖFN var haldin
í gær um rússnesku flugfreyjuna
Júlíu Fomina, en hún lét lífið
þegar tsjetsjenskir uppreisn-
armenn rændu rússneskri far-
þegaþotu í síðustu viku. Ætt-
ingjar, vinir og samstarfsfólk
Fomina kom saman í Moskvu og
þotan, sem ræningjarnir sneru til
Sádi-Arabíu, kom einnig þangað í
gær. Þrír létu lífið þegar sádi-
arabískir sérsveitarmenn réðust
til inngöngu í þotuna og frelsuðu
um 100 farþega og 11 áhafnarliða
sem enn voru um borð.
AP
Minningarathöfn í Moskvu
MARY Robinson,
mannréttindafull-
trúi Sameinuðu
þjóðanna (SÞ), hef-
ur óvænt tilkynnt
að hún sækist ekki
eftir því að gegna
starfinu annað
tímabil, að því er
greint er frá á
fréttavef breska
ríkisútvarpsins,
BBC. Fjögurra ára
starfstímabili henn-
ar lýkur í septem-
ber nk.
Robinson er fyrr-
verandi forseti Ír-
lands. Um ástæður
ákvörðunar sinnar sagði hún að
hún teldi sig geta fengið meiru
áorkað utan „hafta“ SÞ. Tilkynn-
ing Robinson kom háttsettum
starfsmönnum og dipl-
ómötum á óvart, því
talið var að hún myndi
fylgja dæmi annarra
fulltrúa SÞ og sækjast
eftir öðru starfstíma-
bili.
„Ég mun halda
áfram að starfa af full-
um kröftum að mann-
réttindamálum,“ sagði
Robinson. „Ég tel að ég
geti, við núverandi að-
stæður, náð meiri ár-
angri utan þeirra hafta
sem fjölþjóða samtök
óhjákvæmilega setja.“
Hún sagði að Kofi
Annan, framkvæmda-
stjóri SÞ, hefði ráðlagt sér að
„vera áfram utangarðsmaður“ en
starfa innan samtakanna eftir því
sem kostur væri.
Robinson sækist ekki
eftir öðru tímabili
Mary
Robinson
FORSETI Argentínu, Fernando de
la Rua, hefur tilkynnt myndun þjóð-
stjórnar í þeim tilgangi að binda
enda á pólitíska og efnahagslega
kreppu í landinu. Greint er frá þessu
á fréttavef breska ríkisútvarpsins,
BBC.
De la Rua sagði í sjónvarpsávarpi í
gær að hann myndi fara þess á leit
við þingið að stjórninni yrðu veitt
aukin völd vegna ástandsins í land-
inu. Bætti hann því við að frekari
fregnir af stjórninni yrðu veittar
fljótlega.
Kreppa skall á í argentínskum
stjórnmálum í síðustu viku þegar þá-
verandi efnahagsráðherra kynnti
umfangsmikla samdráttaráætlun
sem leiddi til þess að hver ráð-
herrann á fætur öðrum sagði af sér.
Tilgangur áætlunarinnar var að
stemma stigu við efnahagskreppu í
landinu.
De la Rua sagði að hlutverk sitt
sem forseta væri að skapa nýtt
stjórnmálakerfi. Allir stjórnmála-
flokkar hefðu brugðist við á „ábyrg-
an“ hátt við beiðni sinni um myndun
þjóðstjórnar, og sýnt „föðurlands-
ást“.
Þjóðstjórn
mynduð í
Argentínu