Morgunblaðið - 20.03.2001, Page 27
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. MARS 2001 27
DONALD Rumsfeld, varnarmála-
ráðherra Bandaríkjanna, gefur til
kynna í viðtali við The Daily Tele-
graph að Bandaríkjastjórn hafi enn
miklar áhyggjur af áformum ríkja
Evrópusambandsins um að koma
upp sameiginlegum hersveitum. Efa-
semdir varnarmálaráðherrans grafa
undan ummælum Tonys Blairs, for-
sætisráðherra Bretlands, sem kvaðst
vera fullviss um að Bandaríkjastjórn
styddi evrópsku hersveitirnar eftir
að hafa rætt við George W. Bush
Bandaríkjaforseta í síðasta mánuði.
Rumsfeld varar við því í viðtalinu,
sem birt var á sunnudag, að áformin
um evrópsku hersveitirnar geti vald-
ið „óstöðugleika“ í Atlantshafs-
bandalaginu. Blaðamaðurinn og rit-
höfundurinn Winston Churchill,
fyrrverandi þingmaður breska
Íhaldsflokksins, tók viðtalið og
spurði Rumsfeld hvort rétt væri að
Bandaríkjastjórn væri „afslöppuð“ í
afstöðunni til samkomulags ESB-
ríkjanna um stofnun evrópsku her-
sveitanna sem náðist á leiðtogafundi í
Nice í fyrra.
Varnarmálaráðherrann svaraði
þessu ekki játandi og sagði: „Ég
hygg að rétt sé að segja að forsetinn
sagði það sem hann sagði um málið
og hann skilur það. Eins og í svo
mörgu í lífinu liggur hættan í smáat-
riðunum. Og ekki hefur enn verið
gengið frá smáatriðunum.
Ég hef varið miklum tíma með
NATO og í að hugsa um NATO og ég
verð að segja að ég ætla sjálfur að
fylgjast grannt með því hvernig
þetta þróast því við eigum svo mikilla
hagsmuna að gæta í bandalaginu. Við
verðum að vera á varðbergi og sjá til
þess að ekkert verði gert sem geti
valdið óstöðugleika í bandalaginu.
Það gæti skipt miklu máli hvernig
skipulagningunni verður háttað.
Verði hún með þeim hætti að ekki
verði litið til langs tíma og þeirra
vandamála sem gætu orðið, þá kann
það að stofna mjög sérstökum
tengslum í hættu.“
Ummæli bandaríska varnarmála-
ráðherrans eru talin áfall fyrir Tony
Blair sem reyndi að sannfæra Bush
um að Atlantshafsbandalaginu staf-
aði ekki hætta af áformunum um
stofnun evrópsku hersveitanna þeg-
ar þeir komu saman í Bandaríkjun-
um fyrir mánuði. „Hann fullvissaði
mig um að NATO yrði meginleiðin til
að viðhalda friði í Evrópu,“ sagði
Bush eftir viðræðurnar. Ráðgjafar
forsetans hafa þó áhyggjur af viðauk-
um við Nice-samkomulagið þar sem
tekið er fram að Evrópusambandið
eigi að stjórna aðgerðum evrópsku
hersveitanna.
Sakar íhaldsmenn um að ala á
tortryggni Bandaríkjastjórnar
Blair sakaði breska Íhaldsflokkinn
um að ala á tortryggni bandarísku
stjórnarinnar gagnvart áformum
Evrópusambandsins. „Þegar íhalds-
mennirnir fara þangað hella þeir eitri
í eyru Bandaríkjastjórnar og segja
að þetta snúist allt um að kljúfa
NATO, þetta sé franskt samsæri um
að valda óstöðugleika . . . ,“ sagði Bla-
ir í viðtali við The Sunday Telegraph.
„Í hvert sinn sem ég útskýri varn-
armálastefnu Evrópusambandsins
fyrir Bandaríkjamönnum skilja þeir
hana og styðja hana að lokum. En
þetta er allt liður í skelfilegum leið-
angri íhaldsmanna sem fara þangað
og segja: „Markmið stjórnar Verka-
mannaflokksins er að rjúfa tengsl
Bretlands við Bandaríkin“,“ bætti
Blair við.
Forsætisráðherrann viðurkenndi
þó að nokkur ESB-ríki kynnu að hafa
í hyggju að „eyðileggja NATO“ og
talið er að hann hafi einkum átt við
Frakka. „Ef við eigum ekki aðild að
varnarmálastefnu Evrópusambands-
ins verður henni framfylgt án Bret-
lands. Þá verður hún undir stjórn
þeirra sem kunna að hafa það að
markmiði að eyðileggja NATO.“
Varnarmálaráðherra Bandaríkjanna
tekur ekki undir ummæli Blairs
Áhyggjur af
evrópsku her-
sveitunum
The Daily Telegraph.
Donald Rumsfeld, varnarmála-
ráðherra Bandaríkjanna.